Fréttablaðið - 15.12.2022, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 15.12.2022, Blaðsíða 8
Hafsbotn undir sjókvíum í Dýrafirði er ekki steindauður, segir ráðgjafi Artic Fish. Bent er á að fyrirtækið annist sjálft eftirlit og sýnatökur. odduraevar@frettabladid.is SJÁVARÚTVEGUR Daníel Jakobsson, ráðgjafi hjá Arctic Fish og fyrrver- andi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, hafnar því alfarið að hafsbotn undir sjókvíum fyrirtækisins í Dýrafirði sé steindauður líkt og Elvar Örn Frið riks son, fram kvæmda stjóri Verndar sjóðs villtra laxa stofna, full- yrti á Fréttavaktinni á Hringbraut á dögunum. Vísar hann til sýnatöku á svæðinu. Segir Elvar að fyrirtækið fari í raun sjálft með slíkar sýnatökur og hefur sent Fréttablaðinu myndir, sem hann segir vera af botninum, teknar í júlí í ár, og séu því nýrri en þær sýnatökur sem fyrirtækið vísar til. Elvar segir myndirnar hafa valdið titringi innan Umhverfisstofnunar sem lítið geti gert því hendur stofn- unarinnar séu bundnar. Athygli veki að fyrirtækið tali ekki um þá 80 þúsund eldislaxa sem sloppið hafi. Daníel segir sýnatökurnar hins vegar gerðar af ábyrgum aðilum. Fyrirtækið sinni öllum lögbundn- um skyldum sínum. „Það er í það minnsta ekkert sem bendir til þess að botninn í Dýrafirði sé steindauð- ur,“ segir Daníel og bendir á niður- stöður úr sýnatökum sem finna má á vef Umhverfisstofnunar máli sínu til stuðnings. Þar vísar Daníel til tveggja sýna sem tekin voru við sjókvíar fyrir- tækisins að Gemlufalli. Annað var tekið í júlí 2021 og hitt í nóvember 2021. Í skýrslu um síðari sýnatökuna segir meðal annars að engin áhrif séu á lífríkið undir sjókvínni miðað við sýnatöku. „Við erum skuldbundnir til að taka þessar sýnatökur samkvæmt starfsleyfinu okkar og það er þriðji aðili sem gerir þær. Svo koma nátt- úrulega MAST og Umhverfisstofnun líka í úttektir hjá okkur. Á þessu ári fórum við athugasemdalaust í gegnum allt í Dýrafirði á öllum okkar staðsetningum í úttektum frá báðum aðilum. Auðvitað getum við ekki fullyrt að menn séu ekki að vinna vinnuna sína, en þetta eru aðilar sem eru að skila inn gögn- unum til ríkisstofnana þannig að maður skyldi nú ætla það.“ Varðandi myndirnar sem Frétta- blaðið hefur undir höndum og sem Segja hafsbotninn ekki dauðan en Arctic Fish sagt stunda eigið eftirlit Ráðgjafi Arctic Fish segir fiskeldisfyrirtækið sinna öllum lögbundnum skyldum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Daníel Jakobs­ son, ráðgjafi hjá Arctic Fish Þó að Umhverfis- stofnun sé eftirlitsaðil- inn þurfa þau að treysta á sýni og tölur frá innra eftirliti fyrir- tækjanna. Elvar Örn Frið­ riks son, fram­ kvæmda stjóri Verndar sjóðs villtra laxa­ stofna kristinnpall@frettabladid.is ALÞJÓÐAMÁL Þjóðarleiðtogar Evr- ópusambandsríkjanna ákveða í dag hvort Bosnía Hersegóvína fái stöðu aðildarríkis hjá Evrópusambandinu eftir að ráðherraráð Evrópusam- bandsins gaf Bosníu meðmæli sín í vikunni. Ef af verður bætist Bosnía við hóp umsóknarríkja þar sem einn- ig eru Albanía, Norður-Makedónía, Moldóva, Serbía, Svartfjallaland, Tyrkland og Úkraína. Oliver Varhelyi, stækkunarstjóri ESB, gaf til kynna í vikunni að það væri ekkert lengur því til fyrirstöðu að Bosnía fengi stöðu umsóknar- ríkis og bætti við að hann hefði fulla trú á því að Bosnía myndi fallast á kröfur Evrópusambandsins um samfélagslegar breytingar. n Átta ríki eru í umsóknarferli hjá ESB. benediktboas@frettabladid.is STJÓRNSÝSLA Utanríkisráðuneytið hefur beðið um tíma til 4. janúar til að svara fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um hvaða dagblöðum, tímaritum og öðrum miðlum ráðu- neytið og stofnanir og aðrir aðilar sem heyra undir það séu í áskrift að. „Ráðuneytið tilkynnir hér með að úrvinnsla fyrirspurnarinnar hefur reynst tímafrekari en ætlað var,“ segir í bréfi ráðuneytisins til Birgis Ármannssonar, forseta Alþingis. n Þurfa tíma til að finna áskriftir Bosnía gæti færst nær aðild að ESB Það tekur langan tíma að safna áskriftum saman. Elvar segir vera af sjávarbotninum undir sjókvíum í Dýrafirði, segir Daníel ekki hægt að segja til um það hvar myndirnar hafi verið teknar. „Það blasir þannig við okkur, í fyrsta lagi, að við vitum ekki hvar þessar myndir voru teknar. Í annan stað vitum við ekki hvernig botninn leit þarna út þar sem þessar myndir voru teknar áður en eitthvert eldi fór af stað. Í þriðja lagi er ekki að okkar mati hægt að fullyrða það út frá þessu myndum að botninn sé stein- dauður.“ Hann segir alveg ljóst að sýnatök- urnar séu gerðar af ábyrgum aðilum. „Þeir skila skýrslum og það eru ekki gerðar athugasemdir við þær skýrsl- ur af hálfu MAST eða UST. Það er það lögbundna kerfi sem er til staðar og við fylgjum því náttúrulega bara í einu og öllu. Það eru þær kröfur sem eru settar á okkur, þannig að ég stend við að fullyrðing um það í frétt hjá þér að botninn í Dýrafirði sé stein- dauður, er röng. Alröng.“ Elvar segir að gagnrýni sín snúi fyrst og fremst að því að eftirlitið sé í höndum iðnaðarins sjálfs. Þá bendir hann á að myndefnið frá botninum sé nýrra en þær sýnatökur sem Arctic Fish vísi til. „Við erum alla vega með mynd- efni sem sýnir hvernig botninn lítur út þarna 13. nóvember 2021 og svo aftur 12. júlí 2022,“ segir Elvar. „Það sem meira er, þetta mynd- efni rataði til Umhverfisstofnunar og Umhverfisstofnun hefur ekki lagalega heimild til þess að fara sjálf og taka sýni, heldur þurfa þau – lögin eru sett þannig upp – að þó að Umhverfisstofnun sé eftirlitsaðilinn þurfa þau að treysta á sýni og tölur frá innra eftirliti fyrirtækjanna eða undirverktakafyrirtækja. Sem mér finnst svolítið merkilegt.“ Þá segir Elvar það vekja athygli að fyrirtækin beini athyglinni frá þeim eldislöxum sem sýnt hafi verið fram á að hafi sloppið úr kvíunum í Arnar- firði. „Þau ræða bara þennan eina hluta af viðtalinu en bera engin kennsl á þessi 80 þúsund laxa sem sluppu eða umhverfisábyrgð fyrirtækjanna sem var aðalefni viðtalsins.“ n 8 Fréttir 15. desember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.