Fréttablaðið - 15.12.2022, Síða 43

Fréttablaðið - 15.12.2022, Síða 43
Auður Ava segist ekki ætla að skipta sér neitt af framleiðsluferli kvik- myndarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI tsh@frettabladid.is Tökur eru hafnar suður í Pýrenea- fjöllum á kvikmynd sem byggð er á skáldsögu Auðar Övu, Ör sem kom út 2016. Heiti bíómyndarinnar er Hotel Silence en það er einmitt heiti skáldsögunnar á ensku og fleiri tungumálum. „Ég hef fengið nokkur tilboð í bókina, það hafa nokkrir fram- leiðendur og leikstjórar viljað gera mynd eftir henni en ég hef svo- lítið dregið lappirnar og sagt nei. Ég var svona erfiður höfundur en svo er ég nú að róast í því og lagast,“ segir Auður Ava en þetta er fyrsta kvikmyndin sem er gerð eftir bók hennar. Leikstjóri myndarinnar er Léa Pool sem er þekktur svissneskur- kanadískur leikstjóri með langan feril að baki. „Ég hef lengi verið aðdáandi kana- dískra leikstjóra og mér finnst þeir vera að gera alveg rosalega f lottar myndir í frönskumælandi Kanada, sérstaklega þeim megin. Ég þekkti til verka Léu Pool þannig að ég sagði bara já,“ segir Auður Ava. Með aðalhlutverk fer kanadíski leikarinn Sébastien Ricard sem hlotið hefur fjölmörg verðlaun auk þess sem svissneska leikkonan Lorena Handschin fer með hlutverk. Tökutímabilið er frá nóvember 2022 til febrúar 2023 en gert er ráð fyrir að kvikmyndin verði frum- sýnd í árslok 2023. Spurð um hvort hún verði eitthvað viðriðin fram- leiðsluna segir Auður Ava: „Þetta er annað hvort eða hjá mér. Annað hvort segi ég nei, en þegar ég segi já þá læt ég þetta algjörlega í hendurnar á öðrum listamönnum. Leikstjórinn Léa Pool er hokin af reynslu og hún gerir handritið og ég veit í sjálfu sér ekkert um hennar áherslur.“ Ör hlaut Íslensku bókmennta- verðlaunin og Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs og hefur verið þýdd á mörg tungumál. Auður Ava segir þetta vera þá bók hennar sem vakið hefur hvað mestan áhuga á alþjóðavísu. n Upptökur hafnar á kvikmynd eftir bók Auðar Övu Ólafur Jóhann Ólafsson nýtur fá- dæma vinsælda sem rithöfundur. tsh@frettabladid.is Skáldsagan Játning eftir Ólaf Jóhann Ólafsson trónir í fyrsta sæti á met- sölulista Eymundsson fjórðu vikuna í röð. Játning hefur notið mikilla vinsælda frá því hún kom út í haust en bókin fjallar um tvo íslenska námsmenn, Elísabetu og Benedikt, sem kynnast í Leipzig skömmu fyrir hrun múrsins. Þau fella hugi saman en líf þeirra tekur óvænta stefnu þegar yfirvöld fara að sýna þeim áhuga. Áratugum síðar neyðist Elísabet skyndilega til að minnast þessara löngu liðnu daga sem hún vill síst af öllu rifja upp. Glæpasögurnar fylgja fast á hæla Játningu en bókin Reykjavík eftir Ragnar Jónasson og forsætisráð- herrann Katrínu Jakobsdóttur situr áfram í öðru sæti. Í þriðja sæti er 26. bók Arnaldar Indriðasonar Kyrrþey og í fjórða sæti er einn helsti keppi- nautur Arnaldar, Yrsa Sigurðardóttir með bókina Gættu þinna handa. n Listinn er byggður á sölu í verslun- um Pennans Eymundsson dagana 7. til 13. desember. 1. Játning Ólafur Jóhann Ólafsson 2. Reykjavík glæpasaga Ragnar Jónasson og Katrín Jakobsdóttir 3. Kyrrþey Arnaldur Indriðason 4. Gættu þinna handa Yrsa Sigurðardóttir 5. Hamingja þessa heims Sigríður Hagalín Björnsdóttir 6. Bannað að ljúga Gunnar Helgason 7. Eden Auður Ava Ólafsdóttir 8. Tól Kristín Eiríksdóttir 9. Keltar: Áhrif á íslenska tungu Þorvaldur Friðriksson 10. Guli kafbáturinn Jón Kalman Stefánsson Játning áfram söluhæsta bókin Húðbókin eftir Láru G. Sigurðardóttur og Sólveigu Eiríksdóttur hefur að geyma upplýsingar um allt sem þarf til að við- halda heilbrigði og ljóma húðarinnar umhirða og æfingar • girnilegar mataruppskriftir  •  uppskriftir að húðvörum GÓÐUR LÍFSSTÍLL, BETRI HÚÐ , Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið 10–19 alla daga til jóla | www.forlagid.is LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA FIMMTUDAGUR 15. desember 2022 Menning 31FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.