Morgunblaðið - 18.08.2022, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2022
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Heilsuræktarkeðjan World Class hef-
ur stytt afgreiðslutíma stöðvarinnar í
Árbæ. Nú lokar stöðin klukkan 20 í
stað 22 á virkum dögum og klukkan
13 í stað 16 á laugardögum. Þá verður
stöðin nú lokuð á sunnudögum. Áður
var opið til klukkan 13 á sunnudögum.
Komast af með tvo starfsmenn
Björn Leifsson, framkvæmdastjóri
og einn eigenda fyrirtækisins, segir í
samtali við Morgunblaðið að ástæðan
fyrir styttingu af-
greiðslutímans sé
að það sé erfitt að
fá starfsfólk.
„Þetta er lausn á
því þar sem við er-
um með aðrar
stöðvar í næsta
nágrenni,“ segir
Björn.
Spurður að því
hvort til standi að
stytta opnunartíma annarra stöðva
segir Björn það ekki á döfinni.
Fleiri en fimm hundruð manns
vinna hjá World Class að sögn
Björns.
Ekki beintengd lauginni
Hann ítrekar að gestir stöðvarinnar
hafi áfram aðgang að Árbæjarlaug
sem haldi sínum opnunartíma óbreytt-
um. „Við erum ekki beintengd lauginni
þarna eins og á öðrum stöðvum. Fólk
kemst í laugina áfram þó lokað sé hjá
okkur hinum megin götunnar.“
Gengið vel í Dalshrauni
Sú breyting hefur einnig orðið í
stöð World Class í Dalshrauni í Hafn-
arfirði að hún er orðin starfsmanna-
laus að mestu leyti. „Þetta er algengt
erlendis. Það er gott myndavélakerfi.
Svo kemur starfsmaður öðru hverju
með eftilit og annar sem þrífur dag-
lega. Það hefur gengið mjög vel þá tvo
mánuði sem þetta fyrirkomulag hefur
verið við lýði. Þetta hentar vel fyrir
minni stöðvar.“
Um það hvort að fleiri stöðvar verði
starfsmannalausar í framtíðinni segir
Björn það ekki standa til. „Við viljum
helst geta veitt sem besta þjónustu
alls staðar. En í dag er erfitt að fá
starfsmenn. Það er mesti höfuðverk-
urinn.“
Fólk hugsar nú öðruvísi
Spurður um ástæðu þess að erfitt
sé að fá fólk til starfa segir Björn að
mikill uppgangur í ferðaþjónustunni
ráði þar miklu. Til dæmis hafi margir
í þeim aldurshópi sem sótt hefur í
störf hjá World Class fengið vinnu hjá
flugfélögunum. „Við eigum það sam-
merkt með þeim að krakkarnir hafa
sóst eftir að vinna hjá okkur, enda er
þetta skemmtilegur vinnustaður,“
segir Björn.
Afgreiðslutími styttur í Árbæ
Morgunblaðið/Unnur Karen
Æfingar Björn Leifsson segir að World Class vilji geta veitt sem besta þjónustu alls staðar en starfsmannaskortur hafi leitt til styttingar opnunartíma.
- Erfitt að fá fólk í vinnu - Starfsmannalaus líkamsræktarstöð World Class í Dalshrauni í Hafnarfirði
- 500 vinna hjá félaginu - Afgreiðslutími sundlaugar óbreyttur - Aðrar stöðvar í næsta nágrenni
Björn Leifsson
Eins og sagt var frá í ViðskiptaMogganum í nóvember á
síðasta ári hyggst World Class byggja 8.400 fermetra
byggingu á Fitjum, mitt á milli Keflavíkur og Njarðvíkur.
Byggingin mun bæði hýsa World Class-stöð og fjögurra
stjörnu heilsuhótel. Auk þess verður starfsemin tengd
baðlóni, útisturtum og heitum pottum, gufum og potti
sem sérstaklega er hugsaður fyrir sjósund.
Björn segir að enn sé beðið eftir samþykkt að-
alskipulags á svæðinu. Þegar það verði tilbúið sé ekkert
að vanbúnaði að hefja framkvæmdir. „Við erum með und-
irritað kauptilboð á lóðinni við bæinn. Ég reikna með að
aðalskipulagið verði samþykkt á næstu vikum og þá verði
endanlegur kaupsamningur undirritaður. Það er erfitt að
fara í hönnun og framkvæmdir fyrr en allt er undirritað.“
Björn segir að baðlónin verði þrjú, hvert um sig 800
fermetrar. Hótelið verði 100 herbergja. „Með því að hafa
þrjú lón er alltaf hægt að halda einu opnu yfir kaldasta
tímann. Við fáum ekki nægt vatn til að hafa öll þrjú opin
þegar kaldast er yfir
vetrartímann. Þetta
er ákveðin leið til að
spara vatnið.“
Framkvæmdin
mun kosta nálægt
tíu milljörðum
króna að sögn
Björns. Hann segir
að fjármögnun eigi
ekki eftir að verða vandamál. Nú þegar hafi sjóðir sett sig
í samband við hann vegna hennar. „Ég mun byrja á að
ræða við minn viðskiptabanka.“
Björn segir að bæjaryfirvöld sé mjög ánægð með verk-
efnið, enda sé búið að samþykkja það bæði í bæjarstjórn
og bæjarráði. „Það skiptir miklu máli fyrir bæinn að fá
ferðamenn til að koma í auknum mæli inn í bæinn. Það
njóta öll fyrirtæki á svæðinu góðs af því.“
Beðið eftir aðalskipulagi
NÝ WORLD CLASS STÖÐ, HÓTEL OG BAÐLÓN Í REYKJANESBÆ
Framkvæmd 8.400 fm. bygging.
Tölvuteikning/ Úti Inni Arkitektar
Útsölustaðir: Apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna.
„Rauðrófuduftið frá Natures Aid veitir mér aukinn kraft og orku, mér finnst ég
afkasta mun meira á æfingum en venjulega.
Ég mæli með BEETROOT fyrir alla, sérstaklega íþróttafólk.“
Bjarni Jakob Gunnarsson þríþrautakappi.
• 100% náttúruleg rauðrófa í hylkjum
• Meiri orka og meira úthald
• Sannkö
NÁÐU HÁMARKS
ÁRANGRI!
lluð ofurfæða
Nú finnur
þú það sem
þú leitar að
á FINNA.is
IÐNAÐARMENN VERSLANIR
VEITINGAR VERKSTÆÐI
BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA