Morgunblaðið - 18.08.2022, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 18.08.2022, Blaðsíða 48
48 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2022 www.gilbert.is VELDU ÚR MEÐ SÁL FRISLAND 1941 50 ÁRA Þórey er Reykvíking- ur, ólst upp í Breiðholti en býr í miðbænum. Hún er viðskipta- fræðingur að mennt frá HÍ og MBA frá HR & CEIBS. Hún er annar eigenda Empower ásamt Dögg Thomsen sem þær stofn- uðu fyrir tveimur árum. „Em- power er nýsköpunarfyrirtæki í jafnréttislausnum og við vorum að fá 300 milljóna króna fjár- mögnun í vor sem við erum að nýta til að þróa hugbúnað sem hjálpar fyrirtækjum og stofn- unum til að ná utan um jafnrétti og fjölbreytni á vinnustöðum og fer á alþjóðlegan markað 2023.“ Þórey hefur komið víða við í stjórnunarstöðum á ferlinum en hefur einnig einbeitt sér að úti- vist síðustu árin. Hún er í sjósundshópnum Marglyttunum sem synti boðsund yfir Ermarsund 2019 til að vekja athygli á plastmengun í sjó og svo gekk hún yfir Vatnajökul 2020 með kvennahópi á vegum Lífskrafts sem styrkir krabba- meinsdeildina á Landspítalanum. „Þegar ég er ekki að vinna stunda ég útivist, sund, hlaup, hjól, fjallgöngur, utanvegahlaup, fjallaskíði og gönguskíði, bæði með manninum mínum og vina- hópi. Svo ferðast ég mikið. Við hjónin vorum í Colorado í apríl þegar maðurinn minn átti afmæli. Þar eru mjög flott skíðasvæði og gaman að skíða en sonur minn er í námi þar. Þess vegna fórum við þangað. Við förum síðan til Marra- kesh og svo Sitges daginn eftir afmælið mitt og ætlum að vera þar í nokkra daga.“ FJÖLSKYLDA Eiginmaður Þóreyjar er Magnús Orri Marínarson Schram, f. 1972, framkvæmdastjóri Rauðukamba. Börn Þóreyjar eru Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson, f. 1998, og Ragnheiður Ríkharðsdóttir, f. 2005. Börn Magnúsar Orra eru Sigríður María Egilsdóttir, f. 1993, og Hallmar Orri Schram, f. 1999. Foreldrar Þóreyjar: Hjónin Vilhjálmur Óskarsson, f. 1952, d. 2021, og Elín- borg Proppé, f. 1954. Hún er búsett í Kópavogi. Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þér verður hrósað mikið fyrir árang- ur þinn í starfi og átt það svo fyllilega skilið. Leggðu þig fram um að sýna sjónarmiðum annarra þá virðingu sem þú vilt þér til handa. 20. apríl - 20. maí + Naut Hagaðu máli þínu svo að enginn sé í vafa um hvað þú vilt. Greindu kjarnann frá hisminu og einbeittu þér að aðalatriðunum. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þú átt auðvelt með að ná til ann- arra og það hjálpar þér að koma þínum mál- um fram. Hóf er best á hverjum hlut og það á við um það sem gert er í eigin þágu. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Viðkvæmt mál ber á góma og þótt þér sé mikil raun að ræða álit þitt á því verð- urðu að gera það. Hertu upp hugann og reyndu að halda þínu striki. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Það kann eitt og annað að koma þér á óvart í dag. Það getur valdið misskilningi ef þú ferð of hratt fram með þín mál. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Sláið öllum þýðingarmiklum samn- ingaviðræðum á frest því þetta er ekki rétti dagurinn til þess að standa í ströngu. Dragðu bara djúpt andann. 23. sept. - 22. okt. k Vog Það vefst fyrir þér að ganga frá máli sem þér hefur verið falið að leiða til lykta. Það er hætt við að samskipti þín við fólki í valdastöðum gangi ekki nógu vel í dag. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þú ert rómantísk manneskja og í dag verður þessi eiginleiki þinn áberandi. Öll samskipti þín við aðra ganga að óskum í dag. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Forðastu allar skyndiákvarðanir, sérstaklega á sviði fjármála. Hlustaðu á það sem sagt er við þig, það gæti komið þér að góðum notum. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Það er engin ástæða til þess að fela allar sínar tilfinningar. Temdu þér virð- ingu fyrir sjónarmiðum annarra. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Sumt af því sem þú ert að reyna að afreka er mjög djarft, kannski af því að þú veist að það mun hefja keðjuverkun og líf þitt verður aldrei samt. Fylgdu innsæi þínu. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Láttu ekki þörfina fyrir félagsskap blinda þig svo að þú sýnir ekki aðgæslu í umgegngi við ókunnuga. Smá samkeppni gæti valdið uppþoti. og starfsþjálfun hjá norrænni sam- kirkjulegri stofnun í Sigtuna. Þar kynntist hann mörgu góðu fólki en var gjörsamlega óráðinn um fram- Hreinn tók þátt í leiksýningum leikklúbbsins í Hagaskóla og sótti leiklistarnámskeið hjá Ævari R. Kvaran. Hann hafði hug á því að ger- ast leikari og sótti um leiklistarskóla í Svíþjóð. Það gekk ekki eftir. Síðan fór hann í Kennaraskólann og lauk þar kennaraprófi og nokkru síðar stúdentsprófi utanskóla, kenndi þann vetur með náminu í Hvassaleit- isskóla í Reykjavík. Hann kenndi á Selfossi í tvo vetur og tók þátt í störfum Leikfélags Selfoss. „Sá tími er einkar dýrmætur í minningunni og starfið í leikfélaginu var mennt- andi og þroskandi.“ Árið 1976 hóf Hreinn nám í guð- fræði og lauk því 1981. Námið í deildinni var ógleymanlegt, kenn- arar og samstúdentar. „Ég var ekki alinn upp í kristinni trú en ömmu- systur mínar höfðu stundum guðs- orð á vörum. Þær ráku saumastofu og saumuðu kjóla á hefðarfrúr bæj- arins. Á einum veggnum á sauma- stofunni voru þrjár myndir, ein af Ólafi Thors, ein af séra Bjarna Jóns- syni og ein af frelsaranum. Þetta voru þeirra menn. Allt stórmenni.“ Eftir að guðfræðináminu lauk fór Hreinn til Svíþjóðar og var í náms- É g get verið mjög þakk- látur fyrir þau ár sem eru að baki þótt á ýmsu hafi gengið,“ segir Hreinn Há- konarson, „kannski þakklátur fyrir að hafa lifað af og ekki síst fyrir að lífið skyldi svo leiða mig á góðar slóð- ir – hvað er betra en góð eiginkona, börn og barnabörn?“ Hreinn fæddist 18. ágúst 1952 í Reykjavík og ólst upp á Hverfisgötu, Grímsstaðaholtinu og Öldugötu. „Það var fátækt á mínu heimili og húsnæðið á Grímsstaðaholtinu var kallað Grimsbý og þau sem þar bjuggu kölluð Grimsbýlýður og voru ekki hátt skrifuð í samfélaginu,“ seg- ir Hreinn. Í Grimsbý bjó fólk við kröpp kjör, fátækt fólk og sumt var óreglufólk, félagslegar aðstæður voru daprar og á ýmsu gekk þar. „Það var undarleg æska sem ég átti þarna og minningar óskýrar um margt.“ Leiksvæðið var Grímsstaðaholt og þar í kring voru íbúðabraggar. Þá stóð bygging Háskólabíós og Hótels Sögu yfir á svipuðum tíma og grunn- ar þeirra voru mikill ævintýra- heimur. „Það sem bjargaði mér úr þessum uppeldiseldi var að ég átti góða móður sem hélt alltaf ró sinni,“ segir Hreinn, „og ömmu og ömmu- systur sem bjuggu í Kvosinni.“ Í augum barnsins hafi þær búið í öðr- um heimi. Þá var föðurbróðir hans, Haraldur Guðmundsson fasteigna- sali, systkinunum ómetanleg hjálp- arhella þegar þungt var fyrir fæti á heimilinu. „Við systkinin vorum sex að tölu og faðir okkar var fjarlægur faðir og oft ógnandi og hann þekkti ég lítið sem ekki neitt.“ Hreinn segir að árin í Melaskóla séu góð í minningunni og hafi hann varið miklum tíma í bókasafninu í skólanum hjá Sigvalda kennara sem tók mikið í nefið. „En skólanámið var dálítið skrykkjótt, Melaskólaárin, því það uppgötvaðist ekki fyrr en í tólf ára bekk að ég sá ekki á töfluna. Hafði þó fengið gleraugu sjö ára en þau týndust fljótt og sjóndepran gleymdist öllum og sjálfum mér. Það var dálítil upplifun að sjá allt í einu skýrt á töfluna.“ tíðina og slysaðist svo til á Hviids Vinstue í Kaupmannahöfn að sækja um Söðulsholtsprestakall á Snæ- fellsnesi. „Það var mikið gæfuspor sem ég sé ekki eftir, æðri hand- leiðsla á sérstökum stað. Þessi ár fyrir vestan voru ein mín bestu ár – paradísarár. Kona mín, Sigríður Pétursdóttir, kenndi við Laugargerðisskóla og börnin komu í heiminn. Sveitaprestsþjónustan gekk vel fyrir sig og kynni af sveita- menningunni voru háskóli út af fyrir sig en í sveit hafði ég aldrei verið fyr- ir utan eitt ár á Reykjadalsheimilinu í Mosfellsdal fyrir börn sem áttu for- eldra í vanda.“ Hreinn var prestur í Söðulsholts- prestakalli 1982-1993, fangaprestur 1993-2019 og frá 2019 sérþjónustu- prestur á Biskupsstofu. Árin 26 í fangaprestsþjónustunni reyndu stundum á en þau voru gefandi. „Hörmulegar uppeldisaðstæður margra fanga voru sjálfum mér ekki ókunnar og því taldi ég mig geta skilið þá þokkalega og vona að ég hafi gert það,“ segir Hreinn. Hreinn sat m.a. í stjórn Presta- félags Íslands í átta ár og jafnlengi á kirkjuþingi. Hann sat í stjórn Vernd- ar í áratugi og sem formaður í tíu ár og ritstjóri Verndarblaðsins í rúman áratug. „Ég hef nóg að gera þó að starfs- lok blasi við,“ segir Hreinn. „Síðast- liðinn vetur hóf ég listfræðinám í Háskóla Íslands og fer af fullum krafti áfram í það í haust.“ Hreinn er ritstjóri og eigandi vefblaðsins Kirkjublaðið.is og hefur því verið vel tekið af áhugasömu fólki um kirkju- mál og guðfræði. Hreinn býr undir Esjurótum á Kjalarnesi – hefur búið þar í rúman aldarfjórðung. Tengdaforeldrar hans hófu þar trjárækt fyrir hálfri öld og hann og kona hans sinna því verki núna. „Þar er ætíð nóg að gera. Engin verkefni fara frá þér, þau eru þarna og þú ert hér – svo er bara að sjá hvert hugur þinn leiðir þig þenn- an daginn eða hinn. Svo er ég ham- ingjusamur, og það er allnokkuð, og fæ að vera eins og ég er.“ Hreinn og Sigríður verða í Halle í Þýskalandi á afmælisdaginn. Hreinn Hákonarson, sérþjónustuprestur og ritstjóri Kirkjublaðsins.is – 70 ára Með barnabörnunum Hreinn og Sigríður ásamt barnabörnum um síðustu ára- mót. Frá vinstri: Arna Sigríður, Vigdís Mirra, Hreinn með Ferdinand Pétur, Sigríður með Hönnu Rakel, Sigríður Saga, Herdís, Petra Ósk og Haraldur Ingi. Engin verkefni fara frá þér Afmælisbarnið Hreinn. Til hamingju með daginn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.