Morgunblaðið - 18.08.2022, Blaðsíða 53
MENNING 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
chicaco sun times
New york times
Bráðfyndin og skemmtileg gamanmynd
fyrir alla fjölskylduna með uppistandaranum
Jo Koy í aðalhlutverki
B
andaríski kvikmyndaleik-
stjórinn Jordan Peele
kvaddi sér eftirminnilega
hljóðs með hrollvekjunni
Get Out árið 2017, taugatrekkjandi
allegóríu um kynþáttahatur í Banda-
ríkjunum. Sagði hún af ungum svört-
um manni sem heldur með hvítri unn-
ustu sinni í glæsihýsi foreldra hennar
úti á landi. Allt virðist í lukkunnar vel-
standi en eitthvað er þó bogið við
hegðun hinna hvítu, þeir eru hrein-
lega of vingjarnlegir og of uppteknir
af kynþætti gests síns og menningu.
Grunur kærastans reynist á rökum
reistur, eitthvað djöfullegt er á seyði
og eitthvað hryllilegt í vændum.
Næsta mynd Peeles, Us, var að sama
skapi allegóría og ádeila á ofbeldis-
dýrkun og stéttaskiptingu í Banda-
ríkjunum. Titillinn líka tvíræður, bæði
hægt að skilja hann sem „við“ og sem
„US“, þ.e. United States eða Banda-
ríkin. Um leið lék Peele sér með minn-
ið um tvífarann, „doppelgänger“, þar
sem tvífarar aðalpersóna myndar-
innar reyndu að myrða frummynd-
irnar. Var myndin öllu tormeltari en
frumraun Peeles og sú þriðja, Nope,
er jafnvel erfiðari að melta, sem hefur
sína kosti og galla. Það er alltaf gam-
an að leysa þrautir en þær mega ekki
vera of erfiðar, hvað þá óleysanlegar.
Hvað er eiginlega á seyði?
„Nope“ útleggst á íslensku sem
„neibb“ og orðið kemur fyrir nokkrum
sinnum í myndinni, á stundum þegar
veruleikinn er orðinn svo furðulegur
og ógnvekjandi að réttast er bara að
segja „neibb“ og þá í merkingunni að
neibb, þetta er bara ekki að gerast.
Það bara getur ekki verið! En júbb,
þetta er að gerast, eins ótrúlegt og
það nú virðist í augum aðalpersóna og
bíógesta. Myndin hefst á stórfurðu-
legu og ógnvekjandi atriði þar sem
simpansi gengur berserksgang í
myndveri sjónvarpsstöðvar. Hann er
útataður blóði og greinilegt að margir
liggja í valnum. Skór stendur upp á
rönd líkt og honum sé haldið uppi af
ókunnu afli. Bíógestir fara strax að
klóra sér í höfðinu. Hvað er eiginlega
á seyði?
Víkur sögunni næst að búgarði þar
sem hestar eru ræktaðir og tamdir
fyrir tökur á kvikmyndum og sjón-
varpsþáttum. Þar búa og starfa af-
komendur fyrsta mannsins sem fram
kom í hreyfimynd, þeldökks knapa á
hesti á sögufrægum ljósmyndum
Edwards Muybridge. Á þennan for-
föður sinn minna afkomendur hans í
kynningu á tökustað við litlar und-
irtektir viðstaddra og áhugaleysi.
Eru áhorfendur með því minntir á
stöðu svartra í kvikmyndabrans-
anum, að þeir hafi ýmist litla athygli
fengið eða hreinlega ekki fengið að
vera með nema sem aðstoðarmenn
eða þjónar hinna hvítu.
Þegar fjölskyldufaðirinn deyr eftir
að fá óvæntan hlut í höfuðið þarf son-
ur hans, OJ (Kaluuya), að taka við
rekstrinum. Hann er dulur og and-
stæða systur sinnar, orkuboltans Em
(Palmer), sem virðist hugsa meira um
að koma sjálfri sér á framfæri en að
bjarga búgarðinum. Í nágrenni bú-
garðsins er fjölskyldugarður helg-
aður villta vestrinu og þurfa systkinin
að selja eiganda hans, Ricky Park
(Yeun), nokkra hesta til að greiða upp
skuldir. Park er fyrrverandi barna-
stjarna úr sjónvarpi og ekki allur þar
sem hann er séður og dag einn birtist
einkennilegur hlutur á himni sem
gæti bæði reynst systkinunum gull-
náma og ógnað tilveru þeirra.
Best að vita sem minnst
Nú hef ég farið eins varlega og ég get
í að lýsa söguþræðinum enda er
myndin þess eðlis að lítið má segja
frá því sem fyrir augu ber til að spilla
ekki fyrir. Það gerist ekki oft að
myndir komi manni jafnhressilega á
óvart og þessi og stiklugerðarmenn
samtímans virðast margir hverjir
reyna sitt besta þegar kemur að því
að skemma fyrir manni væntanlegar
kvikmyndir. Því er best að vita sem
minnst um Nope og helst ekki horfa á
stiklu eða lesa dóma.
Peele leikur sér að kvikmynda-
forminu og oftar en ekki með áhuga-
verðum hætti. Hrollvekjan er Peele
sem fyrr hugleikin og nokkur góð
hryllingsatriði prýða myndina. Nokk-
ur eru líka annars eðlis en þau í
fyrstu virðast og stundum stutt í
glensið hjá leikstjóranum. „Þú hélst
að þetta væri svona mynd en ónei,
hún er sko ekki svona!“ gæti Peele
hafa hugsað með sér við handrits-
skrifin og glott við tönn. Eina stund-
ina minnir myndin á sígildar hroll-
vekjur á borð við Shining eða Jaws og
aðra á geimverumyndir á borð við
Close Encounters of the Third Kind.
Þegar öllu er á botninn hvolft gætu
skilaboð myndarinnar verið þau að
ögra ekki hinu óþekkta eða halda að
maður geti beislað náttúruna, eitt-
hvað í þá veru. Myndin gæti líka verið
ádeila á þörf okkar fyrir afþreyingu,
hvað sem hún kann að kosta. Túlka
má þessa torkennilegu kvikmynd á
ýmsa vegu og undir hverjum og ein-
um komið hvort sú hugarleikfimi er
skemmtileg á endanum eða bara pirr-
andi. Ég naut myndarinnar og nú,
mörgum dögum eftir að hafa séð
hana, er ég enn að velta henni fyrir
mér. Það hljóta að vera meðmæli þótt
ekki sé Nope gallalaus kvikmynd.
Knapi Daniel Kaluuya í hlutverki OJ á hestbaki í Nope og í bakgrunni sést Keke Palmer sem leikur systur hans, Em.
Neibb, getur ekki verið!
Smárabíó, Háskólabíó, Laugar-
ásbíó og Sambíóin í Egilshöll,
Álfabakka og Keflavík
Nope bbbmn
Leikstjórn og handrit: Jordan Peele.
Aðalleikarar: Daniel Kaluuya, Keke
Palmer, Brandon Perea, Michael Win-
cott og Steven Yeun. Bandaríkin, 2022.
130 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Þýski kvik-
myndaleikstjór-
inn Wolfgang
Petersen er lát-
inn, 81 árs að
aldri, af völdum
krabbameins.
Petersen var
einkum þekktur
fyrir drama-
tískar spennu-
myndir sínar, þeirra á meðal Das
Boot en kom þó við í fleiri greinum
kvikmynda og leikstýrði til að
mynda ævintýra- og barnamynd-
inni The Neverending Story. Af
öðrum myndum má nefna Troy, Air
Force One og In the Line of Fire.
Das Boot var fyrsta kvikmyndin
sem vakti heimsathygli á Petersen
en hún gerist um borð í þýskum
kafbáti í seinni heimsstyrjöldinni.
Hlaut hún lof gagnrýnenda og
mikla aðsókn auk þess að vera til-
nefnd til sex Óskarsverðlauna.
Næsta mynd Petersens var hin
gjörólíka en sígilda The Neverend-
ing Story og fyrsta mynd hans með
ensku tali. Sló hún að sama skapi í
gegn. Petersen hlaut fjölda verð-
launa og tilnefninga á ferli sínum
og vann með margri kvikmynda-
stjörnunni.
Wolfgang Petersen
látinn, 81 árs
Wolfgang Petersen
Hin alþjóðlega pí-
anóhátíð Vest-
fjarða, Westfjords
Piano Festival
eins og hún nefn-
ist á ensku, hófst í
gær og stendur
yfir til og með 21.
ágúst. Verða tón-
leikar haldnir á
Patreksfirði,
Tálknafirði og Ísafirði. Píanóleik-
ararnir sem fram koma eru Myung
Hwang Park, Peter Toth og Andrew
J. Yang. Yang er stofnandi hátíð-
arinnar og býr á Patreksfirði. Hann
er fæddur og uppalinn í Kaliforníu
og leggur stund á doktorsnám í
píanóleik við USC Thornton School
of Music í Los Angeles.
Dagskrá hátíðarinnar má finna á
icelandpianofestival.com.
Píanóhátíð hafin
á Vestfjörðum
Andrerw J. Yang