Morgunblaðið - 18.08.2022, Blaðsíða 43
MINNINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2022
✝
Ingrid Back-
man Björns-
dóttir fæddist í
Reykjavík 22. októ-
ber 1949. Hún lést á
heimili sínu í
Reykjavík 30. júlí
2022.
Foreldrar henn-
ar voru Elsa Viola
Backman, f. 21.
nóvember 1924, d.
21. júlí 2016, og
Björn Emil Björnsson, f. 4. febr-
úar 1924, d. 10. júlí 2003. Ingrid
var næstelst fjögurra systkina.
Systkini hennar eru Sigurbjörn
Ernst, f. 11. mars 1948, Katrín
Súsanna, f. 11. desember 1950,
Anna Soffía, f. 10. nóvember
1953, og Elsa Birna, f. 19. sept-
ember 1960.
Ingrid eignaðist þrjá syni,
þeir eru: 1) Steinarr Finnboga-
son, f. 10. nóvem
ber 1968, giftur
Heidi Wiinberg, f.
4. ágúst 1965. Dótt-
ir þeirra er Laura
Viktoria Wiinberg,
f. 1. júní 2003. 2)
Orri Freyr Finn-
bogason, f. 22. apríl
1980. 3) Ýmir Örn
Finnbogason, f. 22.
apríl 1980, í sam-
búð með Sigríði
Þóru Ásgeirsdóttur, f. 11. nóv-
ember 1978. Börn þeirra eru
Úlfur Orri, f. 28. september
2018, og Arnbjörg Ylfa, f. 15.
október 2020.
Ingrid var menntaður hjúkr-
unarfræðingur og bjó mestalla
tíð í Reykjavík.
Útför Ingridar fer fram frá
Fríkirkjunni í Reykjavík í dag,
18. ágúst 2022, kl. 15.
Elsku Ingrid, tengdamamma
mín og amma barnanna minna,
er látin. Farin frá okkur allt of
fljótt og hennar verður sárt
saknað.
Það er svo skrítið að þegar
við Ýmir vorum að byrja að
stinga saman nefjum fyrir um
sex árum kom í ljós að Ingrid
og pabbi minn höfðu verið vinir
í mörg ár. Ingrid var hjúkr-
unarfræðingur og hafði hjúkrað
pabba í spítaladvöl hans í kring-
um 1992. Þá vorum við Ýmir
auðvitað unglingar og mundi
bæði pabbi eftir þeim bræðrum,
Ými og Orra, og Ingrid mundi
eftir mér sem ungri stúlku í
ballett. Ég mundi líka eftir að
hafa heyrt af Ingrid vinkonu
pabba en aldrei höfðum við Ým-
ir hist. Það var því auðsótt og
auðvelt mál þegar við Ýmir
eyddum fyrstu jólunum okkar
saman að sameina fjölskyldur
okkar með pabba minn og
mömmu hans fremst í flokki og
hafa öll okkar jól verið með
þeim hætti síðan. Í þeim stund-
um eru nú geymdar dýrmætar
minningar.
Ingrid var einstaklega stolt
og ánægð með litlu ömmubörn-
in sín, Úlf Orra og Arnbjörgu
Ylfu, og veitti þeim mikla hlýju.
Henni var innilega annt um vel-
ferð þeirra og sá þau með feg-
urstu augum. Henni þótti mikið
til þeirra koma og fannst þau
auðvitað gáfuðust, fallegust og
best og þreyttist ekki á að segja
þeim, okkur eða öðrum hvað
henni fannst um þau. Hún var
yndisleg amma og fögnuðu
börnin mín henni ákaft þegar
þau hittust. Þá var knúsast.
Minningu ömmu Ingridar verð-
ur haldið á loft og fá börnin að
heyra af henni sögur um
ókomna tíð.
Ingrid hefur alltaf verið mér
einstaklega góð og ljúf og hef
ég fengið að heyra ófá hrós-
yrðin frá henni síðastliðin ár.
Ég geymi þau orð þakklát með
mér.
Ég leyfi mér að tala hér að-
eins til hennar beint.
Elsku Ingrid, takk fyrir okk-
ar kynni og hlýjuna sem þú hef-
ur sýnt mér og börnunum mín-
um. Ég lofa að halda áfram að
kaupa Janus-ullarföt á Úlf Orra
og Arnbjörgu Ylfu eins og þú
hefur séð um alla þeirra tíð. Ég
mun hugsa til þín í hvert sinn
sem ég klæði þau og segi þeim
frá því hvað þér var annt um að
þeim væri ávallt hlýtt og að
þeim liði vel. Ég mun líka hugsa
til þín í hvert sinn sem ég brýt
saman þvott enda var ég ósjald-
an að sinna því verki þegar þú
varst hjá okkur síðastliðin ár og
fannst þér ég standa mig sér-
staklega vel í því. Óvænt hrós
sem varð alltaf til að setja bros
á andlit mitt.
Ég lofa líka að hugsa vel um
gullmolana þína, bæði stóra og
smáa.
Ég vildi að við hefðum átt
fleiri góðar stundir saman og ég
vildi að við hefðum fengið að
hafa þig hjá okkur lengur. Ég
trúi því að þú vakir yfir okkur
öllum, strákunum þínum þrem-
ur og okkur öllum sem fylgja
þeim, og ég veit að þú munt
vernda litlu börnin okkar allra
áfram af einskærri ást og hlýju.
Þú ert nú hluti af englunum
okkar sem við hér tölum við á
hverju kvöldi fyrir svefninn.
Guð geymi þig elsku Ingrid.
Við sjáumst síðar.
Þín tengdadóttir,
Þóra.
Það er ólýsanlega erfitt að
kveðja þig elsku Ingrid. Við
sitjum hér saman þrjár og
hugsum til baka þegar við hitt-
um þig fyrst haustið 1973 í
Hjúkrunarskóla Íslands, við
urðum nánar vinkonur og verið
æ síðan.
Minningarnar streyma fram.
Dagurinn sem við bárum þig
upp og niður stiga og yfir götu í
skólann því þú ætlaðir sko ekki
að missa af prófi vegna bak-
verkja. Hvað þú varst ófeimin
að láta skoðanir þínar í ljós, við
vorum nemar á spítölunum þeg-
ar læknar voru nánast í „guða-
tölu“ og þú gerðir þér strax
grein fyrir að hlutverk hjúkr-
unarfræðinga væri ekki síður
mikilvægt fyrir sjúklinginn.
Hvernig þér tókst að bræða
hörðustu deildarstjórana sem
mörgum stóð stuggur af og
dobla með þér í smók inn í bý-
tibúr. Hvað þér fannst hjúkr-
unarnámið oft „óþolandi lóg-
ískt“. Allar skemmtilegu
stundirnar á Þorfinnsgötunni
þar sem þú bjóst með Steinari
þínum einstæð móðir í fullu
námi. Það var ekki þinn stíll að
tvínóna við hlutina; að gera við
bíl, þvottavél, rafmagn, smíða
eða mála hristir þú fram úr
erminni og við stóðum agndofa.
Saumó varð til í Hjúkrunarskól-
anum og hittist enn reglulega.
Nematíminn er ógleymanleg-
ur og það sem við gátum hlegið.
Eftir útskrift stormuðum við
þrjár austur í Neskaupstað
ásamt Steinari sem hóf sína
skólagöngu og við vaktavinnu á
sjúkrahúsinu en alltaf passað að
ein „mamma“ væri heima. Þú
áttir heiðurinn af að gera heim-
ilislegt í kringum okkur. Þetta
fyrsta ár sem hjúkrunarfræð-
ingar var mikil áskorun þar
sem við stóðum oft einar vakt-
ina og vissum ekki hverju var
von á en töluðum oft um þennan
tíma sem okkar besta og hvað
við hefðum lært og orðið sjálf-
stæðar. Lífið var líka skemmt-
un; skíði, útilegur, bátsferðir,
ógleymanleg „kommablót“ og
þarna eignaðist þú vini fyrir
lífstíð.
Árin liðu við leik og störf, þú
lést til þín taka á ýmsum vinnu-
stöðum og búsetu í öðrum lönd-
um. Alltaf til í að prófa eitthvað
nýtt og fljót að kynnast nýju
fólki og komst þér ævinlega vel.
Þegar tvíburarnir þínir Ýmir
Örn og Orri Freyr bættust í
hópinn eignuðumst við hinar
þrjár hver sína stelpuna og oft
var mikið fjör, farið í útilegur
og ferðalög og jafnvel rennt fyr-
ir fisk, sem þér þótti einkar
skemmtilegt. Þú varst hrókur
alls fagnaðar í árlegum saumó-
partíum og fórst með í ferðir
áður fyrr.
Veikindi þín síðustu árin tóku
sinn toll af lífsgæðum þinum og
naustu þín betur í smærri hóp-
um en stærri, hittumst við fjór-
ar reglulega í hádegisverð og
áttum okkar gæðastundir.
Elsku Ýmir, Orri, Steinarr og
fjölskyldur, missir ykkar er
mikill. Hugur okkar er hjá ykk-
ur og leyfum ljúfum minningum
að ylja okkur.
Aðalbjörg (Alla),
Þóra og Ragnheiður.
Ingrid Backman
Björnsdóttir
Harpa Heimisdóttir
s. 842 0204
Brynja Gunnarsdóttir
s. 821 2045
Kirkjulundur 19 | 210 Garðabær
s. 842 0204 | www.harpautfor.is
Bróðir minn,
GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON,
fyrrverandi sýningarstjóri
Borgarleikhússins,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli þriðjudaginn
9. ágúst. Jarðarförin fer fram í kyrrþey.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Skjóls fyrir góða
umönnun.
Fyrir hönd ættingja,
Bjarni Guðmundsson
Elsku maðurinn minn, faðir okkar, afi,
langafi og langalangafi,
ÞORSTEINN KÁRASON,
Fróðengi 3,
lést laugardaginn 13. ágúst á
Landspítalanum við Hringbraut.
Útför fer fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Díana Ragnarsdóttir
Laufey Þorsteinsdóttir
Ragna Huldrún Þorsteinsd.
barnabörn, langafabörn og langalangafabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
ÞÓRÐUR HÖJGAARD JÓNSSON,
Sóltúni 7, 105 Reykjavík,
lést á Hrafnistu Sléttuvegi þriðjudaginn
9. ágúst. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 23. ágúst klukkan 13.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hrafnistu Sléttuvegi fyrir
góða umönnun.
Ingibjörg Ólafsdóttir Hjaltalín
Kristín Vilborg Þórðardóttir Ingi Björn Ágústsson
og barnabörn
Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi okkar og
langafi,
HÖRÐUR SIGURÐSSON
frá Ólafsfirði,
lést á dvalarheimilinu Hornbrekku
þriðjudaginn 5. júlí. Útför hefur farið fram.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á dvalarheimilið
Hornbrekku, Ólafsfirði.
Ottó Harðarson
Birgitta Sæmundsdóttir Þóra Björg Ottósdóttir
Inga Huld Ottósdóttir Marín Líf Snorradóttir
Andri Snær Aðalgeirsson Elín Rut Róbertsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
BJARNEY KRISTÍN VIGGÓSDÓTTIR,
Skúlagötu 20,
lést á Landakoti 26. júlí.
Útförin fer fram frá Lindakirkju
mánudaginn 22. ágúst klukkan 13. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Nýrnafélagið og Björgunarsveitina Ársæl.
Viggó Guðmundsson
Gunnar Ingi Guðmundsson Sigríður Kristinsdóttir
Torfi Fannar Gunnarsson Guðbjörg Tómasdóttir
Vala Bjarney Gunnarsdóttir Fjölnir Ólafsson
Eydís Helga Gunnarsdóttir
Bragi, Sigríður Salka og Flóra
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTJÁN GUÐBJARTSSON
BERGMAN,
Vesturbrún 39,
andaðist á heimili sínu umvafinn ástvinum
laugardaginn 30. júlí. Útför verður gerð frá Laugarneskirkju
fimmtudaginn 25. ágúst klukkan 13.
Þóranna Þórarinsdóttir
Þórarinn Jóhann Kristjánsson og Jónína Gísladóttir
Guðbjartur Kristján Kristjánsson Bergman
Vilborg Þóranna Kristjánsdóttir Bergman
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
JÓHANNA L. VILHJÁLMSDÓTTIR
HEIÐDAL,
síðast til heimilis í Rjúpnasölum 10,
lést miðvikudaginn 10. ágúst. Útför fer fram
föstudaginn 2. september klukkan 13 frá Árbæjarkirkju.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar,
er bent á Umhyggju (umhyggja.is), félag langveikra barna.
María Guðrún Waltersdóttir
Erla Waltersdóttir
Vilhjálmur H. Waltersson Helga E. Jónsdóttir
Hildur Waltersdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
ERLA STEFÁNSDÓTTIR,
Mýrum 3,
lést á sjúkrahúsinu á Hvammstanga 21. júlí.
Útför hennar hefur þegar farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Karl Guðmundsson Valgerður Kristjánsdóttir
Gunnlaugur F. Guðmundss. Guðrún S. Hálfdánardóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær sonur, stjúpsonur, bróðir okkar,
faðir og afi,
KRISTJÁN VALBY GUNNARSSON
frá Svefneyjum, Breiðafirði,
lést á heimili sínu, Þórðarsveig 1,
fimmtudaginn 5. maí.
Kristján verður jarðsunginn í Áskirkju 23.
ágúst klukkan 13.
Aðalheiður Lilja Sigurðardóttir
Basilia Jonsson
systkini, börn og barnabörn