Morgunblaðið - 18.08.2022, Page 44

Morgunblaðið - 18.08.2022, Page 44
44 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2022 ✝ Hólmsteinn Sigurðsson fæddist í Reykja- vík 26. október 1939. Hann lést á Hrafnistu Sléttu- vegi 27. júlí 2022. Foreldrar Hólm- steins voru Sigurð- ur Hólmsteinn Jónsson blikk- smíðameistari, f. 30. júní 1896 í Flatey á Breiðafirði, d. 1. des- ember 1985, og Sigríður El- ísabet Guðmundsdóttir hús- móðir, f. 28. maí 1898 á Gemlufalli Dýrafirði, d. 17. september 1976. Systkini Hólmsteins voru: Baldur, f. 30. september 1922, d. 1. maí 2000, blikksmiður og bifreiðastjóri; Magnús, f. 28. september 1925, d. 10. apríl 2017, læknir; Ólöf Helga, f. 22. nóvember 1928, d. 10. janúar 2019, tannlæknir. Hólmsteinn kvæntist eftirlif- andi eiginkonu sinni, Guðnýju Pétursdóttur bankastarfs- manni, f. 20. febrúar 1938, hinn 16. desember 1962. For- eldrar hennar voru Pétur Daníelsson hótelstjóri í Reykja- vík, f. 6. febrúar 1906, d. 22. júlí 1977, og Benedikta Jóns- dóttir húsmóðir, f. 8. maí 1908, vatnsveitustjóra í ágúst 1968. Hann gegndi því starfi til ára- móta 1999-2000 er hann varð vatnsveitustjóri allt þar til Vatnsveitan sameinaðist Orku- veitu Reykjavíkur. Eftir það vann hann í yfirstjórn Orku- veitunnar þar til hann lét af stöfum vegna aldurs í lok októ- ber 2009. Hólmsteinn hóf feril sinn í íþróttum hjá handknattleiks- deild Vals og lék með meist- araflokki liðsins árin 1956 og 1957. Þá hóf hann að æfa körfubolta og lék með meist- araflokki ÍR frá 1959-1972 ásamt því að vera liðsstjóri ár- in 1973-1977. Á þessu tímabili varð hann margfaldur Íslands- meistari með ÍR og lykilmaður í öllu starfi félagsins. Hólmsteinn var öflugur leik- maður á báðum endum vall- arins. Hann lék 17 landsleiki fyrir Íslands hönd árin 1961- 1966. Þá vann hann óeig- ingjarnt starf í þágu Körfu- knattleikssambands Íslands (KKÍ) þar sem hann var kosinn í stjórn árið 1968 og sinnti for- mennsku 1969-1973. Síðar varð hann formaður ÍR, árin 1986- 1993. Útför Hólmsteins fer fram frá Seljakirkju í dag, 18. ágúst 2022, klukkan 13. d. 19. apríl 1983. Börn Hólmsteins og Guðnýjar eru Pétur, f. 9. mars 1963, og Edda Sig- ríður, f. 24. októ- ber 1967. Hennar sonur er Heimir Skúli Guðmunds- son, f. 6. október 1986, í sambúð með Sigrúnu Mar- íu Kvaran, f. 18. febrúar 1977. Börn Sigrúnar eru Soffía, f. 11. ágúst 2008, og Róbert Óli, f. 15. október 2012. Hólmsteinn ólst upp í fjöl- skylduhúsi á Mímisvegi 6, Reykjavík, þar sem þau hjónin bjuggu sín fyrstu ár hjúskapar ásamt börnum sínum. For- eldrar Hólmsteins bjuggu líka í húsinu og systkini hans hófu einnig búskap þar. Af Mímis- vegi flutti fjölskyldan í Foss- voginn og svo byggðu þau hús í Seljahverfi þar sem eftirlif- andi kona Hólmsteins býr enn. Hólmsteinn varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1959. Eftir það lá leiðin í Há- skóla Íslands í viðskiptafræði og lauk hann námi árið 1968. Hólmsteinn hóf störf hjá Vatnsveitu Reykjavíkur sem skrifstofustjóri og staðgengill Þakklæti er mér efst í huga þegar ég kveð þig elsku pabbi minn. Þakklát fyrir allan stuðn- inginn í gegnum árin og sam- kennd okkar. Þú varst kletturinn í lífi mínu, alltaf til staðar. Ég gat ávallt leitað til þín, hvort sem það var til ráðlegginga í sambandi við nám, íbúðarkaup eða bara lífið sjálft. Þú hjálpaðir mér að finna sjálf svörin en best fannst mér að finna að þú varst alltaf á hliðarlín- unni. Þú varst rólegur, traustur og alltaf tilbúinn með pabbabrand- ara. Stríðinn gastu verið en góð- látlegur. Takk fyrir alla körfu- boltaleikina sem við fórum á saman, sérstaklega á síðustu ár- um þegar þú varst orðinn lasinn. Þetta voru okkar stundir. Skíða- ferðinar í Bláfjöll og svo margt fleira. Þú stóðst þig vel í afahlut- verkinu og áttuð þið Heimir minn einstakt og fallegt samband enda margt líkt með ykkur. Við pabbi áttum afmæli með tveggja daga millibili og við kölluðum þetta litlu jólin. Ég mun halda áfram að halda upp á litlu jólin okkar. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að vinna í mörg ár með þér, bæði hjá Vatnsveitunni og Orkuveitunni. Þá kynntist ég annarri hlið á þér, sem var frábært. Þú varst rólegur, þrautseigur og ráðagóður. Hvíl í friði elsku pabbi, minning um góð- an mann lifir. Ég sé þig fyrir mér í golfi og körfubolta, alsæll að geta þetta allt aftur. Þín dóttir, Edda. Elsku afi. Nú ertu kominn á betri stað þar sem alltaf er sól, létt gola og golfvellirnir eru grænir. Takk fyrir allt, listinn er of langur til að telja upp hér. Í stað þess langar mig að rifja upp skemmti- lega sögu, það var alltaf stutt í léttleikann hjá þér. Ég man þegar afi var nýbúinn að kaupa sér golfbíl til að styðja við iðkun á sínu helsta áhugamáli, þá vildi hann ólmur skutla mér heim á golfbílnum. Frá Seljahverfi yfir í efri byggðir Kópavogs. Það þurfti ekki mikið til að sannfæra mig um að hugmyndin væri góð og taka rúntinn á golfbíl eftir göngu- stígum í gegnum nokkur íbúðar- hverfi í stað þess að fara á venju- legu ökutæki. Golfbílar eru hljóð- látir og komum við gangandi vegfarendum í opna skjöldu brun- andi eftir göngustígunum. Kona með geltandi smáhunda kallaði reiðilega á eftir okkur og sá gamli lenti í sömu konunni á bakaleið- inni. Þetta fannst honum hið mesta ævintýri og kæmi mér ekki á óvart ef ferðirnar hefðu verið fleiri. Heimir Skúli Guðmundsson. Í dag kveð ég kæran frænda og nafna, Hólmstein Sigurðsson. Hólmsteinn var yngsti bróðir móður minnar, Ólafar Helgu Sig- urðardóttur Brekkan, og ríktu alla tíð sérstök tengsl og mikill kær- leikur milli þeirra enda hafði mamma oft orð á því að hún hefði nú alið Steina bróður upp. Mamma fylgdist með íþróttaferli Steina, klippti oft fréttastúfa og myndir af bróður sínum sem birt- ust í blöðum eftir sigra ÍR eða landsliðsins í körfubolta. Steini var einlægur áhugamaður um körfubolta og tryggur leikmaður með ÍR þar sem hann varð Ís- landsmeistari mörg ár í röð, hann spilaði einnig oft með landsliðinu í körfubolta. Hólmsteinn bjó að einstakri manngæsku, hlýhug og rósemd. Hann var hjálpsamur, hógvær og vann öll sín verk af kostgæfni. Ekki man ég til að hann hafi nokkurn tíman hampað afrekum símun á íþróttasviðinu þrátt fyrir að hafa átt mikinn heiður skilinn fyrir sína þátttöku og árangur. Víst er að ÍR hefur búið, og býr enn, að óeigingjörnu starfi hans í þágu uppbyggingar félagsins og æskulýðsstarfi. Frá mínum fyrstu minningum og alla tíð síðan ávarpaði hann mig iðulega sem „nafna“ eða Hólmstein þriðja. Sem barn þótti mér Steini vera mikill töffari og hafði gaman af að fara í bíltúra með honum og Pétri frænda í gula Zodiacinum og síðar í Falconin- um, sem þóttu eðalkaggar. Það kemur fyrir að mig dreymir dú- andi fjöðrunina þegar hratt var keyrt á gamla flugvallarveginum til Nauthólsvíkur. Oftar en ekki var komið við í Blikksmiðju Reykjavíkur sem þá var við Lind- argötu. Þar réð afi Hólmsteinn ríkjum og var það nokkuð sér- stakt að ganga upp palisanders- klæddan þröngan stigaganginn upp á skrifstofu þar sem afi bauð iðulega upp á ískalt maltöl og oft banana (sem hann hafði sérstakt dálæti á). Þegar afi, Sigurður Hólm- steinn Jónsson, féll frá tók Hólm- steinn við rekstri Blikksmiðju Reykjavíkur og hélt utan um reksturinn þar til starfsemi var hætt fyrir nokkrum árum. Hólmsteinn starfaði lengi hjá Vatnsveitu Reykjavíkur þar sem hann var skrifstofustjóri um ára- tuga skeið. Það var alltaf ánægju- legt að heilsa upp á hann hjá Vatnsveitunni og fann maður vel fyrir sterkri samheldni og góðum starfsanda á staðnum. Vatnsveit- an var honum mjög kær og ég held ég geti með sanni sagt að hann hafi þekkt nær alla starfs- menn með nafni, sama hvar innan fyrirtækisins þeir unnu. Alla tíð áttum við góð samskipti og samstarf enda var Hólmsteinn einstaklega vel gerður maður með létta lund og ávallt reiðubúinn að aðstoða eða vera til staðar eftir mætti og aðstæðum. Það er missir og eftirsjá að Hólmsteini og sam- hryggist ég eiginkonu hans Guð- nýju, börnunum Pétri og Eddu Siggu og barnabarninu Heimi Skúla, sem hann alla tíð hélt sér- staklega upp á. Nú er nafni minn Hólmsteinn horfinn af sjónarsviðinu, síðastur systkinanna fjögurra, en góðar minningar og tilfinning um nær- veru munu fylgja mér ókomin ár. Far í friði kæri frændi og ég veit það verður tekið vel á móti þér. Hólmsteinn Brekkan blikksmíðameistari. Nú er komið að því að kveðja gamlan vin. Ég man varla eftir Vatnsveitunni öðru vísi en Hólm- steinn stæði þar og stjórnaði fjár- málunum, og alltaf var hann til í að lána manni aðeins fram í tímann þegar þröngt var í búi. Við fórum svo seinna saman í það verkefni að færa Vatnsveituna inn í nútímann þegar ég tók við sem vatnsveitustjóri 1993, með því að setja upp gæðakerfi, skilgreina ferla og flytja fjármálin alfarið inn til veitunnar. Hólmsteinn tók svo við sem vatnsveitustjóri þegar ég hætti og fór til Orkuveitunnar. Samstarfi okkar var þó ekki lokið því þegar Vatnsveitan sam- einaðist Orkuveitunni kom Hólm- steinn með yfir og starfaði sem einn af aðstoðarforstjórum hennar meðan ég vann þar. Hann var öfl- ugur sem slíkur og aldrei þurfti að hafa áhyggjur af þeim þáttum sem honum tilheyrðu þar. Við Hólmsteinn áttum gott samstarf alla tíð, alt frá því þegar ég var ungur maður sem starfaði við verkamannastörf hjá Vatns- veitunni þá var alltaf hægt að leita til hans og ekki síður þegar ég tók við sem vatnsveitustjóri. Ég var mjög ungur fyrir starfið og aðrir framkvæmdastjórar borgarinnar flestir eða allir miklu eldir en ég. Hólmsteinn lét mig aldrei finna fyrir því að honum þætti ég ungur og óreyndur heldur studdi mig og mínar breytingar með ráðum og dáð alla tíð. Mér þótti vænst um að þegar ég hætti og margir vildu hverfa í gamla farið þá stóð hann enn með mér í því að innleiða breytingarnar og Vatnsveitan varð svo fræg í hans tíð fyrir að verða fyrsta vatnsveitan í heimin- um til að fá vottað HAZAP-gæða- kerfi fyrir matvæli, sem hafði verið skylda í nokkurn tíma. Hvíl í friði gamli vinur. Við Halldóra vottum fjölskyld- unni samúð á erfiðum tímum. Guðmundur Þóroddsson. Látinn er kær vinur og sam- starfsmaður í ÍR til margra ára. Hólmsteinn var ötull áhugamaður um öll mál er snertu starf félagsins og gegndi mörgum trúnaðarstörf- um fyrir ÍR. Samstarf okkar hófst er við settumst í stjórn félagsins 1977 og gegndi hann stöðu vara- formanns næstu átta árin eða til 1985. þetta voru erfiðir tímar fyrir félagið, en það hafði flutt starfsemi sína 10 árum áður í Breiðholtið og bjó við mjög frumstæð skilyrði. Hann var mjög áhugasamur um uppbyggingu á nýju svæði sem fé- lagið fékk úthlutað 1979 og fór nánast öll vinna stjórnarinnar í uppbyggingu svæðisins næstu ár- in. Þar naut félagið hans einstaka áhuga og hæfileika í fjármálum, enda lærður viðskiptafræðingur, því stjórnin þurfti að taka lán, með sjálfskuldarábyrgð stjórnarmeð- lima, því styrkir skiluðu sér seint og illa, en hann gekk yfirleitt frá öllum samningum um þessi lán. Hólmsteinn var afburða íþróttamaður og lék með körfu- knattleiksdeild ÍR frá 1959 til 1972 og varð margfaldur Íslandsmeist- ari með liðinu ásamt því að leika 17 landsleiki fyrir Íslands hönd á Hólmsteinn Sigurðsson Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EMIL L. GUÐMUNDSSON, Skúlagötu 40, Reykjavík, sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi sunnudaginn 7. ágúst, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstudaginn 19. ágúst klukkan 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Samhjálp. Jóna Lára Pétursdóttir Ellen Vestmann Emilsdóttir Emil Emilsson Steinunn Baldursdóttir Jóhannes G. Harðarson Guðný Baldursdóttir Lilja Margrét Hreiðarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ÁSTA SIGURRÓS SIGMUNDSDÓTTIR, Kársnesbraut 67, Kópavogi, lést mánudaginn 18. júlí á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð. Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 22. ágúst klukkan 13:00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarsjóð Lionsklúbbsins Ýrar, 0536-14-4762287, kt. 590287-1489. Júlíana Signý Gunnarsdóttir Örn Jónsson Óðinn Gunnst. Gunnarsson Auður Hallgrímsdóttir Anna Margrét Gunnarsdóttir Guðmundur Jóelsson Ásgeir Indriðason og fjölskyldur Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, TRYGGVI SVEINSSON, Hrauntungu 56, Kópavogi, sem lést laugardaginn 6. ágúst, verður jarðsunginn frá Digraneskirkju þriðjudaginn 23. ágúst klukkan 15. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög. Aðstandendur vilja færa Brákarhlíð sérstakar þakkir fyrir umönnunina. Fyrir hönd aðstandenda, Sólrún Tryggvadóttir Eiríkur Sveinn Tryggvason Steinunn Jónsdóttir Tryggvi Þór Tryggvason Gísli Tryggvason Okkar ástkæra VILBORG EINARSDÓTTIR lést umvafin ást og kærleik á krabbameinsdeild Landspítalans laugardaginn 13. ágúst. Útför hennar fer fram frá Vídalínskirkju mánudaginn 22. ágúst klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ljósið eða Kraft, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem hefur greinst með krabbamein. Vefstreymi frá útför má finna á youtu.be/8k5ohzudsSs Einnig má nálgast hlekk á streymi á mbl.is/andlat Hannes Rúnar Hannesson Guðný Hekla Hannesdóttir Hugrún Svala Hannesdóttir Guðný Pétursdóttir Guðmundur Stefán Maríusson Hlynur Rafn Guðmundsson Hrund Guðmundsdóttir Einar Steinsson Lena Hallgrímsdóttir María Dröfn Einarsdóttir Guðrún Guðmundsdóttir Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, GUÐMUNDUR HANSSON veitingamaður, Furuhjalla 5, Kópavogi, varð bráðkvaddur á heimili sínu föstudaginn 5. ágúst. Útför hans fer fram frá Digraneskirkju mánudaginn 22. ágúst klukkan 13. Haraldur Guðmundsson Bryndís Bjarnadóttir Albert Þór Guðmundsson Snædís Björt Agnarsdóttir Stefán Guðmundsson Guðbjörg Lilja Svavarsdóttir og barnabörn Sæunn Halldórsdóttir Sigrún Bryndís Hansdóttir Hrund Apríl Guðmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.