Morgunblaðið - 18.08.2022, Side 50

Morgunblaðið - 18.08.2022, Side 50
MEISTARADEILD Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Breiðablik og Valur hefja leik í 1. um- ferð Meistaradeildar kvenna í knatt- spyrnu í dag en Valur mætir Hayasa frá Armeníu í Radenci í Slóveníu í undanúrslitum fyrstu umferðarinnar klukkan 9 að íslenskum tíma. Sigurvegarinn úr þeirri viðureign mætir annað hvort Promurje frá Sólveníu eða Shelbourne frá Írlandi í úrslitaleik um sæti í 2. umferð keppn- innar hinn 21. ágúst í Radenci. Klukkan 16 að íslenskum tíma mætir Breiðablik svo Rosenborg frá Noregi í Þrándheimi í Noregi í und- anúrslitum en sigurvegarinn úr þeim leik mætir annað hvort Minsk frá Hvíta-Rússlandi eða Slovácko frá Tékklandi í úrslitaleik hinn 21. ágúst í Þrándheimi. Takist íslensku liðunum að komast áfram í 2. umferð keppninnar verða þau í pottinum þegar dregið verður í næstu umferð í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í Sviss 1. september. Í 2. umferðinni verða leiknir tveir leikir, heima og að heiman, en það lið sem fer með sigur af hólmi í einvíginu hlýtur sæti í riðlakeppni Meist- aradeildarinnar á komandi keppn- istímabili. Dregið verður í riðla í Meist- aradeildina hinn 3. október í Nyon í Sviss en riðlakeppnin verður leikin í október, nóvember og desember á þessu ári. Langt og strangt ferðalag „Þessi leikur gegn Hayasa leggst mjög vel í okkur,“ sagði Elísa Viðars- dóttir, fyrirliði Vals, í samtali við Morgunblaðið í gær. „Við vitum í rauninni lítið sem ekk- ert um andstæðingana en það er liðs- fundur hjá okkur seinni partinn þar sem við fáum einhverjar upplýsingar um mótherjana frá þjálfarateyminu. Við einblínum hins vegar fyrst og fremst á okkur sjálfar og við höfum trú á því að ef við höldum uppi sama takti og spilamennsku og við höfum verið að gera upp á síðkastið, þá sé engin spurning að við eigum að vinna þetta lið,“ sagði Elísa. Valsliðið mætti til Slóveníu á mánudaginn og hefur því fengið góð- an tíma ytra til þess að undirbúa sig fyrir leikinn. „Ferðalagið gekk mjög vel og við lögðum af stað aðfaranótt mánudags. Við vorum mættar til Radenci upp úr hádegi á mánudegi. Þetta var langt og strangt ferðalag og einn af kost- unum við það að koma svona snemma hingað er sá að við höfum fengið góð- an tíma til þess að ná ferðaþreytunni úr okkur. Við höfum líka fengið tíma til þess að aðlagast umhverfinu og venjast hitanum sem skiptir miklu máli en það er spáð í kringum 36° stiga hita á leikdegi, sem er svakalegt. Við skoð- uðum svo keppnisvöllinn í gær og ég get alveg viðurkennt það að þetta eru engar toppaðstæður. Við höfum klár- lega séð betri velli í gegnum tíðina en þetta er hlutur sem við höfum enga stjórn á og við erum því að fara að spila á besta velli í heimi á morgun.“ Stöngin út í fyrra Valsliðið er reynslunni ríkara frá síðustu leiktíð þar sem liðið féll úr keppni í 1. umferðinni eftir tap gegn þýska stórliðinu Hoffenheim. „Svona ævintýri gefur hópnum of- boðslega mikið. Þetta er annað árið sem við tökum þátt í þessari 1. um- ferð og það er hægt að gera meiri kröfur núna um árangur en í fyrra til dæmis. Svona ferðalag þéttir hópinn og það er mjög gaman að taka þátt í svona verkefni. Þessir leikir eru allt öðruvísi en þeir sem við erum vanar heima, þar sem maður þekkir nánast hverja einustu hreyfingu hjá öllum leikmönnum Bestu deildarinnar á Ís- landi. Við vorum nálægt því að komast áfram í fyrra en þá var þetta stöngin út hjá okkur. Maður fann það strax þá hversu tilbúnar við vorum að taka þátt í þessu aftur og setja markið hátt. Markmiðið er að sjálfsögðu að komast áfram í næstu umferð og við erum svo sannarlega með liðið og hópinn til þess að gera það.“ Mikið ævintýrasumar Elísa, sem er 31 árs gömul, var í leikmannahóp íslenska kvennalands- liðsins sem tók þátt í lokakeppni EM á Englandi í sumar en hún var í byrj- unarliði íslenska liðsins í 1:1- jafnteflinu gegn Ítalíu í Manchester hinn 14. júlí. „Þetta sumar hefur verið mikið ævintýri en það má alveg líta á það sem svo að þetta séu verðlaunin fyrir allt sem maður hefur lagt á sig í gegnum tíðina. EM og svo auðvitað þessi Meistaradeild eru augnablikin sem maður æfir fyrir. Þetta eru ótrú- lega skemmtilegir tímar sem maður er að upplifa núna í fótboltanum, þrátt fyrir að vera komin yfir þrítugt. Það eru algjör forréttindi að fá að taka þátt í svona verkefnum og þetta gefur manni klárlega byr undir báða vængi um að halda áfram í boltanum og á sömu braut. Það er líka ótrúlega gaman að geta miðlað sinni reynslu til yngri leikmanna og þannig hjálpað þeim að stíga sín fyrstu skref í þess- um Evrópubolta. Það er nefnilega styttra í bestu liðin en maður gerir sér oft grein fyrir,“ bætti Elísa við. Blikar reynslunni ríkari Breiðablik fór alla leið í riðla- keppni Meistaradeildarinnar á síð- ustu leiktíð, fyrst íslenskra liða, eftir samanlagðan 4:1-sigur gegn Osijek frá Króatíu í 2. umferð keppninnar. Í 1. umferðinni á síðustu leiktíð ferðuðust Blikar til Litháens þar sem liðið mætti KÍ frá Færeyjum í undan- úrslitunum en þar unnu Blikar 7:0- stórsigur í Siauliai. Liðið vann svo 8:1-sigur gegn Gintra frá Litháen í úrslitaleik 1. umferðarinnar. Blikar drógust svo í B-riðil Meist- aradeildarinnar í fyrra þar sem liðið mætti stórliði París SG frá Frakk- landi, Real Madrid frá Spáni og loks Kharkiv frá Úkraínu en Breiðablik endaði í fjórða og neðsta sæti riðilsins með eitt stig. Agla María Albertsdóttir var í lyk- ilhlutverki hjá Breiðabliki á síðustu leiktíð en hún gekk til liðs við Blika á láni frá sænska úrvalsdeildarfélaginu Häcken í lok júlí á þessu ári og er klár í slaginn með liðinu í Þránd- heimi. Eitt besta lið Noregs „Í þessum fyrstu umferðum Meist- aradeildarinnar er hver leikur nánast eins og bikarleikur, því ef þú tapar þá ertu bara úr leik, það er ekkert flókn- ara en það,“ sagði Agla María. „Rosenborg er með frábært lið og við mætum mun erfiðari andstæðingi núna en í fyrstu umferðinni í fyrra. Við þurfum að eiga okkar allra besta leik ef við ætlum okkur að ná í hag- stæð úrslit á móti þeim. Við erum búnar að fara mjög vel yfir þær og þetta er lið sem er með frábæra leik- menn innan sinna raða. Rosenborg er lið sem vill halda boltanum innan liðs- ins og þær spila boltanum mjög hratt fram völlinn. Þær vilja líka sækja hratt og þetta er eitt besta lið Noregs sem segir allt sem segja þarf um styrkleika liðsins. Við þurfum að vera hugrakkar og halda betur í boltann en við höfum verið að gera í síðustu leikjum. Það er oft þannig, gegn liðum sem sækja hratt fram völlinn, að það skapast ákveðið pláss fyrir aftan þau og það er klárlega nokkuð sem við þurfum að nýta okkur gegn þeim. Eins þurf- um við að nýta kantana vel ef við ætl- um okkur að refsa þeim,“ sagði Agla María. Einn leikur í einu Þrátt fyrir ungan aldur er Agla María á meðal reynslumestu leik- manna Blika en hún varð 23 ára göm- ul hinn 5. ágúst. „Það er klárlega gott að hafa gert þetta áður en á sama tíma erum við með mikið breytt lið frá því í fyrra til dæmis og það hafa orðið miklar breytingar á leikmannahópnum á undanförnum árum. Rosenborg sem dæmi hefur ekki mikla reynslu úr Meistaradeildinni og við erum líkleg- ast reynslumeiri en þær í keppninni. Hvort það hjálpar okkur í leiknum sjálfum þarf bara að koma í ljós. Þegar öllu er á botninn hvolft er ógeðslega gaman að taka þátt í þess- ari keppni. Ég er búin að upplifa það að spila í riðlakeppni Meistaradeild- arinnar og mig langar ótrúlega mikið að upplifa það aftur. Rosenborg er klárlega sterkasti andstæðingurinn í riðlinum og að vinna þær myndi setja okkur í góða stöðu en við erum líka meðvitaðar um það að ef við ætlum okkur að ná árangri í keppninni þá verðum við að einbeita okkur að ein- um leik í einu.“ Þurfa að leita allra leiða Síðasti leikur Blika í keppninni í fyrra var gegn þáverandi Frakk- landsmeisturum París SG hinn 16. desember í París en tímabilið á Ís- landi kláraðist hinn 1. október. „Ég held að það sé algjört lyk- ilatriði að lengja tímabilið hérna á Ís- landi ef við ætlum okkur að ná ár- angri í þessum Evrópukeppnum í framtíðinni. Það er líka mikilvægt að lengja tímabilið og spila fleiri leiki ef við ætlum okkur að halda í við þessi lið í Evrópu. Það eru oft á tíðum landsliðsverkefni á haustin og þeir leikmenn sem spiluðu á Íslandi í fyrra sem dæmi þurftu að leita allra leiða til þess að halda sér í formi fyrir landsleikjagluggana í október og nóvember á síðasta ári. Það er líka spilað mjög þétt á Ís- landi og maður spyr sig oft af hverju það sé ekki hægt að dreifa álaginu betur og lengja tímabilið. Und- anfarin ár hafa margir ungir og efni- legir leikmenn fengið tækifæri og stimplað sig rækilega inn í efstu deild. Það er líka mikilvægt fyrir þá að spila alvöruleiki og því fleiri leikir, því betra fyrir þá, til þess að halda áfram að þróast og þroskast sem knattspyrnumenn. Það er því enginn vafi á því í mínum huga að við þurf- um að leita allra leiða til þess að lengja tímabilið á Íslandi,“ sagði Agla María í samtali við Morg- unblaðið. Verðlaunin fyrir allt sem maður hefur lagt á sig Morgunblaði/Arnþór Birkisson Skot Agla María Albertsdóttir var í lykilhlutverki hjá Blikum í fyrra. - Agla María Albertsdóttir vonast til að endurtaka leikinn með Breiðabliki Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Skalli Elísa Viðarsdóttir og liðsfélgar hennar í Val eru reynslunni ríkari. Eitt ogannað 50 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2022 2. deild karla Magni – KF............................................... 1:2 Reynir S. – ÍR........................................... 0:0 Víkingur Ó. – Þróttur R........................... 3:3 Völsungur – Ægir..................................... 2:1 Haukar – Njarðvík ................................... 1:2 KFA – Höttur/Huginn............................. 0:5 Staðan: Njarðvík 17 14 1 2 49:16 43 Þróttur R. 17 11 3 3 37:23 36 Völsungur 17 9 5 3 38:25 32 Ægir 16 9 2 5 28:26 29 Haukar 16 6 6 4 25:19 24 Höttur/Huginn 17 5 6 6 30:25 21 ÍR 17 5 5 7 23:28 20 KF 17 4 6 7 30:37 18 KFA 17 5 3 9 29:42 18 Víkingur Ó. 17 4 5 8 30:34 17 Reynir S. 17 2 5 10 15:34 11 Magni 17 2 3 12 16:41 9 Meistaradeild karla 4. umferð, fyrri leikir: Qarabag – Viktoria Plzen ........................ 0:0 Maccabi Haifa – Rauða stjarnan............. 3:2 Dinamo Kiev – Benfica ............................ 0:2 England B-deild: Reading – Blackburn .............................. 3:0 - Jökull Andrésson var ekki í leikmanna- hópi Reading. Staðan: Blackburn 4 3 0 1 6:4 9 Hull 4 2 2 0 5:3 8 Watford 4 2 2 0 4:2 8 Sheffield Utd 4 2 1 1 6:4 7 Millwall 4 2 1 1 7:6 7 Cardiff 4 2 1 1 3:2 7 Preston 4 1 3 0 1:0 6 Reading 4 2 0 2 5:6 6 Blackpool 4 2 0 2 2:3 6 Rotherham 3 1 2 0 5:1 5 Sunderland 4 1 2 1 7:7 5 Birmingham 4 1 2 1 3:3 5 Burnley 4 1 2 1 3:3 5 Swansea 4 1 2 1 4:6 5 Bristol City 4 1 1 2 6:6 4 QPR 4 1 1 2 5:6 4 Norwich 4 1 1 2 4:5 4 Stoke 4 1 1 2 5:7 4 Wigan 3 0 3 0 2:2 3 Middlesbrough 4 0 3 1 7:8 3 Huddersfield 4 1 0 3 5:6 3 WBA 4 0 3 1 3:4 3 Luton 4 0 2 2 1:4 2 Coventry 2 0 1 1 3:4 1 Bandaríkin Los Angeles FC – DC United ................. 1:0 - Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leik- inn með DC United. 50$99(/:+0$ _ Enska knattspyrnufélagið Man- chester United hefur mikinn áhuga á að fa bandaríska sóknarmanninn Christian Pulisic í sínar raðir frá Chelsea. Gæti hann komið á láns- samningi út leiktíðina. United leitar að leikmönnum eftir ömurlega byrjun á tímabilinu og Pulisic er neðarlega í goggunarröðinni á Stamford Bridge. _ Þrír Íslendingar kepptu í tímatöku á Evrópumótinu í hjólreiðum í München í gær. Hafdís Sigurðardóttir og Silja Rúnarsdóttir urðu í 26. og 28. sæti í kvennaflokki. Hafdís kom í mark á tím- anum 34:58,81 mínútum og Silja á 35:44,78 mínútum. Í karlaflokki hafn- aði Ingvar Ómarsson í 30. sæti er hann kom í mark á 31:12,19 mínútum. Ingvar hafnaði í 111. sæti í hjólreiða- keppninni á sunnudag. _ Handknattleikskonan Eva Dís Sig- urðardóttir er gengin í raðir Stjörn- unnar frá Aftureldingu. Eva, sem er markvörður, hefur alla tíð spilað með Aftureldingu. Eva er 21 árs gömul og hefur verið aðalmarkvörður Aftureld- ingar síðustu ár, í efstu og næstefstu deild. Afturelding féll úr deild þeirra bestu á síðustu leiktíð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.