Morgunblaðið - 25.08.2022, Qupperneq 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2022
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
ur
.H
ei
m
sf
er
ði
rá
sk
ilj
a
sé
rr
ét
tt
il
le
ið
ré
tti
ng
a
á
sl
ík
u.
At
h.
að
ve
rð
ge
tu
rb
re
ys
tá
n
fy
rir
va
ra
.
595 1000 www.heimsferdir.is
Tenerife
Flug aðra leið til
9.900
Flug aðra leið frá
Flugsæti
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ekki liggur fyrir hvað gert verður
við flakið af fóðurprammanum sem
sökk í Reyðarfirði í byrjun síðasta
árs. Honum var lyft af botni fjarð-
arins um síðustu helgi og hefur nú
verið færður að bryggju á Reyðar-
firði þar sem hann situr á botninum á
meðan fóðrinu er dælt úr honum.
Fóðurpramminn Muninn var í
eigu Laxa fiskeldis, nú Ice Fish
Farm. Hann sökk í byrjun janúar á
síðasta ári. Talið er að hann hafi
sokkið vegna illviðris og ísingar.
Hann var mannlaus. Þegar rann-
sóknarnefnd samgönguslysa af-
greiddi lokaskýrslu um málið, fyrr á
þessu ári, var tekið fram að flakið
yrði skoðað þegar það yrði tekið upp.
Aðstæður eru nú að skapast til þess.
Aðgerðir gengu vel
Dregist hefur að lyfta flakinu af
botni fjarðarins vegna hættu á að
mengun bærist í nálægar laxakvíar.
Nú eru þær tómar og tækifærið því
gripið. Aðgerðir Köfunarþjónust-
unnar gengu vel og samkvæmt áætl-
un, að sögn Jens Garðars Helgason-
ar, aðstoðarforstjóra Ice Fish Farm.
Kranaprammi var fenginn frá Nor-
egi til að lyfta Munin af botni og
dráttarbátur dró þá síðan að bryggju
á Reyðarfirði. Þar verður fóðrinu
dælt úr tönkum skipsins og ástand
þess kannað áður en lengra er hald-
ið.
Jens Garðar segir að gert verði við
sprungur á prammanum þannig að
hann komist á flot.
Nýju prammarnir öruggari
Spurður hvað gert verði við flakið
segir Jens Garðar að það verði
ákveðið í samráði við trygginga-
félagið. Sjálfur telur hann að allur
búnaður um borð sé ónýtur en óvíst
hvort hægt sé að nota skrokkinn.
Ice Fish Farm fékk lánspramma
frá Noregi til að ljúka eldislotunni.
Jens Garðar segir að félagið hafi
fengið nýja pramma í sumar og sé
því vel í stakk búið til að fóðra fiskinn
á nýjum stöðum. Í ljósi reynslunnar
var til þess horft við kaup á nýju fóð-
urprömmunum að þeir þyldu ísingu
og öldu betur en Muninn.
Óvíst hvað verður um prammann
- Fóðurprammanum Munin lyft af
botni Reyðarfjarðar og færður til hafnar
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Í höfn Fóðurpramminn Muninn situr á botni við bryggju á Reyðarfirði.
Efsti hluti fóðursílóanna stendur upp úr og verður fóðrinu dælt í land.
Spurningaþátturinn Ertu viss? hef-
ur göngu sína á mbl.is á fyrsta degi
septembermánaðar, í umsjón systr-
anna Evu Ruzu, útvarps- og
stjörnufréttakonu á útvarpsstöðinni
K100, og Tinnu Miljevic.
„Við erum sjúklega spenntar.
Þetta er þáttur sem ekki hefur ver-
ið gerður með sama sniði áður hér á
landi og við hlökkum til að fá að
keyra hann áfram,“ segir Eva Ruza
og kveðst lofa áhorfendum og þátt-
takendum góðri skemmtun. Þetta
sé í fyrsta skipti sem hún nái að
troða Tinnu systur sinni fram fyrir
myndavélina.
„Það tók mig þrjár tilraunir að fá
hana til að gera þetta með mér,“
segir Eva og hlær. „Ég þurfti samt
ekki að hafa í neinum hótunum eða
mútum við hana eða neitt þvíum-
líkt.
Skemmtileg viðbót
Það er ótrúlega gaman að fá
tækifæri til að taka þátt í svona
flottu og stóru verkefni með systur
sinni. Við munum leiða hvor aðra í
gegnum þetta og erum alveg til-
búnar í þetta,“ segir Eva.
„Framleiðslan í kringum þetta
hefur verið mjög metnaðarfull og
þetta er rosalega framsækinn þátt-
ur sem er að fara í gang.“
Viska og hraði
Ertu viss? er skemmtiþáttur sem
reynir á unga sem aldna visku-
brunna. Spilaðar verða fimm lotur í
hverjum þætti þar sem hver lota
inniheldur fimm spurningar sem
háðar eru ákveðnu þema; menningu
og listum, dægurmálum, tónlist,
íþróttum eða fréttum líðandi stund-
ar. Spilað er upp á hvaða þátttak-
andi er sneggstur að svara rétt.
Vinningarnir í Ertu viss? verða
með glæsilegasta móti þar sem tíu
efstu þátttakendur í hverri lotu
verða leystir út með vinningum.
Einn þátttakandi fær aðalvinning
fyrir að vera efstur í öllum fimm
lotunum í hverjum þætti.
Spurningaþátturinn er því
skemmtileg viðbót við fjölbreytta
þáttagerð úr smiðju Árvakurs í
framleiðslu Studio M.
Nýr spurningaþáttur
fer í loftið á mbl.is
- Systurnar Eva Ruza og Tinna Miljevic með umsjón
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
„Þetta eru okkar aðgerðir til þess
að svara ákalli almennings og
stjórnvalda um að leggja lið bar-
áttunni gegn verðbólgunni, sem
er í hæstu hæðum um þessar
mundir,“ segir Ásta Sigríður
Fjeldsted framkvæmdastjóri
Krónunnar. Verslunin hefur
ákveðið að frysta verð á 240
vörum til þess að sporna við verð-
bólgu. Um er að ræða nauðsynja-
vörur og matvörur frá vörumerkj-
um Krónunnar og First Price, til
dæmis samlokubrauð, kjúklinga-
læri, klósettpappír og dömubindi.
Hvetja til sparnaðar
Spurð hvers vegna þessar
vörur hafi orðið fyrir valinu segir
Ásta:
„Þessar vörur endurspegla að
stórum hluta innkaupakörfuna í
daglegum innkaupum almennings.
Með þessu viljum við höfða til
viðskiptavina okkar og hjálpa
þeim eftir fremsta megni að spara
í innkaupum.
Með því að
velja þessi
vörumerki
erum við að
tryggja þeim
vörur á föstu
verðlagi fram
að áramótum,
að minnsta
kosti,“ segir
hún en fyrir-
komulagið kemur til endurskoð-
unar þá.
„Við erum með fleiri aðgerðir í
undirbúningi en þetta er kannski
sýnilegast gagnvart viðskiptavin-
inum,“ segir Ásta.
Verðbólga mældist 9,9% í júlí
og hækkaði Seðlabankinn stýri-
vexti um 0,75% í gær.
Ásta útskýrir að verð á þessum
vörum muni lækka, komi til geng-
isstyrkingar eða lækkunar á inn-
kaupaverði. „En ef innkaupaverð
hækkar eða gengisveiking verður
munum við ekki skila þeirri
hækkun út í verðið til viðskipta-
vina,“ segir hún.
Frysta verð á mat
og nauðsynjum
- Krónan vill berjast gegn verðbólgu
- Verðlagning á 240 vörum fer í frost
Ásta Sigríður
Fjeldsted