Morgunblaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2022
KVENNAFERÐ ÚÚ
Á EL PLANTIO GOLF RESORT
Komdu með í hina vinsælu kvennaferð ÚÚ. Spilað verður
golf á komu- og brottfarardegi og ótakmarkað golf alla
daga. Fararstjóri mun sjá um að setja upp golfmót og aðrar
skemmtanir og uppákomur.
Á meðan á golfferðinni stendur verða ýmis mót, ásamt því
að boðið verður upp á sérstaka næringarstöð í miðjum hring
(kampavín og huggulegheit). Hópurinn mun fara út að borða
til Alicante og gera eitthvað annað skemmtilegt.
Fararstjóri ferðarinnar er hún Aðalheiður Jorgensen.
BEINT FLUG, INNRITUÐ TASKA 20 KG. OG
HANDFARANGUR, GISTING Á EL PLANTIO MEÐ
MORGUNMAT, FLUTNINGUR Á GOLFSETTI, AKSTUR
TIL OG FRÁ FLUGVELLI, ÍSLENSK FARARSTJÓRN,
ÓTAKMARKAÐ GOLF ALLA DAGA, GOLFBÍLL OG
SKEMMTILEG DAGSKRÁ
INNIFALIÐ Í VERÐI:
VIKULÖNG GOLFFERÐ 04. - 11. OKTÓBER
VERÐ FRÁ 209.900 KR.
Á MANN M.V. 4 FULLORÐNA
VERÐ FRÁ 229.900 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
Fararstjórinn
Aðalheiður Jorgensen
ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 GOLF@UU.IS
„Hér er verið að níðast á eldri borg-
urum, öryrkjum og barna-
fjölskyldum!!!“ skrifaði Guðlaugur
Stefán Pálmarsson á skilti sem hann
setti upp við Laugarvatnsveg. Að
hans sögn hafði hann fengið leyfi
fyrir því að setja upp skiltið en var
síðar gert að fjarlægja það og kom
hann því þá fyrir við hjólhýsi sitt. Að
hans mati hefði í það minnsta mátt
útvega gáma á svæðið svo fólk gæti
hent því sem það neyðist nú til að
rífa niður.
Hann gefur lítið fyrir þau rök
sveitarstjórnarinnar að brunavarnir
á svæðinu séu ekki nægilega góðar
og bendir á að eftir sinni bestu vit-
und hafi aðeins kviknað einu sinni í
hjólhýsi á svæðinu á þeim 50 árum
sem það hefur staðið. „Þau leiddu
okkur á asnaeyrunum og buðu okk-
ur að borga 50 milljónir til að bæta
aðstöðuna og það átti bara eftir að
skrifa undir en síðan bara birtist
hún í fjölmiðlum án þess að tala við
kóng eða prest og segir að allir eigi
að vera farnir fyrir áramót.“
Þá segir hann að aðgerðir sveit-
arstjórnar kosti fólk ekki aðeins
fjármuni heldur einnig andlega og
líkamlega heilsu. „Margir hérna
skrifa dauðsfall 77 ára konu sem var
búin að vera hérna í 30 ár með hýsi á
þessar aðgerðir,“ segir hann og tek-
ur fram að konan hafi æst sig þegar
þeim var tilkynnt að yfirgefa svæðið
fyrir áramót og stuttu seinna hafi
hún fengið heilablóðfall.
Morgunblaðið/Eggert
Níð „Það er komið verr fram við okkur en glæpamenn og búpening.“
Heilablóðfall stuttu
eftir tilkynninguna
Tómas Arnar Þorláksson
tomasarnar@mbl.is
Til stendur að leggja niður hjól-
hýsabyggð á Laugarvatni en margir
eigendur hjólhýsa á svæðinu fengu
nýlega bréf frá sveitarstjórn
Bláskógabyggðar þess efnis að til
stæði að loka fyrir rafmagn og vatn
á svæðinu hinn 1. september.
Þyrftu eigendurnir því að taka sam-
an dótið sitt sem fyrst og yfirgefa
svæðið.
Í september 2020 var tekin
ákvörðun um að leggja niður hjól-
hýsabyggð á svæðinu vegna þess að
brunavarnir væru ekki metnar
nægilega traustar. Síðan þá hafa
sveitarstjórn Bláskógabyggðar og
Samhjól, Samtök hjólhýsaeigenda á
Laugarvatni, verið í samninga-
viðræðum um möguleikann á
áframhaldandi hjólhýsabyggð. Öll-
um tilboðum Samhjóls var þó hafn-
að og var samþykkt á fundi sveit-
arstjórnarinnar í lok júní á þessu
ári að engir leigusamningar yrðu
endurnýjaðir og þyrftu eigendur
hjólhýsa því að yfirgefa svæðið fyrir
áramót. Þetta staðfestir Hrafnhild-
ur Bjarnadóttir formaður Samhjóls
í samtali við Morgunblaðið.
Sárt að fara eftir 28 ár
„Útslagið gerði bréfið sem við
fengum fyrir viku. Þau sögðu að það
yrði lokað fyrir rafmagn og vatn 1.
september því það hefði alltaf verið
gert, sem er haugalygi,“ segir Sól-
veig Manfreðsdóttir, eigandi hjól-
hýsis á svæðinu, en hún bendir á að
aldrei hafi verið lokað fyrir rafmagn
á svæðinu og yfirleitt verið lokað
fyrir vatnið fyrir fyrstu frostanótt
en ekki fyrr. Sólveig hefur verið
með hjólhýsi á svæðinu í 28 ár og
segir virkilega sárt að þurfa nú að
færa sig um set eftir svo mörg ár af
góðum stundum og hlýjum minn-
ingum.
Eftir mótmæli fólks á svæðinu
var dagsetningunni þó frestað og er
núna stefnt á að loka fyrir vatn og
rafmagn á svæðinu í lok september.
„Þau ætla að vera svo elskuleg að
gefa okkur frest út september en
það dugar mér ekki,“ segir hún og
bætir við að um mikið verk sé að
ræða enda þurfi að skrúfa í sundur
palla sem standa við mörg hjól-
hýsin og jafnvel þurfi sumir að rífa
heilu húsin.
Sólveigu finnst verst að áður en
bréfið barst hafi alltaf fyrirfundist
von hjá fólkinu á svæðinu. „Við
trúðum ekki öðru eftir allt sem við
vorum búin að bjóða; stórar fjár-
hæðir og að laga hitt og þetta, en
þá kom bara neitun,“ segir hún og
bætir við að sveitarstjórnin hafi
boðið upp á falska von með því að
setja skilyrði fyrir áframhaldandi
hjólhýsabyggð og standa í samn-
ingaviðræðum langt fram á sumar.
Að hennar mati hefur fólkið á
svæðinu því í raun ekki nema þrjá
til fjóra mánuði til að pakka öllu
saman og færa um set.
Sólveig segir þá að sú ástæða
sem sveitarstjórnin gefur fyrir því
að leggja niður hjólhýsabyggð á
svæðinu hafi tekið sífelldum breyt-
ingum síðustu tvö ár. Fyrst hafi
það verið vegna brunavarna og síð-
an hafi Ásta Stefánsdóttir sveitar-
stjóri Bláskógabyggðar tilkynnt að
það þyrfti að gera deiluskipulag
fyrir svæðið og því þyrfti að fjar-
lægja hjólhýsin og allt sem fylgdi
þeim. „Þetta er allt saman fyrir-
sláttur og þau vilja aldrei gefa upp
hvað á að gera með þetta svæði.“
Sólveig bendir á að margir á svæð-
inu hafi neyðst til þess að gefa mikið
af eigum sínum eða losa sig við þær
þar sem erfitt sé að selja hjólhýsi
um þessar mundir og lítill tími til að
ráðstafa eigum á nýjan stað. „Það
eru margir að gefa húsin sín gegn
því að aðrir fjarlægi þau.“
„Þetta er andlegt ofbeldi“
Þegar Morgunblaðið bar að garði
í hjólhýsabyggðinni á Laugarvatni
voru hjónin Kristín Óskarsdóttir og
Unnar Atli Guðmundsson á fullu við
að rífa niður hýsi sitt á svæðinu með
tveimur kúbeinum. Þau segja að
ekki sé annað í boði fyrir þau en rífa
hýsi sitt því ekki sé hægt að selja
það og ómögulegt að færa það eitt-
hvað annað. Að sögn þeirra hjóna
var þeim lofað á fundi í byrjun 2020
að ekki myndi fara fyrir hjólhýsa-
byggðinni á Laugarvatni eins og
þeirri sem var í Þjórsárdal, sem
hafði þá nýlega verið lögð niður. Er
þeim því verulega brugðið að vera í
þeirri stöðu sem þau finna sig í
núna. „Það var komin von. Við
bjuggumst aldrei við að þetta yrði
gert svona,“ segir Unnar, sem telur
einhverja hagsmuni vera að baki því
að sveitarstjórn taki þessa ákvörð-
un. Að hans mati veldur þetta ekki
einungis fjárhagslegu tjóni fyrir
fólk. „Þetta er andlegt ofbeldi.“
Kristín tekur fram að það hafi
komið sér á óvart að til stæði að loka
fyrir rafmagn og vatn á svæðinu
enda hafi ekki borist neitt bréf þess
efnis. Hún bendir á að margir aðrir
hafi heldur ekki fengið bréf. Hún
segir að þótt því hafi verið frestað
að loka fyrir rafmagnið til loka sept-
ember þá nægi það eflaust ekki til
að fólk geti fjarlægt hjólhýsin sín.
Því til rökstuðnings bendir hún á
þann fjölda hjólhýsa sem er enn á
svæðinu þegar rétt rúmur mánuður
er til stefnu. Um 150 hjólhýsi eru
enn á svæðinu en 200 voru þar þeg-
ar mest á lét.
Afdrep Kristín Óskarsdóttir og Unnar Atli Guðmundsson hafa notið þess að
dvelja á Laugarvatni á sumrin í þó nokkur ár en rífa nú hýsi sitt.
Samfélag Sólveig Manfreðsdóttir segir verðmætin felast í þeirri sögu sem
er á svæðinu en hjólhýsabyggðin er sú elsta á landinu, 50 ára gömul.
Kveðja Laugarvatn þvert á vilja
- Komið að endastöð fyrir 50 ára hjólhýsabyggð - Tilkynnt að fljótlega yrði lokað fyrir rafmagn
Morgunblaðið/Eggert
Hýsi „Hér eru gamalmenni í þunglyndi og öryrkjar og fleiri undir sæng sem
eru úrræðalausir,“ segir Guðlaugur Pálmarsson sem á hjólhýsi á svæðinu.