Morgunblaðið - 25.08.2022, Síða 8

Morgunblaðið - 25.08.2022, Síða 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2022 Kröfugerð félaga verslunar- manna gagnvart Samtökum atvinnulífsins sem birt var í gær mætti ef til vill frekar kalla óska- lista, hún verður að minnsta kosti ekki sögð raunsæ. Upphafsorð óskalistans er að mark- mið kjarasamninga sé að „auka lífsgæði launafólks og tryggja jafnræði á vinnumarkaði“, sem eru ágæt markmið og sumt í plagginu miðar að þessu. - - - Annað er mun hæpnara og getur augljóslega ekki gengið. Þar má meðal annars nefna þá áherslu sem félögin leggja á að minnka vinnuframlag starfsfólks verulega á sama tíma og krafist er launahækk- ana. - - - Þannig er farið fram á umtalsvert aukið orlof og einnig verulega aukinn tíma í menntun á kostnað at- vinnurekenda auk margs annars af því tagi sem allt hleður upp kostn- aði fyrir fyrirtækin sem vitaskuld dregur úr möguleikum þeirra til launahækkana. - - - Lengst er þó gengið í þessum efn- um með kröfu um að vinnuvik- an verði stytt enn frekar og verði aðeins fjórir dagar, „eða sem svarar 32 stundum á viku, á samningstím- anum, án skerðingar á launum“. - - - Í síðustu samningum var samið um styttingu vinnuviku sem hef- ur reynst ýmsum launagreiðendum, þar með talið opinberum aðilum, af- ar kostnaðarsamt. - - - Hugmyndir um að ganga enn lengra í þeim efnum og að fólk vinni aðeins fjóra daga í viku geng- ur augljóslega gegn markmiðinu um „að auka lífsgæði launafólks“. Óraunsæ kröfugerð STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Hjarta heimilisins Við hönnum innréttingar að þínum þörfum Fríform ehf. Askalind 3, 201 Kópavogur. 562–1500 Friform.is. Sumaropnun: Mán. – Föst. 10–17 Laugardaga LOKAÐ 2000 — 2022 Lögreglan á Norðurlandi eystra, sem fer með rannsókn skotárásarinnar á Blönduósi, telur sig hafa grófa mynd af því sem gerðist að morgni sunnudagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu sem emb- ættið sendi frá sér í gær, en tekið er fram að enn séu margir þættir málsins óljósir. „Rannsókn beinist meðal annars að því að upplýsa þá. Mikið af upplýsingum um atvik málsins kom fram frá lögreglu á fyrstu stigum og hefur lögregla engu við það að bæta nú.“ Ekki sé hægt að upplýsa frekar um einstakar rannsóknaraðgerðir á þessu stigi. Birgir Jón- asson, lögreglustjóri á Norðurlandi vestra, hef- ur beðist afsökunar á að hafa upplýst um and- lát í kjölfar skotárásarinnar á Blönduósi áður en allir ættingjar hafi verið látnir vita. Gerði hann þetta í kvöldfréttum ríkisútvarpsins í gærkvöldi. „Ég get ekki annað en beðist afsökunar,“ sagði hann. Þá kvaðst hann ósáttur við það fyrirkomulag að lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra færi með rannsókn málsins. Margt óljóst eftir árásina á Blönduósi - Lögregla telur sig þó hafa grófa mynd af atburðum - Beðist afsökunar Morgunblaðið/Eggert Rannsókn Lögreglan verst allra frétta. VR og LÍV gera þá kröfu að vinnu- vikan verði stytt í fjóra daga, eða sem svarar 32 stundum á viku, án skerðingar á launum. Einnig er þess krafist að allt félagsfólk eigi rétt til 30 daga orlofs á orlofsárinu og að orlofsréttur verði rýmkaður þannig að orlofsnýting sé allt að tvö ár í senn. Ef því verður ekki við komið að nýta orlofið innan þess tíma verði ónýtt orlof gert upp við starfsfólk áður en nýtt tímabil hefst. Þetta er meðal þess sem fram kemur í kröfugerð stéttarfélags VR og Landssambands íslenskra versl- unarmanna fyrir kjarasamninga 2022 sem birt hefur verið Samtökum atvinnulífsins. Kjarasamningur VR og LÍV rennur út hinn 1. nóvember. Lagt er til að samið verði til þriggja ára og að samningurinn gildi frá 1. nóvember 2022 til 30. október 2025. VR og LÍV gera þá kröfu að stjórnvöld komi að borðinu með aðgerðir til að styrkja launalið kröfugerðarinnar, til dæmis í skatta- og vaxtamálum, með hækkun barna- bóta og afnámi verðtryggingar á neytendalánum. Einnig er gerð krafa um að þak verði sett á leigu, ungu fólki auðveld- uð fyrstu kaup með auknum stuðn- ingi frá hinu opinbera og lóðafram- boð aukið verulega með aðkomu sveitarfélaga. Þá leggja VR og LÍV til breyt- ingar á veikindarétti kjarasamninga og telja mikilvægt að auka sveigj- anleika til þess að koma til móts við alvarleg áföll félagsfólks. Gerð er krafa um að veikindaréttur verði út- víkkaður þannig að hann taki til alvarlegra veikinda nákominna ætt- ingja eða fráfalls þeirra, sem og jarðarfara. Krefjast fjögurra daga vinnuviku - VR og LÍV birta kröfugerð fyrir kjarasamninga Morgunblaðið/Hari Kjarasamningar Ragnar Þór Ingólfsson er formaður VR.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.