Morgunblaðið - 25.08.2022, Síða 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2022
Húsnæðið er 834 fm að stærð og skiptist niður í fiskmóttöku, vinnslusal, kæligeymslu, kælir/frystigeymslu, skrifstofu, kaffi-
og starfsmannaaðstöðu. Húsnæðið er byggt 1986 og byggt við árið 2019. Leiga á húsnæðinu kemur einnig til greina.
Í eigninni er stór vinnslusalur með snyrtilegri klæðningu að stórum hluta, umbúðargeymsla, lyftarageymsla, verkstæði
fyrir vinnsluna og um 50 fm. nýlegur kælir/frystir.
Starfsmannarýmið er um 50 fm. og skiptist í kaffistofu, búningsherbergi, tvö salerni með sturtum. Þrjár innkeyrsluhurðar
eru í fasteigninni.
Nýlegar vatnslagnir fyrir matvælaframleiðslu og nýleg niðurföll. Nýlegar rafmagnstöflur og heimtaug. Nýlegt bárujárn
er á þaki hússins.
Lóðin er skráð sem iðnaðar- og athafnarlóð, 1.105 fm. að stærð og er malbikað plan með góðu útiplássi við húsnæðið.
Frekari upplýsingar veitir:
Halldór Már löggiltur fasteignasali í síma 898 5599 og netfang: halldor@atvinnueign.is
Síðumúli 13
108 Reykjavík
S. 577 5500
atvinnueign.is
Fasteignamiðlun
STAÐARSUND 6 & 8, 240 GRINDAVÍK
Halldór Már Sverrisson
Viðskiptafræðingur
Löggiltur fasteignasali
Löggiltur leigumiðlari
898 5599
halldor@atvinnueign.is
Iðnaðar- og fiskverkunarhús til sölu
Verð: 180milljónir kr.
Skannaðu
kóðann og
skoðaðu
eignina
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
Akureyrarbær fagnar 160 ára af-
mæli sínu í næstu viku, 29. ágúst, en
haldið verður upp á tímamótin með
veglegri Akureyrarvöku um kom-
andi helgi. Fjölbreytt dagskrá verð-
ur í boði frá föstudegi til sunnudags.
Í allt er um að ræða 60 viðburði,
stóra sem smáa. Þeir dreifast um
bæinn, þótt flestir verði í námunda
við miðbæinn.
Almar Alfreðsson, verkefnastjóri
menningarmála hjá Akureyrarbæ
og skipuleggjandi hátíðarinnar, seg-
ir að mikil tilhlökkun sé meðal
bæjarbúa sem gefst nú færi á að
koma saman í sannkallaðri
menningarveislu í tilefni af stór-
afmæli bæjarins. Akureyrarvaka
féll niður undanfarin tvö ár vegna
kórónuveirunnar og því meiri
ástæða til að fagna nú.
Rökkurró og Draugaslóð
„Þetta er fyrst og fremst veisla
fyrir bæjarbúa og gesti bæjarins.
Ég veit líka að margir sem eiga ræt-
ur að rekja til Akureyrar vilja leggja
leið sína hingað þessa helgi því það
er í raun fáránlega mikið um að
vera. Margt á okkar vegum en ann-
að sjálfsprottið ef svo má segja.“
Setningarhátíðin Rökkurró hefst
kl. 20 á föstudagskvöldið í Lysti-
garðinum á Akureyri sem verður
ljósum prýddur af því tilefni. Ávörp
verða flutt, leikin tónlist og í lokin er
dansatriði. Ýmsir viðburðir verða í
boði á föstudagskvöldinu, m.a. tón-
leikar af ýmsu tagi.
Einn dagskrárliður hefur ávallt
vakið mikla lukku, en það er
Draugaslóð í Innbænum og verður
sá viðburður kl. 22.30 á föstudags-
kvöld. Draugaslóðin var meðal vin-
sælustu viðburða Akureyrarvöku í
eina tíð en hefur ekki verið í boði
undanfarin 6 ár. Innbærinn, sem er
elsti hluti bæjarins, skapar leikmynd
um Draugaslóðina þetta kynngi-
magnaða kvöld. Örlitlar ljóstírur
lýsa upp garða, hús og stræti um leið
og þær skapa dulúð og drunga.
Ófreskjur og óhljóð gætu skotið
börnum og viðkvæmum skelk í
bringu.
Líf og fjör verður á Ráðhústorgi
allan laugardaginn. Félagar í Sjálfs-
björg standa fyrir vitundarvakningu
um aðgengismál, flóamarkaður
verður á torginu, Rauði krossinn
selur kerti fyrir Friðarvöku sem
verður um kvöldið og skátafélagið
Klakkur kemur sér vel fyrir og býð-
ur upp á eldstæði, sápukúlur og
fleira skemmtilegt.
Meðal þeirra tónlistarmanna sem
láta ljós sitt skína á Akureyri þessa
helgi eru Unnsteinn & Hermi-
gervill, Á móti sól, Villi vandræða-
skáld, Högni Egils, Dr. Gunni, Bryn-
dís Ásmunds, Anton Líni, Rúnar
Eff, Herbert Guðmundsson, Stebbi
JAK, Klara Elías, Magni Ásgeirs,
Eyþór Ingi og bæjarlistamaðurinn
Kristján Edelstein. Af stærri við-
burðum má nefna tónleika í Hofi þar
sem saga Tónaútgáfunnar er rakin,
uppákomu með Gunna og Felix,
Tweed Ride-hjólaviðburðinn og
Friðarvöku á kirkjutröppunum.
Menningarveisla á Akureyri
- Vegleg Akureyr-
arvaka í tilefni af 160
ára afmæli bæjarins
Ljósmynd/Lilja Guðmundsdóttir
Setning í rökkrinu Rökkurró verður í Lystigarðinum á Akureyri annað kvöld þegar Akureyrarvaka verður sett.