Morgunblaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2022
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Starfið hér í skólanum er
skemmtilegt og skapandi. Þá finnst
mér samskiptin við nemendur afar
gefandi,“ segir Sólveig Guðrún
Hannesdóttir, nýr rektor Mennta-
skólans í Reykavík. „Auðvitað er
ekkert samhengi milli þess að farn-
ast vel í lífinu og vera með góðar
einkunnir í framhaldsskóla. Hins
vegar er mikilvægt að unglingar fái
í námi sínu undirstöðu, læri vinnu-
brögð og tileinki sér þrautseigju.
Seigla og úthald eru afar mikil-
vægir eiginleikar þegar kemur til
dæmis að háskólanámi. Hér viljum
við efla slíkt meðal nemenda, enda
er MR skóli sem gerir kröfur sem
ekki verður dregið úr.“
Hafa náð langt í lífinu
Menntaskólinn í Reykjavík er
einn af föstum póstum íslensks
samfélags: stofnun sem byggist á
aldalangri sögu. Hingað hafa þús-
undir sótt nám sitt og veganesti til
framtíðar; jafnvel til forystustarfa.
„Eftir að hafa starfað við skólann
í fjórtán ár hef ég kynnst miklum
fjölda nemenda,“ segir rektor.
„Sem líffræðikennari hef ég sér-
staklega fylgst með fólki á nátt-
úrufræðibraut. Og oft hitti ég til
dæmis lækna, hjúkrunarfræðinga
og annað heilbrigðisstarfsfólk,
gamla nemendur sem hafa náð
langt í lífinu. Slíkt er mjög ánægju-
legt. Eins sé ég oft hér í skólanum
efnilega krakka með mikla for-
ystuhæfileika sem spennandi verð-
ur að sjá hvað taka sér fyrir hend-
ur í framtíðinni.“
Niður alda í nútímanum
Rektorsskrifstofan í MR er uppi
í kvisti á þriðju hæð skólahússins
við Lækjargötu. Í húsinu má
greina nið aldanna, þótt skóla-
starfið sjálft taki auðvitað mið af
nútímanum. Eigi að síður er haldið
í hefðir. Skólasetningarathöfn í síð-
ustu viku fór venju samkvæmt
fram í Dómkirkjunni; hátíðleg
stund með ræðuhöldum og tónlist-
arflutningi. Þar var meðal annars í
djassútsetningu á orgel leikinn
skólasálmur MR: Faðir andanna.
„Þetta var einstök stund og allir
glaðir, meðal annars yfir því að
starfið í skólanum er nú komið í
fastar skorður eftir samkomutak-
markanir í tvo vetur,“ segir Sól-
veig.
Skólastarf MR í vetur er á
tveimur stöðum í miðborginni.
Kennsla í 4. og 6. bekk, það er á 1.
og 3. og þar með síðasta vetri nem-
enda við skólann, fer fram í gamla
skólahúsinu og nærliggjandi húsum
í Þingholtunum. Kennsla í 5. bekk,
sem hófst sl. mánudag, er í Austur-
stræti 17 þar sem útbúnar hafa
verið tíu kennslustofur og önnur
aðstaða sem þarf til skólastarfs. Sú
ráðstöfun tengist því að í fyrra
greindist mygla í Casa Christi,
byggingu sem er á baklóð aðal-
byggingar skólans. Kennsla og
skólastarf var um á tímabili á hrak-
hólum vegna þess en leiga á húsinu
í Austurstræti bætir þar úr.
Þörf á nýjum byggingum ljós
Leigusamningur vegna hússins í
Austurstræti er til átta ára. Að
þeim tíma liðnum væntir Sólveig
þess að nýjar byggingar skólans, á
fyrrgreindri baklóð, verði komnar í
gagnið. Slík uppbygging hefur
raunar lengi verið í umræðu og fyr-
ir liggja teikningar að húsum, gerð-
ar fyrir allmörgum árum.
Rektor segir mikilvægt að í sam-
ræmi við nýjar þarfir og kröfur
verði teikningar þessar endurskoð-
aðar. „Ég vil beita mér mjög ein-
dregið fyrir því að framkvæmdir
við nýjar skólabyggingar hefjist.
Þörfin er ljós og vilji til verka skýr,
Gerum kröfur til duglegra nemenda
- Sólveig Guðrún nýr rektor í MR - Skólinn eftirsóttur og 5. bekkur í Austurstræti - Efla þarf út-
hald og seiglu - Ný skólahús verði reist sem fyrst - Efnilegir krakkar með mikla forystuhæfileika
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Rektor Mkilvægt að unglingar fái í námi undirstöðu, læri vinnubrögð og tileinki sér þrautseigju, segir Sólveig um starfið í skólanum og markaðar áherslur
í starfinu. Sólveig önnur konan sem gegnir rektorsembætti við MR, hin var Ragnheiður Torfadóttir sem stýrði skólanum á árunum 1995 til 2001.
Skólahús Reisuleg bygging Menntaskólans í Reykjavík reist árið 1843 set-
ur svip sinn á Kvosina. Þrýst er á um byggingu nýrra bygginga á baklóð.
Draugar, keltar og hrossætur
Bráðskemmtilegt uppistand
með Bjarna Harðarsyni
26. og 27. ágúst
Miðasala á Tix.is
Haust/Vetur
2022
Einnig í vefverslun
Dimmalimmreykjavik.is
Full búð af
fallegum
vörum
Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17
DIMMAL IMM