Morgunblaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2022
bæði meðal fulltrúa ríkis og borgar
sem standa að verkefninu.“
Um 700 nemendur í vetur
Skráðir nemendur í MR, nú í
upphafi skólaárs, eru 692 talsins.
Venju samkvæmt eru flestir í 4.
bekk, það er 255. Lítið eitt færri
eru í öðrum árgöngum. Aðsóknin
fyrir veturinn var mjög góð og 244
nemendur sem voru að ljúka 10.
bekk settu MR í fyrsta sæti þegar
þeir völdu sér skóla. Hægt var að
taka þorra þeirra nemenda inn.
Enn sem fyrr er algengt að nem-
endur í MR komi í talsverðum
mæli til dæmis úr miðborg Reykja-
víkur, Vesturbæ og af Seltjarn-
arnesi – en auðvitað líka annars
staðar frá.
„Við fengum í ár margar mjög
góðar umsóknir um skólavist. Hér
er viðmiðið annars að krakkar sem
fara á náttúrufræðibraut séu með
að minnsta kosti einkunnina B+ í
stærðfræði. Þau sem fara í mála-
deild séu á svipuðum stað hvað
varðar getu í íslensku og ensku. Já,
ég dreg ekkert úr því að hér eru
gerðar kröfur til þeirra metnaðar-
fullu og duglegu nemenda sem við
fáum hingað. En ég tel líka að þau
séu vel sett og með góðan bak-
grunn eftir þriggja ára nám til
stúdentsprófs hér.“
Ýmsu sleppt í námi
til stúdentsprófs
Reynslan af styttingu náms til
stúdentsprófs, úr fjórum árum í
þrjú, sem gerð var fyrir nokkrum
árum er upp og ofan, segir rektor.
„Almennt sagt erum við ekki að
skila frá okkur jafn sterkum nem-
endum og áður var. Slíkt segir sig í
raun sjálft þegar nám hefur verið
skorið niður um heilt ár. Í aðdrag-
anda þeirrar ráðstöfunar var rætt
um að eitthvað af námsefninu yrði
fært yfir í efstu bekki grunnskól-
ans, svo sem í stærðfræði og ís-
lensku. Slíkt hefur ekki gengið upp
sem vera skyldi og grunnskólarnir
eru ólíkir og eins misjafnir og þeir
eru margir,“ segir rektor og áfram:
„Hér í MR höfum við líka þurft
að sleppa ýmsu svo nemendur kom-
ist hér í gegn á þremur árum. Á
náttúrufræðideild hafa tungumál og
sögukennsla minna vægi en áður
og hjá máladeildarnemum hafa
raungreinar þurft að missa sín.
Þetta er miður. Einnig virðist mér
meira nú en áður um að nemendur,
komnir með stúdentspróf eftir árin
þrjú, taki sér árs hlé frá námi, áður
en þau snúa sér að háskólanámi,
hvað sem því veldur.“
Skólastarf þarf að miðast við að-
stæður og samfélag hvers tíma. Í
dag lætur nærri að um fjórðungur
þjóðarinnar eigi að einhverju marki
uppruna sinn í öðrum löndum eða
málumhverfi, svo sem ungmenni
sem þá hafa íslenskt mál misjafn-
lega vel á valdi sínu.
„Hingað í MR fáum við fjölda
nemenda sem hafa ekki íslenskuna
sem móðurmál. Þeim ungmennum
höfum við reynt að mæta með því
að draga úr kröfum í íslenskunni,
að minnsta kosti í upphafi náms
þeirra hér. Einnig höfum við verið
að prófa okkur áfram með ment-
orakerfi, það er að nýnemar fái
leiðsögn og hjálp sér eldri nem-
enda. Vonandi kemst betri reynsla
á þetta fyrirkomulag í vetur. “
Bekkjakerfið er gott
Við göngum með rektornum um
skólahúsið; hvar er iðandi líf á
skemmtilegum starfsdegi líflegra
krakka. Sólveig segist sennilega
aldrei munu ná að þekkja alla nem-
endur með nafni, en efalítið þó
flesta. Að læra nöfn og tengja við
andlit sé sinn styrkur.
„Auðvitað er heilmikið púsluspil
að undirbúa skólaveturinn og fá svo
hingað í hús 700 nemendur og 70
kennara. Allt þarf að smella saman.
En þá segir ég líka að við í MR er-
um svo heppin að vera hér með
bekkjarkerfi; með slíku má halda
vel utan um nemendahópa. Fyrir
suma krakkana getur þetta hentað
mjög vel. Bekkur með hæfileika-
ríkum krökkum í hópi sem smellur
vel saman er frábær eining. Þar
myndast oft tengsl sem fylgja fólki
alla ævi.“
Sólveig Guðrún Hannesdóttir fæddist
árið 1973. Hún er stúdent frá MR, líf-
fræðingur frá HÍ og með doktorspróf í
ónæmisfræði frá Lundúnaháskóla. Eftir
nám ytra hóf hún störf við Landspít-
alann jafnhliða kennslu við Háskóla Ís-
lands. Í skólastarfi kveðst hún hafa
fundið sína fjöl og því aflað sér kennslu-
réttinda. Að þeim fengnum réð Sólveig
sig árið 2008 til líffræðikennslu í MR.
„Kennslan er lifandi og alltaf hægt að
nálgast viðfangsefnin með svo ólíkum
útfærslum. Mér finnst þetta besta starf
í heimi og nú komin í stjórnunarhlutverk
á ég eftir að sakna kennslunnar og
þeirra skemmtilegu samskipta sem ég
átti við nemendur þar,“ segir Sólveig sem
er gift Jónasi Páli Jónassyni og eiga þau
samtals fimm börn.
Áhugamálin segir rektorinn nýi að séu
fjölskyldan, ferðalög og góðar bækur.
Besta slökunin frá amstri dagsins finnist
sér annars að fara farsímalaus á fjöll.
Gönguferð á Sveinstind með góðum vin-
kvennahópi nú í sumar hafi verið ævintýr-
ið eitt. Grænihryggur í Friðlandi að Fjalla-
baki sé á stefnuskránni á næstu vikum og
eins ferð með starfsliði MR austur að
Hveragerði, þar sem Sel Menntaskólans í
Reykjavík er; frægt ævintýraland.
Samskiptin við nemendur eru skemmtilegur hluti starfsins
DOKTOR Í LÍFFRÆÐINI FANN SÍNA FJÖL SEM KENNARI Í FRAMHALDSSKÓLA
Saman Sólveig Guðrún Hannesdóttir hér með nokkrum stúlkum úr 5. bekk. Til
hægri við rektorinn stendur Andrea Edda Guðlaugsdóttir inspector scholae.
HJÓLAÐU Í SKÓLANN
EITTMESTA ÚRVAL LANDSINS AF REIÐ- OG RAFHJÓLUM
ME I R I H R E Y F I NG - ME I R I ÁNÆG JA
MARLIN5
Frábært fjölnota hjól
Álstell - 24 gírar
Vökva diskabremsur
Læsanlegur dempari
Gunmetal
TREK Black
129.990 kr.
DS2
Frábært fjölnota hjól
Álstell - 24 gírar
Vökva diskabremsur
Matte Dnister Black
109.990 kr.
FX2Disc
Frábært fjölnota hjól
Álstell, 16 gírar
Vökvabremsur
Lithium Grey Chrome
114.990 kr.
Skoðaðu úrvalið á www.orninn.is
Sendum hvert á land sem er fyrir 2.990 (verð fyrir eitt reiðhjól) FAXAFEN 8 - SÍMI 588 9890
Fleiri litir í boði