Morgunblaðið - 25.08.2022, Side 22

Morgunblaðið - 25.08.2022, Side 22
22 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2022 LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is stalogstansar.is VARAHLUTIR Í KERRUR 2012 2021 Sigurður Ægisson sae@sae.is Um komandi helgi verður mikið um að vera í Siglufirði. Á laugardag, 27. ágúst, verður Gústa guðsmanns minnst með samveru, en á mánudag, 29. ágúst, hefði hann orðið 125 ára gamall. Hann fæddist í Dýrafirði árið 1897 en ólst upp í Hnífsdal og á Ísa- firði og bjó svo í rúma hálfa öld á Siglufirði. Gert er ráð fyrir að hittast kl. 13.30 við gröf hans, efst í gamla kirkju- garðinum, og fara þaðan niður að bronsstyttunni af honum á Ráðhús- torgi. Á báðum stöðum verða sögð nokkur orð. Að þessu búnu verður farið í Bátahúsið, þar sem rætt verð- ur um Gústa og verk hans og orðið gefið frjálst. Léttar veitingar verða í boði. Daginn eftir, 28. ágúst, kl. 14.00, verður hátíðarguðsþjónusta í Siglu- fjarðarkirkju vegna 90 ára vígsluaf- mælis hennar. Biskup Íslands, frú Agnes Sigurðardóttir, prédikar. Kaffiveitingar verða í safnaðarheim- ilinu að lokinni guðsþjónustu, í boði Systrafélagsins. Fyrsta kirkjan á Siglunesi Að því er fornar heimildir segja yfirgaf Þormóður rammi Haralds- son Noreg vegna ófriðar og land- leysis, sigldi yfir hafið með fólk sitt og búfénað, uppgötvaði svo fyrir miðju Norðurlandi óbyggðan fjörð og settist þar að. Hann reisti bú á nesi við mynni fjarðarins, Siglunesi, og átti þar heima. Landnám hans náði þó yfir Siglufjörð allan og Héð- insfjörð. Talið er líklegt að þetta hafi gerst nálægt árinu 900. Um upphaf kristni í landnámi hans er þó fátt vitað. En hitt er kunnugt, að Siglunes var í meira en 600 ár miðstöð Siglufjarðarbyggða; þar var aðalkirkja og þingstaður allra íbúa Sigluneshrepps hins forna. Í máldagasafni Auðuns Þorbergs- sonar hins rauða, biskups á Hólum, sem er frá 1318, er Sigluneskirkja ekki nefnd. Ekki heldur í máldögum Péturs Nikulássonar biskups, frá árinu 1394. En árið 1422 er hún örugglega risin. Árið 1574 var þess farið á leit við yfirvöld að aðalkirkjan yrði flutt af Siglunesi og inn í fjörð, eflaust vegna stækkandi byggðar þar. En það var ekki leyft fyrr en árið 1614. Þá var nýtt kirkjuhús reist á Hvanneyri, sem eftir það var miðstöð hreppsins, Hvanneyrarhrepps. Þar stóðu næstu kirkjur öld fram af öld, eða allt til ársins 1890, þegar byggð var kirkja á öðrum stað, niðri á Þormóðseyri. En nú fóru í hönd miklir breyt- ingatímar í Siglufirði; fiskiþorp var í mótun. Um aldamótin 1900 voru íbú- arnir þar orðnir rúmlega 400 talsins og þremur árum síðar, árið 1903, hófst síldarævintýrið margumtalaða. Þegar kirkjan hafði staðið á Þor- móðseyri í tvo áratugi, eða til 1910, voru íbúar hreppsins orðnir nærri 700. Mönnum varð því ljóst að hún, jafn lítil og hún var, gæti engan veg- inn fyllilega þjónað hlutverki sínu. Var því ákveðið að reisa nýja kirkju sem tæki mið af fólksfjölguninni og 20. maí árið 1916 var kirkjubygging- arsjóður formlega stofnaður. Hann efldist og styrktist á næstu árum Ákveðið var að reisa hið nýja guðshús á Jónstúni, beint upp af Aðalgötunni. Arkitekt var ráðinn Arne Finsen, danskur að ætt, en þá starfandi í Reykjavík, og er upp- hafleg teikning að kirkjunni dagsett 29. júní 1929. Verksamningar voru undirritaðir við Jón og Einar á Ak- ureyri í febrúarlok 1931. Föstudag- inn 16. maí var byrjað að grafa fyrir húsinu og 29. júlí var steypuvinnu lokið á veggjum og lofti og ráðist í að steypa turninn. Hinn 15. ágúst 1931 var hornsteinninn lagður með við- höfn en þá var kirkjan nær fokheld. Veturinn 1931–1932 var hún full- smíðuð og í lok júlí 1932 var altarið komið á sinn stað og eins prédik- unarstóll, skírnarfontur (gerður af Ríkarði Jónssyni myndskera) og bekkir. Þegar Jón Helgason biskup vígði musterið, 28. ágúst 1932, voru liðnir rúmir 15 mánuðir frá því byggingarframkvæmdir hófust. Var þarna risin stærsta kirkja á Íslandi í þá daga, að Kristskirkju í Landakoti undanskilinni, sem hafði verið reist 1929. Níu sóknarprestar Siglufjarðarkirkja er um 35 metra löng og 12 metra breið. Hún tekur um 400 manns í sæti. Turninn er um 30 metra hár og tvær miklar klukk- ur þar (sú meiri um 900 kíló að þyngd, að sögn) eru gjöf frá Spari- sjóði Siglufjarðar, 1932. Altaristaflan er máluð af Gunn- laugi Blöndal og var afhjúpuð 5. september 1937. Steindir gluggar eru eftir þýsku listakonuna Marie Katzgrau, settir í kirkjuskipið 1974. Fjórir veglegir stólar í kór eru út- skornir af Hirti Ármannssyni, tveir þeirra gefnir 1975 og hinir nokkru síðar. Safnaðarheimili var tekið í notkun á kirkjuloftinu 1982. Alls hafa níu sóknarprestar þjón- að við núverandi kirkju. Þeir eru eft- irtaldir: sr. Bjarni Þorsteinsson (1888-1935), sr. Óskar J. Þorláksson (1935-1951), sr. Kristján Róbertsson (þjónaði tvisvar, 1951-1954 og 1968- 1971), sr. Ragnar Fjalar Lárusson (1955-1967), sr. Rögnvaldur Finn- bogason (1971-1973), sr. Birgir Ás- geirsson (1973-1976), sr. Vigfús Þór Árnason (1976-1989), sr. Bragi J. Ingibergsson (1989-2001) og sr. Sig- urður Ægisson (frá 2001). Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Gústi Hluti styttunnar af Gústa guðsmanni á Ráðhússtorginu á Siglufirði. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Kirkjan Siglufjarðarkirkja á 90 ára vígsluafmæli á sunnudaginn. Hátíðarguðsþjónusta verður haldin af því tilefni. Stór helgi fram undan á Siglufirði - 90 ára afmæli kirkjunnar fagnað og haldið upp á 125 ára afmæli Gústa guðsmanns

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.