Morgunblaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 38
Veitingastaðir bæjarins verða þar í lykilhlut-
verki en Vestmannaeyjar voru tilnefndar til
norrænu menntaverðlaunanna Emblu árið
2021 sem besti mataráfangastaðurinn á Norð-
urlöndunum. Að sögn Berglindar Sigmars-
dóttur, eins aðstandenda hátíðarinnar, hefur
verið umræða í Eyjum um þó nokkurt skeið
hvernig hægt væri að búa til viðburð sem
byggðist á þeirri miklu matar- og veitinga-
húsamenningu sem sé í Eyjum.
„Það er fjölbreytt flóra veitingastaða hér og
við höfum íhugað hvort við gætum ekki gert
eitthvað sniðugt úr því. Svo kom þessi tilnefn-
ing frá Emblu Awards þar sem Vestmanna-
eyjar voru tilnefndar sem besti mataráfanga-
staður Norðurlanda. Við höfum reynt að hugsa
út fyrir kassann varðandi viðburði utan hins
hefðbundna ferðamannatíma og í því skyni að
lengja tímabilið. Ég hóaði saman veitinga-
húsaeigendum í Ferðamálasamtökum Vest-
mannaeyja og tekin var ákvörðun um að
hleypa matarhátíð af stokkunum, segir Berg-
lind. Hún segir að mikil samstaða hafi ríkt um
hátíðina sem skili sér í frábærum gestakokk-
um og viðburðum sem eigi eftir að gera hátíð-
ina einstaka.
„Frosti Gíslason hjá Fab Lab hafði unnið að
verkefni frá 2021 um Sjávarsamfélagið Vest-
mannaeyjar sem styrkt er af NORA. Hann
hafði samband við mig með pælingar um sjáv-
arsamfélagið, matarviðburði og hvernig væri
hægt að tengja þetta allt saman. Hann langaði
að gera úr þessu stóran viðburð og fá fisk-
vinnslu-, matvæla- og fleiri iðnfyrirtæki til liðs
við okkur. Það er núna að verða að veruleika
og við finnum eftirvæntinguna í loftinu, enda
eru þetta algjörar kanónur sem mæta hingað
sem gestakokkar. Gísli Matthías á Slippnum
nýtti sér öll sín frábæru sambönd til að fá þá
allra bestu á hátíðina, segir Berglind. Þekkt-
astur gestakokkanna er sjálfsagt Færeying-
urinn Leif Sørensen sem verður á Slippnum.
Fleiri veitingastaðir í Eyjum, eins og Tang-
inn og Kráin, bjóða upp á sérrétti meðan á há-
tíðinni stendur. Brothers Brewery mun kynna
nýjan bjór sem ber nafnið Okkar eigin hvönn
og er búinn til úr hvönn sem vex á eyjunni.
Hann verður í boði meðan á hátíðinni stendur.
Hátíðin hefst, sem fyrr segir, hinn 8. sept-
ember og stendur í tvo daga en hægt er að
bóka borð á DineOut. Matseðla má kynna sér
nánar á heimasíðu hátíðarinnar: Matey.is
Chris Golding (GOTT)
Chris hóf feril sinn aðeins fimmtán ára gam-
all, á japanska veitingastaðnum í hverfinu þar
sem hann bjó. Þar vaskaði hann upp og aðstoð-
aði kokkinn um helgar. Þegar hann lauk skóla
hóf hann störf sem nemi hjá Marco Pierre
Whites, á franska Michelin-stjörnuveitinga-
staðnum Mirabelle í Mayfair í London þar sem
hann starfaði í þrjú ár.
Í kjölfarið uppgötvaði Chris ást sína á asískri
matargerð og hráefnum og tók við stöðu hjá
Nobu Berkeley. Seinna starfaði Chris í þrjú ár
sem aðstoðaryfirkokkur hjá David Thompsons
og taílenskum veitingastað hans „Nahm.“
Chris tók síðar við hinum margrómaða jap-
anska veitingastað Dinings í Tel Aviv. Und-
anfarið hefur hann verið yfirkokkur á Pan-
technicon í London sem byggist á norrænni og
japanskri hugmyndafræði. Pantechnicon hýsir
fjóra veitingastaði; Eldr, Sachi, Roof Garden
og Cafe Kitsuné sem allir eru undir áhrifum frá
Skandinavíu og Japan. Pantechnicon hefur
vakið mikla eftirtekt í London og þykir algjört
skyldustopp meðal matgæðinga sem heim-
sækja borgina.
Leif Sørensen (Slippurinn)
Með því að umbreyta staðbundnu hráefni í
bragðgóða og ljúffenga rétti og með stofnun
hins magnaða KOKS í Þórshöfn hefur Leif
komið Þórshöfn og Færeyjum á matreiðslukort
heimsins. Hann hefur nú snúið sér að öðru en
vinnur að ýmsum verkefnum tengdum fær-
eyskum mat.
Leif sameinar þekkingu sína á matargerð og
ástríðu sína fyrir því að útbúa mat úr stað-
bundnu hráefni. Hann byggir á víðtækri
reynslu sinni og skilningi á Færeyjum, sem og
alþjóðlegri matargerðarlist. Þeirri þekkingu
miðlar hann til gesta sinna ásamt sögum af
uppruna hráefnanna sem hann notar í nýja og
frumlega rétti. Með því skapar hann ógleym-
anlega upplifun fyrir matargesti.
„Maturinn sem við borðum ætti að end-
urspegla hreinleika, ferskleika og einfaldleika
færeyskrar náttúru sem er fyrir utan
gluggann okkar,“ segir Leif Sørensen – og
færir þannig færeyska náttúru að matarborð-
inu.
Ron McKinlay (Einsi Kaldi)
Ron McKinlay hefur alltaf elskað mat –
hvort sem hann gæddi sér á sunnudagssteik
mömmu sinnar eða blandaði í vöffludeig á
laugardagsmorgnum. Eftir að hafa lokið mat-
reiðsluprófi í heimabæ sínum, Vancouver, hélt
hann til Nýja-Sjálands til að spila ruðning og
ferðast um heiminn, þar til meiðsli bundu enda
á feril hans snemma á þrítugsaldri. Það var þá
sem hann ákvað að flytja aftur til Kanada og
gefa eldamennsku tækifæri.
Árið 2006, á meðan hann skoðaði Michelin-
stjörnuveitingastaði í Bretlandi, bókaði Ron
miða til Edinborgar í Skotlandi fyrir algjöra
rælni. Með mikilli þrautseigju tókst honum að
komast í læri hjá Michelin-kokkinum Tom
Kitchin, sem átti eftir að verða mikill áhrifa-
valdur og leiðbeinandi hans. Ron eyddi næstu
fjórum árum á The Kitchin og eldaði klass-
ískan franskan mat úr skosku hráefni og vann
17 tíma á dag. Hann vann hörðum höndum að
því að fullkomna eldamennsku af gamla skól-
anum, tileinkaði sér mikinn aga og lærði að
taka gagnrýni í eldhúsinu.
Ron tók stökkið árið 2010, alla leið til Mel-
bourne í Ástralíu, þar sem hann hjálpaði til við
að opna veitingastaðinn Maze með Gordon
Ramsay en hélt síðan til Estelle Bar & Kitchen
með Scott Pickett.
Eftir að hafa unnið sig upp í stöðu aðstoð-
aryfirkokks var hann skipaður af kokkinum
Pickett til að opna og leiða Saint Crispin sem
yfirkokkur, en Saint Crispin vann sér inn tvo
hatta árið 2014. Árið eftir tók Ron annað stórt
skref – í þetta skiptið sem yfirkokkkur á Six
Senses dvalarstaðnum í Zighy Bay, Óman.
Þótt hann hafi fagnað sjálfstæði sínu þar og
notað tækifærið til að búa til og prófa nýja rétti
ákvað hann eftir 18 mánuði að hann væri tilbú-
inn að fara aftur heim til Kanada.
Á Canoe sameinar Ron fjölda fágaðra að-
ferða við nútímamatreiðslustíla í starfi sínu
sem yfirkokkur. Hann hefur brennandi áhuga
á því að búa til nýja rétti og bragðtegundir sem
byggjast á kanadísku hráefni – allt frá þangi
frá Bresku Kólumbíu, birkisírópi frá Ontario,
tei frá Labrador og krabba frá Fogo-eyju.
Honey Badger (Næs)
Hjónin Junayd og Fjölla hafa ólíkan bak-
grunn. Hann er frá Trinidad og Bandaríkj-
unum en Fjölla kemur frá Albaníu. Þau opn-
uðu veitingastaðinn Honey Badger í New York
árið 2016 og sköpuðu þannig nýja matreiðslu-
upplifun sem þau töldu vanta á svæðið. Þar
fengu villtar jurtir og annað hráefni að njóta
sín eftir stefnu sem kallast Wild-to-table.
Síðan þá hefur Honey Badger haldið stöðu
sinni sem hágæðaveitingahús sem veitir New
York-búum og gestum víðs vegar að úr heim-
inum einstaka matarupplifun í sátt við náttúr-
una.
Junayd og Fjölla eru stolt af nánum
tengslum sínum við bændur í nærumhverfi
þeirra; allt frá Pennsylvaníu til Labrador, sem
útvega Honey Badger ferskt og framandi hrá-
efni. Hver réttur er vandlega útbúinn, und-
irbúinn og færður úr eldhúsinu til viðskiptavin-
arins af hjónunum sjálfum; slík er natnin.
Þessir skapandi kokkar bjóða upp á matseðil
í Omakase-stíl og leggja áherslu á árstíða-
bundin hráefni sem eru eins lítið unnin og
hægt er. Þannig slítur Honey Badger keðjuna
og afbyggir rétti á hátt sem fáir veitingastaðir
hafa reynt að gera.
Glæsilegt rými veitingastaðarins var byggt
frá grunni og hannað með hjálp frá dóttur
þeirra, Ninu. Junayd og Fjölla nota hvert
tækifæri til að deila sögu sinni og skapa minn-
ingar fyrir alla þá viðskiptavini sem þau taka
hlýlega á móti.
Stórstjörnur í kokkaheiminum mæta til Eyja
Matarhátíðin Matey verður
haldin í Vestmannaeyjum hinn
8.-10. september næstkom-
andi en þar taka veitingastaðir,
fiskframleiðendur og þjón-
ustuaðilar á svæðinu höndum
saman til að sameina úrvals-
hráefni og framúrskarandi
matreiðslu.
Margrómaður
Chris Golding
verður á GOTT
Matgæðingur Hinn
kanadíski Ron
McKinlay verður á
Einsa Kalda.
Færeyska
goðsögnin Leif
Sørensen verður
á Slippnum
Brautryðjendur Hjónin
Junayd og Fjölla á Honey
Badger verða á Næs.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2022
Tónlist
fyrir sálina
Matur
fyrir líkamann
Aðalstræti 2 | s. 558 0000
Lifandi píanótónlist
öll kvöld
Opnunartími
Mán.–Fös. 11:30–14:30
Öll kvöld 17:00–23:00
Borðapantanir á matarkjallarinn.is
eða í síma 558 0000