Morgunblaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 45
MINNINGAR 45 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2022 ✝ Kristján Guð- bjartsson Berg- man, til heimilis á Vesturbrún 39, fæddist í Reykjavík 12. nóvember 1942. Hann andaðist um- vafinn ástvinum á heimili sínu 30. júlí 2022. Foreldrar Krist- jáns voru Guð- bjartur Sigurgísli Bergmann Kristjánsson frá Reykjavík, f. 15. desember 1914, d. 20. júní 1967, og Vilborg Sveinsdóttir frá Kambi í Flóa, f. 2. febrúar 1917, d. 23. desember 1979. Albróðir Kristjáns er Ingiberg, f. 1939. Hálfsystkini Kristjáns, samfeðra, eru: Jóhanna Andrea, f. 1954, Guðbjartur Páll, f. 1956, Baldur Bjarki, f. 1960, og Jón Örn, f. 1962. Kristján kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Þórönnu Þórar- insdóttur, f. 17. mars 1944 í Vest- mannaeyjum, hinn 12. nóvember og bjó þar alla sína ævi ef frá eru talin árin sem Kristján og Þór- anna bjuggu í Vestmannaeyjum, 1969 til 1971. Þar var Kristján verkstjóri hjá Hraðfrystistöð Vestmannaeyja. Kristján var menntaður vél- stjóri og matreiðslumaður. Kristján gegndi mörgum trún- aðarstörfum fyrir Sjálfstæðis- flokkinn. Hann var í stjórn Varð- ar, fulltrúaráðs Reykjavíkur- félaganna, í rúmlega tuttugu ár, þar af ritari í fjölmörg ár. Krist- ján var formaður hverfafélags Breiðholts í mörg ár og ritari málfundafélagsins Óðins. Kristján var innheimtustjóri Rafmagnsveitu Reykjavíkur fjöl- mörg ár í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu. Meðal annarra vinnustaða Kristjáns má nefna skrifstofu Eimskips, Slökkvilið Reykjavík- ur og Strætisvagna Reykjavíkur. Kristján stofnaði og rak Bón- stöðina við Tryggvagötu á sínum yngri árum. Hann var síðasti kaupmaðurinn sem rak Turninn við Arnarhól, á horni Hverfis- götu og Lækjargötu. Kristján átti og rak pylsuvagninn á Lækjartorgi í fjöldamörg ár. Útför Kristjáns verður gerð frá Laugarneskirkju í dag, 25. ágúst 2022, klukkan 13. 1964. Foreldrar henn- ar voru Þórarinn Ant- on Jóhann Guðmunds- son frá Háeyri í Vest- mannaeyjum, f. 4. júlí 1910, d. 8. nóvember 1970, og Elísabet Bjarnveig Guðbjörns- dóttir frá Grunnavík í Jökulfjörðum, f. 14. október 1914, d. 2. júlí 1990. Börn Kristjáns og Þórönnu eru: 1) Þórarinn Jóhann, f. 1964, maki Jónína Gísladóttir, f. 1965. Börn þeirra eru: a) Kristján Valgeir, f. 1987, maki Sunna Magnúsdóttir, f. 1986, börn þeirra eru Karen, f. 2014, og Magnús, f. 2017. b) Þóranna, f. 1989. c) Jóna Elísabet, f. 1997. d) Þórarinn Sig- urgísli, f. 2004. 2) Guðbjartur Kristján Bergman, f. 1966. 3) Vil- borg Þóranna Bergman, f. 1973, barn hennar er Þóranna Bjartey Bergman, f. 1998, í sambúð með Sigurjóni Emil Ingólfssyni, f. 1998. Kristján ólst upp í Reykjavík Takk pabbi Til er sorg sem fólk óttast hvað mest. Til er sorg sem við mætum þó flest. Nú er hún hér. Þú helgaðir fjölskyldunni allt þitt líf. Í gleði og sorg varstu skjöldur og hlíf. Nú ertu hér. Ef þú hefðir ekki mömmu, þína ást hefðir ekki kennt okkur hvað er að elska og þjást, værum við ekki hér Þú kenndir okkur trixin, eitt og eitt Að hjóla eða synda, fyrir þig ekki neitt. Hvað þá hér. Þú hvattir okkur áfram, þerraðir tár. Í hversdagslegri visku varstu svo klár. Líka hér. Ef þú hefðir ekki mömmu, þína ást, hefðir ekki kennt okkur hvað er að elska og þjást, værum við ekki hér. Ef við gætum tímanum stjórnað, einhverju eytt, við hefðum engu fórnað, alls engu breytt. Takk fyrir allt. Takk fyrir allt. Þórarinn Jóhann Kristjánsson. Það er mjög óraunverulegt að setjast niður og skrifa minningar- grein um elsku pabba minn. Í sorg sem þessari verða orð svo lítil og merkingarsnauð. Söknuðurinn er óbærilegur. Það breytist allt, lífið verður aldrei eins og það var. Ég vissi ekki að það væri hægt að sakna svona mikið eins og ég sakna elsku pabba míns. Pabbi háði hetjulega baráttu við krabba- mein allt fram á síðasta dag. Pabbi þekkti ekki að gefast upp, það var ekki til í hans orðabók. Pabbi vildi allt fyrir alla gera og hann hjálpaði mörgum án þess að fólk vissi því hann vildi ekki bera góðverk sín á torg. Hjálpsamari mann er erfitt að finna. Hann var fyrstur manna til að koma til aðstoðar hvort sem það fól í sér að hoppa upp í flugvél og aðstoða í eldgosi, opna heimili sitt og mömmu fyrir fólki í neyð, aðstoða mig við frágang ML-rit- gerðarinnnar á sínum tíma, elda fyrir mig orkusúpu þegar ég var veik eða sópa snjó af bílnum mín- um. Hann passaði dóttur mína endalaust, skutlaði henni út um allt og var besti afinn. Hann mætti meira að segja með henni í fiðlu- tíma. Pabbi var langt á undan sinni samtíð hvað umhverfisvernd varð- ar. Hann og mamma ræktuðu grænmeti í garðinum, voru með moltu úti í garði og pabbi byrjaði að flokka rusl á síðustu öld. Ég sakna þess að ræða stjórn- mál við þig pabbi minn og vera með kosningavöku. Ég á eftir að sakna þess að horfa á kosninga- sjónvarpið með þér langt fram á nótt eins og ég hef gert frá því ég var lítil. Kosningavökurnar okkar voru heilagar og ekkert mátti trufla þær, þá var spáð í spilin og pabbi talaði um allar mögulegar útkomur eins og honum einum var lagið. Ég sakna þess að leita ráða hjá þér í erfiðum málum. Hver á nú að lesa yfir greinargerðir og gefa mér ráð. Segja mér að standa hörð á mínu og gefa ekkert eftir. Hlusta á sannfæringu mína og fylgja henni. Ég sakna þess að þú keyrðir mig alltaf út á flugvöll þegar ég fór ut- an og við spjölluðum um allt milli himins og jarðar. Þetta var okkar gæðastund. Ég sakna þess að heyra þig segja: „Mikið ertu nú ákveðin, Vil- borg,“ og ég að svara: „Ég er bara nákvæmlega eins og þú pabbi minn!“ Ég heyri þig segja „ég er svo glaður að vera kominn heim“ þeg- ar þú komst heim af spítalanum og ég er svo þakklát að við gátum lát- ið ósk þína rætast um að þú gætir verið heima með mömmu og okkur fjölskyldunni. Við pössum vel upp á mömmu fyrir þig eins og þú baðst mig um. Ég ætla að hætta núna og kveðja þig með orðunum sem ég sagði við þig á hverju kvöldi í veik- indunum: Ég elska þig pabbi minn, góða nótt og reyndu nú að hvíla þig, ég passa þig. Vilborg Þóranna. Elsku afi minn … hvar á ég að byrja? Hann afi minn var einn besti maður sem ég hef kynnst og besti afi sem hægt er að hugsa sér. Hann hefur frá fyrsta degi verið stoð mín og stytta, kletturinn minn sem passaði alltaf svo vel upp á litlu stelpuna sína. Afi vildi alltaf allt gera fyrir fólkið sitt. Hann var týpan sem sótti mig í sumarbúðir þegar ég fékk heimþrá, hann var týpan sem gerði sér leið hjá vinnunni minni bara til þess að skafa bílinn minn því það kyngdi niður snjó um morguninn. Hann var týpan sem hringdi alltaf þegar það var spáð vondu veðri, bara til þess að athuga hvort maður ætlaði ekki bara að halda sig heima á meðan þetta gengi yfir. Hann var týpan sem var alltaf til í að skutla manni og sækja á æfingar. Hann var týpan sem hefði komið að sækja mann hvert sem er og hve- nær sem er. Sama hvaða tíma dags; hann hefði alltaf komið. Hann eldaði alltaf besta hafra- grautinn ofan í okkur barnabörnin og sagði bestu sögurnar á meðan. Afi var maðurinn sem kenndi mér svo margt um lífið og tilveruna. Hann t.d. bakkaði bílnum alltaf í öll stæði og það fyrsta sem hann gerði þegar ég var komin með ald- ur til var að kenna mér að bakka bílnum í stæðið. Hann var sá sem fékk alltaf fyrsta símtalið frá mér, sama hvert umræðuefnið var. Ef það kom ljós í mælaborðið, þá hringdi ég í afa … ef ég hafði spennandi fréttir að færa var afi alltaf fyrstur til þess að heyra af því. Við gátum talað saman um allt og ekkert tímunum saman og hlegið hátt og mikið. Hann var svo sannarlega besti vinur minn og mun ég sakna þess svo mikið að geta ekki gripið tólið og hringt í elsku afa. Þessir síðustu mánuðir þar sem veikindin tóku yfir hafa verið erf- iðir fyrir okkur öll, þá sérstaklega fyrir þig en þú barðist við krabba- meinið eins og hetjan sem þú varst. Ég vona að þú náir að hvíl- ast núna elsku afi minn. Ég mun alltaf geyma minningarnar í hjarta mínu og fara með þá visku sem þú kenndir mér og gafst mér í vega- nesti út í lífið. Dreymi þig fallega drauma elsku afi, ég elska þig. Þín afastelpa, Þóranna Bjartey. Þegar við barnabörnin vorum yngri þá vorum við löngum stund- um heima hjá afa og ömmu í Reykjavík. Þetta nafn festist við þau þar sem þau bjuggu jú í Reykjavík, þar sem amma býr enn, en við í Hafnarfirði. Við dvöldum flestar hátíðir hjá afa og ömmu og fórum þangað í fjöldann allan af veislum, enda fannst þeim fátt skemmtilegra en að halda boð. Var þá alltaf víst að afi væri með röð og reglu á hlut- unum. Þá var líka nokkuð víst að kveikt var á fjórum útvarpstækj- um í einu, í öllum hornum hússins, og hann heyrði í þeim öllum, enda með ofurheyrn. Jólaboðin voru sérstaklega minnisstæð, þar sem hangikjöt og hamborgarhryggur var á boðstól- um. Afi eldaði og skar kjötið á al- veg ákveðinn hátt en hvernig það var skorið var alveg sérstaklega mikilvægt. Allt eftir kúnstarinnar reglum. Hann var lunkinn í eld- húsinu og gerði til dæmis alveg sérstaklega góða grauta. Hafra- grauturinn var í miklu uppáhaldi og hann skyldi sjóða í 20 mínútur, að öðrum kosti væri hann óætur samkvæmt afa. Hann hafði tröllatrú á mjólk og lýsi, sem og lakkrís! Afi var mikill sælkeri þegar kom að nammi og alltaf hægt að leita uppi nammi hjá honum og ömmu þegar við komum í heimsókn. Nokkuð sem við gerðum mikið af þegar við vorum yngri. Í seinni tíð, þegar barnabarnabörnin komu í heim- inn, þá komu afi og amma reglu- lega í heimsókn til þess að passa upp á að þau fengju nú alveg pott- þétt nammi. Páskaegg og jóla- dagatöl, afi kom alltaf færandi hendi. Má eiginlega segja að þarna hafi tvö af hans stærstu áhugamálum smollið saman. Það er að fara í bíltúr og svo að gefa nammi. Jú og svo fannst honum frekar gaman að borða nammið líka! Honum fannst fátt skemmti- legra en að keyra og hann var alltaf boðinn og búinn að sækja og skutla okkur krökkunum og voru þá ferðirnar vel nýttar til að fara yfir málefni líðandi stundar. Nú þegar við syrgjum afa, en hann lést eftir rúmlega tveggja ára hetjulega baráttu við krabba- mein, þá eru það þessar minn- ingar sem við yljum okkur við, þegar hann er farinn í sína síð- ustu ferð. Hvíl í friði elsku afi, afi í Reykjavík. Kristján Valgeir, Þóranna, Jóna Elísabet og Þórarinn Sigurgísli. Kristján Guð- bjartsson Bergman Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og systir, GUÐBJÖRG SIGFÚSDÓTTIR sjúkraliði, Löngulínu 28, Garðabæ, andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánudaginn 15. ágúst. Útförin verður gerð frá Garðakirkju á Álftanesi þriðjudaginn 30. ágúst klukkan 15. Eiríkur Þormóðsson Lilja Einarsdóttir Davíð Másson Kristján Einarsson Guðrún Lilja Kristinsdóttir Styrkár Jökull Davíðsson Kristín Lilja Kristjánsdóttir Einar Axel Kristjánsson systur og fjölskyldur Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, pabba, tengdapabba, afa og langafa, KARLS HÖFÐDALS MAGNÚSSONAR sjómanns, Sigtúni 11, Patreksfirði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Heilbrigðisstofun Vestfjarða Patreksfirði, fyrir góða umönnun og hlýju í hans garð. Björg Bjarnadóttir Sigríður Valdís Karlsdóttir Páll Hauksson Ásgeir Andri Karlsson Hrefna Sigurðardóttir Ólafía Kristín Karlsdóttir Rögnvaldur Bjarnason Jónas Dalberg Karlsson Ásrún Kristjánsdóttir Bjarnfríður Elín Karlsdóttir Örn Eiríksson Sóley Guðjóna Karlsdóttir Þorsteinn Björnsson afabörn og langafabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, MARGRÉT KRISTÍN SIGURÐARDÓTTIR viðskiptafræðingur, lést á Landspítalanum sunnudaginn 21. ágúst. Kristín Vala Ragnarsdóttir Halldór Páll Ragnarsson Jóhanna H. Jónsdóttir Sigurður R. Ragnarsson Þórdís Kjartansdóttir Margrét Dóra Ragnarsdóttir Hjálmar Gíslason og barnabörn Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÁRNI SIGVALDASON, Hafnarfirði, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey. Innilegar þakkir til starfsfólks líknardeildarinnar Kópavogi og líknarþjónustu Heru fyrir einstaka umönnun og hlýtt viðmót. Þökkum auðsýnda samúð. Sigríður Tómasdóttir Ívar Árnason Hlíf I. Árnadóttir Jörgensen Xaverine Árnason Bates Claus Jörgensen Júlíana Björt Ívarsdóttir Freyja Celeste Ívarsd. Bates Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, HALLDÓR VALGARÐUR KARLSSON, Gónhól 34, Reykjanesbæ, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn 21. ágúst. Jarðarförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hins látna. Ingibjörg Pétursdóttir Pétur Þór Halldórsson Eva Björk Valdimarsdóttir Tinna Sigrún Pétursdóttir Ísak Örn Pétursson Karl Halldórsson Áslaug Karlsdóttir Benedikt Karlsson Halldór Karlsson Gunnar Ágúst Halldórsson Linda Helgadóttir Glódís Líf Gunnarsdóttir Helena Rán Gunnarsdóttir Sara Ósk Gunnarsdóttir Atli Þór Gunnarsson Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGMAR SIGURÐSSON, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi þriðjudaginn 23. ágúst. Útför hans fer fram frá Vídalínskirkju mánudaginn 29. ágúst klukkan 13. Hjalti Hreinn Sigmarsson Hulda Ósk Jóhannsdóttir Ásta María Sigmarsdóttir Haukur Steinn Ólafsson Sigrún Marta Sigmarsdóttir Daníel Páll Jóhannsson Magnús Víkingur Hjaltason Agnes Freyja Hjaltadóttir Sigrún Helga Hauksdóttir Sigmar Þór Hauksson Amelía G. Daníelsdóttir Axel Páll Daníelsson Jóhann Víkingur Daníelsson Hjartkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, bróðir og afi, HERGEIR J. S. Á MÝRINI trésmiður, Suðurgötu 32, Hafnarfirði, lést í Landsjúkrahúsinu í Þórshöfn í Færeyjum 3. ágúst. Útför hans fór fram í kyrrþey að ósk hins látna, frá Hafnarfjarðarkirkju 23. ágúst. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug í okkar garð. Kristín Sigurðardóttir Sigurður S. Hergeirsson Hildur Kristjánsdóttir Jóhanna B. Hergeirsdóttir Björn Aðalsteinsson Kristinn Guðni Hergeirsson Guðmunda Hergeirsdóttir Stefán Árni Stefánsson Martin á Mýrini Ása á Mýrini Jónberg á Mýrini Fríðgerð á Mýrini Arndal á Mýrini Elisabet Askham á Mýrini og barnabörnin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.