Morgunblaðið - 25.08.2022, Síða 48
48 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2022
LC02
Leður
Verð frá 329.000,-
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (Visa / Euro) í allt að 6 mánuði.
HÆGINDASTÓLL
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
40 ÁRA Yrsa ólst upp í Nova Scotia
í Kanada fram að sex ára aldri en síð-
an í Garðabæ. Nú býr hún í Vestur-
bænum í Reykjavík. Yrsa lærði
frönsku og bókmenntir við Sorbonne-
háskóla í París. Auk þess hefur hún
búið í Bordeaux, í Montréal og í Sví-
þjóð. Hún lauk meistaraprófi í
frönskum fræðum frá Háskóla Ís-
lands, kennsluréttindum á fram-
haldsskólastigi og prófi frá Leiðsögu-
skóla Íslands.
Yrsa hefur unnið sem frönsku-
kennari og leiðsögumaður, en starfar
nú aðallega sem rithöfundur, auk
þess sem hún kennir íslensku sem er-
lent mál. Yrsa skrifar bæði fyrir fullorðna og börn. Hún hefur skrifað þrjár
skáldsögur fyrir fullorðna, nú síðast Strendinga, sem tilnefnd var til Bók-
menntaverðlauna Evrópusambandsins, og á næsta ári kemur ný skáldsaga
út. Fyrir börn hefur hún skrifað bókaflokkinn Bekkurinn minn. Fjórða bókin
kom út á þessu ári og von er á þeirri fimmtu í september. Yrsa segir lítið mál
að skipta á milli barnabóka og fullorðinsbóka, enda hafi hún fyrst og fremst
áhuga á persónum, sögum þeirra og klípum hins daglega lífs.
Yrsa hefur gaman af öllu sem er skapandi og skemmtilegt eða þar sem
leikur og kapp koma við sögu. Hún er mikið barn í sér enn og á ótal áhuga-
mál.
„Borðspil eru í miklu uppáhaldi, dans og söngur – hvort sem um ræðir ka-
rókí eða kórsöng, spuni (öðru nafni improv), fótbolti, fjallgöngur, góðar bæk-
ur og nýjasta áhugamálið, prjónaskapur. Svo er ég sérstök áhugakona um
fjölbreytta og metnaðarfulla leikvelli og held úti síðunni Flottir.leikvellir á
Instagram, í von um vitundarvakningu hjá borginni og borgurum almennt.“
FJÖLSKYLDA Eiginmaður Yrsu er Gunnar Theodór Eggertsson, f. 1982,
rithöfundur. Börn þeirra eru Þórhildur Elín, f. 2011, Laufey Edda, f. 2015, og
Gylfi Þór, f. 2017. Foreldrar Yrsu: Þuríður Rúrí Jónsdóttir, f. 1941, taugasál-
fræðingur, búsett í Reykjavík, og Gylfi Baldursson, f. 1937, d. 2010, heyrnar-
og talmeinafræðingur.
Yrsa Þöll Gylfadóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú ættir að leggja góðum málstað
lið með því að leggja orð í belg. Mundu að
verður er verkamaður launa sinna og það á
við um þig sem aðra.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þú hefur lúmskan grun að einhver sé
vinur þinn til að fá eitthvað út úr þér.
Kannski þarftu að rífa upp smávegis illgresi
til þess að hleypa nýjum sprotum að.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Augu þeirra, sem eru í kring um
þig, eru að opnast fyrir þeim hæfileikum
sem þú ert gæddur. Þú þarft að koma til
móts við auknar kröfur.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þótt það sé yndisleg tilfinning að
leysa annarra vandamál eigum við fyrst og
fremst að leysa okkar eigin. Reyndu að fara
vel að fólki.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú getur verið ánægður með hlutina
eins og þeir eru, en samt leitað framfara.
Taktu þér tíma til að hugsa málin.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þú þarft að standa á rétti þínum en
gæta þess um leið að gera ekki meira úr
hlutunum en nauðsyn krefur. Láttu alla
sjálfsmeðaumkun lönd og leið.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Reyndu að fá útrás fyrir sköpunargleði
þína því það gengur ekki til lengdar að
byrgja hana inni. Ekki kaupa neitt án þess
að hugsa þig tvisvar um.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Spennan ríkir bæði innra með
þér og í kringum þig. Einhver þér nákominn
mun skýra frá leyndarmáli.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Vinur þinn þarfnast skilnings
og góðra ráða. Vertu óhræddur við að
blanda þér í umræður annarra um mál sem
þér eru hjartfólgin.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Nýir möguleikar opnast og þú
ert vel í stakk búinn til að greina í milli og
velja þá leið sem farsælust er. Gleymdu
ekki þeim sem lögðu þér lið.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Notaðu daginn til þess að
kynna hugmyndir þínar fyrir einhverjum.
Innsæi þitt leiðir þig nákvæmlega þangað
sem þú átt að vera.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Taktu frítímanum jafn alvarlega og
ef um vinnu væri að ræða. Fáðu útrás fyrir
listrænar tilhneigingar þínar með ein-
hverjum hætti.
aðalbyggingar HÍ að leggja grunn-
inn að þjónustu við háskólanema.
Verkefnið var mikil áskorun sem
varði í raun í öll þau tæplega 20 ár
sem ég starfaði þar. Í gegnum
árið og mér bent á að fara og kanna
hvort þörf væri fyrir mína krafta á
þeim bæ.
Mánuði eftir að ég lauk náminu
var ég sest við borð á þriðju hæð
Á
sta Kristrún Ragnars-
dóttir fæddist 25. ágúst
1952 í Reykjavík. „Ég
fæddist í fjölskylduhúsi
móður minnar á Vest-
urgötu en flutti að Jörva við Vest-
urlandsveg þar sem foreldrar mínir
reistu nokkurs konar menningar- og
hestabúgarð. Lífið í kringum hest-
ana hafði mótandi áhrif en einnig
sumarvinnan á Barnaheimilinu
Steinahlíð frá því sumarið sem ég
varð 12 ára og þar til ég lauk lands-
prófi.
Ég var rétt byrjuð í Mennta-
skólanum í Reykjavík þegar hugur
minn snerist og lagði ég þá í mína
fyrstu utanlandsferð og dvaldi í eitt
ár í New Haven Connecticut hjá
frænku minni. Þar fékk ég tækifæri
til að taka námskeið í myndlistar-
skóla og sækja námskeið í ensku
fyrir erlenda nema við sjálfan Yale-
háskólann.
Móðir mín var alltaf upptekin af
því að konur skyldu mennta sig til
að geta séð sér og sínum farborða
svo ég fór heim, varð stúdent en
strax haustið á eftir var ég komin í
nám við háskólann í Caen í Frakk-
landi, fyrst nam ég frönsku fyrir er-
lenda og síðan grísku og latínu.
Aftur togaði Ísland mig til baka
og ég lauk þá frönskunáminu en í
kjölfarið hóf ég nám í sálfræði. Í
millitíðinni gekk ég reyndar með
fyrsta barn okkar Valgeirs og
kenndi á meðgöngunni dönsku í
Garðaskóla einum 250 nemendum 7.
og 8. bekkjar og frönsku í Náms-
flokkunum á kvöldin.
Þegar frumburðurinn var orðinn
ársgamall vildi Valgeir utan til náms
og lá þá leiðin til Þrándheims.
Fyrsta árið þar lærði ég sálfræðina í
fjarnámi eða utanskóla, en árið þar
á eftir var opnuð lítil deild við Há-
skólann sem bauð upp á diplóma-
nám í námsráðgjöf. Þannig vildi til
að enginn hafði áður lokið fram-
haldsnámi í því fagi en samþykkt
legið fyrir innan Háskóla Íslands að
ráða námsráðgjafa um leið og ein-
hver kæmi heim með menntun í
þeirri grein.
Ég hafði enga vitneskju um það
fyrr en ég kom heim í frí eftir fyrra
tengsl Háskóla Íslands og Minne-
sota-háskóla fékk ég mikinn fagleg-
an stuðning þar sem fagið hafði fyr-
ir löngu fest í sessi í Bandaríkjunum
og löngu áður en námsráðgjöf var
sinnt á Norðurlöndum og reyndar í
Evrópu almennt.
Fyrirmyndin og stuðningurinn
frá Minnesota leiddi meðal annars
til undirbúnings að stofnun náms í
námsráðgjöf við HÍ sem ég var virk
í. Ein er sú varða sem ég er hvað
stoltust af á ferli mínum sem fékkst
líka í gegn með faglegum stuðningi
frá Minnesota. Það var tilkoma
lagasetningar um réttindi ein-
staklinga með hamlanir til að hljóta
úrræði við hæfi. Þannig gátu náms-
ráðgjafar leitað lausna í samstarfi
við kennara og starfsfólk í stjórn-
sýslu svo þeir einstaklingar gætu
stundað háskólanám til jafns við
aðra.
Þá var það mikilvægur kafli í lífi
mínu að að taka þátt í Kvenna-
framboðinu í Reykjavík en líka að
eiga sæti í Barnaverndarráði Ís-
lands í fjögur ár. Þangað komu öll
þau mál sem barnaverndarnefndir á
landinu gátu ekki náð að lenda. Sem
fulltrúi í ráðinu var ég beðin að taka
sæti í tæknifrjóvgunarnefnd sem
starfaði hvorki meira né minna en í
níu ár áður en frumvarp um þann
málaflokk var lagt fyrir Alþingi.
Þegar nefndin loks skilaði af sér til-
lögu til frumvarps náðist ekki sam-
komulag um hvort leggja ætti til
heimild um eggjagjöf til jafns við
sæðisgjöf og þá var lendingin að
skila a- og b-kosti. Eggjagjöfin sigr-
aði mér til mikillar gleði. Ég hafði
allan tímann í höfði mér bekkjar-
systur úr barnaskóla, en móðir
hennar var með erfðagalla sem dæt-
ur hennar erfðu og leiddi til heila-
blóðfalls og dauða snemma á lífsleið-
inni. Bekkjarsystir mín eignaðist
stúlkubarn sem erfði ekki þennan
veikleika sem betur fer, en móðirin
lést þegar dóttir hennar var enn ung
að árum.
Eftir að hafa starfað við að greina
og veita fólki á öllum aldri ráðgjöf í
hátt í fjörutíu ár og forma kenn-
ingar út frá reynslu minni tók við
nýr kafli sem hefur þó mikið með
Ásta Kristrún Ragnarsdóttir, fv. forstöðumaður námsráðgjafar við HÍ – 70 ára
Hjónin Valgeir og Ásta Kristrún með tónleika í Hannesarholti 13. ágúst sl.
Á lífsins leið í sjötíu ár
Sagnakonan Ásta Kristrún nýtur sín í að miðla sögum frá liðinni tíð.
Til hamingju með daginn