Morgunblaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 49
DÆGRADVÖL 49 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2022 fólk að gera. Nýi kaflinn kallaði fram sögukonuna og út frá því hlut- verki bauðst mér að gerast rithöf- undur um stundarsakir og bókin Það sem dvelur í þögninni varð til. Með aðstoð barnanna okkar og góðs fólks varð menningarhúsið Bakka- stofa á Eyrarbakka til. Þar hófum við fyrir um níu árum að bjóða Ís- lendingum og erlendum gestum að bóka dagskrár sem byggðar eru á lifandi tónlist í bland við sögustund- ir. Bakkastofa er í nánu samstarfi við Húsið, Byggðasafn Árnesinga, Rauða húsið og Eyrarbakkakirkju. Fram undan eru gestakomur vina og vinnustaða sem vilja birgja sig upp fyrir haustið af gleði og efla samstarfsandann.“ Fjölskylda Eiginmaður Ástu Kristrúnar er Valgeir Guðjónsson, tónskáld og textahöfundur, f. 23.1. 1952. Þau eru búsett á Eyrarbakka. Foreldrar Valgeirs voru hjónin Margrét Árna- dóttir, f. 1.10. 1928, d. 24.11. 2017, hönnuður, og Guðjón Valgeirsson, f. 13.5. 1929, d. 7.3. 1993, lögfræð- ingur. Börn Ástu Kristrúnar og Valgeirs eru: 1) Árni Tómas, f. 9.5. 1977, fangavörður, búsettur á Eyrar- bakka; 2) Arnar Tómas, f. 10.5. 1989, blaðamaður, búsettur á Eyrar- bakka; 3) Vigdís Vala, f. 9.3. 1993, doktor í taugavísindum, búsett í Reykjavík. Systkini Ástu Kristrúnar: Krist- ján Tómas Ragnarsson, f. 15.11. 1943, endurhæfingarlæknir, pró- fessor og yfirlæknir; Lára Margrét Ragnarsdóttir, f. 9.10. 1947, d. 29.1. 2012, heilsuhagfræðingur og alþing- iskona; Árni Tómas Ragnarsson, f. 19.1. 1950, gigtarlæknir; Hallgrímur Tómas Ragnarsson, f. 25.1. 1961, viðskiptafræðingur og fram- kvæmdastjóri. Foreldrar Ástu Kristrúnar voru hjónin Ragnar Tómas Árnason, f. 13.3. 1917, d. 3.3. 1984, útvarpsþulur og verslunarmaður í Reykjavík, og Jónína Vigdís Schram, f. 14.6. 1923, d. 28.3. 2007, læknaritari. Ásta Kristrún Ragnarsdóttir Vigdís Magnúsdóttir húsfreyja í Reykjavík Jón Þórðarson skipstjóri í Reykjavík Lára Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavík Kristján Schram skipstjóri í Reykjavík Jónína Vigdís Schram læknaritari í Reykjavík Magdalena Árnadóttir húsfreyja í Reykjavík Ellert Schram skipstjóri í Reykjavík Tómas Hallgrímsson læknaskólakennari og yfirlæknir í Farsóttarhúsinu í Þingholtsstræti Ásta Thorgrímsson söngkona og kennari í matargerðarlist í Reykjavík, frá Húsinu á Eyrarbakka Kristrún Tómasdóttir píanóleikari og myndlistarkona í Reykjavík Árni Benediktsson stórkaupmaður í Reykjavík Ragnhildur Þórðardóttir húsfreyja í Selárdal Benedikt Kristjánsson hreppstjóri í Selárdal í Arnarfirði Ætt Ástu Kristrúnar Ragnarsdóttur Ragnar Tómas Árnason útvarpsþulur, revíusöngvari og heildsali í Reykjavík Bílamerkingar Vel merktur bíll er besta auglýsingin. Tökum að okkur allt frá litlum merkingum að heilpökkuðum bílum. Xprentehf. | Sundaborg3 |104Reykjavík |7772700|xprent@xprent.is www.xprent.is „ÉG ER EKKI BYRJAÐUR Á HENNI ENNÞÁ.“ „EF ÞÚ HEFUR EKKI FARIÐ MEÐ FARÞEGAFLUGI SÍÐUSTU SEXTÍU ÁRIN MUNTU KOMAST AÐ ÞVÍ AÐ MARGT HEFUR BREYST TIL BATNAÐAR.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að láta kossum rigna yfir hana. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann HEY! LOKAÐU ÍSSKÁPNUM! ÞÚ HLEYPIR KULDANUM ÚT! HVAÐ ERTU AÐ PÆLA?! HA?! GREINILEGA ORÐIÐ TÍMABÆRT AÐ HENDA MATARLEIFUNUM HRÓLFUR! EN FALLEGT AF ÞÉR AÐ KOMA Í HEIMSÓKN! HVERNIG LEGGST ÞAÐ Í UPPÁ- HALDSSKYTTUNA MÍNA AÐ VERA SEST Í HELGAN STEIN? ÉG ER SMÁM SAMAN AÐ VENJAST ÞVÍ. BÆKUR VIÐ KYNNUM HÖFUND BÓKARINNAR „FRESTUNAR- ÁRÁTTA“ VÆNTANLEG FLJÓTLEGA Páll Jónasson í Hlíð orti og er í nýútkominni ljóðabók eftir hann, – „Bland í poka“: Öfugmælavísa: Veit ég í eldi vatnið frýs, veit ég að kettir elska mýs og þingmenn í pontu segja satt og sægreifar borga tekjuskatt. Og um „Þarfasta þjóninn“: Þú hefur á baki best borið Jón og Gunnu, en verður þegar sól þín sest saltaður í tunnu. „Æi já“: Þó ég virðist í speglinum ungur enn við athugun nánari verður það ekki hrakið, að Elli kerling í glímu mig sigrar senn, því svoleiðis kvendi leggur víst enginn á bakið. Helgi Björnsson yrkir um „áform um útflutning jarðefna“: Jarðefni skal flytja út í feikna magni. Útlendingum er þá verið undan fólki að selja skerið Friðrik Steingrímsson orti á sunnudag: Farið virðist fyrir bí flest í sumarþránni, það er slegið úr og í í árans veðurspánni. Guðmundur Arnfinnsson spurði á mánudag: „Gamanið úti?“ Mannfólkið ráfar nú marið og blautt, margur fótur er snúinn, gosið í Meradölum er dautt og draumurinn kannski búinn. Hér yrkir Guðmundur „vísu um ekki neitt. Ýmsir skrifa langa for- mála til skýringar á vísukorni, sem inniheldur svo sem ekki neitt eða skreyta með mynd til áherslu, svo að vísan er oftast óþörf og hverfur í skuggann“: Vísukorn ég orti eitt, um það fátt vil segja, innihaldið ekki neitt, og átt hefði að þegja. Páll Imsland „í tilefni af öllum hlaupunum, sem menn og konur iðka þessa dagana undir alls konar formerkjum“: Hún kom út úr blokkinni brokkandi. Brosandi göturnar skokkandi, hún hljóp allan daginn í hendingi’ um bæinn, strákana laðandi’ og lokkandi. Anton Helgi Jónsson um skipu- lagsmálin í Þorlákshöfn sem hafa löngum verið ráðgáta: Mig gæti víst þrillera þyrst í ef Þorlákshöfn fengi ég gist í þar held ég að C-gata sem hét áður B-gata en heitir nú A-gata Christie. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Saltkjöt og Elli kerling
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.