Morgunblaðið - 25.08.2022, Síða 51
ÍÞRÓTTIR 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2022
Handknattleikskonan Ásdís Þóra
Ágústsdóttir er komin aftur til Vals
eftir eins árs lánsdvöl hjá Lugi í
Svíþjóð. Ásdís samdi við Lugi fyrir
einu og hálfu ári og gerði þá
tveggja ára lánssamning. Hún varð
hins vegar fyrir því óláni að slíta
krossband stuttu eftir að samkomu-
lagið var í höfn. Ásdís sinnti endur-
hæfingunni úti í Svíþjóð og lék
nokkra leiki fyrir Lugi undir lok
síðasta tímabils. Hún átti eitt ár til
viðbótar eftir af lánssamningnum
við Lugi en hefur nú ákveðið að
snúa aftur heim í Val.
Ásdís aftur
heim í Val
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Valur Ásdís Þóra Ágústsdóttir er
komin aftur til Vals frá Lugi.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir,
landsliðskona í knattspyrnu, er
gengin í raðir franska stórliðsins
París Saint-Germain. Kemur hún
frá norska meistaraliðinu Brann.
Frá þessu er greint á vef norska fé-
lagsins. Þar segir að hún hafi stað-
ist læknisskoðun og skrifað undir
samning við PSG. Franska félagið
hafði þó ekki staðfest félagaskiptin
í gær. Berglind Björg, sem er þrí-
tugur sóknarmaður, gekk til liðs
við Brann í upphafi þessa árs eftir
hálfs árs dvöl hjá sænska úrvals-
deildarliðinu Hammarby.
Morgunblaðið/Eggert
París Berglind Björg Þorvalds-
dóttir er komin til Parísar.
Frá Bergen til
Parísar
ÍTALÍA
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
„Ég er mjög ánægð með þessi fé-
lagaskipti og það hefur verið tekið
ótrúlega vel á móti mér á Ítalíu,“
sagði Alexandra Jóhannsdóttir,
landsliðskona í knattspyrnu og nýj-
asti leikmaður ítalska A-deild-
arfélagsins Fiorentina, í samtali við
Morgunblaðið.
Alexandra, sem er 22 ára gömul,
skrifaði undir tveggja ára samning
við Fiorentina sem er staðsett í
Flórens en hún kemur til félagsins
frá þýska 1. deildarfélaginu Ein-
tracht Frankfurt.
Miðjumaðurinn hélt út í atvinnu-
mennsku í janúar 2021 þegar hún
fór til Þýskalands frá Breiðabliki
þar sem hún hafði leikið frá árinu
2018. Hún varð tvívegis Íslands-
meistari með Blikum og einu sinni
bikarmeistari á tíma sínum í Kópa-
voginum.
„Ítalska deildin heillaði mig mik-
ið og þetta er deild sem er alltaf að
verða stærri og stærri. Flórens
heillaði mig líka enda er þetta
geggjuð borg. Pabbi og mamma
kíktu út til mín um daginn og pabbi
ætlaði ekki að vilja fara heim. Hann
var tilbúinn að selja allt heima til
þess að flytja hingað, sem segir
ýmislegt um það sem Flórens hefur
upp á að bjóða.
Svo er Fiorentina félag sem er í
ákveðinni uppbyggingu kvenna-
megin og þeir ætla sér stóra hluti.
Eftir að ég ræddi við þjálfara liðs-
ins, Patriziu Panico, þá var þetta í
raun aldrei spurning. Hún lagði
mikla áherslu á það að fá mig og
Fiorentina þurfti að kaupa mig af
Eintracht Frankfurt. Það segir
manni að félagið og þjálfarinn hafi
mikla trú á mér sem er mjög upp-
örvandi,“ sagði Alexandra.
Þurfti að skipta um umhverfi
Alexandra fékk fá tækifæri með
Eintracht Frankfurt á síðustu leik-
tíð og gekk til liðs við Breiðablik á
láni frá félaginu í maí á þessu ári til
þess að fá meiri spiltíma fyrir loka-
keppni Evrópumótsins sem fram
fór á Englandi í sumar.
„Það var erfitt að kveðja stelp-
urnar í Þýskalandi en ég fann að ég
þurfti að skipta um umhverfi til
þess að bæta mig sem fótboltamað-
ur. Það var gott að komast aðeins
heim í maí og spila með Breiðabliki
í aðdraganda Evrópumótsins og ég
fann það sérstaklega þá hversu
gott það var fyrir mig að komast í
annað umhverfi. Það var í raun eins
og þungu fargi væri af mér létt.
Á sama tíma sé ég alls ekki eftir
því að hafa farið til Þýskalands á
sínum tíma. Ég lærði ótrúlega mik-
ið í Frankfurt, ég kem sterkari
andlega út úr þeirri lífsreynslu og
ég þroskaðist mikið. Á meðan ég
bjó á Íslandi var ég vön því að
mamma sæi um allt. Ég gat ekki
einu sinni pantað tíma í klippingu
en í dag er ég fullfær um að gera
hlutina sjálf.“
Áskorun að læra ítölsku
Fiorentina vann tvöfalt á Ítalíu,
deildina og bikarinn, tímabilið
2016-’17, og þá varð liðið bik-
armeistari í annað sinn tímabilið
2017-’18 en liðið hafnaði í sjöunda
sæti A-deildarinnar á síðustu leik-
tíð.
„Ég fann það um leið og ég kom
hingað hversu mikill metnaðurinn
hjá félaginu er. Við erum strax
byrjaðar að undirbúa okkur fyrir
leikinn gegn AC Milan í 1. umferð
deildarinnar um helgina. Umgjörð-
in hérna er líka frábær. Við æfum
sem dæmi á sama æfingasvæði og
karlaliðið og erum með aðgang að
allri aðstöðunni sem stendur þeim
til boða.
Það verður ákveðin áskorun að
læra ítölskuna enda er hún mjög
ólík öllu því sem maður vanur. Ég
byrja í ítölskukennslu um leið og ég
sný aftur úr landsliðsverkefnunum
í september og það verður fínt. Það
er bara töluð ítalska við mann
hérna úti, bæði úti á götu sem og á
æfingasvæðinu, og það er gert ráð
fyrir því að maður skilji allt þannig
að maður þarf að læra hratt.“
Ný keppni og nýir leikir
Alexandra á að baki 26 A-
landsleiki fyrir Ísland þar sem hún
hefur skorað þrjú mörk en hún kom
við sögu í tveimur leikjum liðsins í
lokakeppni EM í sumar. Þá er hún í
landsliðshópnum sem mætir Hvíta-
Rússlandi og Hollandi í september
í lokaleikjum sínum í undankeppni
HM 2023.
„Það er alltaf gaman að hitta
landsliðið og ég er mjög spennt fyr-
ir þessum leikjum sem fram undan
eru. Við eigum góða möguleika á
því að komast beint á HM ef við
hittum á góðan dag.
Vissulega náðum við ekki mark-
miðum okkar á Evrópumótinu á
Englandi en það mót er búið núna
og þetta er ný keppni og nýir leikir.
Við ætlum okkur á HM,“ bætti
Alexandra við í samtali við Morg-
unblaðið.
„Ég gat ekki einu sinni
pantað tíma í klippingu“
Morgunblaðið/Eggert
Ítalía Alexandra Jóhannsdóttir og Valentina Bergamaschi í leik Íslands og Ítalíu á EM, þar sem Alexandra heillaði forráðamenn Fiorentina.
- Alexandra komin til Fiorentina - Ítalska deildin alltaf að verða stærri
Þótt íslenska kvennalands-
liðinu í fótbolta hafi ekki tekist
að vinna leik á Evrópumótinu á
Englandi í sumar er greinilegt að
ákveðnir leikmenn heilluðu með
frammistöðu sinni á mótinu.
Alexandra Jóhannsdóttir átti
góða innkomu þegar hún kom
inn á sem varamaður í leiknum
gegn Ítalíu og var nálægt því að
skora sigurmarkið. Hún heillaði
ekki aðeins íslenska stuðnings-
menn, heldur einnig ítalska.
Það hefur skilað sér í
spennandi félagaskiptum til
Fiorentina í Flórens. Alexöndru
tókst ekki að vinna sér fast sæti
í byrjunarliði Frankfurt í Þýska-
landi en við vitum öll hve hæfi-
leikarík hún er. Það verður afar
spennandi að sjá hvernig hún
stendur sig á Ítalíu, þar sem Ís-
lendingar eru orðnir nokkuð
áberandi í A-deildinni.
Anna Björk Kristjánsdóttir
leikur með Inter Mílanó, Guðný
Árnadóttir með AC Milan og
Sara Björk Gunnarsdóttir er
komin til Juventus. Það verða
því að minnsta kosti fjórar ís-
lenskar landsliðskonur í mjög
sterkum ítölskum liðum í A-
deildinni á leiktíðinni, sem er af-
ar vel.
Þá bárust þær fréttir í gær
að franska stórveldið París SG
væri að ganga frá samningi við
framherjann Berglindi Björgu
Þorvaldsdóttur. Berglind skoraði
fyrsta mark Íslands á EM í jafn-
teflinu við Belgíu og leiddi fram-
línu íslenska liðsins. Það eru ein-
staklega spennandi félagaskipti.
Dagný Brynjarsdóttir er svo
orðin fyrirliði West Ham á Eng-
landi, sem eru stórskemmtilegar
fréttir. Dagný hefur alla tíð verið
stuðningsmaður félagsins og er
magnað að hún sé nú orðin fyrir-
liði Lundúnaliðsins. Æskudraum-
ar geta svo sannarlega ræst.
BAKVÖRÐUR
Jóhann Ingi
Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Hollenska knatt-
spyrnu-
sambandið hefur
tilkynnt ráðn-
ingu á nýjum
þjálfara A-
landsliðs kvenna.
Sá heitir Andries
Jonker og er 59
ára gamall Hol-
lendingur. Hann
hefur komið víða
við og til að mynda verið aðstoð-
arþjálfari Louis van Gaal hjá karla-
liðum bæði Barcelona og Bayern
München og tók raunar við stjórn-
artaumunum af van Gaal hjá Bæj-
urum árið 2011 til bráðabirgða.
Jonker tekur við af Mark Par-
sons sem var látinn taka pokann
sinn fyrr í mánuðinum eftir von-
brigðagengi Hollands á EM 2022 á
Englandi í sumar. Síðast var Jonk-
er þjálfari hollenska karlaliðsins
Telstar í B-deildinni.
Fyrsta verkefni Jonkers verður
mikilvægur leikur gegn Íslandi í C-
riðli, úrslitaleikur um efsta sæti
riðilsins sem gefur beint sæti á HM
2023 í Ástralíu og Nýja-Sjálandi.
Sá leikur fer fram 6. september
næstkomandi í Utrecht í Hollandi.
Holland á aðeins þennan eina leik
eftir í riðlinum en Ísland tvo. Ís-
land mætir Hvíta-Rússlandi á
Laugardalsvelli 2. september og
getur með sigri komist á topp C-
riðils fyrir leikinn mikilvæga gegn
Hollandi.
Jonker ráðinn
til Hollands
Andries
Jonker