Morgunblaðið - 25.08.2022, Side 60
SALTO
Hornsófi, hægri eða vinstri. Kentucky bonded
leðuráklæði, stone eða koníak. 275×216×85 cm.
Nú 295.992 kr. 369.990 kr.
ECLIPSE
Borðstofuborð, grár askur.
200×110×77 cm.
Nú 209.992 kr. 279.990 kr.
www.husgagnahollin.is
Sími: 558 1100
Verð og vöruupplýsingar í auglýsingunni eru birtar með fyrirvara um prentvillur.
20-30%
afsláttur af völdum vörum
25. - 29. ágúst
HELGAR
S P R E N G J A
g i.
308×203×81 cm. Nú 139.993 kr. 199.990 kr.
EVELAND
ornsófi í Riviera dökk ráu áklæði. Vinstr
30%
CANNES
Hægindastóll,
ýmsir litir.
159.992 kr.
199.990 kr.
MADISON
Hægindastóll. Ýmsir litir.
Nú 34.993 kr. 49.990 kr.
30%
HEAVEN 3,5 sæta sófi í fallegu Danny Nougat áklæði.
290×105×82 cm. Nú 263.992 kr. 329.990 kr.
25%
Elín Hall þreytir
frumraun sína
sem leikkona á
Stóra sviði Borg-
arleikhússins í
sýningunni Níu líf
en hún tekur við
hlutverki Reiða
Bubba, Ingu og
Brynju af Rakel
Björk Björns-
dóttur. Elín út-
skrifaðist frá LHÍ í
vor og fór þar með
hlutverk Ófelíu í
Hamlet. Hún hlaut
tilnefningu til Edduverðlaunanna fyrir leik sinn í mynd-
inni Lof mér að falla. Sýningar á Níu lífum, sem hlaut
Grímuna sem sýning ársins, hefjast aftur annað kvöld,
en búið er að sýna yfir 100 sýningar af þessu vinsæla
verki sem fjallar um líf tónlistarmannsins Bubba
Morthens.
Nýútskrifuð leikkona í Níu lífum
FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 237. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta mátti þola 57:87-
tap á útivelli gegn Spánverjum er liðin mættust í fyrsta
leik í lokaumferð undankeppni heimsmeistaramótsins í
Pamplona á Norður-Spáni í gærkvöldi.
Spænska liðið lagði grunninn að sigrinum í fyrri hálf-
leik, en hálfleikstölur voru 51:28. Seinni hálfleikur var
töluvert jafnari og átti íslenska liðið fína kafla, en for-
skoti spænska liðsins var aldrei ógnað og þægilegur
spænskur sigur varð raunin. Ísland mætir Úkraínu í
Ólafssal á Ásvöllum á laugardag. »50
Spánverjar reyndust of sterkir
ÍÞRÓTTIR MENNING
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Hópurinn var stór og leiðin greið
þegar nýr hjólreiða- og göngustígur
í Mosfellsbæ var formlega opnaður í
gær. Stígurinn er frá félagsheim-
ilinu Brúarlandi, fram hjá bæjar-
garðinum og yfir í
Leirvogstungu.
Er því tenging
milli elstu og
yngstu hverfa
bæjarins. Alls er
stígurinn góði 1,7
kílómetra langur
og fimm metra
breiður. Á honum
eru hjólareinar
hvor í sína áttina
og hefðbundin
göngubraut. Stígurinn er samstarfs-
verkefni Vegagerðarinnar og Mos-
fellsbæjar og eitt af fyrstu stíga-
verkefnunum sem heyra undir
samgöngusáttmálann svonefnda, en
þar eru í pakkanum stígar, hrað-
brautir, brýr og borgarlína, sam-
kvæmt því samkomulagi sem nú
gildir milli ríkisins og sveitarfélag-
anna á höfuðborgarsvæðinu.
Malbikaður stígur og tvær brýr
Ásgeir Pétur Ásgeirsson og Elísa-
bet Steinunn Andradóttir, nem-
endur í 4. bekk í Krikaskóla í Mos-
fellsbæ, klipptu á borða, sem
markaði formlega opnun stígsins,
sem reyndar er kominn í notkun fyr-
ir nokkru. Stígurinn er malbikaður
og á honum tvær brýr; yfir Varmá
og Köldukvísl.
„Á síðustu árum hefur orðið algjör
vitundarvakning hvað varðar vist-
vænar samgöngur sem fólk nýtir sér
sífellt meira,“ segir Halla Karen
Kristjánsdóttir, formaður bæjarráðs
Mosfellsbæjar, sem tók þátt í opnun
stígsins góða í gær. „Víða og af
mörgum hefur á undanförnum árum
verið haldið á loft hvatningu til fólks
um að nýta hjólreiðar í ríkari mæli
þegar farið er til vinnu, út í búð og í
skólann. Bæði er slíkt vistvænt og
umhverfinu í hag, en vinnur líka að
bættri lýðheilsu. Mín staðfasta trú
er sú að fólk sem er duglegt að
hreyfa sig og stunda útiveru auki
með því lífsgleði sína og þar með
heilsu. Auðvitað kostar talsvert að
útbúa samgöngustíg eins og þennan
sem nú var verið að taka í gagnið.
Verði þetta hins vegar til þess að
fólk hreyfi sig meira og bæti lýð-
heilsu skila þeir fjármunir sér mjög
fljótt aftur til samfélagsins.“
Þéttriðið stíganet
um höfuðborgarsvæðið
Aðstaða til útivistar og hreyfingar
er með besta móti í Mosfellsbæ.
Hjólastígar liggja víða um svæðið og
ekki vantar mikið á að tenging sé
komin til Reykjavíkur. Segja má að
á höfuðborgarsvæðinu sé komið
þéttriðið stíganet, sem gert hefur
vistvænar samgöngur að raunhæf-
um kosti fyrir fólk á ferðinni.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sprettur Ungir Mosfellingar opnuðu stíginn með því að hjóla yfir brú yfir Varmá sem er í grænum lundi.
Vistvænar samgöngur
verða sífellt vinsælli
- Nýr stígur í Mosfellsbæ - Milli bæjarhluta - Lýðheilsa
Halla Karen
Kristjánsdóttir