Morgunblaðið - 01.10.2022, Side 1

Morgunblaðið - 01.10.2022, Side 1
L A U G A R D A G U R 1. O K T Ó B E R 2 0 2 2 .Stofnað 1913 . 230. tölublað . 110. árgangur . Laugavegi 174, 105 Rvk. www.volkswagen.is Multivan T7 eHybrid 7 manna fjölskyldubíll SNORRI ÞÝDDUR Á FRÖNSKU BARIST UM BIKARINN FH OG VÍKINGUR ETJA KAPPI 36DILLMANN 14 _ Hinn átta ára gamli Sindri Sæberg slasaðist illa í trampól- íngarði á Tenerife í ágústbyrjun og braut báða hæla og ökkla. Það var þó ekki greint fyrr en löngu síðar og þurfti fjölskyldan að þola for- kastanleg vinnubrögð lækna er- lendis sem töldu drenginn vera að gera sér upp sársauka. „„Er hann að feika þetta?“ spurði einn læknirinn og við svöruðum að við héldum svo ekki vera,“ segir móðir hans Eva Dögg Jafetsdóttir, enda var barnið mjög kvalið. Viðtal er við Sindra og mæður hans, Evu og Álfheiði Björk Sæberg, í Sunnu- dagsblaði Morgunblaðsins. Morgunblaðið/Ásdís Brot Sindri er nú á batavegi en hann brotnaði á báðum hælum og ökkla. Læknar erlendis trúðu ekki barninu _ Reykjavík- urborg sagði upp samningi sínum við Orku náttúrunnar, ON, um götulýs- ingarþjónustu eftir að söluferli þjónustunnar hófst í sept- ember sl. Það sama gerði Vegagerðin. Þá sagði Akranes upp samningi sínum síðasta vor. Tekjur ON vegna samningsins við borgina nema 320 m.kr. á ári. Heildartekjur götulýsingarþjónust- unnar námu 600 m.kr. 2021. Aðrir viðskiptavinir götulýsing- arþjónustu ON eru m.a. Mosfells- bær, Seltjarnarnes og Faxaflóa- hafnir. Heimildarmenn Morgun- blaðsins telja ekki ólíklegt að þessir aðilar fylgi fordæmi hinna. Heimildir Morgunblaðsins herma einnig að hvorki Vegagerð- inni né Reykjavíkurborg hafi hugnast að framselja ætti þjón- ustuna til þriðja aðila. »22 Uppsögn eftir að söluferli ON hófst Ljós Skipt um peru í höfuðborginni. Einstök málverk eftir marga af frumherjum ís- lenskrar myndlistar verða sýnd í dag í vélsmiðj- unni Héðni við Gjáhellu í Hafnarfirði. Þetta eru verk sem Markús Ívarsson, járnsmiður og stofn- andi Héðins, eignaðist á fyrri hluta 20. aldar en mörg þeirra voru gefin Listasafni Íslands eftir hans dag. Sýningin í dag, hefst klukkan 13, stendur fram eftir degi, og er öllum opin. „Listir í öllum sínum blæbrigðum hafa alltaf verið leiðarljós í starfsemi okkar,“ segir Halldór Lárusson stjórnarfomaður Héðins hf. í samtali við Morgunblaðið í dag. » 16 Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Einstök málverk á sýningu í járnsmiðju Héðins Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Bandaríkin og Atlantshafsbandalag- ið óttast ekki Vladimír Pútín Rúss- landsforseta, að sögn Joe Biden Bandaríkjaforseta. Lýsti hann því yfir á blaðamannafundi í Hvíta hús- inu í gær að Vesturlönd myndu verja hverja einustu landspildu ef ráðist yrði inn á landsvæði þeirra. „Pútín, ekki misskilja mig; hverja einustu tommu,“ sagði hann í ræðu sinni. Fyrr um daginn hafði Pútín lýst yfir innlimum fjögurra héraða Úkraínu; Kerson, Saporisíja, Do- netsk og Lúhansk, í Rússland. Volo- dimír Selenskí Úkraínuforseti hét því aftur á móti í gær að Úkraínu- menn myndu aldrei ganga til samn- inga við Rússland á meðan Pútín væri þar forseti. Gæti beitt kjarnavopnum Bandaríski herinn í Evrópu er tilbúinn í átök gerist þess þörf. Þetta sagði Jake Sullivan þjóðaröryggis- ráðgjafi Bandaríkjanna á öðrum blaðamannafundi í Hvíta húsinu í gær. Rússar hafa hert tökin og segj- ast nú líta á árásir á héruðin fjögur, sem þeir hafa innlimað, eins og um árás á Rússland sé að ræða. Selenskí mótmælti innlimuninni og benti á að Rússar hefðu ekkert héraðanna fjög- urra að fullu undir sinni stjórn. Þá sagði Sullivan að hætta væri á því að Pútín beitti kjarnavopnum. Ekkert bendi þó til þess að slík árás sé yfirvofandi. Aukinn kraftur hefur verið settur í herafla Bandaríkjanna í Evrópu að sögn Sullivan. „Við teljum okkur viðbúin hverju sem er,“ sagði hann. Þá muni Banda- ríkin senda fleiri vopn til Úkraínu án tafar. Auk þess sé von á tilkynningu um öryggisráðstafanir sem gerðar verði í næstu viku. »23 Biden hótar afleiðingum - Vladimír Pútín Rússlandsforseti tilkynnti um innlimun fjögurra héraða í gær AFP Yfirlýsing Biden hótar afleiðingum, ráðist Rússar á svæði Vesturlanda.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.