Morgunblaðið - 01.10.2022, Síða 2

Morgunblaðið - 01.10.2022, Síða 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2022 www.kofaroghus.is - Sími 553 1545 TIL Á LAGER Ítarlegarupplýsingarog teikningarásamtýmsumöðrumfróðleik STAPI - 14,98 fm Tilboðsverð 779.000kr. 25% afsláttur BREKKA34 - 9 fm Tilboðsverð 489.000kr. 25% afsláttur NAUST - 14,44 fm Tilboðsverð 539.000kr. 30% afsláttur VANTAR ÞIGPLÁSS? Afar einfalt er að reisa húsin okkar. Uppsetning tekur aðeins einn dag TILBOÐÁGARÐHÚSUM! Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Þetta er mikill áfangi og ástæða til að óska íbúum Norðausturlands, Landsneti og þjóð- inni allri til hamingju með að þetta skuli loks- ins vera komið. Enn eru mikil verkefni fram undan sem mikilvægt er að koma áfram,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, ráðherra orku-, umhverfis- og loftslagsmála, í samtali við Morgunblaðið en hann var í gær viðstaddur spennusetningu Hólasandslínu 3. Línan liggur frá Kröflu til Akureyrar og tengir Eyjafjarðarsvæðið með betri hætti við virkjanir á Norðausturlandi. Táknræn athöfn fyrir tengingu línunnar fór fram í Ketilhúsi Listasafns Akureyrar þegar Sigrún Björk Jakobsdóttir, formaður stjórnar Landsnets, gaf stjórnstöð Landsvirkjunar fyrirmæli um að hleypa rafmagni á línuna. Viðstaddir voru sveitarstjórnarmenn og margt starfsfólk sem vann að verkinu. Andri Teitsson, formaður umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar, segir að ekki hafi verið nein raforka í boði fyrir ný og eldri fyrirtæki á Eyjafjarðarsvæðinu í um ára- tug, ekki síst vegna takmarkana flutningskerf- isins. Varla hafi verið hægt að opna bakarí. Nú sé hægt að ræða um möguleika á nýrri starf- semi sem þurfi miðlungs mikla orku og starf- andi fyrirtæki geti hugað að þróun starfsem- innar og auknum umsvifum. Viðræður eru í gangi um gagnaver sem yrði lítið í upphafi og einnig er horft til matvælaframleiðslu. Guðlaugur Þór segir að Íslendingar hafi tek- ið orkuöryggi sem sjálfsögðum hlut en vekur athygli á að það sé hægt að missa. Til að ná betri nýtingu á roforkukerfinu og tryggja orkuöryggi þurfi að ljúka þeim verkum á þessu sviði sem verið er að undirbúa. Enn eru mikil verkefni fram undan Vettvangur Guðlaugur Þór Þórðarson ráðherra skoðaði aðstæður í Fnjóskadal sem Hólasandslínan liggur um í fylgd Sigrúnar Bjarkar Jakobsdóttur og Guðmundar Inga Ásmundssonar. - Hólasandslína spennusett við táknræna athöfn - Hægt að horfa til nýrra fyrirtækja á Akureyri Guðni Einarsson gudni@mbl.is Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) lagði til í gær að dregið yrði úr veiðum á norsk-íslenskri síld um 15% og mak- ríl um 2% á næsta ári en að veiðar á kolmunna yrðu auknar um 81%. „Það er mjög sérstakt, en gott, að fá svona já- kvæðar fréttir í ljósi þess að veiðin úr þessum stofn- um hefur verið langt umfram ráð- gjöf undanfarin ár,“ segir Gunn- þór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. „Kolmunnastofninn hefur stækkað um rúm 80% þrátt fyr- ir mikla veiði. Það er ljóst að við þurf- um að auka þekkingu okkar á þessum vísindum.“ Gunnþór segir þessar fréttir vera góðar fyrir Síldarvinnsluna, enda er hún stór í kolmunnaveiðum. „Það er mikil eftirspurn eftir mjöli og prótein- um í heiminum.“ Minna af norsk-íslenskri síld ICES leggur til að afli árins 2023 af norsk-íslenskri vorgotssíld verði ekki meiri en 511 þúsund tonn. Ráðgjöf fyrir þetta ár var 599 þúsund tonn. Tillaga ráðsins um veiðar verður því 15% minni á næsta ári en á yfirstand- andi ári. Samkvæmt frétt Hafrann- sóknastofnunar er gert ráð fyrir að stóri árgangurinn frá 2016 verði uppi- staðan í veiði næsta árs. Yngri ár- gangar eru metnir litlir. „Áætlað er að heildarafli ársins 2022 verði um 828 þúsund tonn sem er 28% umfram ráðgjöf,“ segir í frétt Hafrannsóknastofnunar. Ekkert samkomulag er á milli þjóðanna sem veiða úr norsk-íslenska síldarstofnin- um um skiptingu aflahlutdeildar. Hver þjóð hefur sett sér aflamark. Frá 2013 hafa veiðar á hverju ári ver- ið 4-42% umfram ráðgjöf ICES. Aðeins minna af makríl Lagt er til að makrílaflinn 2023 verði ekki meiri en 782 þúsund tonn. Ráðgjöfin á þessu ári var 795 þúsund tonn. Áætlað er að heildaraflinn á þessu ári verði rúmlega 1,1 milljón tonna. Það eru 42% umfram ráðgjöf. Hver þjóð setur sér aflamark í makr- ílveiðunum. Kolmunnastofninn styrkist ICES leggur til að kolmunnaafli ársins 2023 verði ekki meiri en tæp- lega 1,36 milljónir tonna. Ráðgjöf þessa árs var 753 þúsund tonn. Því er um að ræða 81% hærri ráðgjöf en í fyrra. Ástæðan er vaxandi hrygning- arstofn. Áætlað er að heildaraflinn 2022 verði 1,1 milljón tonn eða 47% umfram ráðgjöf. „Árgangurinn frá 2020 er metinn sá stærsti sem mælst hefur við tveggja ára aldur (2022) og einnig er hann metinn ríflega þrisvar sinnum stærri nú en í stofnmati síðasta árs. 2020-árgangurinn gengur að fullu inn í hrygningarstofninn árið 2023 og framreikningar sýna stækkandi hrygningarstofn næstu tvö árin, sé ráðgjöf fylgt,“ segir í frétt Hafrann- sóknastofnunar.. Kolmunnastofn styrkist - ICES ráðleggur 81% meiri kolmunnaveiði - Samdráttur í norsk-íslenskri síld og makríl - Veitt langt umfram ráðgjöf Ljósmynd/Grétar Kolmunnaveiðar Útlit er fyrir að kolmunnaveiðarnar aukist á næsta ári.Gunnþór Ingvason Icelandair fékk leyfi frá lögregl- unni í Bretlandi í fyrrakvöld, til að losa farangur úr flugvél félags- ins sem vél Korean Air rakst utan í á Heathrow-flugvelli á miðviku- dag. Hliðarstél Icelandair-vélarinnar skemmdist við áreksturinn. Vélin er nú laus úr vörslu lög- reglu og Icelandair hefur fengið hana afhenta, að sögn Guðna Sig- urðssonar, upplýsingafulltrúa Ice- landair. Vonast var til þess að allir farþegar fengju farangur sinn í gær. Hafist hefur verið handa við að skoða skemmdir sem urðu á vél- inni og meta þær, en að sögn Guðna þarf að fá varahluti og skipta um þann hluta stélsins sem skemmdist. Allt líti út fyrir að aðeins hafi orðið skemmdir á stélinu, en það verði þó kannað frekar þegar við- gerð hefst. Gert verður við vélina í Lund- únum og flugvirki á vegum Ice- landair er kominn út til þess að sinna viðgerð. „Við fáum aðgang að skýli þarna úti á Heathrow og hún verður lagfærð þar,“ segir Guðni. Gert verður við flugvél Icelandair í Lundúnum eftir árekstur við Korean Air

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.