Morgunblaðið - 01.10.2022, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2022
Hið íslenska
þjóðvinafélag
heldur í dag mál-
þing í tilefni af
150 ára afmæli
félagsins, sem
raunar var á síð-
asta ári.
Málþingið ber
yfirskriftina
Bjartsýnisspá
fyrir árið 2071
og hefst klukkan 14 í Grósku við
Bjargargötu í Reykjavík. Guðrún
Kvaran, forseti HÍÞ, ávarpar þing-
ið og Birgir Ármannsson, forseti
Alþingis, setur það. Síðan flytja
ávörp Ólafur Ragnar Grímsson,
Berglind Ásgeirsdóttir, Peter
Weiss, Kristrún Heimisdóttir, Har-
aldur Þorleifsson og María Elísabet
Bragadóttir.
Í kjölfarið verða umræður þar
sem Oddný Eir Ævarsdóttir, Logi
Pedro Stefánsson og Bergur Ebbi
Benediktsson eru í pallborði. Frið-
rik Pálsson stýrir fundi og um-
ræðum. Gert er ráð fyrir ráð-
stefnulokum kl. 16:15.
Bjart-
sýnisspá
fyrir 2071
- Málþing í tilefni
af 150 ára afmæli
Þjóðvinafélagsins
Ólafur Ragnar
Grímsson
Mjög mikið álag á bráðamóttöku
Landspítalans í Fossvogi, sem
greint var frá í gær, er ekki tilkomið
vegna þess að fleiri leiti þangað en
venjulega. Fyrst og fremst er um að
ræða manneklu meðal hjúkrunar-
fræðinga, að sögn Hjalta Más
Björnssonar, yfirlæknis á bráða-
móttökunni. Það sé ekki vandamál
að fólk leiti á bráðamóttökuna að
óþörfu.
Í tilkynningu frá Landspítalanum
í gærmorgun kom fram að nauðsyn-
legt gæti reynst að forgangsraða
eftir bráðleika og vísa fólki í önnur
úrræði. Þá var fólk hvatt til að leita
annað vegna vægari slysa og veik-
inda.
Hjalti segir að álagið ætti ekki að
vera meira en venjulega, þar sem
ekki séu að koma fleiri á bráða-
móttökuna en í venjulegu árferði.
„Það er bara venjulegt ástand í
samfélaginu núna. Ég minni á að
bráðaþjónusta þarf alltaf að hafa
viðbragð til þess að bregðast við
álagstoppum. Á venjulegum degi
ætti bráðamóttakan að vera hálftóm
og róleg, til þess að við getum veitt
skjóta bráðaþjónustu, en þannig er
þetta því miður ekki,“ segir Hjalti í
samtali við mbl.is
„Undirmönnunin er bara þannig
að við höfum ekki starfskrafta sem
þarf til að sinna þessu eins vel og við
viljum,“ bætir hann við.
Hjalti bendir á að ekki hafi verið
brugðist við því í langan tíma að
byggja upp heilbrigðisþjónustuna á
Íslandi. Því sé orðið mjög erfitt að
sinna þeim verkefnum sem þurfi að
sinna, hvort heldur sem er á bráða-
móttöku, læknavakt, heilsugæslu
eða annars staðar. Kvarnast hafi
verulega úr hópi hjúkrunarfræðinga
á bráðamóttökunni, en unnið sé að
því hörðum höndum innan stjórnar
spítalans og ráðuneytisins að leysa
úr því.
„Það hefur hingað til ekki gengið
nógu hratt til að við náum að leysa
úr stöðunni. Þess vegna er bráða-
móttakan því miður undirmönnuð
eins og er, en þar er starfsfólk að
gera sitt besta að sinna öllum og sér-
staklega leggja áherslu á þau sem
eru bráðveik og alvarlega slösuð.“
Sjúklingum hætta búin
Spurður hvort ástandið sé þannig
að sjúklingum sé hætta búin segir
Hjalti: „Það er löngu búið að lýsa því
yfir að mönnun í heilbrigðiskerfinu
er með þeim hætti að það er ekki
hægt að veita fullnægjandi þjónustu
og það felur í sér að sjúklingum er
hætta búin. Það er engin leið að
sinna sjúklingum innan tímamarka
með viðeigandi virðingu fyrir per-
sónuvernd, taka sjúkrasögu á gang-
inum, eða gæta með fullnægjandi
hætti að sóttvörnum.“ solrun@mbl.is
Forgangsraðað vegna manneklu
- Mikið álag á bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi - Kvarnast hefur úr röðum hjúkrunarfræðinga
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bráðamóttakan Forgangsraða
þarf á bráðamótttöku vegna álags.
B E R N H A R Ð
L A X D A L
Skipholti 29b • S: 551 4422
Opið 11-16
Skoðið
netverslun
laxdal.is
VETRAR
YFIRHAFNIR
Tónleikaröð
Karlakórs Reykjavíkur
2022
Einsöngvarar:
Jóna G. Kolbrúnardóttir sópran
Ari Jóhann Sigurðsson tenór
Píanóleikari:
Peter Máté
Stjórnandi:
Friðrik S. Kristinsson
Háteigskirkja
Þri. 4. október kl. 20.00
Mið. 5. október kl. 20.00
Fim. 6. október kl. 20.00
Lau. 8. október kl. 15.00
Miðasala á Tix.is og við inngang
Fleiri sjúklingar en áður, sem komu
á bráðamóttöku Landspítalans,
þurftu ekki að bíða eftir innlögn í
rúm á legudeild eða fengu innlögn
minna en klukkustund eftir komu á
spítalann. Þetta hlutfall hefur ekki
verið hærra frá árinu 2016.
Þetta kemur fram í þjónustu-
könnun sjúklinga Landspítala sem
gerð var í maí síðastliðnum. Slíkar
kannanir hafa verið gerðar á
hverju ári frá 2012 í þeim tilgangi
að fá upplýsingar um viðhorf sjúk-
linga til þjónustu spítalans. Niður-
stöðurnar eru notaðar til að bæta
þjónustu við sjúklinga, að sögn spít-
alans.
Könnunin var rafræn. Þeir sem
leitað var til voru valdir með
slembiúrtaki úr hópi sjúklinga sem
útskrifuðust af legudeild aðgerða-
sviðs eða meðferðarsviðs í febrúar
til apríl 2022, voru 18 ára eða eldri
og höfðu dvalið eina nótt eða leng-
ur á spítalanum. Þátttakendur
fengu send bréf með slóð á könn-
unina og leyniorði til að fá aðgang
að henni. Í úrtakinu voru 1.084 og
bárust 516 svör og svarhlutfall því
48%. gudni@mbl.is
Fleiri fengu fljótt innlögn á LSH
Biðtími eftir innlögn í rúmá legudeild hjá LSH
Hlutfall bráðainnlagðra sem biðu skemur en 1. klst.*
50%
40%
30%
20%
10%
0%
2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022
29%
Heimild: Þjónustukönnun LSH í febrúar-apríl 2022
*Skv. svörum þeirra sem koma brátt inn
á spítalann í gegnum bráðamóttökuna
31%
29%
25%
38%
33%
41%Engin bið eða
minni bið en 1. klst.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
(SHS) er að taka upp nýtt vakta-
vinnukerfi. Því fylgir mesta breyting
sem orðið hefur hjá SHS frá stofnun
árið 2000. Nýja kerfinu fylgir stytt-
ing vinnuvikunnar hjá starfsfólkinu.
Um helgar verða tvískiptar vaktir,
tólf tímar hvor, en á virkum dögum
þrískiptar eða átta stunda langar.
Fyrstu vaktaskiptin í þrískipta kerf-
inu verða á mánudag.
„Við þessa breytingu fjölgar helg-
um sem fólk getur verið í fríi,“ segir
Birgir Finnsson, starfandi slökkvi-
liðsstjóri SHS. Hann segir að fjölgað
hafi verið um 24 starfsmenn í vor til
að manna nýja vaktakerfið.
Nýliðarnir fóru á sjúkraflutninga-
námskeið í vor og leystu af á sjúkra-
bílum í sumar. Þeir eru nú að hefja
þjálfun í slökkvistörfum og taka
vaktir á milli. Námið og þjálfunin
tekur alls þrjú ár með vinnu.
Nú ganga um 180 af alls um 220
starfsmönnum SHS vaktir allan sól-
arhringinn.
Birgir segir vaktakerfið svipað og
það sem fleiri sem veita sólarhrings-
þjónustu hafa tekið upp. Virka daga
er mikið að gera hjá SHS í sjúkra-
flutningum milli stofnana, en þeir
eru ekki um helgar. gudni@mbl.is
Nýtt vaktakerfi
hjá slökkviliðinu
- Helgarfríum fjölgar - 24 nýliðar
Morgunblaðið/Rósa Braga
SHS Sjúkraflutningum og slökkvi-
störfum er sinnt allan ársins hring.