Morgunblaðið - 01.10.2022, Side 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2022
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
V
ið höfum tekið á móti yfir
sex hundruð listamönnum
frá því ég og vinkona
mín, Kristveig Halldórs-
dóttir, stofnuðum Gullkistuna árið
2009,“ segir Alda Sigurðardóttir en
hún sér núna, með stuðningi ráð-
gjafastjórnar, um reksturinn á
miðstöð fyrir listamenn sem kennd
er við kistu úr gulli. Nafnið er sótt
í kennileiti á Laugarvatni, þar sem
miðstöðin er til húsa.
„Hér getur listafólk dvalið til
að vinna að sínum verkum, umvafið
náttúrufegurð og í nálægð við allt
sem tilheyrir þorpinu. Miðstöðin er
opin fyrir bæði íslenskt og erlent
listafólk, en langflestir gestir okk-
ar koma utanlands frá. Lágmarks-
dvöl er mánuður, en hægt er að
vera lengur og sumir dvelja allt
upp í þrjá mánuði, fólk verður
heimavant í þorpinu Laugarvatni
og hluti af menningunni þar. Dvöl
listafólks í miðstöðinni virkar líka í
hina áttina, opnar aðgang að lista-
fólkinu og þeirra þekkingu, enda
höfum við haldið fjölmörg nám-
skeið og vinnustofur í Gullkistunni.
Krakkarnir í skólunum á Laug-
arvatni hafa líka fengið að koma í
heimsókn til listafólks og gert eitt-
hvað listatengt. Einnig hafa alþjóð-
legir nemendahópar komið með
kennurum sínum til að vinna að
ákveðnum verkefnum, svo fátt eitt
sé nefnt.“
Góð vinátta verður til
Gullkistan er í tveimur húsum
á Laugarvatni þar sem er vinnuað-
staða, sýningarrými og tímabund-
ið heimili.
„Frá því við fórum af stað
höfum við fært okkur um þorpið,
en núna erum við í fyrrum tjald-
miðstöðvarhúsi þar sem eru tvö
svefnherbergi, eldhús, setustofa,
vinnuaðstaða og sýningarrými, en
í sumarbústað við hliðina sem áð-
ur var starfsmannahús, eru fjögur
svefnherbergi, eldhús og stofa.
Sex manneskjur geta því dvalið í
Gullkistunni á sama tíma, jafnvel
fleiri þegar pör eða hjón geta
deilt herbergi. Núna eru þar til
dæmis sjö listamenn sem koma
víða að úr heiminum, Ashley King
ljósmyndari frá Ástralíu, ítölsku
hjónin og myndlistarfólkið Salva-
tore Mauro og Alfa, rithöfund-
urinn Carolina Redondo Fern-
andes frá Spáni og þrjú frá
Bandaríkjunum, þau Jennifer
Bartlett rithöfundur, Kimberly
Harris listmálari og arkítekt og
Fritz Rumpf ljósmyndari. Í lok
dvalar er óformleg sýning, þá
hengja þau upp verkin sín, segja
frá því sem þau eru að gera og
svo framvegis. Flest verða þau
hissa hvað þau hafa áorkað
miklu,“ segir Alda og bætir við að
vissulega sé nándin mikil að búa
saman í mánuð eða meira með
ókunnu fólki. „Oftast skapast
mjög góð vinátta á milli fólks, þau
sem eru núna eru orðin eins og
lítil fjölskylda. Þetta er fólk á öll-
um aldri og í hópnum eru tveir
fatlaðir einstaklingar, en við
leggjum áherslu á að hafa aðstöð-
una í Gullkistunni aðgengilega
fyrir fatlaða, höfum látið setja upp
rampa og annað slíkt.“
Áhrif frá náttúru og fólki
Tvö þeirra sem hafa dvalið
saman í Gullkistunni undanfarin
mánuð, þau Ashley og Jennifer,
voru viðlátin þegar blaðamann bar
að garði. Ashley sagðist vera í
sinni fyrstu Íslandsferð en Jenni-
fer hafði tvisvar áður komið til að
dvelja í Gullkistunni. Þau segja
vissulega ögrandi verkefni að búa
í heilan mánuð með fólki sem þau
hafi í upphafi dvalar aldrei áður
hitt.
„Þetta hefur gengið mjög vel,
öllum semur vel og við borðum oft
öll saman kvöldverð þar sem mikið
er spjallað og hlegið,“ segir Jenni-
fer og bætir við að þar sem hún
búi nú í þriðja sinn í Gullkistunni,
þá sé reynsla hennar sú að fólk
nái auðvitað misvel saman.
„Sumir bindast sterkum bönd-
um á meðan aðrir eiga minni sam-
leið, en allir passa að bera virð-
ingu fyrir persónulegu plássi
hvers og eins. Sumir sem ég hef
kynnst hér hafa orðið góðir vinir
mínir sem ég er enn í sambandi
við.“ Jennifer segir næðið í Gull-
kistunni til að sinna listinni afar
kærkomið.
„Til dæmis er alveg nauðsyn-
legt fyrir hana Carolinu að komast
í burtu heiman frá sér í næðið
hingað til að sinna ritstörfunum,
en hún á þrjú börn, fjóra hunda
og er í krefjandi starfi heima hjá
sér.“
Þau Ashley og Jennifer eru
alsæl með dvölina og segjast sann-
arlega hafa orðið fyrir áhrifum frá
íslensku umhverfi, nær og fjær,
náttúrunni, fólkinu og öðru sem
hefur örvað þau til listsköpunar.
„Sú staðreynd að langflestir
þeirra sem hafa dvalið hér í Gull-
kistunni vilja koma aftur, segir
allt um hversu frábært er að vera
hér, það er mjög skapandi í alla
staði,“ segir Ashley og bætir við
að Kimberly hafi t.d. verið afar af-
kastamikil. „Hún hefur gert 140
málverk á þremur vikum. Hún fór
líka í Tungnaréttir og heillaðist af
fé og fólki og gerði litrík verk með
kindum í framhaldinu.“
Dvöldu á Vestfjörðum
Dvalargestir í Gullkistunni
hafa einn bíl til umráða og ljós-
myndararnir í hópnum, þeir Ash-
ley og Fritz, hafa nýtt sér það
óspart, enda hafa þeir unnið mikið
saman að list sinni.
„Við höfum farið víða í styttri
og lengri ferðir til að taka myndir
og Kimberly kemur stundum með
okkur og rissar upp vatnslita-
myndir á meðan. Við Fritz dvöld-
um líka á Vestfjörðum um tíma og
á Suðurströndinni, sem var stór-
kostlegt. Okkur Fritz langar báða
að vera sex mánuði næst á Ís-
landi,“ segir Ashley en verkefnið
sem hann hefur unnið að hér á
landi er að myndskreyta ljóðið Al-
heimsvíðáttan, eftir Jónas Hall-
grímsson með ljósmyndum sínum.
„Ég kynnti mér íslenska ljóð-
list og ljóð Jónasar tengjast mikið
íslenskri náttúru, svo það hentaði
mér sem ljósmyndara vel að
myndskreyta þau. Í myndskreyt-
ingu minni er landslag og skepn-
ur, hestar og fuglar, heitir hverir,
norðurljósin og allt sem verður á
vegi mínum,“ segir Ashley og
bætir við að tímasetningin á Ís-
landsdvöl hans sé fullkomin, því
sonur hans sé í skiptinámi í Há-
skóla Íslands og að þeir feðgar
hafi fyrir vikið ferðast saman um
landið.
Nánar um Gullkistuna á
heimasíðunni gullkistan.is
Vinkonur Jennifer og Alfa á rölti um þorpið Laugarvatn, en
hjá Gullkistunni er lögð áhersla á gott aðgengi fyrir fatlaða.
Spáð og spekúlerað Carolina og Alfa skeggræða, á veggnum
hanga verk af íslenskum smára eftir Carolinu sem er spænsk.
Glaðir Fritz og Ashley hafa ferðast víða um Ísland til að taka
myndir, hér koma þeir hlaðnir ljósmyndagræjum heim í hús.
Langflestir vilja koma aftur
„Hér getur listafólk dvalið til að vinna að sínum verk-
um, umvafið náttúrufegurð og í nálægð við allt sem til-
heyrir þorpinu,“ segir Alda Sigurðardóttir um Gull-
kistu á Laugarvatni, alþjóðlega miðstöð fyrir listafólk.
Ljósmynd/Ashley King
Í nágrenni Gullkistu Kimberly og Fritz að störfum við Brúará, hún að vatnslita en hann að taka ljósmyndir.
Vinir Alda, fyrir miðju með gleraugu, ásamt hópnum samheldna sem nú dvelur í Gullkistu. F.v. Corolina, Alfa,
Fritz, Ashley, Jennifer og Kimberly. Fyrir framan situr er Salvatore, en listafólkinu hefur orðið vel til vina.
Kimberly hefur gert 140 málverk á þremur vikum.
Hún fór líka í Tungnaréttir og heillaðist af fé og
fólki og gerði litrík verk með kindum í framhaldinu.
Vetrarsól er umboðsaðili
Sláttuvélar
& sláttuorf
Snjóblásarar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
40 ár
á Íslandi
Sláttutraktorar