Morgunblaðið - 01.10.2022, Síða 29
MINNINGAR 29Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2022
✝
Jónína (Nína)
Kristmanns
Johns fæddist í
Vestmannaeyjum
1. október 1934.
Hún lést í Lake
Wylie, SC, í
Bandaríkjunum
27. júní 2022.
Hún var dóttir
hjónanna Inga
Kristmanns banka-
fulltrúa frá Garða-
stöðum í Vestmannaeyjum, f.
13. nóvember 1905, d. 31. des-
ember 1974, og Sigríðar Þor-
gilsdóttur, f. í Dalasýslu 7. júlí
1904, d. 12. maí 1991. Fjöl-
skyldan bjó i Vestmannaeyjum
fram til ársins 1946 er þau
fluttu til Reykjavíkur og
bjuggu á Víðimel 23.
Systkini Nínu
eru Ágúst Krist-
manns, f. 17. febr-
úar 1931, d. 7. júní
2017, Dóra Krist-
manns, f. 1. októ-
ber 1934 (tvíbura-
systir Nínu),
búsett í Bandaríkj-
unum, og Þorgils,
f. 25. október
1941, búsettur í
Skotlandi.
Nína giftist í New York
1958 Jimmie Johns olíu-
verkfræðingi frá Arkansas í
Bandaríkjunum og eignuðust
þau þrjú börn: Eric, John og
Ingrid Alice. Barnabörnin eru
níu talsins.
Útför Nínu fór fram í Lake
Wylie 30. júlí 2022.
Öllu er afmörkuð stund og sérhver
hlutur undir himninum hefur sinn tíma.
Að fæðast hefur sinn tíma og að deyja
hefur sinn tíma.
(Prédikarinn 1:3.)
Jónína Kristmanns, eða Nína
eins og hún var alltaf kölluð, kær
skólasystir okkar og æskuvin-
kona, er látin. Kallið kom ekki
óvænt. Fyrir þó nokkrum árum
tók heilsu Nínu að hraka. Jimmie
annaðist hana á heimili þeirra af
kærleika og alúð allan tímann
með viðeigandi hjálp, þar til yfir
lauk. Við sem eftir lifum erum
harkalega minntar á að öllu er af-
mörkuð stund.
Við kynntumst á vori lífsins
þegar leiðir okkar lágu saman í
Kvennaskólanum í Reykjavík um
miðja síðustu öld. Á mikilvægu
mótunarskeiði æskunnar bund-
umst við vináttuböndum sem
aldrei hafa rofnað. Á kvenna-
skólaárunum stofnuðum við,
nokkrar skólasystur, sauma-
klúbb, sem staðið hefur af sér
brim og boða lífsins. Alls urðum
við tíu og þótt þrjár úr hópnum
flyttust til Bandaríkjanna höfum
við alla tíð haldið svo nánu sam-
bandi að þegar þær komu í heim-
sókn til ættjarðarinnar var eins
og aldrei hefði verið vík milli
vina.
Móðir systranna Nínu og
Dóru, Sigríður Þorgilsdóttir,
kom inn í saumaklúbbinn með
okkur þegar dæturnar fluttu til
Bandaríkjanna. Þannig gátum
við hinar fylgst með lífi þeirra
þar ytra og þær með okkar. Aldr-
ei fundum við fyrir neinu kyn-
slóðabili enda Sigríður alltaf kát,
glöð og jákvæð.
Saumaklúbburinn hefur hist
nokkuð reglulega í nær 74 ár. Við
höfum tekið þátt í lífi hver ann-
arrar og reynt að styðja hver
aðra í gleði og sorg. Slík gam-
algróin vinátta og tryggð eru lífs-
gæði sem við kunnum æ betur að
meta.
Nína var vel af Guði gerð. Hún
var sterkur persónuleiki,
skemmtileg og góður félagi og
einstaklega vönduð til orðs og
æðis. Hún hafði mikla listræna
hæfileika, hannaði og saumaði föt
og alls kyns handverk og allt lék í
höndunum á henni. Hún unni því
sem var fagurt, hafði öruggan
smekk og naut þess að klæðast
fallegum fötum og var alltaf vel
tilhöfð. Hún spilaði bridge af
ástríðu og var í nokkrum bridge-
klúbbum.
Nína og Jimmie voru höfðingj-
ar heim að sækja. Þau tóku á
móti okkur 14 skólasystrum af
miklum rausnarskap þegar þau
bjuggu í Hollandi. Í tvígang buðu
þau okkur undirrituðum til sín til
Lake Wylie. Allt ógleymanlegar
ferðir þar sem við ferðuðumst
vítt og breitt um Bandaríkin í
gamla „Cadillacnum“ þeirra með
nesti sem húsbóndinn hafði útbú-
ið. Nína skenkti kaffi fyrir okkur
farþegana í aftursætinu. Hugul-
semin var svo einlæg að þessi
minning lifir enn. Algjört ævin-
týri.
Á kveðjustund minnumst við
Nínu vinkonu okkar með virð-
ingu og söknuði og þökkum henni
tryggðina og allt það góða og
dýrmæta sem var.
Fjölskyldu hennar sendum við
innilegar samúðarkveðjur og
biðjum Guð að blessa minningu
mætrar konu, Nínu Kristmanns
Johns.
Katrín Jóhannsdóttir og
Rannveig Jónsdóttir.
Jónína Kristmanns
Johns
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Kór Árbæjarkirkju syngur undir
stjórn Krisztinu Kalló Szklenár. Sr.
Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prédikar
og þjónar fyrir altari. Sunnudagaskól-
inn er á sama tíma í safnaðarheimilinu
í umsjá Andreu, Thelmu og Sigga.
ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl.
13. Helga Kolbeinsdóttir prédikar og
þjónar fyrir altari. Kór Áskirkju syngur,
organisti er Bjartur Logi Guðnason.
Kaffisopi eftir messu.
BESSASTAÐAKIRKJA | Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl 11. Umsjón með
stundinni hafa sr. Hans Guðberg, Sig-
rún Ósk og Ástvaldur organisti. Læri-
sveinar hans leika undir sönginn.
BÚSTAÐAKIRKJA | Bleikur október
er yfirskrift listamánaðar í Bústaða-
kirkju. Kl. 11 er barnamessa með
söng, biblíusögu, bænum og leik.
Ávaxtastund fyrir börn og fjölskyldur að
lokinni barnamessu. Kl. 12.15 flytur
Margrét Bóasdóttir söngmálastjóri er-
indi um nýja sálmabók í safnaðarheim-
ilinu. Kl. 13: guðsþjónusta. Nýir sálm-
ar fluttir af Kammerkór Bústaðakirkju
undir stjórn Jónasar Þóris. Séra Krist-
ján Valur Ingólfsson, fv. vígslubiskup,
prédikar. Séra Þorvaldur Víðisson
þjónar fyrir altari ásamt messuþjón-
um.
DIGRANESKIRKJA | Guðsþjónusta
og barnastarf kl. 11. Ásdís og Hálfdán
annast samverustund sunnudaga-
skólans. Séra Sigurður Jónsson þjón-
ar við guðsþjónustuna. Söngvinir, kór
eldri borgara í Kópavogi, syngur. Org-
anisti Kristín Jóhannesdóttir. Hressing
í safnaðarheimilinu að guðsþjónustu
lokinni.
DÓMKIRKJAN | Sunnudaginn 2.
október er messa klukkan 11. Séra
Sveinn Valgeirsson þjónar fyrir altari
og prédikar. Pétur Nói Stefánsson leik-
ur á orgelið og Dómkórinn syngur.
FELLA- og Hólakirkja | Messa 2.
október í Fella- og Hólakirkju kl. 17. Sr.
Magnús Björn Björnsson þjónar fyrir
altari og prédikar. Organisti er Matt-
hías Harðarson. Barnastarf í kennslu-
stofunni á sama tíma í umsjón sr. Pét-
urs Ragnhildarsonar. Kvöldmatur eftir
stundina.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjón-
usta sunnudaginn 2. október kl. 14.
Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson, safn-
aðarprestur Fríkirkjunnar, leiðir stund-
ina. Hljómsveitin Mantra og Sönghóp-
urinn við Tjörnina leiða sönginn ásamt
Gunnari Gunnarssyni.
Fermingarbörn og fjölskyldur þeirra
eru hvött til að mæta.
GARÐAKIRKJA | Batamessa kl. 14.
Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir predikar og
þjónar fyrir altari. Vinur í bata flytur
vitnisburð. Félagar í gospelkór Jóns Ví-
dalíns syngja undir stjórn Davíð Sig-
urgeirssonar. Messukaffi í hlöðunni
við bæinn Krók.
GRAFARVOGSKIRKJA | Helgihald
sunnudagsins 2. október. Guðsþjón-
usta verður í Grafarvogskirkju kl. 11.
Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar. Kór
Grafarvogskirkju leiðir söng.
Organisti er Hákon Leifsson. Sunnu-
dagaskóli er á sama tíma á neðri hæð
kirkjunnar. Umsjón hafa Ásta J. Harð-
ardóttir og Kristín Kristjánsdóttir
djákni. Undirleikari er Stefán Birkis-
son.
Selmessa verður kl. 13 í Kirkjuselinu í
Spöng. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjón-
ar. Vox Populi leiðir söng. Undirleikari
er Hákon Leifsson.
GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11.
Sr. María G. Ágústsdóttir þjónar ásamt
messuhópi. Nýir og gamlir sálmar,
Ásta Haraldsdóttir, kantor, og Kirkju-
kór Grensáskirkju leiða sönginn. Sam-
félag yfir kaffibolla á undan og eftir
messu. Þriðjudagur: Kyrrðarstund kl.
12-12.20. Fimmtudagur: Núvitundar-
stund kl. 18.15-18.45, einnig á net-
inu.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti |
Fjölskylduguðsþjónusta sunnudaginn
2. október kl. 11. Sr. Leifur Ragnar
Jónsson predikar og þjónar fyrir altari.
Einar Aron töframaður kemur í heim-
sókn. Organisti: Antonia Hevesi. Kríla-
kór Guðríðarkirkju syngur undir stjórn
Öldu Dísar Arnarsdóttur.
Kaffi og djús í boði eftir messuna.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Guðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Jónína Ólafsdóttir
þjónar. Organisti er Guðmundur Sig-
urðsson. Félagar úr Barbörukórnum
syngja. Sunnudagaskóli á sama tíma.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og
barnastarf kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Ósk-
arsdóttir prédikar. Messuþjónar að-
stoða. Félagar úr Kór Hallgrímskirkju
syngja. Organisti er Björn Steinar Sól-
bergsson. Kristný Rós Gústafsdóttir,
Sólveig Franklínsdóttir og Ragnheiður
Bjarnadóttir sjá um barnastarfið.
Laugardagur 1. október kl. 12. Orgel-
tónleikar fyrir alla fjölskylduna.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur er Eiríkur Jóhannsson. Organ-
isti er Arngerður María Árnadóttir. Fé-
lagar í Kordíu, kór Háteigskirkju, leiða
messusöng.
Þriðjudagur 4. október kl. 13.30.
Gæðastund, samvera eldri borgara.
HVERAGERÐISKIRKJA | Messa kl.
11. Prestur sr. Ninna Sif Svavarsdóttir.
Kirkjukórinn syngur, organisti Miklós
Dalmay.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía |
Kl. 11:00 Samkoma. Service. Transla-
tion into English.
Kl. 14:00 Samkoma á ensku. English
speaking service.
Kl. 16:00 Samkoma á spænsku. Reu-
niónes en español.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Sunnudagur-
inn 2. október kl. 11. KFUM&KFUK
messa. Sigurbjört Kristjánsdóttir leiðir
söng með gítarleik. Helga Vigdís
Thordersen flytur hugleiðingu. Messu-
þjónar eru Guðrún Hákonardóttir og
Stefán Jónsson. Sr. Erla Guðmunds-
dóttir þjónar.
Kirkjuselið í Spöng | Sunnudaginn
2. október verður Selmessa kl. 13. Sr.
Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar. Vox Po-
puli leiðir söng. Undirleikari er Hákon
Leifsson.
KÓPAVOGSKIRKJA | Barna- og fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. Sr. Grétar
Halldór Gunnarsson leiðir stundina
ásamt sunnudagaskólaleiðtogum.
Börn í 5. og 6. bekk í skólakór Kárs-
nesskóla syngja undir stjórn Álfheiðar
Björgvinsdóttur.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Helga Kol-
beinsdóttir prestur þjónar, félagar úr
Kór Langholtskirkju syngja undir stjórn
Magnúsar Ragnarssonar organista.
Sara Grímsdóttir tekur á móti börnun-
um í sunnudagaskólanum. Léttur há-
degisverður í safnaðarheimilinu að
messu lokinni.
LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Sr. Henning Emil Magnússon
prédikar og þjónar fyrir altari. Kirkjukór
Lágafellssóknar syngur undir stjórn
Þórðar Sigurðarsonar, organista. Með-
hjálpari: Andrea Gréta Axelsdóttir.
Leir sunnudagaskóli kl. 13. Gleði,
söngur, biblíusaga og brúðuleikrit.
MIÐDALSKIRKJA í Laugardal |
Messa verður í Miðdalskirkju sunnu-
daginn 2. október.
Sr. Dagur Fannar Magnússon prédikar
og þjónar fyrir altari.
Jón Bjarnason leiðir almennan safn-
aðarsöng og leikur undir á orgel.
Mörk kapella | Guðsþjónusta sunnu-
daginn 2. október klukkan 16 í kapellu
Markar. Prestur er sr. Auður Inga Ein-
arsdóttir heimilisprestur. Félagar úr
Markarkórnum leiða söng undir stjórn
Kristínar Waage organista.
NESKIRKJA | Messa og sunnudaga-
skóli kl. 11. Háskólakórinn syngur og
leiðir söng undir stjórn Stefans Sand.
Prestur er Steinunn A. Björnsdóttir.
Eftir sameiginlegt upphaf fer sunnu-
dagaskólinn í safnaðarheimilið þar
sem verða söngur og sögur. Umsjón
hafa Kristrún Guðmundsdóttir og Ari
Agnarsson sem leikur undir söng.
Hressing og samfélag eftir stundirnar
á torginu.
SELFOSSKIRKJA | Fjölskyldumessa
og orgelkrakkahátíð kl. 11. Sr. Axel
Njarðvík þjónar fyrir altari. Edit Molnár
leikur á orgel og kirkjukór Selfoss leið-
ir safnaðarsöng. Börn á öllum aldri eru
sérstaklega velkomin. Fræg orgelverk,
júróvisjónslagarar og óvæntir gestir
líta við.
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Óli og Bára leiða stundina og
Helgi Hannesson spilar á píanóið.
Guðsþjónusta kl. 13. Sr. Sigurður Már
Hannesson verður settur inn í emb-
ætti prests af sr. Bryndísi Möllu Elí-
dóttur, prófasti. Félagar úr Kór Selja-
kirkju leiða safnaðarsöng. Organisti:
Arngerður María Árnadóttir. Kaffihlað-
borð í boði sóknarnefndar að lokinni
guðsþjónustu.
SELTJARNARNESKIRKJA |
Fræðslumorgunn kl. 10. Spjallað um
Johann Sebastian Bach. Gunnar Kvar-
an, sellóleikari, talar.
Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl.
11. Sóknarprestur þjónar. Organisti
kirkjunnar leikur á orgelið. Rakel Pét-
ursdóttir, safnafræðingur, fjallar um
Louisu Matthíasdóttur vegna sýningar
í kirkjunni á verkum hennar. Kamm-
erkórinn syngur.
Setning Listahátíðar Seltjarnarnes-
kirkju. 30 ár frá fyrstu listahátíðinni
1992. Kaffiveitingar í safnaðarheimili.
Morgunkaffi á miðvikudag kl. 9 og
kyrrðarstund kl. 12.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa
verður í sunnudaginn 2. október kl.
11. Sr. Dagur Fannar Magnússon pré-
dikar og þjónar fyrir altari. Jón Bjarna-
son leiðir almennan safnaðarsöng og
leikur undir á orgel.
VÍDALÍNSKIRKJA | Gæludýra- og
bangsamessa kl. 11. Prestarnir Jóna
Hrönn Bolladóttir og Matthildur Bjarna-
dóttir þjóna. Barnakórar Vídalínskirkju
syngja undir stjórn Davíðs Sigurgeirs-
sonar og Ingvars Alfreðssonar. Messu-
kaffi í safnaðarheimilinu. Minnum á
sunnudagaskóla í Urriðaholtsskóla kl.
10.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði |
Sunnudagaskóli kl. 10 í umsjá Benna
og Dísu. Skemmtileg og fjörug stund
fyrir börn á öllum aldri.
Messa kl. 11. Kór Víðistaðasóknar
syngur undir stjórn Sveins Arnars org-
anista og Hildigunnur Einarsdóttir
messósópran syngur einsöng við und-
irleik Guðrúnar Dalíu Salómonsdóttur
píanóleikara. Sóknarprestur þjónar
með aðstoð messuþjóna kirkjunnar.
Kaffihressing í safnaðarheimilinu að
messu lokinni.
Morgunblaðið/Ómar
Hallgrímskirkja í Hvalfirði.
Mannsins auður
og styrkur er marg-
breytilegur. Það
blæs bæði með og
móti í lífinu, sumt
gefur og eflir, annað mótar og
ristir. Öðlingur er sennilega það
orð sem trónir efst í huga okkar
þegar við hugsum til Sigga, ljúf-
ur maður með mikla og
skemmtilega kímnigáfu. Það má
með sanni segja að mikil gæfa sé
að kynnast mönnum eins og hon-
um Sigga þegar líf hans og móð-
ur Úlfars fléttuðust saman.
Lífið hafði ekki alltaf farið
mjúkum höndum um Sigga.
Veikindi föður hans höfðu mikil
áhrif á fjölskylduna, engin með-
höndlun möguleg og verkjalyf
væntanlega fágæt og féll faðir
hans frá þegar Siggi var ein-
ungis 12 ára gamall. Fráfall föð-
ur hans reyndist afar erfitt fyrir
móður þeirra með tvo drengi og
eina litla stúlku. Eftir mikla
vinnu við heyskap náði litla fjöl-
skyldan að koma öllu heyi í sát-
ur. Um nóttina komust kvígur
inn á túnið og daginn eftir voru
Sigurður H.
Sigurþórsson
✝
Sigurður Har-
aldur Sigur-
þórsson fæddist 7.
júní 1936. Hann lést
5. september 2022.
Útför var 16. sept-
ember 2022.
sáturnar úti um allt.
Þá settust þau nið-
ur og ræddu málin,
niðurstaðan varð að
fjölskyldan var
leyst upp eins og
títt var í þá daga og
þeir bræður sendir
til vandalausra.
Siggi fór á hesti sín-
um með annan til
reiðar og hundinn
sinn og hóf líf á bæ
í nágrenninu, Seljalandsseli, þar
sem honum farnaðist vel. Bjó
hann þar til fullorðinsára uns
hann kynntist Imbu og þau hófu
búskap saman.
Imba og Siggi áttu fallegt
heimili í Þorlákshöfn og frí-
stundum eyddu þau í sumarbú-
staðnum í landi Seljalandssels
og áttu ófáar ferðir til Kanarí-
eyja. Þau höfðu gaman af spilum
og var gaman að spila við þau
með keppnisskapið hver á sinn
hátt. Siggi var fróðleiksfús og
vel gefinn og gaman að ræða við
hann um landsins gagn og nauð-
synjar.
Við í fjölskyldunni fórum með
Sigga hans síðustu ferð til Kan-
aríeyja fyrir tveimur árum og
nutum stundanna. Morgnar með
rúnstykkjum og kaffi og spilað,
og síðdegis göngutúrar og mini-
golf. Siggi sýndi okkur slóðir
þeirra Imbu á svæðinu, hitti
marga gamla og góða kunningja
þeirra og naut sín í hvívetna.
Við yljum okkur við góðar
minningar um ljúfan mann. Að
kynnast fólki eins og Sigga er
ómetanlegt, svona fólk er salt
jarðar. Aldrei heyrðum við hann
hallmæla öðrum, sá það góða í
hverjum manni og umgekkst
fólk af kurteisi og virðingu. Við
þökkum Sigga samfylgdina og
yljum okkur við minningar um
einstakan og víðsýnan mann.
Með þakklæti.
Úlfar og Gerður.
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is