Morgunblaðið - 01.10.2022, Síða 31

Morgunblaðið - 01.10.2022, Síða 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2022 arbústaðnum þeirra, þar sem allt- af var verið að fegra og bæta. Allt virtist leika í lyndi. Þá kom reið- arslagið. Við ræddum sjaldan trúmál, en ég veit að bróðir minn var andlega sinnaður og ég trúi því að hans bíði ný heimkynni. Ég bið góðan guð að styrkja okkur öll í sorginni, Guðríði, Sigga, Bubbu og fjöl- skyldur og okkur öll hin. Ég kveð bróður minn með sárum trega, hann var ljúflingurinn í fjölskyld- unni. Jónína Einarsdóttir. Í dag kveðjum við Samma, mág okkar og svila, sem lést eftir stutta sjúkdómslegu á sjúkrahúsinu á Ísafirði. Við áttum langa samleið sem einkenndist af vináttu og kærleik. Hann nam ungur rakaraiðn sem varð hans starfsvettvangur en í honum blundaði listamaður. Hann var tónlistarmaður af guðs náð, fékk það í vöggugjöf, og tón- listin var honum yndi alla tíð. Þekktur sem popptónlistarmaður um árabil og svo eftir að því tíma- bili lauk kom í staðinn kórstarf og þátttaka í ýmiss konar tónlistar- viðburðum í bænum sem hann var óþreytandi viljugur að taka þátt í. Þá liggja eftir hann ljúf lög sem hann gaf út fyrir nokkru ásamt að eiga í handraðanum óútgefin verk. Þau eru ófá skiptin í gegnum árin sem Sammi kom með hljóm- borðið undir hendinni eða greip í tilfallandi píanó þegar fjölskylda okkar þurfti á að halda undirleik, t.d. í skírnum, afmælum og ætt- armótum. Slík viðvik voru alltaf sjálfsögð af hans hendi eins og annað sem hann var beðinn um. Starfið á rakarastofunni var honum mikil hvatning í áhuga hans á fólki og högum þess, þar var margt skrafað og skeggrætt sem hann geymdi í huga sér og varð til þess að hann skrifaði þætti af fólki og atburðum sem komu út í þrem bókum fyrir nokkrum ár- um. Hann hafði einlægan áhuga á ættum og uppruna fólks, sérstak- lega Ísfirðingum og fólki ættuðu frá Jökulfjörðum og Ströndum. Þá var hann mikill áhugamaður um byggðasögu Ísafjarðar og íbúa bæjarins. Sammi var ekki skoð- analaus maður, öðru nær, sérstak- lega hafði hann sterkar skoðanir á ýmsum landsmálum. Þau Guðríður og Sammi hafa verið einstaklega samstiga þau fimmtíu ár sem hjónaband þeirra hefur varað. Upp á þann áfanga var haldið á glæsilegan hátt í sum- arbústaðnum í Mjóafirði í innan- verðu Ísafjarðardjúpi 8. júlí sl. Sammi hafði lagt hart að sér vik- urnar áður að útbúa enn betri úti- aðstöðu við bústaðinn, þá væntan- lega orðinn veikur, sem maður hafði ekki grun um þá. Sammi var mikill fjölskyldu- maður, ekki síst þess vegna var bústaðurinn honum svo kær, því þar var góður staður fyrir fjöl- skylduna að hittast og njóta sam- veru á fallegum stað. Eitthvað er það sem engin hugsun rúmar en drýpur þér á augu sem dögg þegar húmar. (Hannes Pétursson) Sá stutti tími frá því Sammi greindist með krabbamein í ágúst hefur verið erfiður og krefjandi fyrir hans nánustu fjölskyldu. En minningin lifir um þann gæða- mann sem Sammi var. Við þökkum honum allt sem hann færði okkur. Megi Guð vera með Guðríði systur okkar og börn- um hennar og styrkja á erfiðum tíma. Sigrún og Kristinn, Geir og Edda. Samfélög byggjast upp, íbúar setja mark sitt á umhverfið, nátt- úran gefur ákveðna möguleika. Ekkert varir að eilífu. Sammi frændi, eins og við köll- uðum hann, var litli bróðir mömmu, yngstur fimm systkina og að mörgu leyti nær okkur systkinabörnum hans í aldri og at- höfnum. Hann var glaðlyndur og félagslyndur, aðlaðandi og sérlega ættrækinn. Hann bar ósvikna ást til heima- haganna og hafði sterkar skoðanir þar að lútandi. Hann kallaði þá brottfluttu „flóttamenn“ og íveru- staði þeirra „flóttamannabúðir“ og fór undirrituð ekki varhluta af því! Milli okkar Samma þróaðist dýrmæt vinátta þegar hann gekk til liðs við Kór Ísafjarðarkirkju um 1998 og tónlistin varð okkar tungumál. Hann hafði mikla hæfi- leika, var liðtækur á mörg hljóð- færi, hafði tónfræðileg atriði á til- finningunni, var smekklegur og útsjónarsamur. Hljómaval hans við píanóið var honum í blóð borið enda ólst hann upp við mikla tón- list, söng og hljóðfæraleik og ræktaði þann hæfileika vel. Hann gat sungið bæði tenór og bassa og var fljótur að skipta yfir eftir þörf- um. Tónlistarferill hans verður ekki rakinn hér, né öll áhugamál hans í íþróttum, en Sammi var iðinn við hvers kyns útivist og nýtti öll tækifæri sem Ísafjörður bauð upp á. Þá eru ótalin öll þau félagsstörf sem hann gegndi, rakaraiðnin, skáldlistin og tónsköpunin. Bærinn okkar verður aldrei samur án Samma, en eins og einn sameiginlegur vinur okkar orðaði það bæri hann með réttu titilinn „Herra Ísafjörður“. Sammi var listaverk út af fyrir sig, listaverk í faðmi fjalla. Elsku Guðríður, Siggi, Bubba og fjölskyldur, missir okkar allra er nístandi. Megi allar góðar vætt- ir styrkja ykkur í sorginni. Fögur er foldin, heiður er Guðs himinn, indæl pílagríms ævigöng. Fram, fram um víða veröld og gistum í Paradís með sigursöng. (Matthías Jochumsson) Hulda Bragadóttir. Oft virðist manni að þeir sem láta sér annt um samfélag sitt séu hamingjusamari en aðrir. Sammi móðurbróðir minn lifði lífinu af al- úð. Hann lagði sitt af mörkum til samfélagsins og notaði til þess þá fjölmörgu hæfileika sem honum höfðu verið gefnir í vöggugjöf. Honum þótti vænt um Ísafjörð, fólkið og umhverfið. Umhyggjan bauð að hugurinn væri alltaf við það sem betur mætti fara. Hann hafði aldrei hátt – en hann lét heyra í sér. Guðríður og Sammi fundu hvort annað þegar hún var bara unglingur. Hann var þremur ár- um eldri og átti Moskvíts. Alla tíð síðan hafa þau verið sem eitt. Og þau hafa átt gott líf saman, búið við mikið barnalán og notið sín á allan hátt. En svo er skyndilega klippt á þráðinn. Það var talsverður aldursmun- ur á þeim félögunum Villa Valla og Samma en þeir voru báðir rakarar og tónlistarmenn og unnu saman á stofu. Þegar lítið var að gera á rakarastofunni gripu þeir í hljóð- færin. Í minningunni virtist þetta vera endalaus leit að fallegustu hljómunum. Svo spruttu fram undurfallegar laglínur sem sumar rötuðu á hljómplötur. Rakarastofa Villa Valla og Samma var líka óendanleg uppspretta sagna, þetta voru mannlífssögur sem Sammi kom á prent og gerði þannig ódauðlegar. Sammi var næmur á tungumálið, það var hon- um eðlislægt, líklega hefur þjálfað tóneyrað hjálpað til. Hrynjandin í tónlistinni og tungumálinu er af sama meiði. Það er til gömul mynd af okkur Samma þegar hann er nýfermdur. Hún er líklega tekin á 17. júní fyr- ir framan Túngötu 5, en þar safn- aðist stórfjölskyldan saman til að fylgjast með hátíðahöldunum á Sjúkrahústúninu. Hann stendur reffilegur í nýju fermingarfötun- um sínum og ég gægist fram við hlið hans í stuttum kjól og hvítum sokkum. Það leynir sér ekki að litla fjögurra ára stelpan er bæði hrifin og stolt af stóra frænda. Og þannig hefur það verið allar götur síðan. Ástvinir hans hafa misst mikið, en þeir eru líka ríkir að hafa átt mann eins og hann. Við söknum hans öll óendanlega mikið, eins góðhjartaður og gjöfull og hann var. Innilegar samúðarkveðjur elsku Guðríður, Siggi, Bubba og fjölskyldur, megi allar góðar vætt- ir styrkja ykkur í sorginni. Elísabet, Jón Kolbeinn og Einar Viðar. Sammi móðurbróðir minn er dáinn eftir stutt og harkaleg veik- indi. Þetta er svo sárt og vont. Hann var yngstur fimm systkina og sá fyrsti sem fer. Manni finnst að það hafi verið byrjað á öfugum enda. Hann átti þrjár eldri systur og bróður tveimur árum eldri. Hann var sex ára þegar hann varð móðurbróðir. Okkur fannst hann alltaf tilheyra okkar kynslóð frek- ar en foreldra okkar, svona milli- stykkið. Í minni æsku tilheyrði hann heimili ömmu og afa í Tún- götu. Í fjölskylduboðunum var alltaf skemmtilegast að vera í her- berginu hans. Hann átti plötuspil- ara, margar plötur, bassagítar, var með bítlahár, átti bítlaskó og hljómsveitargalla. Hann var al- vöru hljómsveitargæi. Svo var komin ljósmynd í ramma af sætri stelpu á áberandi stað á hillu í her- berginu. Mynd af Guðríði sem þá var í skóla á Laugarvatni og þau skrifuðust á. Hún var kærastan hans og hann fór ekki yfir lækinn til að ná sér í maka frekar en systkinin. Hann fór upp á Hlíðar- veg 1 og þar byrjuðu þau að búa. Siggi Sam fæddist þá. Það er óhætt að segja að Sammi hafi farið lengst að heiman af þeim systk- inum, hann fór alla leið inn í fjörð en þar byggðu þau sér heimili en hin systkinin eru staðsett á leið- inni þangað frá Túngötunni. Þá fæddist dóttirin Elísabet. Barna- börnin eru sjö og það eru sjö ung- ar afastelpur sem eiga erfitt núna. Þegar Sammi var smá strákur var hann kallaður „Mozart litli“ af vinkonum ömmu. Hann byrjaði ungur að spila á píanó og þá eftir eyranu. Spilaði Túngötuhljómana sem ég held að hafa verið oftast í moll. Hann söng í kirkjukórnum til margra ára, Sunnukórnum, Hátíðarkórnum, spilaði í lúðra- sveitinni, danshljómsveitum frá unga aldri, lengst af með BG- flokknum fram á fullorðinsár. Maður gekk að honum vísum ef tónlist var annars vegar. Hann var líka rakari og vann á rakarastof- unni hjá Villa Valla og höfðu þeir hljómborð á stofunni sem þeir gátu gripið í. Á rakarastofunni hitti ég Samma síðast, um miðjan ágúst sl. Engan grunaði hvað þá var fram undan. Þorsteinn var í klippingu hjá honum og ég kom til að sækja hann, á hraðferð eins og venjan er. Hann segir mér að koma og heilsa nú upp á frænda minn sem ég geri, knúsa hann og tölum saman góða stund, hann sýnir mér myndir af fallega sum- arhúsinu þeirra og öllu því sem hann var búinn að gera þar. Við mæltum okkur mót þar næsta sumar. Hann verður ekki þar, þetta var síðasta skiptið okkar en við vissum það ekki þá. Ég verð ævinlega þakklát fyrir þessa síð- ustu samverustund á rakarastof- unni með honum. Í fjölskylduboð- unum heyrðist oft í systrum hans „Sammi spilaðu fyrir okkur“, hljómaði líkt og „Play it again Sam“, og þessi öðlingur spilaði með ánægju öll ljúfu lögin, „As time goes by“ og fleira. Ein minning er ofarlega núna, fjölskyldan samankomin á afmæl- isdegi ömmu og Sammi sat við flygilinn í frímúrarasalnum, syst- ur hölluðu sér upp að flyglinum, frænkur og frændur á öllum aldri, fjölskyldan, stóðum í kring og við sungum með honum „We’ll meet again, don’t know where, don’t know when …“ Elsku Sammi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Margrét Hreinsdóttir og fjölskylda. Gull á ég ekki að gefa þér og gimsteina ekki neina. En viltu muna að vináttan er verðmætust eðalsteina. (Hjálmar Freysteinsson) Með þessum orðum óskuðum við vinum okkar, Samma og Guð- ríði, til hamingju með gullbrúð- kaupið þann 8. júlí í sumar. Þá buðu þau fjölskyldu og vinum til veglegrar veislu í sumarbústaðn- um í Mjóafirðinum. Allt var svo fallegt og fullkomið. Þau höfðu undirbúið allt svo vel, Sammi bú- inn að smíða, pallurinn orðinn veisluskrýddur og veðrið alveg yndislegt. Mjóifjörðurinn skartaði sínu fegursta. Það er óskiljanlegt að við skul- um á þessari stundu vera að kveðja hann Samma sem lék á als oddi fram í miðjan ágúst. Minn- ingarnar hrannast upp, allar góð- ar, gefandi og fullar af húmor. Ferðirnar í sumarbústaðinn, þennan sælureit þeirra, þar sem við nutum okkar saman. Við í göngutúr – þeir að veiða, við að prjóna – þeir að undirbúa grillið og ræða málin, borða góðan mat og fara svo í heita pottinn. Sammi elskaði að vera í bú- staðnum, alltaf með næg verkefni og var orðinn mjög laginn smiður og útsjónarsamur. Margt höfum við brallað saman gegnum tíðina. Gönguhópurinn okkar, Breiðu bökin, þræddi Hornstrandirnar í nokkur ár með allt á bakinu og söng „vel er mætt til vinafundar“ undir stjórn Samma. Auðvitað raddað, à la Sunnukórinn. Saumaklúbburinn okkar hittist alltaf í jólaveislu á að- ventunni. Þá var „Jónas“ alltaf kyrjaður við undirleik Samma. Hans verður sárt saknað í þessum hópum. Ferðalögin, ísrúntarnir, kóra- starfið, já bara öll nærveran. Hann Sammi var ekki hávær og lét ekki mikið fyrir sér fara en var samt svo ótrúlega stór, hafði sterkar skoðanir og kom að svo mörgu góðu í okkar samfélagi. Tónlistin átti mjög stóran þátt í lífi Samma. Hún fylgdi honum al- Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, HELGA S. THORSTEINSSON bókasafns- og upplýsingafræðingur, Kvistavöllum 9, Hafnarfirði, lést á líknardeildinni í Kópavogi 24. september. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 7. október klukkan 13. Jón Helgi Jónsson Guðlaug Kristín Jónsdóttir Sólveig Jónsdóttir Sigurjón Sigurjónsson Saga Jónsdóttir Ólafur Loftsson og barnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SOFFÍA JENSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, Ljárskógum 12, Reykjavík, andaðist á Landakoti miðvikudaginn 21. september. Útför hennar fer fram frá Áskirkju miðvikudaginn 5. október klukkan 13. Streymt verður frá útförinni á https://hljodx.is/index.php/streymi. Hlekk á streymi má einnig nálgast á mbl.is/andlat. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Blindrafélagið (www.blind.is). Jóna Freysdóttir Ásmundur Eiríksson Ásta Sóllilja Freysdóttir Michael Johnston Stefán Freyr Michaelsson Pálína Pálsdóttir Anton Alexander og Hendrik Hafsteinn Elsku pabbi okkar, tengdapabbi, afi og langafi, HALLGRÍMUR SKAPTASON, skipasmiður, Hamratúni 9, Akureyri, lést á Kristnesspítala aðfaranótt þriðjudags 27. september. Útför hans verður frá Akureyrarkirkju þriðjudag 11. október klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á blóðskilunardeild Sjúkrahússins á Akureyri. Sólveig Hallgrímsdóttir Birgir Þór Jónsson Skapti Hallgrímsson Sigrún Sævarsdóttir Guðfinna Þóra Hallgrímsd. Sigurður Kristinsson Ásgrímur Örn Hallgrímsson Lena Rut Birgisdóttir barnabörn og barnabarnabörn Útför mins hjartkæra eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, BRAGA INGASONAR matreiðslumeistara, Hlégerði 31, Kópavogi, fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 6. október klukkan 15. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Slysavarnafélagið Landsbjörg, upplýsingar má finna á www.landsbjorg.is. Erla Óskarsdóttir Anney Ósk Bragadóttir Ingi Rúnar Bragason Kolbrún Jónsdóttir Bragi Freyr Bragason Linda Stefánsdóttir Ívar Bragason Aldís Hafsteinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæri STEINÞÓR BJÖRGVIN ÞORSTEINSSON lést á hjartadeild Landspítalans miðvikudaginn 28. september. Útför hans fer fram frá Hallgrímskirkju miðvikudaginn 5. október klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Ljósið. Gunnur Axelsdóttir Þorsteinn Steinþórsson Björg Stefánsdóttir Lovísa Steinþórsdóttir Hólmfríður Steinþórsdóttir Gunnar Freyr Steinsson Björn Kristjánsson Þuríður Stefánsdóttir barnabörn, barnabarnabörn, barnabarnabarnabörn SJÁ SÍÐU 32

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.