Morgunblaðið - 01.10.2022, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 01.10.2022, Blaðsíða 35
DÆGRADVÖL 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2022 Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is Komdu í BÍLÓ! M.BENZ EQA 250+ LONG RANGE Nýskráður 01/2022, ekinn 10 Þ.km, rafmagn (540 km drægni) , sjálfskiptur, Electric art innrétting, AMG stýri.Raðnúmer 254965 00 M.BENZ EQA 250 POWER Nýskráður 11/2021, ekinn 3 Þ.km, rafmagn (429 km drægni), sjálfskiptur. AMG line innan og utan, glerþak, Burmester hljóðkerfi, 360° bakkmyndavél og margt fleira. Raðnúmer 254780 000 Þessir síungu strákar eru klárir í að selja bílinn þinn Eigum laus sölustæði fyrir bílinn þinn! Hlökkum til! Indriði Jónsson og Árni Sveinsson M.BENZ EQA 250 POWER Nýskráður 09/2021, ekinn aðeins 8 þ.km, rafmagn (429 km drægni). 19“ AMG álfelgur, Næturpakki, dráttarkrókur, AMG line innan og utan. Raðnúmer 254163 0.000 „ER EINHVER ANNAR MEÐ BRANDARA UM SKATTHEIMTU ÁÐUR EN VIÐ HÖLDUM FERÐINNI ÁFRAM?“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ... að láta sig dreyma saman. ÞAÐ MÁ ALDREI REFSA KÖTTUM FYRIR SLÆMA HEGÐUN ÞEGAR ÞIÐ ERUÐ AÐ ÞJÁLFA ÞÁ ENGIN REIÐI, BARA HEFND OG ER ÞAÐ VEGNA ÞESS AÐ ÞEIR SKILJA EKKI HVERS VEGNA ÞEIM ER REFSAÐ? NEI, Í RAUN EKKI. ÞAÐ ER VEGNA ÞESS AÐ ÞEIR MUNU HEFNA SÍN HRÓLFUR HEIMTAR TÍU GULLPENINGA! LÁTTU HANN HAFA ÞÁ! ÞETTA GÆTI VERIÐ VERRA! ÞETTA ER VERRA! „ÞÚ VARST ÞÓ MEÐ GRÍMU ÞEGAR ÞÚ FRAMDIR RÁNIÐ. ÉG GÆTI ALDREI VERIÐ Í SAMBANDI MEÐ MANNI SEM VIRÐIR AÐ VETTUGI ÖRYGGI ANNARRA.“ STÓRFLUTNINGAR - VAGNALEIGA - 10 GULLPENINGAR Á DAG FASTEINGASALA ENDA-RAÐHÚS LÚXU S- ÍBÚÐ IR Áhugamál Örnu eru fjölskyldan og vinir, útivera og útivist. „Ég fæ mikla orku úr samvistum við fólkið mitt, fjölskyldu, vini og vinkonur úr öllum áttum og finnst ég mikill lukkunnar pamfíll með allt þetta góða fólk sem er í kringum mig. Ég fæ einnig mikið út úr útiveru og útivist og er t.d. í stórkostlegum gönguhópi, Göngu- hópnum, sem hefur gengið árlega á mismunandi stöðum á Vestfjörðum frá árinu 2007. Útivera nærir hjarta mitt og anda og markmiðið er að verða mun duglegri að reka útivist- arbarnið mig oftar út. Sem fimm- tugri konu finnst mér það mjög göf- ugt markmið.“ Fjölskylda Eiginmaður Örnu er Einar Gunn- ar Thoroddsen, f. 29.3. 1972, sérfræð- ingur í fjármálaráðuneytinu. Þau eru búsett í Vesturbænum í Reykjavík. Foreldrar Einars eru Ásta Steinunn Thoroddsen, f. 24.4. 1953, prófessor í hjúkrunarfræði, búsett í Reykjavík, og Guðmundur Geir Gunnarsson, f. 22.5. 1952, fv. framkvæmdastjóri, búsettur í Kópavogi. Uppeldisfaðir Einars og eiginmaður Ástu er Bolli Héðinsson, f. 5.2. 1954, hagfræð- ingur, búsettur í Reykjavík. Synir Örnu og Einars eru Hlynur, f. 7.9. 1999, háskólanemi; Haukur, f. 1.11. 2001, háskólanemi, og Kol- beinn, f. 11.8. 2006, framhalds- skólanemi. Systir Örnu er Silja Hauksdóttir, f. 12.1. 1976, leikstjóri, búsett á Sel- tjarnarnesi. Foreldrar Örnu eru Haukur Har- aldsson, f. 31.8. 1945, grafískur hönnuður, búsettur í Reykjavík, og Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir, f. 9.2. 1947, fv. rekstrarstjóri, búsett í Reykjavík. Arna Hauksdóttir Lénharður Sæmundsson söðlasmiður á Stokkseyri Kristbjörg Gísladóttir húsmóðir og saumakona á Stokkseyri Haraldur Ó. Leonhardsson skrifstofustjóri í Reykjavík Guðbjörg Ingimundardóttir símavörður í Reykjavík Haukur Haraldsson grafískur hönnuður í Reykjavík Ingimundur Jónsson útvegsbóndi og formaður á Stokkseyri Ingibjörg Þorsteinsdóttir húsmóðir á Stokkseyri Steindór Sigurbergsson bóndi í Ósgerði Þorkelína Sigurbjörg Þorkelsdóttir húsmóðir og verkakona í Ósgerði í Ölfusi Aðalsteinn Steindórsson umsjónarmaður kirkjugarða Þjóðkirkjunnar, bjó í Hveragerði Svanlaug Guðmundsdóttir húsmóðir og ráðskona í Hveragerði Guðmundur Magnússon bóndi á Blesastöðum Kristín Jónsdóttir húsmóðir á Blesastöðum á Skeiðum Ætt Örnu Hauksdóttur Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir fv. rekstrarstjóri í Reykjavík Gátan er sem endranær eftir Guðmund Arnfinnsson: Illur þykir þessi maður. Þrjótur í neðra hábölvaður. Ekki gott á hendi að hafa. Hann er galdrakarl án vafa. Harpa á Hjarðarfelli svarar: Mannskratti hann mikill er. Mun svo skratti í neðra. Skratti í spilum skömmin hér. Skratti seiðs forfeðra. Helgi R. Einarsson á þessa lausn: Skratti maður illur er og í neðra hábölvaður. Skratti á hendi ei hugnast mér, hann er auk þess galdramaður. Guðrún B. leysir gátuna þannig: Skrattakollur skattsvíkur. Skratti í helvíti. Á hendi skrattinn hundlíkur. Held seiðskrattinn tweeti. Þessi er skýring Guðmundar á gátunni: Skratti þykir þessi maður. Þrjótur er Skrattinn hábölvaður. Illt er skratta á hendi að hafa. Hann er seiðskratti án vafa. Þá er limra: Ván er nú allra veðra, vandræðin aukast héðra, engu eira eldur og veira, og Skrattanum skemmt í neðra. Síðan er ný gáta eftir Guðmund: Vakna ég af værum blundi við að sól um gluggann skín, fögur vaxa lauf á lundi, létt mun þykja gáta mín: Greitt þau fara götum á. Grasbálkur er þili hjá. Það á mörgu mitti sá. Megum líka á skipi sjá. Hvimleiði eftir Þorstein Valdi- marsson: Hann Ami er ófarinn heim. Allir amast við gestinum þeim. En það er metnaður Ama að engum sé sama um Ama um gjörvallan heim! Jón í Skarfanesi á Landi orti: Vindur gall í voðunum, velti fallið gnoðunum, belgur skall við boðunum, borðið vall í froðunum. Hér er ein vísa um ágæti kaffis- ins: Kaffið henni kemur best kalt svo enni hlýni, en laufaspenni langar mest að lifa á brennivíni. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Skrattinn sjálfur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.