Morgunblaðið - 01.10.2022, Qupperneq 36
36 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2022
Þýskaland
Wolfsburg – Leverkusen ........................ 6:1
- Sveindís Jane Jónsdóttir kom inn á sem
varamaður hjá Wolfsburg á 66. mínútu,
skoraði tvö mörk og lagði upp eitt.
Ítalía
Como – Inter Mílanó................................ 1:3
- Anna Björk Kristjánsdóttir lék allan
leikinn með Inter Mílanó.
Holland
Zwolle – Fortuna Sittard........................ 2:5
- Hildur Antonsdóttir var ekki í leik-
mannahóp Fortuna Sittard.
B-deild:
Zwolle – Jong Ajax.................................. 1:1
- Kristian Nökkvi Hlynsson lék allan leik-
inn með Jong Ajax og skoraði.
Breda – Venlo .......................................... 1:1
- Kristófer Ingi Kristinsson sat allan tím-
ann á varamananbekk Venlo.
Danmörk
AaB – OB .................................................. 1:1
- Aron Elís Þrándarson var ónotaður
varamaður hjá OB.
4.$--3795.$
Olísdeild karla
Stjarnan – Haukar ............................... 29:29
Staðan:
Valur 4 4 0 0 122:98 8
Fram 4 2 2 0 110:101 6
Haukar 4 2 1 1 112:109 5
Grótta 4 2 0 2 112:105 4
ÍBV 3 1 2 0 109:94 4
Stjarnan 4 1 2 1 114:110 4
ÍR 4 2 0 2 116:137 4
Afturelding 4 1 1 2 104:103 3
Selfoss 4 1 1 2 111:118 3
KA 4 1 1 2 105:115 3
FH 4 0 2 2 106:116 2
Hörður 3 0 0 3 89:104 0
Grill 66-deild karla
Valur U – Víkingur............................... 32:30
Selfoss U – KA U.................................. 36:38
Fram U – HK........................................ 25:28
Kórdrengir – Þór.................................. 21:26
Staðan:
HK 2 2 0 0 69:51 4
Valur U 2 2 0 0 59:53 4
KA U 2 2 0 0 68:63 4
Fjölnir 1 1 0 0 29:27 2
Víkingur 2 1 0 1 67:64 2
Þór Ak. 2 1 0 1 53:50 2
Haukar U 1 0 0 1 23:27 0
Fram U 2 0 0 2 52:58 0
Selfoss U 2 0 0 2 68:75 0
Kórdrengir 2 0 0 2 47:67 0
Danmörk
Skjern – Ribe-Esbjerg ........................ 30:28
- Sveinn Jóhannsson skoraði ekki fyrir
Skjern.
- Elvar Ásgeirsson skoraði eitt mark fyrir
Ribe-Esbjerg en Arnar Birkir Hálfdánsson
skoraði ekki. Ágúst Elí Björgvinsson varði
9 skot í marki liðsins.
Frakkland
Ivry – Séléstat...................................... 38:32
- Darri Aronsson lék ekki með Ivry vegna
meiðsla.
- Grétar Ari Guðjónsson varði 9 skot í
marki Séléstat.
Þýskaland
B-deild:
Empor Rostock – Nordhorn............... 22:31
- Sveinn Andri Sveinsson skoraði eitt
mark fyrir Empor Rostock en Hafþór Már
Vignisson skoraði ekki.
Hagen – Coburg................................... 28:22
- Tumi Steinn Rúnarsson var ekki í leik-
mannahóp Coburg.
%$.62)0-#
1. deild karla
Skallagrímur – Sindri .......................... 80:85
Ármann – Fjölnir.............................. 112:110
Selfoss – Hrunamenn......................... 103:88
Hamar – Álftanes ................................. 92:95
Þór Ak. – ÍA .......................................... 74:77
Staðan:
Selfoss 2 2 0 192:140 4
Ármann 2 2 0 205:191 4
Sindri 2 2 0 165:155 4
Álftanes 2 2 0 185:177 4
Hamar 2 1 1 197:182 2
ÍA 2 1 1 152:154 2
Þór Ak. 2 0 2 159:167 0
Skallagrímur 2 0 2 161:178 0
Hrunamenn 2 0 2 175:208 0
Fjölnir 2 0 2 162:201 0
Belgía/Holland
Aris Leeuwarden – Yoast United...... 92:94
- Kristinn Pálsson skoraði 12 stig fyrir Ar-
is Leeuwarden, tók tvö fráköst og gaf fimm
stoðsendingar á 36 mínútum.
HM kvenna í Sydney
Undanúrslit:
Kanada – Bandaríkin ........................... 43:83
Ástralía – Kína...................................... 59:61
_ Úrslitaleikur Bandaríkjanna og Kína og
bronsleikur Ástralíu og Kanada fóru fram
snemma í morgun að íslenskum tíma.
4"5'*2)0-#
þessa en hann stýrði Valsliðinu til
bikarsigranna þriggja á árunum
1990 til 1992.
KR var með þrjá þjálfara á fimm
ára sigurgöngunni, Óla B. Jónsson,
Sigurgeir Guðmannsson og Karl
Guðmundsson, og Skagamenn voru
með tvo, George Kirby og Hörð
Helgason.
Matthías er fimmfaldur
bikarmeistari
FH hefur tvisvar orðið bikar-
meistari, 2007 og 2010, og Arnar
Gunnlaugsson vann einmitt sinn eina
bikarmeistaratitil sem leikmaður
með FH árið 2007 en Hafnarfjarð-
arliðið vann þá Fjölni 2:1 í úrslita-
leiknum með tveimur mörkum Matt-
híasar Guðmundssonar.
Matthías Vilhjálmsson, núverandi
fyrirliði FH, lék úrslitaleikinn 2010
þegar FH vann KR 4:0, og skoraði
tvö markanna. Björn Daníel Sverr-
isson er líka eftir í liði FH af þeim
sem léku þann úrslitaleik.
Matthías lék einnig úrslitaleikinn
2007 en hann kom þá inn á fyrir Arn-
ar undir lokin. Sigurvin Ólafsson, að-
stoðarþjálfari FH, kom líka við sögu
2007 en hann kom inn á sem vara-
maður fyrir Bjarka, tvíburabróður
Arnars, í þeim úrslitaleik.
FH-ingar hafa ekki gott hlutfall úr
úrslitaleikjum bikarkeppninnar því
þeir hafa tapað fimm sinnum í þau
sjö skipti sem þeir hafa leikið til úr-
slita. Gegn ÍBV árið 1972, á síðasta
úrslitaleiknum á Melavellinum, og
gegn Val 1991, ÍA 2003, ÍBV 2017 og
fyrir Víkingi árið 2019.
Matthías fyrirliði FH hefur þó
óflekkaða sögu í úrslitaleikjum fé-
lagsins því hann hefur bara spilað
sigurleikina tvo en var við störf í
Noregi þegar FH tapaði 2017 og
2019. Matthías setti í staðinn svip
sinn á norsku bikarkeppnina með því
að vinna hana með Rosenborg árin
2015, 2016 og 2018. Ísfirðingurinn er
því mikill sigurvegari þegar kemur
að bikarúrslitum og það er gott vega-
nesti fyrir Hafnarfjarðarliðið.
Sögulegur sigur 1971
Saga Víkinga í bikarúrslitum er
stutt en þeir unnu þó sögulegan sig-
ur á Breiðabliki haustið 1971 þegar
Jón Ólafsson skoraði sigurmarkið á
Melavellinum, 1:0. Það er í eina
skiptið sem lið utan efstu deildar hef-
ur orðið bikarmeistari.
Víkingar höfðu áður tapað úrslita-
leik gegn KR árið 1967 en þá voru
þeir líka utan efstu deildar. Þeir
komust hinsvegar ekki í úrslitaleik
keppninnar í 48 ár, frá 1971 til 2019.
Það er lengsti tími á milli úrslita-
leikja hjá íslensku félagi.
Úrslitaleikurinn í dag hefst klukk-
an 16 á Laugardalsvellinum. Leikið
er til þrautar, framlenging og síðan
vítaspyrnukeppni ef með þarf.
Söguleg bikarúrslit í dag?
- FH og Víkingur mætast á Laugardalsvellinum - Víkingar geta fetað í fótspor
KR, ÍA og Vals - Fyrirliði FH sigursæll í bikarkeppni - Kom inn á fyrir Arnar
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Miðjan Júlíus Magnússon og Björn Daníel Sverrisson munu eflaust heyja
mörg einvígi á miðjunni í úrslitaleik Víkings og FH í Laugardalnum í dag.
BIKARÚRSLIT
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Víkingar geta komist í lítinn hóp sig-
ursælla íslenskra knattspyrnufélaga
í dag, takist þeim að leggja FH að
velli í úrslitaleiknum í bikarkeppni
karla, Mjólkurbikarnum, á Laugar-
dalsvellinum.
Víkingar freista þess að verða bik-
armeistarar karla í þriðja skiptið í
röð en þeir unnu FH í bikarúrslita-
leiknum haustið 2019 með víta-
spyrnumarki Óttars Magnúsar
Karlssonar, 1:0, og lögðu svo Skaga-
menn að velli, 3:0, í úrslitaleiknum
fyrir ári þar sem Erlingur Agnars-
son, Kári Árnason og Helgi Guð-
jónsson skoruðu mörkin.
Reyndar verða Víkingar komnir
með bikarinn í hendurnar fjórða árið
í röð ef þeir vinna í dag. Bikarkeppn-
inni var hætt haustið 2020 þegar
komið var að undanúrslitum, vegna
útbreiðslu kórónuveirunnar. Bikar-
inn hefur því verið geymdur í Víkinni
undanfarin þrjú ár.
_ KR setti met sem erfitt verður
að slá strax á fimm fyrstu árum bik-
arkeppninnar. KR-ingar urðu bik-
armeistarar 1960, 1961, 1962, 1963
og 1964.
_ ÍA varð bikarmeistari þrjú ár í
röð, 1982, 1983 og 1984.
_ Valur varð bikarmeistari þrjú ár
í röð, 1990, 1991 og 1992.
Jafnar Arnar við Inga?
Arnar Gunnlaugsson getur hins-
vegar orðið annar þjálfarinn í sög-
unni til að verða bikarmeistari karla
þrisvar í röð. Ingi Björn Albertsson
er sá eini sem hefur afrekað það til
„Þessi leikur leggst mjög vel í okkur,“ sagði Matthías Vilhjálmsson, fyr-
irliði FH, í samtali við Morgunblaðið.
„Þetta er geggjuð gulrót fyrir okkur eftir brösótt tímabil og þetta tíma-
bil gæti farið úr því að vera frekar neikvætt yfir í það að vera mjög já-
kvætt. Það varð ljóst mjög fljótlega, eftir að tímabilið
hófst, að við vorum ekki á þeim stað sem við vildum vera
í deildarkeppninni.
Markmiðið var alltaf að komast í úrslit bikarkeppn-
innar og tryggja sér Evrópusæti í leiðinni. Þetta er allt
önnur keppni og það var gott að fá þessa bikarkeppni til
að stimpla sig aðeins út úr deildinni þegar illa gekk
þar,“ sagði Matthías.
Liðin hafa mæst tvívegis á tímabilinu í Bestu deildinni
og hafa Víkingar haft betur í bæði skiptin. „Víkingarnir
eru með mjög gott lið. Þeir hafa spilað mjög flottan fót-
bolta síðustu árin og eru með frábæran þjálfara líka.
Heilt yfir hafa þeir verið mjög stöðugir undanfarin ár en
á sama tíma hafa leikir FH og Víkings alltaf verið hörkuleikir.
Við unnum þá í úrslitaleikinum í deildabikarnum rétt fyrir Íslandsmótið.
Fyrsti leikur tímabilsins var mjög jafn og þótt þeir hafi unnið leikinn gegn
okkur í Krikanum 3:0 finnst mér þau úrslit ekki gefa rétta mynd af því
hvernig leikurinn spilaðist. Þetta hafa allt verið hörkuleikir milli tveggja
hörkuliða sem vilja bæði spila fótbolta.“
Forréttindi að spila úrslitaleik
Víkingar eru ríkjandi bikarmeistarar og flestir spá þeim sigri í bikar-
úrslitunum í dag.
„Við þurfum fyrst og fremst að hugsa um okkur sjálfa og það er gríðar-
lega mikilvægt að spennustigið sé rétt stillt hjá öllum. Við erum með
ákveðið leikplan, sem verður ekki gefið upp, og við þurfum að fylgja því.
Það er fullt af leikmönnum í báðum liðum sem hafa unnið bikara og svo
eru aðrir leikmenn líka sem hafa ekki einu sinni komið inn á Laugardals-
völl. Það er gríðarlega mikilvægt finnst mér að við sem lið njótum augna-
bliksins og gerum okkur grein fyrir því líka að það eru ekkert allir sem fá
tækifæri til þess að spila bikarúrslitaleik á sínum fótboltaferli.“
Eins og Matthías kom inn á hefur gengi liðsins í deildinni verið langt
undir væntingum en FH-ingar höfnuðu í ellefta og næstneðsta sæti deild-
arkeppninnar.
„Það er frábær stemning í Hafnarfirðinum og Krikanum fyrir þessum
leik. Við höfum verið í mótvindi á þessu tímabili og það hefur verið magnað
að sjá og finna fyrir stuðningsmönnunum fylkja sér á bak við okkur á þess-
um erfiðu tímum. Við leikmennirnir munum svo taka því rólega á leikdegi.
Við vöknum heima hjá okkur, fáum okkur morgunmat og hádegismat með
fjölskyldunni og mætum svo einum og hálfum tíma fyrir leik á völlinn,
mjög hefðbundinn undirbúningur og það er best að mínu mati,“ bætti Matt-
hías við. bjarnih@mbl.is
Geggjuð gulrót eftir
brösótt tímabil hjá okkur
Matthías
Vilhjálmsson
„Þetta leggst bara mjög vel í okkur og það er mikil spenna. Við erum
spenntir fyrir því að reyna að vinna þennan bikar í þriðja skiptið í röð,“
sagði Erlingur Agnarsson, sóknarmaður Víkings úr Reykjavík, í samtali
við Morgunblaðið.
Eftir að hafa unnið bikarmeistaratitilinn í tvö síðustu
skipti telur hann aukna pressu á Víkingum. „Ég myndi
alveg segja að það væri meiri pressa núna en áður og
það er kannski búist við því að við vinnum þennan leik.
Ég held að það sé alveg klárt.“
Víkingur vann báða leiki liðanna í Bestu deildinni í
sumar, 2:1 á heimavelli og 3:0 á Kaplakrikavelli, en þó
var í báðum tilfellum um hörkuleiki að ræða. Liðin eru
á ólíkum stað í deildinni, Víkingur í 2. sæti og FH í 11.
sæti, fallsæti.
„Það er alveg búið að fara vel yfir FH-ingana og
verður örugglega gert betur núna á eftir [í gær] á æf-
ingu. Við vitum að FH er með helvíti góða leikmenn. Þó
það hafi kannski ekki gengið vel í deildinni hjá þeim þá held ég að það
skipti ekki máli í svona bikarúrslitaleik.
Það getur allt gerst. Þeir eru með leikmenn innanborðs sem geta stigið
upp og við vitum að þetta verður mjög erfiður leikur,“ sagði Erlingur.
Finnst honum líklegast að Víkingur verði meira með boltann í leiknum
og að FH liggi meira til baka. „Maður veit svo sem ekkert hvað þeir eru
að fara að gera en yfirleitt í leikjum erum við að pressa lið og ýta þeim
niður þannig að maður á alveg von á því.“
Hann kvaðst ekki hafa búist við FH þetta neðarlega í deildinni á þessum
tímapunkti. „Ég held að fáir hafi búist við þessu. Staðan kemur alveg á
óvart.“ Erlingur sagði FH þó hafa litið vel út í bikarkeppninni og sömu-
leiðis leikið vel í nokkrum undanförnum leikjum í deildinni.
Geggjað að taka þátt í þessu með uppeldisfélaginu
Spurður út í undirbúning Víkinga fyrir bikarúrslitaleikinn sagði hann:
„Þetta er yfirleitt það sama fyrir þessa stóru leiki. Það er bara góð æf-
ingavika og svo eru fundir þar sem andstæðingurinn er kortlagður. Síðan
vinnur hver og einn með sína rútínu. Í undirbúningi er þetta þannig séð
eins og hver annar leikur.“
Hinn 24 ára gamli Erlingur er uppalinn Víkingur og hefur lifað tímana
tvenna frá því að hann lék sinn fyrsta leik sumarið 2015. Frá 2015 til 2020
náði Víkingur hæst 7. sæti í deildinni en síðustu ár hefur Erlingur unnið
Íslandsmeistaratitil, tvo bikarmeistaratitla og tekið þátt í Evrópu-
ævintýrum.
„Eftir að maður er búinn að upplifa hvernig það er að vera í toppbar-
áttu, vinna titla og svoleiðis þá langar mann alls ekki að fara aftur í pakk-
ann sem við vorum í. Þetta er fyrst og fremst ógeðslega gaman og geggj-
að að taka þátt í þessu með uppeldisfélaginu,“ sagði hann að lokum.
gunnaregill@mbl.is
Aðeins meiri pressa á
Víkingum núna en áður
Erlingur
Agnarsson