Morgunblaðið - 01.10.2022, Qupperneq 37
ÍÞRÓTTIR 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2022
Í vikunni fóru af stað fréttir
um að Vanda Sigurgeirsdóttir
formaður KSÍ hefði fyrr á árinu
rætt við Heimi Hallgrímsson um
mögulega endurkomu hans í
starf landsliðsþjálfara karla.
Vanda staðfesti orðróminn
sjálf við Fréttablaðið en í kring-
um þetta hafa spunnist umræð-
ur um vinnubrögð formannsins
og hvort hún hafi með þessu
grafið undan trausti sambands-
ins til Arnars Þórs Viðarssonar.
Ég sé ekki betur en að Vanda
hafi gert allt rétt og í raun bara
verið að gera skyldu sína. Sem
formaður KSÍ þarf hún að vera á
tánum. Arnar Þór var lengi vel í
nokkru basli sem landsliðsþjálf-
ari og þegar ekki þykir ljóst hvert
stefni hjá landsliðsþjálfara er í
hæsta máta eðlilegt að formað-
urinn horfi til næstu framtíðar.
Ekki síst þegar vinsælasti og
sigursælasti landsliðsþjálfari Ís-
landssögunnar er mögulega á
lausu á nýjan leik.
En þessu máli er lokið. Heimir
er kominn í sólina og raggíið á
Jamaíku og sólin hefur líka risið
hjá Arnari eftir að landsliðið
komst vel frá verkefnunum í
september. Það var síðan vel
gert af Vöndu að staðfesta spjall
sitt við Heimi. Hún afgreiddi
þetta mál með prýði.
En Vanda er í vanda í dag.
Hvar verður hún laust fyrir klukk-
an fjögur? Afhendir hún Vals-
konum Íslandsbikarinn, eða
gengur hún fyrir liðunum inn á
völlinn í úrslitaleik bikarkeppni
karla? Hvort tveggja tilheyrir
skyldum eða venjum formanns.
Það er að sjálfsögðu argasti
klaufaskapur hjá KSÍ að setja
bikarúrslitaleikinn og loka-
umferð Bestu deildar kvenna á
sama daginn. Mistök sem von-
andi endurtaka sig ekki.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
KNATTSPYRNA
Mjólkurbikar karla, úrslitaleikur:
Laugardalur: FH – Víkingur R............. L16
Besta deild kvenna, lokaumferð:
Hlíðarendi: Valur – Selfoss.................... L14
Garðabær: Stjarnan – Keflavík............. L14
Kópavogur: Breiðablik – Þróttur R...... L14
Eyjar: ÍBV – Afturelding ...................... L14
Meistaravellir: KR – Þór/KA ................ L14
Besta deild karla:
Akureyri: KA – KR................................. S15
Keflavík: Keflavík – ÍA........................... S15
Úlfarsárdalur: Fram – Leiknir R..... S17.15
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Eyjar: ÍBV – Hörður .............................. S14
KÖRFUKNATTLEIKUR
Meistarakeppni karla:
Hlíðarendi: Valur – Stjarnan ............ S20.15
1. deild kvenna:
Kennarahásk.: Ármann – Tindastóll .... L19
Hveragerði: Hamar/Þór – Breiðablik b S17
UM HELGINA!
Harry Maguire, fyrirliði enska
knattspyrnufélagsins Manchester
United, verður ekki með liðinu á
morgun þegar United heimsækir
Manchester City í stórleik ensku
úrvalsdeildarinnar á Etihad-völlinn
í Manchester. Maguire, sem er 29
ára gamall, er að glíma við meiðsli
aftan í læri og er óvíst hvenær
varnarmaðurinn verður klár í slag-
inn á nýjan leik en hann hefur ekki
átt fast sæti í liði United það sem af
er tímabili.
Missir af
stórleiknum
M-GJÖFIN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Atli Sigurjónsson kantmaður KR-
inga hefur verið besti leikmaður
Bestu deildar karla á yfirstandandi
keppnistímabili samkvæmt ein-
kunnagjöf Morgunblaðsins, þegar
22 umferðum er lokið af 27 í deild-
inni.
Atli er efstur í M-gjöf blaðsins
með 20 M samanlagt í 22 leikjum
KR-inga og af þeim fékk hann sex-
tán M í síðustu fjórtán leikjum liðs-
ins, eftir rólega byrjun á tíma-
bilinu.
Atli er með þrjú M í forskot á
næsta mann, Jason Daða Svan-
þórsson úr Breiðabliki, áður en
lokasprettur deildarinnar hefst á
morgun þegar liðunum hefur verið
skipt í efri og neðri hluta.
Nökkvi Þeyr Þórisson og Emil
Atlason áttu mesta möguleika á að
fylgja Atla eftir á lokasprettinum.
Nökkvi var kominn með 16 M úr 20
leikjum þegar hann var seldur frá
KA til Beerschot í Belgíu og Emil
var kominn með 15 M úr 19 leikjum
Stjörnunnar þegar hann meiddist
og er væntanlega úr leik það sem
eftir er tímabilsins.
Þessir eru efstir í M-gjöfinni eft-
ir 22 umferðir í deildinni:
20 Atli Sigurjónsson, KR
17 Jason Daði Svanþórss., Breið.
16 Nökkvi Þeyr Þórisson, KA
16 Ísak Snær Þorvaldsson, Breið.
16 Eiður Aron Sigurbjörnss., ÍBV
15 Emil Atlason, Stjörnunni
15 Höskuldur Gunnlaugss., Breið.
15 Tiago Fernandes, Fram
14 Dagur Dan Þórhallsson, Breið.
14 Ísak Andri Sigurgeirs., Stjörn.
14 Ívar Örn Árnason, KA
13 Adam Ægir Pálsson, Keflavík
13 Damir Muminovic, Breiðabliki
13 Guðmundur Magnússon, Fram
13 Júlíus Magnússon, Víkingi
13 Viktor Freyr Sigurðss., Leikni
_ Breiðablik er með flest M sam-
anlagt á tímabilinu, 136 talsins.
Víkingur er með 114, KA 113, Val-
ur 105, Stjarnan 103, Keflavík 99,
KR 97, Fram 95, ÍBV 95, FH 87,
Leiknir 73 og ÍA 70.
Atli er efstur
í M-gjöfinni
- Tveir keppinautar hans eru úr leik
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Efstur Atli Sigurjónsson hefur átt jafnt og gott tímabil með KR-ingum og er
með forskot í M-gjöfinni þegar fimm umferðir eru eftir í Bestu deildinni.
Alfreð Elías Jóhannsson verður
ekki áfram þjálfari karlaliðs
Grindavíkur í knattspyrnu á næsta
tímabili. „Nú er það orðið ljóst að
ég mun ekki halda áfram störfum
hjá knattspyrnudeild Grindavíkur á
komandi tímabili. Mig langar að
þakka öllu því góða fólki sem ég hef
unnið með síðastliðið ár fyrir
ánægjulegt samstarf,“ skrifaði Al-
freð Elías á Facebook-síðu sína í
gær. Undir hans stjórn hafnaði liðið
í 6. sæti 1. deildar, Lengjudeild-
arinnar, á nýafstöðnu tímabili, hans
eina við stjórnvölinn.
Lætur af störfum
í Grindavík
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Hættur Alfreð Elías Jóhannsson
hefur látið af störfum í Grindavík.
Kristian Nökkvi Hlynsson var á
skotskónum fyrir Jong Ajax þegar
liðið heimsótti Zwolle í hollensku B-
deildinni í knattspyrnu í gær.
Haris Medunjanin kom Zwolle yf-
ir á 62. mínútu áður en Kristian
jafnaði metin fyrir Jong Ajax á 80.
mínútu í 1:1 og urðu það lokatölur
leiksins. Kristian lék allan leikinn
með Jong Ajax sem er með 12 stig í
ellefta sæti deildarinnar eftir fyrstu
níu umferðirnar. Þetta var fyrsta
mark Kristians í deildinni á tíma-
bilinu en hann skoraði tvö mörk í B-
deildinni á síðustu leiktíð.
Fyrsta markið
í Hollandi
Ljósmynd/KSÍ
1 Kristian Nökkvi Hlynsson er kom-
inn á blað í hollensku B-deildinni.
Sveindís Jane Jónsdóttir fór á kostum fyrir Wolfsburg
þegar liðið tók á móti Bayer Leverkusen í þýsku 1.
deildinni í knattspyrnu í gær.
Leiknum lauk með 6:1-stórsigri Wolfsburg en Sveind-
ís Jane kom inn á sem varamaður hjá þýska liðinu á 66.
mínútu í stöðunni 3:1.
Sex mínútum síðar lagði hún upp mark fyrir Felicitas
Rauch og tveimur mínútum síðar, á 74. mínútu, skoraði
hún fimmta mark Wolfsburg.
Hún var svo aftur á ferðinni mínútu síðar þegar hún
skoraði sjötta mark Wolfsburg og sitt annað mark en
Wolfsburg, sem er ríkjandi Þýskalands- og bikarmeist-
ari, er með 9 stig eða fullt hús stiga í efsta sæti deildarinnar.
Sveindís, sem er 21 árs gömul, hefur byrjað tímabilið í Þýskalandi með
miklum látum en hún hefur komið inn á sem varamaður í öllum þremur
deildarleikjum sínum til þessa og skoraði í þeim tvö mörk og lagt upp önn-
ur tvö mörk til viðbótar fyrir liðsfélaga sína.
Frábær innkoma Sveindísar
Sveindís Jane
Jónsdóttir
Hollendingurinn Erik ten Hag, knattspyrnustjóri karla-
liðs Manchester United, var útnefndur stjóri sept-
embermánaðar í ensku úrvalsdeildinni. Manchester
United vann báða leiki sína í mánuðinum, 1:0 á útivelli
gegn botnliði Leicester City, og 3:1 á heimavelli gegn
toppliði Arsenal. Flest lið léku aðeins tvo leiki í deildinni
í mánuðinum eftir að leikjum var frestað vegna fráfalls
Elísabetar II. Bretlandsdrottningar. Ten Hag tók við
Man. United í sumar og því er þetta í fyrsta skipti sem
hann vinnur til verðlaunanna.
Þá var Marcus Rashford, sóknarmaður Manchester
United, útnefndur besti leikmaður septembermánaðar í
úrvalsdeildinni. Rashford skoraði tvö mörk og lagði upp önnur tvö í tveim-
ur leikjum United í september. Hann lagði upp sigurmarkið í 1:0-sigri á
Leicester City og skoraði svo tvívegis og lagði upp annað mark í sterkum
3:1-sigri á toppliði Arsenal.
Þeir bestu komu frá United
Erik
ten Hag
Stjarnan gerði sitt annað jafntefli í
úrvalsdeild karla í handknattleik,
Olísdeildinni, á tímabilinu þegar
liðið tók á móti Haukum í TM-
höllinni í Garðabæ í 4. umferð
deildarinnar í gær.
Leiknum lauk með 29:29-jafntefli
en staðan var jöfn í hálfleik, 15:15.
Garðbæingar skoruðu fyrstu þrjú
mörk leiksins en Haukar jöfnuðu
metin í 6:6 eftir tíu mínútna leik.
Mikið jafnræði var með liðunum
það sem eftir lifði leiks. Stjarnan
leiddi með tveimur mörkum, 29:27,
þegar fimm mínútur voru til leiks-
loka en Haukum tókst að jafna met-
in á lokamínútunum og þar við sat.
Leó Snær Pétursson var marka-
hæstur Garðbæinga með 8 mörk og
Tandri Már Konráðsson skoraði 5
mörk. Hjá Haukum var Guðmundur
Bragi Ástþórsson atkvæðamestur
með 8 mörk og Stefán Huldar Stef-
ánsson varði 11 skot í markinu og
var með 36% markvörslu.
Stjarnan er með 4 stig í sjötta
sætinu en Haukar eru í því þriðja
með 5 stig.
Morgunblaðið/Eggert
Skot Hafnfirðingurinn Andri Már Rúnarsson sækir að Garðbæingum í TM-
höllinni en hann var atkvæðamikill fyrir Hauka og skoraði 7 mörk í gær.
Jafnt í frábærum leik