Morgunblaðið - 01.10.2022, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 01.10.2022, Qupperneq 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ Indie wire UPPLIFÐU STÆRSTU MYND ALLRA TÍMA Í STÓRKOSTLEGUM 4K MYNDGÆÐUM OG UPPFÆRÐRI ÞRÍVÍDD. SÝND Í 3D Í SAMBÍÓUNUM EGILSHÖLL SÝND Í TAKMARKAÐAN TÍMASÁLFRÆÐITRYLLIR SEM SÍFELLT KEMUR Á ÓVART EKKI MISSA AF ÞESSARI Í BÍÓ Telegraph É g horfi á fólk og velti fyrir mér hvað hefur á daga þess drifið,“ segir hin finnska Evi sem ferðast um heimaland sitt og stýrir karíókí- viðburðum. Evi nýtur þess að sjá hið ólíkasta fólk yfirstíga ótta sinn og syngja af öllu hjarta, eins og hún lýsir því sjálf. Karíókí er hennar líf og yndi og fólkið sem mætir til hennar af öll- um stærðum og gerðum. Hver og ein manneskja á sér sína sögu, eins og áhorfandinn er minntur á í þessari stuttu og fallegu heimildarmynd sem sýnir hversu mikið er hægt að segja á stuttum tíma. Karíókí paradís varpar ljósi á hinar ýmsu persónur sem njóta þess að syngja í karíókíi af ólíkum ástæðum. Ung kona segist hafa flutt í fallegt hús úti í sveit en varið mestöllum tíma sínum á spítala. Frá þessu segir hún með grátstafinn í kverkunum og síðar í myndinni kemur í ljós hvers vegna og það er nístandi sárt. Næst sjáum við sömu konu stífmálaða með mikla og ljósa krulluhárkollu og sól- gleraugu. Hún er á leið á svið að syngja, að farast úr stressi enda um undankeppni heimsmeistaramóts í karíókísöng að ræða. Já, það er hægt að vera heimsmeistari í karíókíi! Karíókí er ekki fyrir feimna og inn á það er vissulega komið í myndinni, líkt og svo margt annað. Ungur mað- ur segist hafa skolfið á beinunum þegar hann tók lagið fyrst. Honum líður illa frammi fyrir áhorfendum, enda er maður sjaldnar berskjald- aðri. Öðru máli gegnir þegar hann er í sturtu, þar er hann jafnöruggur með sig og Elvis Presley. Söngurinn brýtur niður allar varn- ir og sá sem syngur illa verður oft að athlægi, eins og alkunna er. En hve- nær syngur fólk illa og hvenær ekki? Syngur ekki hver með sínu nefi? Þessar spurningar og fleiri vakna þegar maður horfir á þessa skemmti- legu og hjartnæmu finnsku heimild- armynd. Sáluhjálp Gamall maður tekur lagið á bifreiða- verkstæði. Já, meira að segja á slík- um stöðum má finna karíókítæki. Að söng loknum talar sá gamli af ein- lægni við félaga sína um fagrar kon- ur. Einn veifar þá síma og virðist vera að sýna hinum makaleitar-app. Nota gamlir karlar í Finnlandi Tinder? Símaeigandinn biður dóttur sína að taka mynd af sér fyrir appið sem er algjörlega kostulegt atriði. Þannig kemur hver eftirminnileg svipmyndin á eftir annarri í Karíókí paradís og það sem tengir fólkið sam- an er dálæti þess á karíókíi. Hver hef- ur sinn djöful að draga, sumir glíma við einmanaleika, söngkona ein glímir við Parkinsonsjúkdóminn og tánings- dóttir hennar hefur áhyggjur af henni. Þær slá samt sem áður á létta strengi sem er líklega besta leiðin til að takast á við ótta og óvissu. Mamm- an tekur síðar lagið á sjúkrahúsi, á leið í aðgerð. Evi, karíókístjórnandinn sem fylgst var með í byrjun myndar, segir karíókí lífsstíl frekar en starf og að hún hafi stýrt þúsundum „gigga“. Á ferð hennar um landið má sjá fallegt landslag Finnlands og dýr hlaupandi á vegum, hesta og elgi. Þeir eru frjálsir líkt og söngvararnir eru í algleymi karíókísins, drukknir jafnt sem allsgáðir, þungarokkarar jafnt sem sveitatónlistarunnendur. Evi segir að hana hafi alltaf dreymt um að hjálpa fólki en lífið því miður hagað því þannig að hún gat ekki orðið sál- fræðingur. Karíókíið er hennar leið til að hjálpa öðrum. Sungið í gufubaði Gröfukarl stígur stirðbusalegan dans, sá sami og var með símann að skoða konur í makaleitarappinu sínu. Hann er að læra að dansa fyrir stefnumót. Í skítugum vinnugallanum. Óborg- anlegt atriði! Þegar karlinn kemur heim hlær dóttir hans að honum. Lík- lega þykir henni hann krúttlegur. Í Karíókí paradís eru mörg svona atriði, bæði spaugileg og hjartnæm, raunsönn og sorgleg. Að öllu saman- lögðu er þetta einkar vel heppnað verk sem ætti að fá hvern sem er til að brosa út að eyrum eða tárast. Og hvað skyldu nú Finnar vera þekkt- astir fyrir? Jú, gufuböð og í einu slíku syngja eldri hjón hvort til annars. Karíókí í gufubaði! Þvílík snilld- arhugmynd! Er kannski betra að syngja en tala saman? Getur karíókí veitt líkn við lífsins raunum? Örugglega. Söngur- inn hefur jú sameiningarmátt og um það og svo miklu fleira fjallar þessi mannlega og fallega mynd Einaris Paakkanens sem hlýtur að vera ein sú allra besta á RIFF í ár. Gufubað Úr Karíókí paradís, hjón syngja hvort til annars í gufubaði. Rómantískara verður það varla. Lækningarmáttur karíókísins Háskólabíó og Kex hostel Karíókí paradís bbbbm Leikstjóri: Einari Paakkanen. Finnland, 2022. 76 mín. Sýnd á RIFF. HELGI SNÆR SIGURÐSSON KVIKMYNDIR Framleiðslu- fyrirtæki Hann- esar Þórs Hall- dórssonar, Floodlights, hef- ur keypt kvik- myndaréttinn að bók Stefáns Mána, Húsinu. Er haft eftir Hann- esi í tilkynningu að Húsið sé dimm og drungaleg saga og efni í góða kvikmynd. Hannes segir enn langt í land en handritsvinnuna þó hafna. Stefán Máni er sagður afar ánægð- ur með samninginn og hlakka til að fylgjast með þróuninni. Hannes Þór hefur leikstýrt fjölda auglýsinga og var Leynilögga, fyrsta kvikmynd hans í fullri lengd, frumsýnd í fyrra og hlaut góða aðsókn. „Ásamt Húsinu er ég tengdur nokkrum mjög áhugaverð- um verkefnum og hugmyndin er að bretta upp ermar og koma miklu í verk næstu árin,“ er haft eftir Hannesi í tilkynningu. Keypti kvikmyndaréttinn að Húsinu Hannes Þór Halldórsson Heimildarmyndin Exxtinction Emergency, eða Útdauði neyðar- ástand, verður frumsýnd á morgun, 2. október, á RIFF og er hún eftir Sigurjón Sighvatsson og Scott Hardie. Er myndin fyrsta leikstjórn- arverkefni Sigurjóns og fjallar um umhverfissamtökin Extinction Rebellion sem stofnuð voru í Bret- landi árið 2018 í kjölfar skýrslu milliríkjanefndar Sameinuðu þjóð- anna um loftslagsbreytingar. „Sam- tökin vöktu strax gríðarlega athygli vegna aðferða sinna við að vekja athygli á sinnu- leysi stjórnvalda gegn loftslags- breytingum,“ segir í tilkynn- ingu og að sam- tökin hafi á stefnuskrá sinni að mótmæla með þeim hætti að yfirvöld telji sig tilneydd að hand- taka sem flesta þátttakendur vegna truflana sem þeir valdi. „Borgara- leg óhlýðni fjöldans, en alltaf án ofbeldis, liggur til grundvallar í aðgerðum Extinction Rebellion,“ segir í tilkynningu og að aðgerðir samtakanna hafi farið illa í íhalds- söm öfl víða um heim. Sigurjón er stofnandi fram- leiðslufyrirtækisins Palomar Pictures og situr einnig í stjórn Scanbox Entertainment sem er skandínavískur dreifingaraðili kvikmynda. Hann hefur lengi beitt sér fyrir umhverfisvernd með ýms- um hætti. Fyrsta leikstjórnarverkefni Sigurjóns sýnt á RIFF Sigurjón Sighvatsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.