Morgunblaðið - 06.10.2022, Blaðsíða 42
42 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2022
✝
Hallgrímur
Oddsson fædd-
ist 19. janúar 1923
í Hvarfsdal, Dala-
sýslu.
Hann andaðist á
dvalar- og hjúkr-
unarheimilinu
Grund 27. sept-
ember 2022.
Foreldrar hans
voru Valfríður
Ólafsdóttir og
Oddur Bergsveinn Jensson.
Hallgrímur var þriðja barn
þeirra hjóna. Systkini hans eru:
Helga, Alfons, Guðrún, Rósa,
Þórdís, Katrín og Ólafur. Eft-
irlifandi systkini Hallgríms eru
Rósa og Ólafur.
Hallgrímur ólst upp í Hvarfs-
dal til 12 ára aldurs. Þá flutti
hann ásamt fjölskyldu sinni í
Sælingsdal. Þar bjó hann þar
til hann flutti til Reykjavíkur
21 árs gamall.
Hallgrímur gekk í heima-
íðsson. 2) Oddur, f. 12.5. 1960.
Maki er Sigríður Kristín Jóns-
dóttir og börn þeirra eru: a)
Matthea, maki Halldór Oddsson
og börn þeirra eru Skarphéð-
inn, Silfá Helga og Hallveig, b)
Hallgrímur, maki Ásdís Ólafs-
dóttir og börn þeirra eru Guð-
rún Helga og Sigríður Þóra, c)
Guðbjörg, maki Þorsteinn
Helgi Valsson og börn þeirra
eru Matthea Guðrún og Rakel.
Hallgrímur og Helga bjuggu
í Karfavogi 37 í 53 ár og var
heimili þeirra ávallt opið öllum
sem á þurftu að halda, skyldum
og óskyldum. Hallgrímur var
mikill fjölskyldumaður og áttu
börn hans og barnabörn hug
hans allan. Helsta áhugamál
hans var hestamennska og
hana stundaði Hallgrímur frá
unga aldri og fram á níræð-
isaldur. Hann tók að auki virk-
an þátt í starfi Breiðfirðinga-
félagsins.
Hallgrímur vann lengst af
hjá Reykjavíkurborg, þar af 28
ár sem verkstjóri við gatna-
gerð.
Útför Hallgríms verður gerð
frá Langholtskirkju í dag, 6.
október 2022, og hefst athöfnin
klukkan 13.
skóla frá tíu ára
aldri þar sem hann
fór á milli bæja yf-
ir vetrartímann.
Hinn 20. apríl
1957 gekk Hall-
grímur í hjóna-
band með Helgu
Þorgrímsdóttur, f.
11.4. 1930, d. 26.2.
2015, frá Húsavík.
Í hjónabandið kom
Helga með dótt-
urina Mattheu Guðnýju Ólafs-
dóttur, f. 14.10. 1951. Maki
hennar var Hermann Þ. Svein-
björnsson, f. 5.3. 1949, d. 16.7.
2003. Hallgrímur gekk Mattheu
Guðnýju í föðurstað og reyndist
henni einstaklega góður faðir.
Synir Hallgríms og Helgu eru:
1) Þorgrímur, f. 3.5. 1959. Maki
er Gyða Jónsdóttir og börn
þeirra eru: a) Andri Rafn, maki
Sol Carolina Benavente, b)
Helga Guðný og c) Úndína Ýr,
maki Sigurður Auðberg Dav-
Elskulegur tengdafaðir minn
er látinn. Halli dó hljóðlega og
fallega, án verkja og þjáningar og
er nú farinn í sumarlandið í faðm
Helgu sinnar. Helga og Halli
voru fallegir og góðir lífsföru-
nautar, ástfangin alla tíð og ein-
stakar fyrirmyndir.
Ég á margar og góðar minn-
ingar og fyrir það er ég þakklát.
Halli var fallegur og hreinlyndur,
aldrei heyrði ég hann hallmæla
nokkrum manni. Hann var fögur
manneskja yst sem innst, brosið
svo bjart og hlýtt að manni hlýn-
ar um hjartaræturnar.
Halli hugsaði vel um fólkið sitt
og þótti einstaklega vænt um af-
komendur sína – barnabörnin
voru alltaf í forgangi. Þegar við
Oddur vorum með börnin okkar
lítil var hann boðinn og búinn að
passa þau hvenær sem var, jafn-
vel þegar þau voru veik heima svo
við foreldrarnir gætum stundað
vinnu. Það skipti engu máli hvort
þau voru lítil og þurftu mikla
umönnun eða orðin stálpuð og
sjálfstæðari. Til að létta undir
með okkur ungu foreldrunum
þótti Halla sjálfsagt að geyma
sumarleyfisdaga til að gæta
barnabarnanna. Engum treysti
ég betur fyrir börnunum mínum
en tengdaforeldrum mínum.
Barnabörnin sóttu alla tíð mikið í
Karfavoginn til afa og ömmu. Þar
fengu þau allt sem þau vildu og
óskipta athygli. Það er gott að
vera þar sem gleðin býr.
Það fór ekki mikið fyrir
tengdaföður mínum. Hann var
nægjusamur, rólegur og traust-
ur. Hann var orðvar en lundin
alltaf svo létt og góð. Hans fallega
lífssýn, gildi og mildi voru svo að-
laðandi, falleg og til eftirbreytni.
Elskulegur, hvíl í friði og takk
fyrir allt og allt.
Þín tengdadóttir,
Sigríður Kristín
Jónsdóttir.
Í dag kveð ég elsku afa minn.
Afa Halla sem alltaf tók á móti
manni með sínu ljúfa brosi og
hlýja faðmi, fyrst í Karfavogi og
síðar á Grund. Hvergi var betra
að vera en í Karfavogi hjá ömmu
og afa. Þar fékk maður ómælda
athygli og uppátækjum okkar
frændsystkina var svarað með
áhuga og hvatningu. Afi Halli gaf
sér allan heimsins tíma til að
leika, spila og bardúsa. Hann
kenndi okkur að leggja kapal, var
eini viðskiptavinurinn þegar sett-
ar voru upp tombólur fyrir utan
Karfavoginn og fór með okkur í
réttir og sveitaferðir.
Afi lagði mikið upp úr því að
vera í góðu sambandi við alla sína
afkomendur og hélt þétt utan um
okkur fjölskylduna. Allt fram á tí-
ræðisaldur hringdi hann reglu-
lega í mann og spurði frétta. Það
skipti ekki máli hvort hann
heyrði í manni eða ekki – ég vissi
alltaf að bak við tólið sat afi Halli
með sitt breiða og blíða bros.
Afi hafði mikinn áhuga á hesta-
mennsku og smitaðist ég fljótt af
því áhugamáli. Ég verð afa æv-
inlega þakklát fyrir hafa gert mér
kleift að njóta hestamennskunn-
ar en oftar en ekki skutlaði hann
mér upp í hesthús eftir skóla,
fylgdi mér á reiðnámskeið um
helgar og aðstoðaði mig á bak.
Takk fyrir allt, elsku afi.
Minning þín, gildi og ljúf-
mennska lifir áfram í hjörtum
okkar.
Guðbjörg Oddsdóttir.
Afi var sá ljúfasti. Hann er
með mér í mínum bestu æsku-
minningum. Að gista hjá ömmu
og afa í Karfó var allra best. Afi
ristaði brauð og hitaði kakó með
sem ég fékk svo á brúnum bakka í
rúmið, ofan á tvöfalda hjóna-
sængina þar sem ég fékk að sofa í
miðjunni. Eftir hádegi sendi
amma afa út í Kjalfell á horninu
til að kaupa hvað sem mig langaði
helst í þann daginn, fylla á nam-
midunkinn eða nýjan límmiða í
límmiðabókina. Seinna, þegar afi
kom að passa í Maríubakka,
svæfði hann yngri systkini mín
með því ganga með þau um gólf
þar sem þau lágu á öxl og kúrðu
sig í háls, og gekk um lengi vel
þótt þau væru löngu sofnuð.
Þannig var afi með sína róandi
nærveru; svo hlýr og blíður og
gaf sér allan tímann í heiminum
til að svæfa barnabörnin.
Matthea Oddsdóttir.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Matthea (Matta)
Guðný.
Ég kveð elskulega afa minn og
nafna með söknuði og hlýju.
Æskuminningar úr Karfavogi hjá
afa Halla og ömmu Helgu eru rík-
ar og margar, vikulega slátrið á
þriðjudögum með ísnum og
namminu sem fylgdi, morgun-
maturinn í rúmið þegar við systk-
inin gistum, Tinnabækurnar og
fjörlegu fjölskylduboðin. Minn-
ingarnar eru ýmist sólríkar; litla
plastrólan sem hékk á snúrus-
taurunum úti í garði, eða jólaleg-
ar, með hvítri fönn og jólaljósum
– ætli það sé ekki vegna þess að
hjá ömmu og afa á aðfangadag
beið manns alltaf langbesti pakk-
inn. Eftir að hafa borðað jólamat-
inn og opnað pakka heima hittist
föðurfjölskyldan í Karfavogi, þar
sem iðulega beið okkar krakk-
anna eitthvað sem ofarlega var á
óskalistanum.
Væntumþykja afa og ömmu í
garð okkar barnabarnanna átti
sér önnur form. Hún birtist líka í
þolinmæði, þessu ósvikna, vina-
lega viðmóti og skorti á nei-um.
Ég minnist þess varla að hafa
verið neitað um nokkuð í heim-
sókn í Karfavogi. Það var hugsað
vel um mann og athyglin óskipt.
Eftir því sem ég eldist hefur
afi einnig æ sterkar verið mér
fyrirmynd. Nægjusemi og góð-
mennska einkenndu afa – lífsgildi
sem hljóma svo sjálfsögð en eru
það ekki. Fjölskyldan skipti afa
máli, en ekki veraldleg gæði. Það
er góð fyrirmynd að hafa og mik-
ilvæg áminning um það sem
raunverulega skiptir máli, á tím-
um þar sem svo margt snýst um
að langa í eða kaupa hitt eða
þetta. Ekki síst fyrir mann eins
og mig sem langar oft í hitt eða
þetta.
Hvíl í friði elsku, góði og mildi
afi. Það er mér heiður að bera
nafnið þitt.
Hallgrímur Oddsson yngri.
Elsku besti afi Halli. Í dag
kveðjum við þig með frið í hjarta.
Alla tíð hefur þú verið einstak-
ur í okkar huga og erum við svo
þakklát fyrir allan þann tíma sem
við fengum með þér. Elsku afi, þú
varst alltaf með bros á vör og allir
sem þekktu þig tala um fallega
brosið þitt. Faðmur þinn var öll-
um opinn sem þurftu á faðmlagi
að halda og best var að fá að kúra
í hálsakotinu þínu.
Minningar um þig og ömmu
eru svo margar og allar standa
þær upp úr. Skemmtilegast var
að fá að gista í Karfavoginum hjá
ykkur. Þar fengum við að vaka
lengur og horfa á sjónvarpið. Þú
röltir alltaf með okkur á vídeó-
leiguna og við keyptum bland í
poka. Þú varst alltaf tilbúinn með
homeblest og appelsín í skottinu
á bílnum þínum þegar á þurfti að
halda.
Afi var þannig gerður að hann
var alltaf kominn niður á gólf að
leika við okkur. Amma Helga og
afi kenndu okkur að spila ólsen-
ólsen og veiðimann og afi kenndi
okkur að leggja kapal. Það er
gaman að hugsa til baka og sjá
þróunina en sem börn var afi allt-
af að passa upp á að við myndum
ekki tapa í spilum. Eftir því sem
árin liðu og þegar við vorum að
spila saman á Grund snerust spil-
in við og þá vorum það við barna-
börnin sem pössuðum upp á að þú
ynnir. Minnisstætt er að þegar
Úndína var farin að læra á heima-
símann þá var númerið hjá afa
það fyrsta sem hún lagði á minn-
ið. Og oftar en ekki birtist afi
Halli upp úr þurru heim til okkar
og tilkynnti það að Úndína hefði
hringt og beðið afa sinn að hátta
sig og lesa fyrir sig. Þetta er lýs-
andi dæmi yfir hverskonar maður
þú varst. Úndínu langar líka að
þakka þér fyrir öll símtölin sem
þið áttuð þegar hún bjó í Dan-
mörku þar sem hún stundaði
nám. En það klikkaði ekki að á
hverju kvöldi í mörg ár töluðuð
þið saman um daginn og veginn
og buðuð svo hvort öðru góða
nótt. Það sama hafa Andri og
Helga að segja en afi Halli
hringdi alltaf í okkur eftir heim-
sóknir til að ganga úr skugga um
að við hefðum komist heil heim.
Við systkinin höfum öll upplif-
að afa sem einstaklega ástríkan
og hjartahlýjan mann. Hann og
amma dæmdu aldrei né gagn-
rýndu. Þau leiðbeindu, hrósuðu
og hvöttu okkur áfram í öllu því
sem við tókum okkur fyrir hend-
ur. Þau voru fyrirmyndir okkar
og eru enn. Þeirra einstaka lífs-
sýn, jákvæðni og opni faðmur
hefur mótað okkur systkinin mik-
ið.
Nú er komið að hinstu kveðju-
stund og viljum við systkinin
þakka þér fyrir allt sem þú hefur
gert fyrir okkur. Hvíldu í friði,
elsku besti afi. Við minnumst þín
með gleði í hjarta og vitum að þú
og amma Helga eruð saman á ný.
Við endum þessa minningar-
grein á setningu sem afi sagði
alltaf við okkur: Góða nótt, elsku
hjartans ástin mín.
Andri Rafn, Helga
Guðný og Úndína Ýr.
Minn kæri ömmubróðir, Hall-
grímur Oddsson, er látinn. Hann
lést í hárri elli á dvalar- og hjúkr-
unarheimilinu Grund 27. septem-
ber 2022, eftir viðburðaríka ævi –
ríkur af fólki og í minningunni,
„afinn“ sem var auka, enda var
hann mér mjög góður í minni
barnæsku. Tíður gestur á heimili
ömmu, Þórdísar Oddsdóttur, en
þar var ég löngum stundum. Halli
hafði alltaf tök á því að róa óláta-
belginn mig – sem var mikil fyrir,
snör og oft fljót á mér. „Sæunn
mín skjóstu að sækja hesta,“ —
og ég fór, ALLTAF — veit hann
hafði áhuga á hrossum og vildi í
einlægni að ég legði á og riði heim
og heiman. Hann fylgdist með og
hafði virkilegan áhuga að sjá
krakkann mig vaxa í getu og þori
á hrossunum. Hann var samt að
losa sig við mig út í nokkra stund,
svo hann hefði nú tíma til að ræða
heimsmálin við fullorðna fólkið —
án þess að ég hefði orðið eða væri
með sýningar á hve sterk ég væri
eða lipur og talaði alla í hel. Halli
held ég að hafi haft gaman af
skottunni mér. Þegar ég sjálf
varð bóndi og fór í allt aðra sveit
en systir hans og amma mín, end-
aði í syðstu sveit landsins, þá elti
hann stelpuna hingað heim og
vildi sjá og heyra og skoða hross-
in á bænum. Hér var og er á mín-
um bæ stórt hrossastóð sem vakti
áhuga hestamannsins Hallgríms.
Hallgrímur sjálfur hélt hesta alla
ævi og var hvetjandi og leiðbeindi
sínu fólki. Þorgrímur hans er al-
vöru hestamaður og Úndína
frænka mín, dóttir Þorgríms, í
stórrannsókn um heilbrigði maga
í hrossum hérlendis. Ég veit að af
þessu fólki var Hallgrímur ákaf-
lega stoltur — sem og öllu hinu
fólkinu sínu. Frúin hans, Helgan
hans, sem farin er á undan, var
sérstaklega myndarleg og þau fá-
ránlega samheldin og falleg hjón.
Í minningu minni, fallegustu
hjónin sem ég þekkti sem barn, af
því þau voru alltaf svo flott í
tauinu, vel til höfð, brosmild og
hlý. Hallgrímur var á Grund síð-
ustu árin sín, í umönnun á sér-
stakri deild fyrir heilabilaða ein-
staklinga, en vegna veikinda og
vegna þessa sem heimurinn hefur
lifað undanfarin ár, hefur þreytt-
ur maðurinn lítið lagst í lang-
ferðalög. Ég segi við fjölskylduna
hans og vini alla, það er söknuður
að manni eins og honum — með
sitt sposka glott og gleðina að
vopni. Hann er væntanlega kom-
inn undir vænginn hjá Helgu
sinni þarna í upphæðum og þau
sitja vonandi á bleiku skýi núna í
október og dásama okkur öll sem
eftir erum í þessari jarðvist og
minnumst þeirra. Hafðu þökk
fyrir þitt innlegg í mitt líf Hall-
grímur. Þessi orð eru rituð með
tárum og trega. Það var gott að
þekkja þig. Ég enda skrifin hér á
að segja, já ég ætla á útfarardegi
þínum, að sækja heim fyrir þig
hross. Hingað er að koma dýra-
læknir að gelda eina 5 hesta dag-
inn sem þú verður jarðsunginn og
þú mátt vera með mér í anda. Ég
veit þú hefðir kosið að ég héldi
mig við að sækja hrossin heim,
heldur en að hendast úr sveitinni
að sitja á kirkjubekk. Bestu
kveðjur á ykkur öll sem syrgið.
Ef sveitin togar, þá er heitt á
könnunni. Guð geymi Hallgrím
Oddsson frænda minn og Helgu
konu hans. Kær kveðja,
Sæunn, Lágafelli.
Hallgrímur Pétur
Oddsson
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýju vegna
andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu
minnar, dóttur okkar, móður, stjúpmóður,
tengdamóður, systur, mágkonu og ömmu,
ÖNNU GUÐNÝJAR
GUÐMUNDSDÓTTUR
píanóleikara,
sem lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi sunnudaginn 11. september.
Útförin fór fram í Hallgrímskirkju 22. september.
Sigurður Ingvi Snorrason
Guðmundur Halldórsson Aagot Árnadóttir
Ásta Sigurðardóttir Kristján Reynald Hjörleifsson
Guðmundur S. Sigurðarson Anna Katrín Þórkelsdóttir
Marían Sigurðsson Guðrún Dís Kristjánsdóttir
Daníel Sigurðarson Eva Hillerz
Hjördís Guðmundsdóttir Þorsteinn Jónsson
Þórdís Guðmundsdóttir
Sverrir Guðmundsson Guðbjörg Pálsdóttir
Kristján Guðmundsson
og barnabörn
Okkar ástkæri bróðir, mágur og frændi,
ÓSKAR JÓNATANSSON
fv. aðalbókari
Sambands íslenskra samvinnufélaga,
kvaddi á hjúkrunarheimilinu Ísafold,
föstudaginn 30. september.
Útförin fer fram í Vídalínskirkju í Garðabæ, fimmtudaginn
13. október klukkan 13.
Lára Jónatansdóttir
Svavar Jónatansson Marta G. Magnúsdóttir
og fjölskyldur
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GYÐA ÞÓRARINSDÓTTIR,
sem lést föstudaginn 23. september, verður
jarðsungin frá Kópavogskirkju föstudaginn
7. október klukkan 13.
Einar H. Guðmundsson
Alda Guðmundsdóttir Kristófer V. Stefánsson
Eyjólfur Guðmundsson Nanna Katrín Guðmundsdóttir
Þórarinn G. Guðmundsson Kristín Jónsdóttir
Valborg Guðmundsdóttir Þór Þráinsson
barnabörn og barnabarnabörn
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna
Útfararþjónusta í yfir 70 ár
Við tökum vel á móti ástvinum
í hlýlegu og fallegu umhverfi