Morgunblaðið - 06.10.2022, Blaðsíða 64
Borgarbókasafnið býður upp á hádegisdjasstónleika í
dag, á morgun og laugardag. Segir um þá að mörg ást-
sælustu lög veraldar séu ýmist innblásin af bókum eða
samin við ljóð og eru tekin sem dæmi Maístjarnan og
Rocket Man. Verður gestum safnsins boðið í ævintýra-
för með lögum sem sprottið hafa úr jarðvegi bóka.
Flytjendur eru Birkir Blær Ingólfsson á saxófón, Þórður
Sigurðarson á píanó og Leifur Gunnarsson á kontra-
bassa. Tónleikarnir fara fram í Grófinni í dag kl. 12.15, á
morgun kl. 12.15 í Gerðubergi og á laugardag kl. 13.15 í
Spönginni.
Lög innblásin af bókum eða ljóðum
FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 279. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Keppni í úrvalsdeild karla í körfuknattleik hefst í kvöld
með fjórum leikjum en Keflvíkingar þykja sigur-
stranglegir að þessu sinni og mæta með firnasterkt lið
til leiks. Hjalti Þór Vilhjálmsson þjálfari þeirra segir að
þeir stefni hiklaust á alla þá bikara sem í boði eru. »55
Keflvíkingar stefna á alla titlana
ÍÞRÓTTIR MENNING
is- og endurvinnslusýning. „Eftir
þessa reynslu stökk ég út í djúpu
laugina og fór í samkeppni við Breta
með sjávarútvegssýningu 2016. Hún
vakti strax mikla athygli, gestum
fjölgaði 2019 og aftur núna, þegar
þeir voru ríflega 20 þúsund.“
Fyrir fjórum árum hafi hann síð-
an skipulagt landbúnaðarsýningu,
þá fyrstu hérlendis síðan 1968, og
hafi hún heppast sérlega vel. „Þegar
allt kemur til alls hef ég haldið mis-
munandi sýningar árlega frá 1995,
fyrir utan 2020 og 2021 vegna sam-
komutakmarkana í heimsfaraldr-
inum, en þeim var frestað þar til
nú.“
Að mörgu þarf að hyggja og í
mörg horn að líta en Ólafur segist
hafa gott fólk með sér og þess
vegna hafi gengið eins og best verð-
ur á kosið. „Ég skipulegg allt en yfir
100 manns komu að sjávarútvegs-
sýningunni.“ Hann segir gaman að
standa í stórræðum. „Mér finnst
mjög flókin skipulagsverkefni
skemmtileg, að láta allt ganga upp
að lokum eins og í skákinni. Þetta er
vinnan mín og ekki dugar að sitja
með hendur í skauti.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Það er skammt stórra högga á milli
hjá Ólafi M. Jóhannessyni. Hann á
og rekur fyrirtækið Ritsýn og hefur
staðið fyrir flestum fag- og vörusýn-
ingum hérlendis eða á fjórða tug
sýninga frá 1995. Á dögunum hélt-
hann stærstu sjávarútvegs-
sýninguna í Laugardalshöll til þessa
og landbúnaðarsýning verður á
sama stað í næstu viku, 14.-16. októ-
ber.
Ólafur gaf út Lyfjatíðindi fyrir
lækna og lyfjafræðinga í um 23 ár
og blað fyrir apótekin. „Eitt sinn sat
ég með apótekara í kaffi í Norræna
húsinu og talið barst að framboði á
lyfjum og tengdum vörum,“ rifjar
hann upp. „Af hverju heldurðu ekki
sýningu með starfsfólk apóteka í
huga?“ spurði hann. „Já, af hverju
ekki?“, svaraði ég og þannig varð
fyrsta sýningin til.“
Fyrstu skrefin af þessu tagi voru
stigin á Loftleiðahótelinu við
Reykjavíkurflugvöll. Ólafur segist í
raun ekki hafa vitað út í hvað hann
væri að fara og sér hafi ekki litist á
blikuna fyrsta sýningardaginn, þeg-
ar hann hafi staðið við útidyrnar,
horft út í sortann og ekki séð nokk-
urn mann. „En betur fór en á horfð-
ist. Stúlkurnar frá apótekunum
komu hver á fætur annarri. Ég
hafði bara hugsað mér að halda eina
sýningu, en úr varð að ég hélt apó-
tekasýningu árlega í áratug.“
Flókin verkefni skemmtileg
Fyrsta sýningin gekk reyndar
ekki áfallalaust. Ólafur bauð jafn-
framt upp á söngatriði, tískusýn-
ingu og fyrirlestra. „Tveir fyrirles-
arar gleymdu sér á barnum og
þegar þeir loks stigu á svið voru
þeir óskiljanlegir og annar þeirra
stóð reyndar ekki í lappirnar. En
fall er fararheill.“
Eftir vel heppnaðar apótekasýn-
ingar tóku við stóreldhúsasýningar,
heilsusýningar, sumarsýningar af
ýmsu tagi, flutningasýning, veiði-
sýning, fjármálasýning og umhverf-
Flókin skipulags-
verkefni heilla Ólaf
- Hefur skipulagt á fjórða tug fag- og vörusýninga frá 1995
Ljósmynd/Jón Svavarsson
Á Sjárútvegssýningunni 2022 Ólafur M. Jóhannesson leiddi dr. Alicia
Bugeja Said, matvælaráðherra Möltu, um sýninguna á dögunum.