Morgunblaðið - 06.10.2022, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 06.10.2022, Blaðsíða 56
56 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2022 ARCH FIT St. 36-41 / 2 litir 11.996 kr. / 14.995 kr. 20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM SKÓM 6.-10. OKTÓBER KRINGLAN KRINGLUKAST SKECHERS SMÁRALIND - KRINGL Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Hljómsveitin Vök sendi frá sér sína þriðju breiðskífu fyrir fáeinum dög- um, samnefnda sveitinni. Hljóm- sveitina skipa sem fyrr þau Einar Stefánsson, bassa- og gítarleikari, Margrét Rán Magnúsdóttir, söng- kona, hljómborðsleikari og texta- smiður, og trommarinn Bergur Dagbjartsson. Tónlistina semja þau í sameiningu og segir Einar hana oftast koma á undan textunum. Margrét eigi það til að syngja ein- hvers konar „Minions bull“ þar til textinn er klár. Einar segir að tríóinu hafi þótt tími til kominn að nefna plötu eftir hljómsveitinni. Þau séu dálítið hrif- in af slíkri nafngift sem á vel við þessa plötu, nær vel utan um inni- haldið. En hvert er þá innihaldið? „Þetta er svolítið intróspektíf plata og að einhverju leyti ákveðin konseptplata, ákveðin berskjöldun. Hún er mjög persónuleg og þá helst um líf Margrétar,“ svarar Einar. Faraldurinn vel tímasettur „Við byrjuðum að gera þessa plötu í ársbyrjun 2020 og svo skall heimsfaraldurinn á sem var dálítil blessun fyrst, við vorum orðin pínu lúin eftir mörg tónleikaferðalög og kapp við tímann. Allt í einu kom þetta tómarúm sem hafði aldrei gerst áður í okkar ferli. Allt í einu voru öll plön komin út um gluggann og við sátum á svolitlu efni, áttum þennan tíma, gátum farið og leikið okkur svolítið í rólegheitum og bara skapað, sem var ótrúlega gefandi,“ segir Einar. Hljómsveitin hafi hlakkað til að mæta í hljóðver og semja saman og ekki undir neinni pressu hvað varðar tónleikaferðalög eða skil á efni. „Við gátum leyft hlutum að gerjast, maður gat unnið í einhverju og fengið leiða á því og komið aftur að því seinna. Það er svo oft, þegar maður er að semja, einhver pressa að maður verði að klára innan ákveðins tíma og maður fær ekki þessa fjarlægð til að meta hlutina.“ Andstæður Við snúum okkur aftur að text- unum og segir Einar þá vinnu hefj- ast hjá Margréti. Hún semji ein- hvers konar grunn, komi með ákveðnar hugmyndir og fylgi flæðinu í stúdíóinu. Þar komi inn Minions-talið en fyrir þá sem ekki þekkja eru Minions gulir náungar sem birst hafa í nokkrum teikni- myndum og tala bullmál sem hljóm- ar eins og ítalska. „Ef okkur finnst eitthvað heillandi, einhver hugmynd að lagi sem okkur finnst grípandi, reynum við að negla hvað það er og hvaða sögu við viljum segja,“ segir Einar. Þannig reyni sveitin að láta hlutina haldast í hendur hvað þema varðar og í tilfelli plötunnar nýju hafi þau m.a. sótt í orgelhljóm úr kirkjum, t.d. í einu lagi sem fjallar um jarðarför. „Þar fannst okkur skemmtileg nálgun að taka hljóð- heim úr kirkjunni í bland við þetta raf- og indídæmi.“ Einar er spurður að því hvort hann telji plötuna létta eða þunga á að hlýða. Hann segir hana hvoru tveggja og Vök þyki gaman að vinna dansvæn og létt lög en þó með dimmum textum. Þannig mæt- ist oft andstæður í texta og tónlist. Djúp sár Á plötunni nýju yrkir Margrét um mjög persónuleg mál og rifjar upp þann tíma ævi sinnar þegar hún var að koma út úr skápnum og varð ástfangin af konu. „Það var kaffærandi fyrir mig að vera föst í sjálfri mér þegar ég var unglingur og skildi eftir sig djúp sár sem ég er ennþá að kljást við. Platan fjallar að miklu leyti um þetta ferli mitt að verða ástfangin af konu og koma út úr skápnum. Ég sé það svo skýrt núna hvað það er mikilvægt að fá að vera maður sjálfur. Platan hjálp- aði mér að taka utan um þetta ferli og leyfa sárunum að gróa. Hún fjallar um mikilvægi þess að vera sýnilegur því við eigum öll skilið að fá samþykki fyrir að vera við sjálf og líða vel í eigin skinni,“ er haft eftir Margréti í tilkynningu. Vök tók nánast U-beygju í tón- listarsköpun sinni með annarri breiðskífu sinni sem kom út fyrir þremur árum. „Þá langaði okkur að gera eitthvað sem við höfðum aldrei haft kjarkinn í en mikinn áhuga á sem var að gera dansvæn lög. Það hafði alltaf kitlað okkur og við höf- um alltaf verið að reyna að gera eitthvað nýtt og ögra okkur sem listafólki. Við viljum ekki endurtaka okkur og þetta var tilfinningin sem við höfðum á þessum tíma, okkur langaði að gera svona tónlist og þetta er það sem heillaði okkur þá. Á nýju plötunni er sambræðingur af þessu tvennu, dimma í bland við ljósið,“ segir Einar frá. Tónleikastaðir í uppáhaldi Hljómsveitin sá sjálf um upp- tökur á plötunni og fóru þær fram í hljóðverum í Hafnarfirði og Reykjavík. Fékk sveitin David Wrench til að hljóðblanda en sá hefur unnið með mörgum heims- kunnum tónlistarmönnum, m.a. David Byrne. Friðfinnur Oculus kom einnig að hljóðblöndun og Glenn Schick masteraði. Einar seg- ir Wrench hafa hljóðblandað fjölda frábærra platna sem Vök hafi hlust- að á í gegnum tíðina. „Við höfðum bara samband og honum leist vel á. Hann mixaði fjögur lög á þessari plötu og við enduðum á að klára hana með góðum vini okkar, Friðfinni Oculus. Hann er algjört múltítalent.“ Vök er á mála hjá alþjóðlega fyrirtækinu Nettwerk en gefur út undir eigin merkjum á Íslandi. Plat- an mun koma út á vínil þó auðvitað fari hlustun langmest fram staf- rænt, á netinu. Einar segir vínilinn á leið til landsins en framleiðslan hafi tekið lengri tíma en búist var við. Og útgáfutónleikar verða að sjálfsögðu haldnir, í Gamla bíói föstudaginn 21. október og degi síð- ar á Græna hattinum. Einar segir báða staði í miklu uppáhaldi hjá hljómsveitinni, þó ólíkir séu. „Okk- ur finnst við alltaf vera komin heim á báðum stöðum.“ „Viljum ekki endurtaka okkur“ - Vök gefur út sína þriðju breiðskífu, samnefnda sveitinni - Sambræðingur dimmu og ljóss, segir Einar Stefánsson, bassa- og gítarleikari hljómsveitarinnar, um tónlist og texta skífunnar Ljósmynd/Dóra Dúna Vök Hljómsveitina skipa Margrét Rán Magnúsdóttir, Einar Stefánsson og Bergur Dagbjartsson. Rússneski píanóleikarinn Dmitry Shishkin leikur Rapsódíu um stef eftir Paganini á tónleikum Sinfón- íuhljómsveitar Íslands í Eldborg Hörpu í kvöld kl. 20. Hljómsveitar- stjóri verður Daníel Bjarnason og segir í tilkynningu að hann stýri litríkri efnisskrá þar sem í for- grunni séu stolin stef sem öll eigi uppruna sinn á Ítalíu. „Efnisskráin samanstendur af þáttum úr Pulcinella-svítunni eftir Stravinskíj og lokaþætti úr 4. sin- fóníu eftir Mendelssohn sem auk- nefnd er sú „ítalska“. Þá hljómar hinn leiftrandi píanókonsert Rakh- manínovs, Rapsódía um stef eftir Paganini, en einleikari er hinn ungi Dmitry Shishkin sem er á hraðri leið upp á stjörnuhimin píanó- heimsins. Shishkin hefur unnið til margra verðlauna á sviði tónlistar, þar á meðal önnur verðlaun í Tsjaj- kovskíj-keppninni árið 2019 en ári áður fór hann með sigur af hólmi í alþjóðlegu tónlistarkeppninni í Genf,“ segir í tilkynningu. Tónleik- arnir eru þeir fyrstu í Grænu röð- inni og verða sýndir í beinni út- sendingu á RÚV. Einleikari Rússneski píanóleikarinn Dmitry Shishkin leikur í Eldborg. Shiskin leikur Rapsódíu um stef
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.