Morgunblaðið - 06.10.2022, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2022
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Landsbankinn auglýsir á næstu dög-
um til sölu stórhýsi sitt við Ráðhús-
torg á Akureyri. Húsið var byggt ár-
ið 1954 og þar hefur starfsemi
bankans nyrðra verið síðan, í bygg-
ingu sem nú er orðin óþarflega stór
miðað við þarfir nútímans. Vilji
stendur því til að selja húsnæðið,
með því skilyrði að bankinn geti
áfram leigt 1. hæð og hluta af kjall-
ara og 2. hæð.
Klassísk hús verið seld
Ráðstöfun þessi er í takti við ýms-
ar aðrar ráðstafanir í húsnæðismál-
um bankans á undanförnum árum,
þar sem stórhýsi sem byggð voru
fyrir Landsbankann fyrr á tíð hafa
verið seld og rekstur þar fluttur ann-
að. Bankahúsin bæði á Ísafirði og
Selfossi hafa verið seld en þau eru í
klassískum stíl og rétt eins bygging-
in á Akureyri. Vestra er útibúið kom-
ið í aðra byggingu en á Selfossi er
starfsemin enn í sama húsi, þó á
minni fleti, sem bankinn leigir nú.
Flutningar í aðra byggingu þar í bæ
eru ráðgerðir þegar færi gefst.
Þá verður starfsemi höfuðstöðva
Landsbankans í Reykjavík flutt í
nýtt hús á næstu mánuðum. Í þeirri
byggingu verður öll kjarnastarfsemi
bankans. Einnig gjaldkeraþjónusta,
hraðbankar og sjálfsafgreiðslutæki í
rými þar sem gengið er inn frá
Reykjastræti eða um bílakjallara.
Opin rými ákjósanleg
„Starfsemi banka, svo sem staf-
rænt umhverfi, er í örri þróun og
svona rekstur þarf færri fermetra en
áður. Breytt fyrirtækjamenning hef-
ur einnig áhrif, það er að ákjósanlegt
er að fólk vinni sem mest í opnum
rýmum og þvert á hópa og deildir.
Slíkt samstarf getur skapað frjóan
jarðveg fyrir nýsköpun og frum-
kvæði eins og við erum öðrum þræði
að leitast eftir,“ segir Lilja Björk
Einarsdóttir bankastjóri.
„Um ímynd banka í dag ræður
mestu stafrænt aðgengi, gott app og
netbanki og svo sú þjónusta sem við-
skiptavinir fá. Starfsfólk okkar í
framlínu er þar í lykilhlutverki og að
baki því er svo alltaf stór hópur af
tæknifólki og öðru starfsfólki sem
þróar lausnir, starfsemi og þjónustu
bankans. Keðjan er löng og hver
hlekkur þarf að vera sterkur.“
Guðjón gerði uppdrætti
Bankahúsið á Akureyri, sem er að
Strandgötu 1 og var reist árið 1954,
er um 2.300 fermetrar að flatarmáli.
Er á þremur hæðum auk kjallara.
Guðjón Samúelsson gerði fyrstu
uppdrætti að húsinu en að honum
látnum tók Bárður Ísleifsson við og
lauk verki. Bárður gerði einnig
teikningar að mögulegri stækkun
hússins; það er álmu til austurs sem
aldrei var reist. Hins vegar var árið
1975 viðbygging sem gengur til
norðurs, tekin í notkun. Lengi vel
veitti ekkert af þessum húsakynn-
um, enda er útibú Landsbankans á
Akureyri hið stærsta utan suð-
vesturhornsins.
Þess má geta að fyrr á tíð voru
skrifstofur Akureyrarkaupstaðar á
annari og þriðju hæð Landsbanka-
hússins og fundarsalur bæjarstjórn-
ar var í risinu. Má því segja að á
þeim árum hafi verið ráðhús við Ráð-
hústorg á Akureyri.
Stilltu upp kerfi
Hjá Landsbankanum á Akureyri
starfa nú rúmlega 30 manns, fólk
sem meðal annars starfar í þjónustu-
veri sem sinnir landinu öllu. Ráð-
gjafaþjónusta, gjarnan veitt í gegn-
um síma eða yfir netið, er þáttur í
starfsemi bankans sem hefur verið
efldur mjög á síðustu árum. Vegna
samkomutakmarkana og nálægðar-
reglu kom sú áhersla sér mjög vel á
Covid-tímum.
„Það hefur verið lenska að
tækniþróun og sjálfvirknivæðing
leiði til þess að störf safnist saman
miðlægt og þá oftast á höfuðborgar-
svæðinu en fækki úti á landi. Bank-
inn ákvað að stilla sínu kerfi þannig
upp að starfsfólk um allt land gæti
unnið ýmis verkefni, óháð staðsetn-
ingu. Þetta hefur bætt þjónustuna
enn frekar og styrkt útibúin úti á
landi verulega. Um leið hafa verk-
efnin sem starfsfólk á landsbyggð-
inni sinnir orðið fjölbreyttari og
starfsfólkið ánægðara,“ segir Lilja
Björk sem bendir á að í útibúunum
úti á landi starfi gjarnan mjög
reynslumikið fólk sem gott sé að geti
sinnt viðskiptavinum víðar en í nær-
samfélaginu.
Í gegnum síma, tölvupóst eða um
aðrar stafrænar gáttir berast erind-
in til Landsbankans. Mörg slík er-
indi er hægt að leysa óháð staðsetn-
ingu. Geta þetta til dæmis verið háar
millifærslur, afgreiðsla bíla- og hús-
næðislána, lífeyrismál og verðbréfa-
viðskipti svo eitthvað sé nefnt. Við-
skiptavinur sem er að kaupa íbúð í
Hafnarfirði getur fengið lánaráðgjöf
í útibúinu í Ólafsvík, og öfugt.
Öflug útibú kjarnaeiningar
„Á síðustu árum höfum við lokað
tveimur af smæstu einingunum í úti-
búaneti Landabankans og starfsfólki
hefur raunar fækkað töluvert í öllu
útibúanetinu, heldur meira á höfuð-
borgarsvæðinu en á landsbyggðinni.
Á móti kemur að við höfum eflt önn-
ur útibú og lítum á þau sem kjarna-
einingar. Þá hefur afgreiðslutími
hefðbundinnar afgreiðslu í útibúum
okkar verið styttur en þjónustuverið
er opið lengur,“ segir Lilja Björk.
Hún vekur athygli á því að á Akur-
eyri sé mjög stórt þjónustuver sem
sinni öllu landinu. Í flestum útibúun-
um úti á landi taki starfsfólk þátt í að
veita viðskiptavinum um allt land
þjónustu. Útibúin í Vestmannaeyj-
um, Dalvík og Ólafsvík séu mjög stór
í þessu sambandi.
Landsbankahúsið á Akureyri til sölu
- Vilja leigja og vera áfram við Ráðhústorg - Bankastarfsemi í þróun - Færri fermetrar - Breytt
fyrirtækjamenning - Óháð staðsetningu, segir bankastjóri - Útibúin um land allt sinna ráðgjöf
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Akureyri Stórhýsið á Strandgötu 1 er reist árið 1954 og setur sterkan svip á miðbæinn í höfuðstað Norðurlands.
Miðborg Hingað verður starfsemi Landsbankans flutt og verður í þeim hluta hússins sem er til vinstri.
Útibú og afgreiðslur Landsbankans
utan höfuðborgarsvæðsins eru alls
28 talsins. Í reikningum og bókum
bankans vega byggðirnar úti á landi
líka þungt þegar litið er til innlána,
útlána eða annars. „Kraftur í at-
vinnuvegunum
út um land hef-
ur aukist mikið
á síðustu árum.
Ég tók við starfi
bankastjóra
snemma árs
2017 og heim-
sótti í kjölfarið
mjög mörg af
útibúunum og
afgreiðslum
okkar, til að
kynnast fólki, samfélagi og að-
stæðum. Í fyrra heimsótti ég öll
útibúin og víða hitti ég atvinnurek-
endur. Á þessum fjórum árum hafði
víða orðið algjör umbreyting,“ segir
Lilja Björk Einarsdóttir.
Kyrrstaða var rofin
„Úr ferðinni á síðasta ári er mér
minnisstætt að víða hafði kyrrstaða
til margra ára verið rofin. Slíkt sást
til dæmis á því að verið var byggja
íbúðarhús, til dæmis á Hvamms-
tanga. Á sumum stöðum hefur
bygging hvers nýs húss táknrænt
gildi. Í Ólafsvík er líka mikið að ger-
ast og þar er öflug útgerð sem við
höfum verið í góðu samstarfi við. Á
frumkvöðlar sem drífa hlutina áfram
af því þeir hafa aðgengi að fjár-
magni. Ef þetta er til staðar kemur
margt annað af sjálfu sér,“ segir
Lilja Björk og að síðustu:
Leita tækifæra á Íslandi
„Raunar má segja að hvergi sé áber-
andi hökt í grunnatvinnuvegum um
þessar mundir. Víða vantar fólk til
starfa og margir leita tækifæra á Ís-
landi. Þjónustufulltrúar okkar sinna
gjarnan fólki frá útlöndum sem á Ís-
landi, komið með kennitölu, þarf að
opna launareikninga og fá aðgang
að ýmiss konar samfélagslegri þjón-
ustu. Fólk, fyrirtæki og fjár-
málaþjónusta; svona spilar allt sam-
an og með sterkum byggðakjörnum
er vonandi hægt að ná viðspyrnu
svo byggð um landið dafni.“
sunnanverðum Vestfjörðum hefur
fiskeldi gjörbreytt málum, rétt eins
og stóriðjan gerði á Austurlandi. Þá
hefur Selfoss bókstaflega sprungið
út.“
Lilja Björk segist trúa því stað-
fastlega að vilji þjóðarinnar standi
til þess að á Íslandi byggist upp öfl-
ugir þéttbýliskjarnar, rétt eins og
gerst hefur á síðustu árum. Sumar
byggðir hafa gefið eftir en aðrar
styrkst. Slíkt sé eðlilegur gangur.
„Akureyri hefur styrkst mikið á síð-
ustu árum, rétt eins og Akranes,
sem ég tel að eigi mikið inni. Ferða-
þjónusta er hryggjarstykki í at-
vinnulífi á Hornafirði. Flug og sjáv-
arútvegur á Suðurnesjum eru
áberandi vaxtarsvæði. Mjög munar
um að í hverjum bæ úti á landi séu
kannski 1-2 stór fyrirtæki og svo
Hvergi er áberandi hökt í grunnatvinnuvegum
LANDSBYGGÐIN VEGUR ÞUNGT Í STARFSEMI LANDSBANKANS
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ferðaþjónusta Staðan í atvinnulífinu er almennt góð, segir bankastjórinn.
Lilja Björk
Einarsdóttir