Morgunblaðið - 07.11.2022, Side 1
M Á N U D A G U R 7. N Ó V E M B E R 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 260. tölublað . 110. árgangur .
EKKI Í TELJANDI
VANDRÆÐUM
MEÐ ÍSRAEL
SÆNGIN FRÁ
BORGARFIRÐI
EYSTRA
HEILSUGÆSLAN
STENDUR Á
TÍMAMÓTUM
DALAI LAMA 8 MARGRÉT ÓLAFÍA 11LEIKA UM SÆTI Á HM 27
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
„Þegar þið segið gerum betur,
náum lengra og stökkvum hærra,
þá segi ég: Ég er með í því!,“ sagði
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, þegar hann
ávarpaði landsfund flokks síns eftir
að úrslit í formannskjöri urðu ljós í
gærdag.
Þeim orðum var vafalaust beint
til þeirra sem greiddu Guðlaugi Þór
Þórðarsyni, mótframbjóðanda hans,
atkvæði, en ein helsta gagnrýni
Guðlaugs á formanninn var sú að
flokknum hefði ekki auðnast að ná
fyrra kjörfylgi eftir bankahrun.
Bjarni var fyrst kjörinn formaður
flokksins árið 2009 þegar Geir H.
Haarde lét af embætti vegna van-
heilsu, svo að segja í miðju banka-
hruninu.
Bjarni var endurkjörinn formað-
ur Sjálfstæðisflokksins á fjölmenn-
asta landsfundi flokksins til þessa,
sem lauk í gær. Hann þakkaði fyrir
sig og sagði að hjarta sitt hefði
stækkað töluvert fyrir vikið.
Guðlaugur fékk 687 atkvæði alls
eða 40%.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir hlaut endurkjör sem varafor-
maður með yfirgnæfandi meirihluta
atkvæða, 1.224 af 1.379 gildum at-
kvæðum eða 89%, en auðir seðlar
voru 50. Þingmennirnir Guðrún
Hafsteinsdóttir og Diljá Mist Ein-
arsdóttir fengu einnig nokkur at-
kvæði í kjörinu.
Líkt og á við um önnur forystu-
embætti flokksins eru allir lands-
fundarfulltrúar í kjöri og þurfa þeir
að skrifa nafn viðkomandi á kjör-
seðilinn. Þingmaðurinn Vilhjálmur
Árnason bar sigur úr býtum í kjöri
um ritaraembætti flokksins, en
tvær umferðir þurfti til þess að fá
fram úrslit í því.
Mikil spenna
Óhætt er að segja að mikil
spenna hafi ríkt á landsfundinum
alla helgina, sem náði hámarki þeg-
ar kjöri formannsins var lýst. Þrátt
fyrir að þar hefðu tekist á tvær
fylkingar var af fagnaðarlátunum
ekki hægt að greina mikla óánægju
í tapliðinu.
Guðlaugur Þór Þórðarson kom í
pontu á eftir Bjarna, þakkaði fyrir
stuðninginn og óskaði Bjarna til
hamingju.
Í ræðu sinni lagði hann líkt og
formaðurinn áherslu á að sjálfstæð-
ismenn gengju sameinaðir af lands-
fundi og sneru bökum saman. Hann
kvaðst áfram styðja Bjarna sem
formann Sjálfstæðisflokksins til
góðra verka.
Bjarni endurkjörinn for-
maður Sjálfstæðisflokks
- Bjarni endurkjörinn með 59% atkvæða - Þórdís Kolbrún áfram varaformaður
MSverðin slíðruð… »4
Morgunblaðið/Eggert
Formaður Bjarni Benediktsson þakkar landsfundarfulltrúum eftir að hafa verið endurkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins í Laugardalshöll í gær.
Morgunblaðið/Eggert
Landsfundur Sá fjölmennasti frá upphafi og rúm 1.700 manns í salnum.
_ Fjármagn bæði fjárfesta og vísi-
tölusjóða flæðir til Bandaríkjanna
svo lengi sem stærstu fyrirtæki
heims eru langflest þar og á meðan
verðmæti þeirra heldur áfram að
aukast.
Þetta er meðal þess sem skýrir
mikla styrkingu bandaríkjadals, að
mati Más Wolfgangs Mixa, lektors í
fjármálum við Háskóla Íslands.
Már segir hátt verð bandaríkja-
dals gagnvart krónunni ekki tengj-
ast hérlendum aðstæðum, þó krón-
an hafi ekki styrkst eins mikið og
hann hafði gert ráð fyrir með aukn-
um umsvifum ferðaþjónustugeir-
ans. »6
Styrkist einhliða
gagnvart krónu
AFP
Fjármagn Níu af tíu verðmætustu fyrir-
tækjum heims eru bandarísk.
Helsta dánarorsökin á Íslandi árið
2021 var krabbamein og því næst
hjartasjúkdómar. Þessir tveir flokk-
ar ná yfir helming allra dauðsfalla á
síðasta ári. Þessar niðurstöður eru í
samræmi við niðurstöður síðustu
ára. Þetta kemur fram í talnabrunni
embættis landlæknis sem gefinn var
út nýverið.
Illkynja æxli eru helsta dánar-
orsökin hjá körlum og konum og var
aldursstöðluð dánarorsök á 100 þús-
und íbúa 177,8 hjá körlum, en 145,5
hjá konum. Þrátt fyrir að vera al-
gengasta orsök dauðsfalla hefur tal-
an farið lækkandi á undanförnum
árum og frá árinu 1996 hefur talan
lækkað um 41% hjá körlum og um
30% hjá konum. »10
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Krabbamein Illkynja æxli eru helsta
dánarorsökin hjá báðum kynjum.
Krabbamein
helsta dán-
arorsökin
- Talan lækkað á
síðustu 25 árum