Morgunblaðið - 07.11.2022, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2022
Er veisla framundan?
Skoðaðu úrvalið á bakarameistarinn.is
Fjölskylda
Sambýlismaður Heiðdísar er
Rúnar Már Smárason, f. 26.6.
1971, sölufulltrúi í Garðabæ.
Foreldrar Rúnars eru Ingigerður
Höskuldsdóttir, f. 10.8. 1954, fyrrv.
starfsmaður Höfða, hjúkrunar- og
dvalarheimilis á Akranesi, og Smári
Jónsson, f. 9.8. 1948, málarameist-
ari á Akureyri. Uppeldisfaðir
Rúnars og eiginmaður Ingigerðar
er Haraldur Steinar Daníelsson,
f. 4.1. 1945, fyrrv. bifreiðarstjóri á
Akranesi. Fyrrv. maki Heiðdísar
var Tómas Björnsson, f. 4.8. 1969,
d. 29.7. 2007, iðnrekstrarfræðingur.
Leiðir þeirra skildi.
Sonur Heiðdísar og Tómasar er
Daníel Heiðar Tómasson, f. 29.6.
2000, tölvunarfræðinemi í Garða-
bæ. Börn Rúnars eru: 1) Tinna Rún
Rúnarsdóttir, f. 23.11. 1998, sálfræði-
nemi í Reykjavík. Sambýlismaður:
Sveinbjörn Jóhannesson; 2) Dagur
Karl Rúnarsson, f. 30.3. 2005,
framhaldsskólanemi í Reykjavík;
3) María Eva Rúnarsdóttir, f. 24.6.
2009, grunnskólanemi í Reykjavík.
Bræður Heiðdísar eru Guð-
brandur Magnússon, f. 17.9. 1955,
framkvæmdastjóri Landsprents í
Reykjavík, og Sigurjón Magnússon,
f. 20.3. 1959, fyrrv. kennari við Gler-
árskóla á Akureyri.
Foreldrar Heiðdísar voru hjónin
Magnús Heiðar Sigurjónsson, f.
24.7. 1929, d. 21.1. 2020, verslun-
arstjóri og framkvæmdastjóri á
Sauðárkróki, og Kristbjörg Guð-
brandsdóttir, f. 15.6. 1934, d. 3.12.
2009, kaupmaður á Sauðárkróki.
Þau gengu í hjónaband 17.10. 1954.
Heiðdís Lilja
Magnúsdóttir
Kristbjörg Gísladóttir
húsfreyja í Klettakoti og Ólafsvík
Sigþór Pétursson
bóndi og skipstjóri í Klettakoti,
síðar búsettur í Ólafsvík
Kristjana Sigþórsdóttir
húsfreyja í Klettakoti og organisti í Ólafsvík
Guðbrandur Guðbjartsson
bóndi í Klettakoti á Snæfellsnesi og
hreppstjóri í Ólafsvík
Kristbjörg Guðbrandsdóttir
kaupmaður á Sauðárkróki
Guðbranda Þorbjörg
Guðbrandsdóttir
húsfreyja á Hjarðarfelli
Guðbjartur Kristjánsson
útgerðarmaður, síðar bóndi
á Hjarðarfelli á Snæfellsnesi
Helga Indriðadóttir
ljósmóðir og húsfreyja í Gilhaga
Magnús Jónsson
bóndi, organisti og forsöngvari
í Gilhaga í Skagafirði
Margrét Helga Magnúsdóttir
húsfreyja á Nautabúi
Sigurjón Helgason
bóndi á Nautabúi í Skagafirði
Margrét Sigurðardóttir
húsfreyja á Ánastöðum og Reykjum
Helgi Björnsson
bóndi á Ánastöðum og Reykjum í Skagafirði
Ætt Heiðdísar Lilju Magnúsdóttur
Magnús Heiðar Sigurjónsson
framkvæmdastjóri og
verslunarstjóri á Sauðárkróki
Vísnahorn
Geislaflóð og limrueldur
Davíð Hjálmar Haraldsson
skrifar og yrkir á Boðnar-
miði:
Búðardals-Krambúð er búlla við sjó
– berast á fjörur þar sprekin.
Við afgreiðslukassann var kona sem dró
að kaupendur; daman var brosmild og hló
og spjallaði glaðlega „heil öll!“ og „hó!“
við heimamenn – því var hún rekin.
Skýring: Krambúðin í Búðar-
dal sagði upp afgreiðslukonu
af því að hún talaði of mikið við
viðskiptavini.
„Verið að loka versluninni
Brynju“. Jón Atli Játvarðarson
spyr: „Spurning hvað kemur í
staðinn? Einhver uppástunga;
mögulega bar og uppistand?“
Enginn lúser leynist þar,
laðast mús að höllum.
Fæ mér krús á Brynjubar
og bölva Rússlandströllum.
Pétur Stefánsson skrifar:
„Þrátt fyrir gegndarlausar
hækkanir á matvöru og öðrum
nauðsynjavörum stend ég keik-
ur“.
Heimilið er mitt helga vé
og húsfreyjan gæfubrautin.
Þótt auðugur ég ekki sé
á ég salt í grautinn.
Ágætlega enn ég sef,
ekkert þjakar Pétur.
Áhyggjur ég engar hef
um mitt sálartetur.
Þórunn Hafstein segir
„Flottur“:
Keikur stendur kátur,
kletturinn hann Pétur.
Er enginn eftirbátur;
með auðugt sálartetur.
(Kom bara svona, strax eftir
lesturinn).
Pétur Stefánsson yrkir við
fallega ljósmynd:
Sólin faðmar fjallatind,
friðargeisla ber‘ hún.
Drottinn er að mála mynd,
mjög svo falleg er‘ hún.
Þórunn Hafstein svarar og seg-
ir, að falleg mynd veki hugann. –
Sólin:
Undir sínum verndarvæng,
veröld hlýju gæðir.
Eins og æðardúnsins sæng,
ávallt blessun glæðir.
Ingólfur Ómar Ármannsson
yrkir:
Glitrar árdags geislaflóð
glæður himins bála.
Þessa skæru skýjaslóð
skaparinn var að mála.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... koss á móti.
GLEÐILEGAN
SKRÖKVULYGIDAG!
OG GLEYMIÐ
EKKI…
AÐ KÖKUR ERU
MEGRUNARFÆÐI!
HELGA, ÉG DÁIST AÐ ÞVÍ
HVERSU RÓLEG ÞÚ ERT YFIR
ÖLLUM ÁRÁSUNUM Á HEIMILI
OKKAR!
DUNK
DUNK
DUNK
DUNK
DUNK
TAKK
MIG VANTAÐI MEIRA SKÁPAPLÁSS!
„ÞEIR RIFTU SAMNINGNUM. VILTU AÐ
ÉG TALI VIÐ ÞÁ OG REYNI AÐ SETJA
PLÁSTUR Á SÁRIÐ?“
PLÁSTRAR
OG TEIP
EHF.
BANNAÐ
AÐ
GANGA
Á VATNINU
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is