Morgunblaðið - 07.11.2022, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.11.2022, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2022 ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS 60+ Á TENERIFE MEÐ LÓLÓ RÓSENKRANZ Komdu með til Tenerife og njóttu samvista við jafnaldra, vini og kunningja í yndislegu loftslagi. Lóló heldur úti fjölbreyttri dagskrá sem hentar öllum. Hún býður upp á leikfimi, göngutúr ásamt mörgum skemmtilegum uppákomum. Ekki missa af þessari skemmtilegu ferð, þar sem Lóló fer á kostum! BEINT FLUG FRAM OG TIL BAKA INNRITAÐUR FARANGUR GISTING Á BEST JACARANDA 4* HÁLFT FÆÐI ÍSLENSK FARARSTJÓRN SÉRSNIÐIN DAGSKRÁ AKSTUR TIL OG FRÁ FLUGVELLI INNIFALIÐ Í VERÐI: 15 DAGAR | 04. - 18. JANÚAR VERÐ FRÁ 295.900 KR. Á MANN M.V. 3 FULLORÐNA Lóló Rósenkranz Fararstjóri ferðarinnar Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Reykjavíkurtjörn dregur alltaf til sín fjölda ferðamanna á hverju ári sem vilja smella af góðum myndum af dýralífinu í borginni. Á þessu ári gerir Ferðamálastofa ráð fyrir að 1,7 milljónir erlendra ferðamanna muni sækja landið heim. Á því næsta er spáð tæplega 2,4 millj- ónum ferðamanna, sem fjölga muni jafnt og þétt upp í tæplega þrjár milljónir árið 2025. Samkvæmt langtímahorfum má ætla að ferða- menn geti orðið um 3,5 milljónir ár- ið 2030 en sú spá er mikilli óvissu háð. Kortavelta erlendra ferðamanna hefur aldrei verið meiri að nafn- virði en í júlí á þessu ári frá því að mælingar hófust árið 2012. Það má því gera ráð fyrir að straumurinn þyngist enn frekar við Tjörnina og að endurnar og aðrar fuglateg- undir muni sjá enn fleiri brosandi andlit bak við símaskjái. Morgunblaðið/Eggert Setja sig í stellingar við bakkann Baldur S. Blöndal baldurb@mbl.is Ný lyf við offitu geta dregið verulega úr eftirspurn eftir efnaskiptaaðgerð- um. Sjúkratryggingar Íslands þurfa þó að vera fljótari að grípa inn í og fjármagna lyfjagjöf til sjúklinga. Þetta er mat Erlu Gerðar Sveinsdótt- ur læknis sem hefur sérhæft sig í meðferð við offitu. Efnaskiptaaðgerð- ir eru þó enn öflugasta meðferðin við alvarlegri offitu að hennar sögn. Erla hélt erindi á fræðsludegi Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins fyrir helgi um þessi nýju lyf við offitu sem hún segir hafa gefið afar góða raun. Lyfin sem Erla vísar til eru líra- glútíð og sema- glútíð, sem eru ætluð einstakling- um með offitu og sykursýki. Þó að- lyfin séu upphaf- lega sykursýkis- lyf, og hafi oftast verið notuð til að meðhöndla sykur- sýki samhliða of- fitu, hafa nýjar rannsóknir sýnt fram á góða virkni lyfjanna hjá þeim sem eru með offitu án þess að vera með sykursýki. „Þetta er langtímameðferð við of- fitu sem er langvinnur sjúkdómur. Þannig að auðvitað er eðlilegt að fólk leiti eftir því að vita hvort lyfið henti því þegar það heyrir af þeim. Þá er það á ábyrgð fagaðila að upplýsa vel, styðja vel og gefa þeim lyfið sem hafa mest gagn af því og fylgja meðferð- inni vel eftir.“ En áhugi á lyfjunum hefur aukist verulega síðustu miss- eri. Aukaverkanir geti verið tengdar vanþekkingu Hún segir að þær aukaverkanir sem algengt er að fylgi notkun lyfjanna, svo sem ógleði og hægða- tregða, geti tengst vanþekkingu á virkni þeirra og segir að hægt sé að komast hjá þessum aukaverkunum í flestum tilfellum. „Ef fólk notar lyfin samhliða gömlu möntrunni, það er að borða minna til að léttast meira, þá lendir maður í ógöngum. Lyfin virka ekki sem skyldi ef borðað er of lítið, þá taka varn- arkerfi líkamans yfir og stöðva þyngdartap,“ segir Erla og lýsir þrí- þættri virkni lyfjanna. Í fyrsta lagi verkar það á seddusvæði heilans, í öðru lagi hægir það á tæmingu mag- ans og hefur áhrif á þarmana, og í þriðja lagi jafnar lyfið blóðsykur sjúklinga. Lyfin eru enda í grunninn sykursýkislyf. Erla varar við því að líta á lyfin sem töfralausn en telur samt sem áður að Sjúkratryggingar Íslands séu of rag- ar að taka þátt í greiðslu kostnaðar við notkun lyfsins fyrr en allt of seint í ferlinu. „Sjúkratryggingar hefja ekki greiðsluþátttöku fyrr en sjúkdómur- inn er orðinn of alvarlegur og gera það þá í of stuttan tíma fyrir svona langvinnan sjúkdóm.“ Erla segir margt mæla með auk- inni notkun lyfjanna og þá sérstak- lega í ljósi þess að næsta skref í með- ferð þeirra sem glími við offitu sé efnaskiptaaðgerð. „Lyfin eru farin að ná árangri sem er ansi nálægt því sem þekkist eftir magaermaraðgerð,“ segir Erla og lýsir muninum á þessum tveim úr- ræðum þannig að lyfjanotkunin hafi töluvert minni kostnað í för með sér ásamt því að vera minna inngrip. Lyf gegn offitu sífellt vinsælli - Læknir á sviði offitu segir ný lyf gefa góða raun - Lyfin geti dregið úr þörf fyrir efnaskiptaaðgerðir Erla Gerður Sveinsdóttir halda áfram að sigla næstu vikurnar. „Þetta voru auðvitað ákveðin von- brigði, en gott að þetta kom í ljós þeg- ar skipið var í slipp og auðveldlega hægt að taka það upp aftur og við með varaskipið klárt. Ef þetta hefði komið upp eftir tvær eða þrjár vikur hefðum við verið í miklu verri málum,“ segir Hörður sem kveður koma í ljós á morgun hversu löng biðin eftir vara- hlutunum verður. Bilunin mun kosta sitt, því rekstur Herjólfs III er dýrari en Herjólfs IV. Herjólfur IV var ekki fyrr kominn úr slipp en hann var tekinn aftur upp, eftir að í ljós kom ný bilun í skipinu. „Það er búið að taka skipið aftur upp í slipp og verið að bíða eftir varahlutum sem koma frá Hollandi,“ segir Hörð- ur Orri Grettisson, framkvæmda- stjóri Herjólfs. Herjólfur IV átti að hefja áætlunarsiglingar milli lands og Vestmannaeyja um helgina, en bilun- in kom í ljós á föstudag. Herjólfur III, sem notaður hefur verið til siglinga á meðan sá nýrri var í slipp, mun því Herjólfur aftur í slipp eftir slipp Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Varaskeifa Herjólfur III kemur til hafnar í Vestmannaeyjum um helgina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.