Morgunblaðið - 07.11.2022, Side 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2022
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Sigurður Már Jónsson blaðamað-
ur skrifar á mbl.is um hleranir,
blekkingar og inn-
brot fjölmiðla, en
það hefur þekkst í
Bretlandi að fjöl-
miðlar hafi beitt
óleyfilegum aðferð-
um við fréttaöflun
og hafa þeir mátt
sæta ámæli fyrir.
Sigurður Már segir
ekki óalgengt að breskum fjöl-
miðlum sé stefnt, oftast fyrir meið-
andi ummæli, en meiðyrðalöggjöf
Bretlands sé ströng.
- - -
Hann segir að breskir fjölmiðlar
hafi „löngum orðið að þola
málsóknir og rannsóknir vegna
vinnubragða sinna. Þjóðarmiðillinn
BBC er þar engin undantekning en
í seinni tíð vakti mesta athygli þeg-
ar götublaðinu News of The World
var hreinlega lokað í kjölfar síma-
hlerunarhneykslis (phone hacking
scandal) árið 2011.“
- - -
Og hann heldur áfram: „Hópur
þekktra Breta, þar á meðal
Harry Bretaprins, Elton John og
Elizabeth Hurley, hefur lögsótt út-
gefendur The Daily Mail og þau
segja að þau séu „fórnarlömb við-
bjóðslegrar glæpastarfsemi og
grófra brota á friðhelgi einkalífs“,
þar á meðal með ráðningu
einkarannsóknarmanna sem fylgd-
ust með þeim.“
- - -
Sumir tala eins og fjölmiðlum sé
allt heimilt en svo er vitaskuld
ekki. Fjölmiðlar þurfa að fara að
lögum eins og aðrir og geta ekki í
krafti þýðingarmikils hlutverks
síns, sem er óumdeilt, leyft sér hvað
sem er til að afla frétta. Stundum
getur verið álitamál hvað þeir geta
leyft sér og þá er ekki óeðlilegt að
dómstólar skeri úr um það eins og
annað í réttarríki eins og Íslandi.
En hlerarnir, þjófnaður eða þaðan
af verra eru utan markanna.
Sigurður Már
Jónsson
Fjölmiðlar geta
gengið of langt
STAKSTEINAR
Ómar Örn Jónsson, formaður Skot-
veiðifélags Akureyrar, segir að fyrsta
helgin í rjúpnaveiði hafi gengið vel og
að staðan á stofninum á Norðaustur-
landi sé ágæt. Óvissa hefur verið um
ástand rjúpnastofnsins í þeim lands-
hluta vegna veðurs í sumar. „Ég sá
töluvert mikið af rjúpu, og ég veit að
fleiri sáu svolítið af rjúpu. En það hef-
ur oft verið meira af henni. Ég held að
menn séu sammála um að það hafi
farið mikið af ungum í sumar. En mér
fannst ástandið ekkert slæmt,“ sagði
Ómar sem fór á rjúpu um helgina í tíu
manna hópi og segir „alla hafa fengið í
matinn“.
Veður var með besta móti á landinu
öllu um helgina, sól, blíða og lítill vind-
ur. Í slíku hægviðri og áttleysi dreifist
stofninn mikið og þurfa því menn að
hafa talsvert meira fyrir því að elta
rjúpuna uppi. „Það hefur bara gengið
vel. Það hefur verið svona kropp og
engin stórveiði neins staðar. Hún er
náttúrlega dálítið hátt uppi, þegar
snjórinn er ekki kominn niður,“ segir
Áki Ármann Jónsson, formaður
Skotvís, og segir menn hafa fengið frá
einni rjúpu upp í sex. Hann segir
menn almennt fara eftir reglum, en
ekki má hefja veiði fyrr en klukkan
tólf á daginn. Bannað er að veiða á
miðvikudögum og fimmtudögum.
sonja@mbl.is
Allir fengið í matinn fyrir norðan
- Fyrsta helgin í rjúpnaveiði gekk vel
- Rjúpan dreifð í hægviðri helgarinnar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Jólamatur Rjúpan heldur sig enn
hátt uppi í snjóleysinu.
Sonja Sif Þórólfsdóttir
sonja@mbl.is
Dalai Lama, leiðtogi tíbeskra búdd-
ista, fékk á dögunum afhenta dún-
sæng úr íslenskum æðardún. Sæng-
ina fékk hann fyrir tilstilli Þórhöllu
Björnsdóttur sem býr og starfar í
Tíbet og stóð fyrir komu leiðtogans
til Íslands árið 2009. „Þórhalla hafði
samband við mig í vor vegna þess að
hana langaði til að gefa honum eitt-
hvað fallegt og gott sem hún vissi að
myndi nýtast honum vel. Hann er
orðinn aldraður og það er kalt um
nætur þar sem hann býr. Þá fékk
hún þá hugmynd að gefa honum
æðardúnssæng og mér fannst þetta
svo frábær hugmynd. Þórhalla á
hugmyndina, en þetta er sameigin-
leg gjöf frá okkur,“ segir Ragna S.
Óskarsdóttir, framkvæmdastjóri Ís-
lensks dúns á Borgarfirði eystra.
Kynntist framleiðslunni
Þórhalla afhenti ritara Dalai
Lama sængina fyrir tveimur vikum
en nokkrum dögum seinna var aftur
haft samband við hana og hún beðin
um að færa honum hana í persónu.
„Síðan er hún kölluð inn til að af-
henda sængina persónulega og þá
sýnir hún bæklinginn frá okkur og
segir honum frá æðarfuglunum og
hvernig dúnninn verður til,“ segir
Ragna. „Það er mikill heiður fyrir
okkur og gaman að vita að sængin
fór á góðan stað,“ segir Ragna.
Dalai Lama er 87 ára og hefur bú-
ið í útlegð frá Tíbet í fjallaþorpi í
Indlandi undanfarna áratugi.
Dalai Lama sefur í
íslenskum æðardún
- Fékk æðardúns-
sæng að gjöf frá
íslenskri vinkonu
Ljósmynd/Stofnun Dalai Lama
Íslensk sæng Þórhalla Björns-
dóttir var kölluð á fund Dalai Lama
til að segja frá æðardúnssænginni.