Morgunblaðið - 07.11.2022, Page 16

Morgunblaðið - 07.11.2022, Page 16
Fyrir meira en 20 árum var ákveðið að grafa veggöng milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar þegar Al- þingi samþykkti jarð- gangaáætlun Vega- gerðarinnar sem eitt forgangsverkefni fyr- ir Vestfirði, Norður- og Austurland. Tíma- bært er að þingmenn Norðvesturkjördæmis flytji þingsályktunartillögu um stutt veggöng undir Meðalnesfjall samhliða framkvæmdum við Dýra- fjarðargöng. Ný samgönguáætlun til fjögurra og tíu ára sem liggur fyrir Alþingi skaðar hagsmuni Vestfirðinga og Austfirðinga. Skammarlegt er að fyrrverandi sveitarstjórnir á sunn- an- og norðanverðum Vestfjörðum skuli aldrei hafa barist fyrir því að ráðist yrði í Dýrafjarðargöng að loknum framkvæmdum við Fá- skrúðsfjarðargöng sem voru tekin í notkun haustið 2005. Það vildu fyrrverandi þingmenn Vestfirðinga ekki heyra áður en kjördæma- breytingin var ákveðin. Nei, nei, var svarið þegar þeir voru spurðir hvort ekki mætti skoða möguleika á 5,4 km löngum jarðgöngum milli Hnífsdals og Bolungarvíkur sem hafa leyst af hólmi slysagildruna í Óshlíðinni. Sömu svör gefa þing- menn Norðvesturkjördæmis ef heimamenn spyrja þá um tvenn veggöng úr Trostansfirði og Dynj- andisvogi inn í Geirþjófsfjörð. Samhliða jarðgöngunum milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar skulu þessir landsbyggðarþingmenn kynna sér þörfina á stuttum jarð- göngum undir Meðalnesfjall vegna slysahættunnar í Mjólkárhlíð í stað þess að opinbera vanþekkingu sína á samgöngumálum fjórðungs- ins. Þingmenn Norðvesturkjör- dæmis geta sjálfum sér um kennt hvernig komið er í samgöngu- málum Vestfirðinga eftir að hafa andmælt því að útboð Dýrafjarð- arganga yrði ákveðið á undan Héð- insfjarðargöngum, sem frestuðust vorið 2003 vegna málaferla. Stigið var fyrsta skrefið til að rjúfa alla vetrareinangrun milli byggðanna norðan Hrafnseyrar- heiðar og á sunnanverðum Vest- fjörðum þegar framkvæmdir hóf- ust við Dýrafjarðargöng. Útilokað er að hlýnandi veðurfar sé í sjón- máli næstu sex áratugina þegar þingmenn Norðvesturkjördæmis setja traust sitt á uppbyggðan heilsársveg í 500 m hæð á ill- viðrasömu svæði um Dynjandis- heiði í beinu framhaldi af Dýra- fjarðargöngum. Í stað jarðganga inn í Geirþjófsfjörð og undir Með- alnesfjall getur Vegagerðin aldrei tryggt að uppbyggður vegur í þessari hæð verði hindrunarlaus og 100% öruggur fyrir 6-10 metra snjódýpt og snöggum veðrabreyt- ingum, sem enginn sér fyrir. Ein og sér tryggja Dýrafjarð- argöng ásamt stuttum jarðgöngum undir Meðalnesfjall aldrei öruggar vega- samgöngur allt árið um kring milli byggð- anna norðan Hrafns- eyrarheiðar og á sunnanverðum Vest- fjörðum samhliða vel uppbyggðum vegi um Dynjandisheiði. Fljót- lega myndi fjárveit- ingavaldið, sem illt er að eiga við, berja í borðið þegar snjó- þyngslin og illviðrið eyðileggja allar vonir þingmanna Norðvesturkjördæmis um hindrunarlausan heilsársveg á heiðinni. Það ræður Vegagerðin aldrei við þegar í ljós kemur hver kostnaðurinn við samfelldan snjó- mokstur á Dynjandisheiði verður. Takmörk eru fyrir því hvað hægt er að ausa miklum fjármunum í samfelldan snjómokstur á ill- viðrasömum svæðum þegar veð- urspánum er ekki treystandi. Yfir Dynjandisheiði er nýr veg- ur ekki í sjónmáli. Þess sjást engin merki að hann verði á lang- tímaáætlun næstu áratugina sem betur fer. Í beinu framhaldi af Dýrafjarðargöngum hafa verið skoðaðar hugmyndir um jarðgöng undir heiðina sem breyta engu fyr- ir Patreksfjörð, Bíldudal og Tálknafjörð. Veggöng sem tekin yrðu úr botni Vatnsdals og kæmu út í Dynjandisvogi yrðu 11-12 km löng. Áfram yrði Vesturbyggð ein- angruð í samgöngulegu tilliti án þess að kannaðir yrðu möguleikar á styttri göngum úr Norðdal í Trostansfirði, sem kæmu út í Geir- þjófsfirði. Hagkvæmara væri að grafa 5-6 km löng jarðgöng úr Dynjandisvogi inn í Geirþjófsfjörð í stað þess að taka þau úr Vatns- dal. Um tvennt stendur valið: Vilji þingmenn Norðvesturkjördæmis rjúfa vetrareinangrun byggðanna sunnan Dynjandisheiðar og norðan Hrafnseyrarheiðar skulu líka þeir skoða möguleika á nýjum Vest- fjarðagöngum sem gagnast Vest- urbyggð. Ólíklegt er að grafin verði vegamótagöng úr Pennings- dal inn í Dynjandisvog, sem yrðu ennþá dýrari en tvenn styttri göng inn í Geirþjófsfjörð. Þá mætti skoða möguleika á þriðju göng- unum sem yrðu tekin úr Smjördal og kæmu út í Þverárdal í Trost- ansfirði. Ákveðum strax stutt jarðgöng undir Meðalnesfjall. Ný Vestfjarðagöng Guðmundur Karl Jónsson » Vilji þingmenn rjúfa vetrareinangrun byggðanna sunnan Dynjandisheiðar og norðan Hrafnseyrar- heiðar skulu líka þeir skoða möguleika á nýjum Vestfjarðagöng- um. Guðmundur Karl Jónsson Höfundur er farandverkamaður. 16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2022 STOFNAÐ 1956 Glæsileg íslensk hönnun og smíði á skrifstofuna Bæjarlind 8–10 201 Kópavogur Sími 510 7300 www.ag.is ag@ag.is Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir arkitektar sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi sem skapa notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni klassískrar hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem er þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni. Íbúðalánasjóður er skemmd kartafla sem þarf að fjarlægja úr kartöflupokanum og ekki er annað að sjá en það sé ætlun þeirra sem bera ábyrgð á sjóðnum fyrir hönd ríkisins. Sérfræðingar fjármálaráðuneytisins hafa lagt fram tillögur um framtíð sjóðsins. Ekki er annað að sjá en þeim hugnist best að velta tapi á sjóðnum yfir á lífeyrisþega almennu lífeyrissjóðanna, annaðhvort með því að leggja hann niður eða að sjóð- irnir gangi að afarkostum sérfræð- inganna í samningum. Helst er að sjá að sérfræðingarnir telji að við gamlingjarnir sem fáum greitt úr líf- eyrissjóðunum berum ábyrgð á því hver staða íbúðalánasjóðs er, ekki þingmenn sem komu að lagasetn- ingum sem gerðu það að verkum að sjóðurinn er kominn í þrot. Eins og staða almennu sjóðanna er núna lít- ur út fyrir að sama sé að hvorum kostinum sjóðirnir ganga; það verði að skerða greiðslur úr sjóðunum til þeirra sem nú fá lífeyri úr þeim og bætist það þá við þá tuga prósenta skerðingar sem lífeyrisþegar al- mennu sjóðanna hafa mátt búa við frá hruni. Og þetta á að gera til að ekki þurfi að velta þessari skuld á skattborgara framtíðarinnar. Ekki skertir En verða þeir sem frá greiðslur úr lífeyr- issjóði sérfræðinganna í fjármálaráðuneytinu skertir, fyrrverandi þingmenn eða ráð- herrar? Nei. Og ekki heldur þeir þingmenn sem nú eru að komast á eftirlaun. Þeir verða ekki skertir vegna þess að þeir eru í lífeyris- sjóði þar sem sjóð- félagar sem fá greiðslur úr sjóðnum eru aldrei skertir þótt tryggingafræðileg staða sjóðsins sé nú trúlega komin hátt í 800 milljarða í mínus sem lenda beint á skattgreið- endum í framtíðinni ef ekkert verður að gert, sem útlit er fyrir. Lífeyris- sjóður starfsmanna ríkisins, lög nr. 1.10/1, 1997, sem er lífeyrissjóður sérfræðinganna í fjármálaráðuneyt- inu og þingmannanna sem koma með tillögurnar, er nefnilega með ríkis- ábyrgð þegar kemur að greiðslum úr sjóðnum, 32. gr.: „Ríkissjóður ábyrg- ist greiðslu lífeyris samkvæmt lögum þessum.“ Á grundvelli þessa ákvæðis hafa greiðslur úr sjóðnum aldrei ver- ið skertar og ekkert sem bendir til að það verði gert. Stærri skemmd kartafla LSR er margfalt sinnum stærri skemmd kartafla í kartöflupoka fjár- málaráðuneytisins en Íbúðalánasjóð- ur. Sérfræðingarnir segja að ekki sé sjálfskuldarábyrgð á ÍL. Hvergi í lögum um LSR er orð um að ríkið beri sjálfskuldarábyrgð á LSR. Því ætti ríkinu ekkert að vera að vanbún- aði að setja LSR í gjaldþrot á sömu forsendum og til stendur að gera með ÍL, þrátt fyrir þetta óljósa ákvæði um að „ríkissjóður beri ábyrgð á greiðslu lífeyris samkvæmt lögum þessum“ eins og fyrr er getið. Hvergi er sagt hver sá lífeyrir eigi að vera né á hvaða forsendum hann sé fenginn. Í 10. gr. laga um LSR segir: „Stjórn lífeyrissjóðsins skal árlega láta fara fram tryggingafræðilega at- hugun á fjárhag sjóðsins.“ Þótt at- huganir hafi farið fram á fjárhag sjóðsins, sem sýna að hann stefnir beint í gjaldþrot í framtíðinni, hefur stjórn sjóðsins ekki gert neitt með þær athuganir annað en að heimta meira fé úr ríkissjóði. Samkvæmt lögum um stjórn sjóðsins skipar ráð- herra fjóra menn í stjórn. Þingmaðurinn sagði nei Ekki er hægt að sjá að neitt eigi að geta komið í veg fyrir að sömu for- sendur gildi um skerðingar á greiðslum frá LSR og úr almennu sjóðunum þegar sýnt er að LSR stefnir beint í gjaldþrot í framtíðinni. Nema forsendurnar séu þær að um 150 fyrrverandi þingmenn og ráð- herrar þiggja nú greiðslur úr LSR og ekki megi skerða greiðslurnar þess vegna, þótt þeir sem nú sitja á þingi telji eðlilegt að skerða greiðslur til fólks sem fær úr almennu sjóðunum. Á undanförnum árum hef ég spurt þingmenn úr öllum flokkum, ef þeir telja að um ríkisábyrgð sé að ræða á þeirra sjóði, hvort ekki sé þá eðlileg- ast að ríkisábyrgð sé á öllum lífeyr- issjóðum í landinu. Í öllum tilvikum var: Þingmað- urinn sagði nei. Skemmdar kartöflur Sigurgeir Jónsson »En verða þeir sem fá greiðslur úr lífeyr- issjóði sérfræðinganna í fjármálaráðuneytinu skertir, fyrrverandi þingmenn eða ráð- herrar? Nei. Sigurgeir Jónsson Höfundur er sjómaður í Suður- nesjabæ. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein- ar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar- hringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. Hvar er næsta verkstæði? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.