Morgunblaðið - 07.11.2022, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 07.11.2022, Qupperneq 22
Minningar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2022 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bílar Mazda MX-30 rafmagnsbíll. 6/2021 Sýningarbílar flestir eknir undir 1000 km. 35,5 kWh rafhlaða. Uppgefin drægni 200 km. 5 dyra. Makoto typa með glertopplúgu og öllum fáanlegum búnaði. Er í ábyrgð. Eigum 4 liti á lager. Hann er þinn fyrir aðeins 4.890.000,- www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 10–18 virka daga. Sá vinsælasti. MMC Eclipse Cross phev Intense +. Árgerð 2022. Nýtt ökutæki Bensín/Rafmagn, sjálfskiptur. Verð 6.690.000. Rnr. 140471. Dráttarkrókur - Forhitun á miðstöð - Gúmmímottur - Sumar og vetrardekk. Gráir og svartir í boði. Seljandi skoðar skipti á ódýrari. Nánari upplýsingar veita Höfðabílar ehf. í síma 577-4747 Húsviðhald Húsaviðgerðir www.husco.is Sími 555 1947 Gsm 894 0217 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðastofa með leiðb. kl. 9-14. Boccia kl. 10. Handav- inna kl. 12.30-16. Félagsvist kl. 12:45. Glervinnustofa kl. 13 - 16. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Allir velkomnir. Sími 411-2600. Dalbraut 18-20 Brids kl.13. Garðabær 9.00 Pool-hópur í Jónshúsi 10.00 Ganga frá Jónshúsi 11.00 Stólajóga í Kirkjuhv. 12.30-15.40 Bridds-tvímenningur 12.40 Bónusrúta frá Jónsh. 13.00 Gönguhópur frá Smiðju 13.00-16.00 Glernámskeið í Smiðju 13.45-15.15 Kaffiveitingar í Jónsh. 15.00 / 15.40 / 16.20 Vatnsleikf. í Sjálandssk. 16.30 Zumba Gold í Kirkjuhv. Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8:30, heitt á könnuni. Dansleikfimi með Auði Hörpu frá kl. 10:00 Kóræfing kl.13:00 – 15:00 - fólk verið velkomin á kóræfingar. Komið og hlustið er þetta sem væri gaman að taka þátt í að syngja Gjábakki Opin handavinnustofa kl. 8.30 til 12.30, Bocciaæfing kl. 9 til 10.30, Postulínsmálun 9 til 11.30, jóga kl.10.50 til ca 12.05. Opin hand- avinnustofa og verkstæði kl. 13 til 16, Canasta kl. 13.15 til 15.00 Ljóðahópurinn kl. 15 til 16, Kóræfing Söngvina kl. 16.30 til 18.30. Grafarvogskirkja Þriðjudaginn 8. nóvember verður opið hús fyrir eldri borgara í Grafarvogskirkju. Opna húsið er kl. 13-15. Margt er til gamans gert: Spilað og sungið. Kristín Björg Sigurvinsdóttir rithöfundur kemur í heimsókn. Að opna húsinu loknu er kaffi og meðlæti. Umsjón hefur Kristín Kristjánsdóttir djákni. Kyrrðarstund er kl. 12. Að kyrrðarstund lokinni eru léttar veitingar gegn vægu gjaldi. Gullsmári Handavinna frá kl. 9:00-16:00. Bridge kl. 13:00. Jóga kl. 17:00. Félagsvist kl. 20:00. Hraunsel Billjard kl. 8-16. Myndlistarklúbbur kl. 9:00. Stóla yoga kl. 10. Félagsvist kl. 13:00. Gaflarakórinn: Kl. 11:00. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Jóga með Ragnheiði Ýr kl. 10:15. Minningahópur kl. 10:00. Betra jafnvægi námskeið kl. 10:45. Zumba með Carynu kl. 13:00.Tálgun – opinn hópur kl. 13:00-16:00. Bridge kl.13:00. Styttri ganga kl. 13:30. Hádegismatur kl. 11:30 – 12:30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Korpúlfar Borgum Hugleiðsla og létt yoga kl. 8:30. Postulínsmálun kl. 9:00. Gönguhópar frá Borgum og inni í Egilshöll.Tveir styrkleika- flokkar svo að allir finna göngu við sitt hæfi kl. 10:00. Dansleikfimi Auðar Hörpu kl. 11:00. Félagsvist í Borgum kl. 12:30. Prjónað til góðs kl.13:00.Tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl. 13:00. Kóræfing Korpu- systkina kl. 16:00. Gleðin býr í Borgum. Seltjarnarnes Kaffikrókur á Skólabraut kl. 9. Leir á Skólabraut kl. 9. Billjard Selinu kl. 10. Jóga/leikfimi á Skólabraut kl. 11. Handavinna, samvera og kaffi í salnum skólabraut kl. 13. Gler á neðri hæð félagsheimilisins kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Ath. á morgun púttum við á Nesföllum kl. 10.30 og nk. fimmtudag verðu bingó í salnum á Skólabraut kl. 13.30. Samfélagshúsið Vitatorgi Kaffispjall í setustofu 09:00-10:00 - Gönguhópur 09:30-10:30 - Opin handverksstofa 09:00-12:00 - Leirmótun í smiðju kl: 09:00-13:00 - Bókabíllinn Höfðingingi verður á svæðinu frá kl: 13:10-13:30- Boccia í setustofu kl: 13:15-14:00 - Opin handverksstofa kl: 13:00-15:00 & síðan er síðdegiskaffi frá kl.14:30- 15:30 - Allar nánari upplýsingar í síma 411-9450 - Allir hjartanlega velkomnir til okkar. Færir þér fréttirnar mbl.is - $*& $!,')"#+(%") ✝ Ásdís Ásgeirs- dóttir fæddist á Hömrum í Eyr- arsveit 4. júlí 1927. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Sól- vangi í Hafnarfirði 26. október 2022. Ásdís var dóttir Þórdísar Þorleifs- dóttur, f. 13. októ- ber 1895, d. 7. jan- úar 1983, og Þórðar Ásgeirs Kristjánssonar, f. 7. júní 1895, d. 17. ágúst 1966. Systkin Ásdísar voru Kristín, Halldór, Soffía, Björn, Ragn- heiður og Páll, þau eru öll lát- in. Ásdís Ásgeirsdóttir giftist 31. desember 1949 Árna Jó- hannesi Hallgrímssyni, f. 16. desember 1926, d. 28. júní 2009, og eignuðust þau sjö börn. Þau eru: 1) Ása, f. 30. desember 1945, gift Sigurdóri Friðjónssyni, f. 22. nóvember 1944. Þau eiga fjórar dætur. 2) Kristjana Vilborg, f. 28. júní 1950, d. 5. apríl 2021, gift Hannesi B Friðsteinssyni. Þau áttu tvö börn saman en fyrir átti Kristjana son. 3) Guðrún, f. 20. október 1951, gift Ásgeiri Óskarssyni, f. 10. júní 1949. Þau eiga tvö börn. 4) Ásgeir Þór, f: 14. maí 1956, kvæntur Karlottu J. Finnsdóttur, f. 1 maí 1959. Þau eiga tvær dætur saman, en fyrir á Ásgeir þrjú börn. 5) Hallgrímur, f. 30. júní 1958, sambýliskona Sonja Cagatín, f. 19. október 1962. Hallgrímur á þrjú börn og tvö fósturbörn. 6) Sigurður, f. 1. apríl 1960, kvæntur Kari Anne Ostby, f. 25. nóvember 1969. Þau eiga saman eina dóttur, en fyrir á Sigurður eina dóttur og einn fósturson. 7) Dagný, f. 13. janúar 1968, gift Hafsteini H. Hafsteinssyni, f. 15. janúar 1970. Þau eiga eina dóttur. Afkomendur Ásdísar og Árna Jóhannesar eru samtals 94, 7 börn, 21 barnabarn, 46 barnabarnabörn og 20 barna- barnabarnabörn. Útför Ásdísar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 7. nóv- ember 2022, og hefst athöfnin kl. 13. Jarðsett verður frá Gufuneskirkjugarði. Elsku hjartans mamma mín, nú ert þú búin að fá hvíldina langþráðu. Naglinn okkar, eins og við ættingjarnir kölluðum þig alltaf, bognaði loks og þú andaðist í fangi Dagnýjar systur aðfara- nótt miðvikudagsins 26. október sl. Ég vil nota þetta tækifæri og þakka starfsfólki Sólvangs í Hafnarfirði hjartanlega fyrir hlýju, natni og góða umönnun mömmu. Einnig þakka ég systr- unum Ásdísi og Ágústu Hinriks- dætrum hjartanlega fyrir alla hlýjuna og heimsóknirnar til mömmu í gegnum tíðina. Hafðu hjartans þökk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og fjölskyldu mína – sterka kona. Síðasti afkomandinn frá Grundarkampinum er því fallin frá 95 ára gömul eftir stutt veik- indi en mamma hafði minnið nær 100% allt fram að andlát- inu. Systkinum mínum, sem og öðrum ættingjum sendi ég mín- ar innilegustu samúðarkveðju við fráfall móður minnar, Ásdís- ar Ásgeirsdóttur – Naglans okk- ar. Hví skyldi ég yrkja um önnur fljóð, en ekkert um þig, ó, móðir góð? – Upp, þú minn hjartans óður! Því hvað er ástar og hróðrar dís, og hvað er engill úr paradís hjá góðri og göfugri móður? (Matthías Jochumsson) Þinn sonur, Meira á: www.mbl.is/andlat Ásgeir Þór Árnason. Mér er efst í huga fallega faðmlagið þitt, mjúku lófarnir þínir og hjartað fullt af ást og kærleik. Glottið í munnvikinu, augun í pung og síðan kom sprellið. Þú áttir auðvelt með að sjá spaugilegu hlutina í mörgu, þú varst hreinskilin og komst til dyranna eins og þú varst klædd. Þú hélst heimilinu alltaf spikk og span þrátt fyrir að stundum hafi húsið verið fullt af næt- urgestum utan af landi. Þú varst ekki mikið fyrir prjál, glingur eða aðra skrautmuni. Ég held svei mér þá að þú hafir átt kannski þrjá varaliti yfir æv- ina og einn maskara, en rúllur áttir þú og notaðir þær mikið. Ég man eftir þér í bláa Hag- kaupssloppnum með krullur í hárinu. Það var venja á mínum yngri árum að klæða sig upp á sunnudögum, hádegismessan ómaði í útvarpinu á meðan þú barst steikina fram með öllu til- heyrandi. Þú varst bænheit og þú sofnaðir ekki fyrr en þú varst búin að biðja fyrir öllum þínum 94 niðjum. Þú elskaðir að ráða kossgátur, prjóna og sauma. Allt gerðir þú hundrað prósent ef ekki meir, líka þegar pabbi fékk þig til að lakka inn- réttingarnar sem hann var að smíða. Enginn gerði það betur en þú. Á sumrin sáum við þig yfirleitt úti í garði að gróður- setja blóm og reyta arfa enda voru allir þínir garðar fallegir og vel hirtir. Þú varst án efa best, best í öllu því sem þú tókst þér fyrir hendur enda skilaðir þú líka sjö börnum út í sam- félagið. Hvert okkar er einstakt og það er þér að þakka. Þú studdir okkur í öllum þeim ákvörðunum sem við tókum, þó sérstaklega mig, þú umvafðir mig alltaf ást og sú ást jókst með ári hverju enda hef ég elsk- að þig frá því ég sjá þig fyrst er ég opnaði augun nýfædd. Ég held að ég hafi ekki verið eins náin neinum öðrum en þér fyrir utan dóttur mína og eiginmann. Það verður erfitt að fóta sig án þín fyrstu vikurnar og átta sig á því að rútínan hefur breyst. Eft- ir að pabbi dó 2009 hef ég svo til alltaf heyrt í þér á hverju kvöldi, klukkan tíu, til að bjóða góða nótt og fara yfir daginn. Dýrmætar eru allar samveru- stundir okkar í gegnum árin, bæði á ferðalögum sem og yfir góðu kaffispjalli í Breiðuvik og á Sólvangi. Staðan þín breyttist aðeins þegar þú fluttir á hjúkr- unarheimilið Sólvang með vor- mánuðum þessa árs. Fyrst í stað gastu hringt og svarað í símann, en smátt og smátt dal- aði sú þekking því þú varst ekki með heimasíma heldur farsíma sem þér fannst vera flókinn þrátt fyrir að minnið væri alveg í góðu lagi. Þú umvafðir allt og alla og þakkaðir öllum þeim sem réttu þér hjálparhönd, sérstak- lega fólkinu sem vinnur á Sól- vangi, enda var talað um þig af mikilli virðingu þar og hversu yndisleg þú værir, svo hlý og góð persóna. Elsku mamma, minning mín af þér sem mömmu, fyrirmynd, bestu vin- konu og kjarnakonu mun ávallt lifa með mér. Þú tókst á móti lífinu af svo mikilli ró og vannst vel úr því sem þú hafðir. Ég þakka þér af alhug fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og mína. Hvernig þú umvafðir Mel- korku mína og það traust sem þú barst til Hafsteins er ómet- anlegt, þú snertir hjörtu þeirra meira en þig grunar. Elska þig mamma. Þín Dagný. Elsku mamma, ég á þér allt. Þú hlúðir svo vel að mér sem barni. Mínar hlýjustu og bestu minningar eru frá því þú bjóst um mig í rúmið fyrir svefn. Við áttum samtöl um allt og ekkert, þú varst algjörlega fordómalaus og skilyrðislaus ást þín var svo sterk að ég mun finna hana á meðan ég lifi. Ein er móðir, öðrum meiri mest og best og voða fín. Færi betur ef væru fleiri flottar eins og mín. Minnar móðurást mér í lífið skilar. Sú ein er ást er aldrei bilar. Ef stjörnur himins lýsa veg þá varst þú stjarnan sem lýsir í björtu. Alltaf til staðar, tilbúin að leiða mig á rétta braut já- kvæðni og kærleika. Þú lifir. Þinn elskandi sonur, Hallgrímur Árnason. Elsku amma Dísa mín. Ég trúi varla að þú sért farin í þitt ferðalag, eins og þú sagðir ávallt sjálf: „Enginn veit sinn næturstað.“ Þetta er allt svo óraunveru- legt. Mig langar að segja þér svo margt og þakka þér fyrir svo mikið. Öll mín uppvaxtarár var alltaf best að koma heim til þín og afa og enn þann dag í dag líður mér hvergi betur en hjá þér, amma mín. Þú varst alltaf svo skemmtileg, hlý og umhyggju- söm. Ég gleymi því aldrei hvernig það var að koma upp í ömmu og afa holu, það var svo notalegt og hlýtt. Ég fékk að kúra á milli ykkar og aldrei var mér vísað frá. Þar áttum við oft okkar bestu samtöl, um lífið þitt sem ung kona, hvernig þú og afi kynnt- ust og sögur frá Grundarfirði og ættingjum. Ég spurði þig eitt sinn: Hvað er leyndarmálið á bak við langt hjónaband? Þú hugsaðir þig vel um og sagðir svo: „Anna mín, þegar afi þinn elskaði mig sem minnst þá elskaði ég hann sem mest og þegar ég elskaði afa þinn sem minnst þá elskaði hann mig sem mest.“ Amma, það var ávallt hægt að tala við þig, oft sátum við og töluðum um allt milli himins og jarðar. Alltaf sýndir þú mér mikinn áhuga og einlægni enda áttir þú mikið í mér. Ég á ótal minningar sem ég mun varðveita í hjarta mér en allar eiga þær það sameiginlegt hversu vel mér leið með þér og hversu stór persóna þú varst mér. Nærvera þín var engu lík. Amma, þú varst kletturinn minn/okkar, naglinn og mér svo mikill persóna, sterk kona og fyrirmynd. Takk fyrir allt, takk fyrir þig og takk svo sannarlega fyrir mig. Við litla fjölskyldan þín elsk- um þig mjög mikið. Söknum þín alla tíð. Anna Sigurðardóttir og fjölskylda. Þú varst okkur amma svo undur góð og eftirlést okkur dýran sjóð, með bænum og blessun þinni. Í barnsins hjarta var sæði sáð, er síðan blómgast af Drottins náð, sá ávöxtur geymist inni. Við allt viljum þakka amma mín, indælu og blíðu faðmlög þín, þú vafðir oss vina armi. Hjá vanga þínum var frið að fá þá féllu tárin af votri brá, við brostum hjá þínum barmi. Við kveðjum þig elsku amma mín, í upphæðum blessuð sólin skín, þar englar þér vaka yfir. Með kærleika ert þú kvödd í dag, því komið er undir sólarlag, en minninga ljós þitt lifir. Leiddu svo ömmu góði guð í gleðinnar sælu lífsfögnuð, við minningu munum geyma. Sofðu svo amma sætt og rótt, við segjum af hjarta góða nótt. Það harma þig allir heima. (Halldór Jónsson frá Gili) Elsku amma Dísa, ég kveð þig með þakklæti í hjarta, þakk- læti fyrir að hafa átt þig að sem ömmu, góða ömmu. Ömmu sem hélt með öllum sínum börnum, barnabörnum, barnabarnabörn- um og barnabarnabarnabörnum. Þú varst einstök kona og skilur eftir mikið skarð hjá okkur. Ég mun sakna þín en ég veit að þú ert komin í faðm þeirra sem á undan okkur hafa farið sem eru afi Árni, Gústi bróðir og Kidda frænka og svo margir aðrir. Takk fyrir að vera Naglinn okkar. Elska þig mikið, mikið. Kveðja, Guðný Sæbjörg og fjölskylda. Mér myndu ekki endast allar blaðsíðurnar í þessu blaði til að lýsa því hversu frábær amma mín var, en mig langar þó að deila með ykkur nokkrum fal- legum orðum um konuna sem var mér svo kær. Nægjusemi og hlýleiki lýsir henni svo vel. Alltaf vel tekið á móti manni, með faðmlagi og góðum mat. Hver á ekki góðar minningar um brúnu kökuna hennar ömmu! Þegar maður kvaddi var maður kysstur og knúsaður í spað. Því er kannski ekki að ástæðulausu að við hjón- in og börnin okkar erum oft kölluð Litla Ítalía. Ömmu var margt til lista lagt, má þar nefna að mikið var prjónað um ævina. Ég man þeg- ar hún prjónaði trefil og föt á barbie-dúkkurnar sem ég lék mér að í barbie-húsinu sem afi smíðaði fyrir mig forðum. Fal- lega hjartaskrautið á jólatréð og að ógleymdu fallegu ungbarna- sokkunum á barnabörnin. Þegar ég var lítil elti ég ömmu oft og aðstoðaði við að taka upp rabarbara og kartöflur í Kópavoginum. Elti hana svo eins og skugginn þegar hún sauð sultu og eldaði smælkið. Í seinasta samtali okkar rifjuðum við það upp þegar ég var um tvítugt og stóð ráðþrota í vinnunni þar sem ég átti að elda rabarbaragraut. Ekki voru net- miðlar þá og ég hringdi í ömmu sem leiðbeindi mér í gegnum símtalið af þolinmæði við að gera graut sem heppnaðist líka svona vel. Mig langar að kveðja ömmu á ljóði sem við fórum svo oft með saman og fórum með í seinasta samtali okkar: Allt fram streymir endalaust, ár og dagar líða. Nú er komið hrímkalt haust, horfin sumars blíða. Fölna grös, en blikna blóm, af björkum laufin detta; dauðalegum drynur róm dröfn við fjarðarkletta. Allt er kalt og allt er dautt, eilífur ríkir vetur; berst mér negg í brjósti snautt en brostið ekki getur. (Kristján Jónsson Fjallaskáld) Ásdís Hallgrímsdóttir og fjölskylda. Ásdís Ásgeirsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.