Morgunblaðið - 07.11.2022, Síða 29

Morgunblaðið - 07.11.2022, Síða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ Indie wire KEMUR Í BÍÓ 11. NÓVEMBER - FORSALA HAFIN 88% Þ egar hauströkkrið fellur að leita minningar um hlýrri og bjartari tíma á hugann og kærkomið að teygja sig í góða bók sem lýsir upp skamm- degið. Ný skáldsaga Ólafs Jóhanns Ólafssonar, Játning, er einmitt tilvalin bók til að lesa í skammdeg- ismyrkrinu en hún hrífur lesandann með sér í heillandi ferðalag suður á bóginn og um leið aftur til fortíðar til Austur-Þýskalands skömmu fyrir hrun múrsins. Bókin er öðrum þræði ástarsaga og segir frá þeim Elísabetu og Benedikt sem kynnast á námsárum sínum í Leipzig og fella hugi saman. Kalda stríðið varpar þó skugga á samband þeirra og þegar Benedikt er fenginn til að tefla á stórmóti fyrir hönd austurþýska skáksambandsins fara yfirvöld að sýna þeim sérstakan áhuga og líf þeirra tekur óvænta stefnu. Mörg- um árum síðar dúkka upp gamlar ljósmyndir sem bregða ljósi á samband þeirra og afhjúpa um leið ýmis leyndarmál úr fortíðinni. El- ísabet neyðist þannig til að rifja upp gamlar minningar og sár sem hún hefur varið meirihluta ævi sinnar í að hylja og reyna að gleyma. Frásögnin flakkar síðan áreynslu- laust á milli þessara tveggja ólíku tímaása og segir þannig annars vegar frá ferðalagi Elísabetar til lítils þorps á Ítalíu, þar sem segja má að hún mæti fortíð sinni, og hins vegar frá námsárunum í Leipzig. Fyrri söguþráðurinn, sá sem á sér stað á Ítalíu, er nokkuð gisinn, lofar góðu í upphafi en rennur síðan hálfpartinn út í sandinn og þjónar aðallega þeim tilgangi að skapa ramma utan um endurminningarn- ar í sögunni, sem eru bitastæðasti partur hennar. Sögusvið bókarinnar er heill- andi og um leið kunnulegt, minni hennar eru hefðbundin og persónur sögunnar flestar auðþekkjanlegar. Forvitnilegasta persóna bókarinnar en mögulega einnig sú óeftirminni- legasta er Benedikt, sem er bæði kaldur, óeinlægur og dulur og býr alls ekki yfir neinum persónutöfr- um þrátt fyrir að vera meginást- arviðfang sögunnar. Erfitt er að samsama sig persónu hans, finna til með eða jafnvel halda með honum, og þetta veldur því einnig að ástar- söguna skortir trúverðugleika. Þrátt fyrir þetta býr sagan yfir töluverðu aðdráttarafli. Lýsingar hennar eru hrífandi og senurnar skemmtilegar, og það er ekki frá því að lesandinn fái á tilfinninguna að hann hafi stigið inn fyrir sögusvið bókarinnar og sitji mögulega sjálfur á hótelverönd í Suður-Ítalíu í sum- arsælu með kaffibolla við hendina og útsýni yfir grænar hæðir og gróðursæla akra. Á köflum minnir sagan sömuleiðis hálfpartinn á kvikmyndahandrit, en hún myndi einmitt sóma sér afar vel sem slíkt. Frásögnin er vel skipulögð og fylgir hefðbundnu mynstri, við upphaf sögunnar er ýmislegt á huldu en smátt og smátt koma mikilvæg atriði í ljós og samhengið skýrist. „Plot-twistið“ eða söguvendingin er þó nokkuð fyrirsjáanleg og undir lok bókar, þegar búið er snyrtilega en örlítið handahófskennt um alla lausa hnúta, missir sagan aðeins dampinn. Fléttan leysist þó ekki fyllilega fyrr en undir blálokin og á heildina litið tekst höfundi ágætlega að viðhalda spennunni út bókina. Brugðið á leik Meginstef sögunnar er ef til vill skákin sem leikur lykilhlutverk í frá- sögninni og verður um leið myndlík- ing fyrir samskipti sögupersóna og andrúmsloftið í Austur-Þýskalandi á tímum kalda stríðsins þar sem tortryggnin er allsráðandi og hver og einn reynir í sífellu að sjá fyrir um næsta skref andstæðingsins. Myndlíkingin er kannski ekki frum- leg en hún er skemmtileg og virkar afar vel í sögunni. Persónurnar tefla þannig oft á tæpasta vaðið, eins og stundum er sagt, en það bætir ekki alltaf úr skák. Þrátt fyrir að sagan gerist að hluta til í miðju kalda stríð- inu og eigi sér stoð í raunverulegum sagnfræðilegum atburðum hefur hún ekki mikinn sagnfræðilegan þunga. Fyrst og fremst er þetta því heillandi saga um ást og minn- ingar, heilindi og svik, sannleika og lygi; um flókin fjölskyldutengsl og margslungið samband okkar við fortíðina. Frásagnarmátinn er hrífandi, tónninn léttur og leikandi og atburðarásin spennandi. Lýsir upp skammdegið Morgunblaðið/Eggert FerðalagNý skáldsaga Ólafs Jóhanns Ólafssonar, Játning, er „tilvalin bók til að lesa í skammdegismyrkrinu og hrífur lesandann með sér í heillandi ferðalag suður á bóginn og um leið aftur til fortíðar“, eins og segir í gagnrýni. BÆKUR SNÆDÍS BJÖRNSDÓTTIR Skáldsaga Játning Eftir Ólaf Jóhann Ólafsson. Veröld 2022. Kilja, 390 bls. Steingrímur Gauti í Gallery Porti Steingrímur Gauti opnaði á laugardag málverkasýn- inguna Mutes í Gallery Porti við Laugaveg og stendur hún yfir til 17. nóv- ember. Segir í tilkynningu að Steingrímur nálgist málverkið af ákveðnum léttleika og reyni eftir bestu getu að aðskilja sjálfið og fyrirframgefnar hugmyndir frá daglegu sköpunarferli sínu. Verk hans leiki að mestu með grunnspurningar um myndlist og fagurfræði, í senn kraftmikil og lítillát. Steingrímur Gauti Brigitte Giraud hlaut Prix Goncourt Franski rithöfundurinn Brigitte Giraud hlaut fyrir helgi elstu og virtustu bókmenntaverðlaun Frakklands, Prix Goncourt, og er hún þrettánda konan sem hlýtur verðlaunin í 120 ára sögu þeirra. Giraud er 56 ára og skrifar bæði skáldsögur og smásögur. Bókin sem hún vann verðlaunin fyrir nefnist Vivre Vite, eða Lifðu hratt, og var það niðurstaða dóm- nefndar eftir að kosið hafði verið 14 sinnum, að því er fram kemur á vef The Guardian. Næstflest atkvæði hlaut höfundurinn Giuliano da Empoli. Bók Giraud er sögð stutt og sjálfsævisöguleg og fjallar um ákveðið tímabil í lífi Giraud fram að andláti eiginmanns hennar en hann lést í umferðarslysi árið 1999. AFP/Bertrand Guay 13. Giraud er þrettánda konan sem hlýtur Prix Goncourt á 120 árum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.