Morgunblaðið - 17.11.2022, Síða 6
FRÉTTIR
Innlent6
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2022
20-40%
afsláttur
af öllum vörum
þessa daga
Ástund, Austurveri, Háaleitisbraut 68, sími 568 4240, astund.is
Stærðir
36-46
20%
afsláttur
af skóm
17.-19. nóvemberAfmælisdagar í
Borgaryfirvöld hafa heimilað Fiski-
kónginum að stækka lóð fiskbúðar-
innar Sogavegi 3 og hefja fram-
kvæmdir sem eiga að lágmarka ólykt
og hávaða.
Kristján Berg Ásgeirsson, eða
Fiskikóngurinn eins og hann er oft-
ast kallaður, hefur rekið fiskbúð við
Sogaveg um árabil. Fasteignafélag
hans, Djúpidalur ehf., sótti um leyfi
til að stækka lóðina til vesturs og
suðurs. Þá kynnti hann áform um
um að byggja yfir núverandi port,
stækka kjallara og koma þar fyrir
vinnustöðvum og alrými í tengslum
við starfsmannarými. Einnig að út-
búa stæði fyrir vöruflutningabíl og
sorpgerði við lóðarmörk.
Tillagan var kynnt fyrir ná-
grönnum í haust og bárust fjórar
athugasemdir. Voru þær í meginat-
riðum samhljóða um að mikið ónæði
væri frá því snemma á morgnana
vegna umferðar og affermingar
vöruflutningabíla, lyftara og tækja
vegna starfsemi á lóðinni. Einnig
þykir stafa ólykt af fiskikörum á lóð.
Verkefnastjóra skipulagsfulltrúa
Reykjavíkur var falið að yfirfara um-
sóknina. Hann svaraði athugasemd-
um nágranna. Segir hann að áform
um yfirbyggingu núverandi ports séu
gerð í þeim tilgangi að lágmarka há-
vaða og truflun af umferð og afferm-
ingu vöruflutningabíla vegna starf-
semi fiskbúðarinnar sem fyrir er á
lóðinni. Gert sé ráð fyrir að ástandið
batni við fyrirhugaða framkvæmd.
Það varð niðurstaða verkefnastjór-
ans að leggja til að tillagan yrði sam-
þykkt enda áform um yfirbyggingu
núverandi ports gerð til þess að lág-
marka ólykt og hávaða af umferð og
affermingu vöruflutningabíla vegna
starfsemi fiskbúðarinnar.
Ekki er lagst gegn stækkun
kjallararýmisins að uppfylltum
skilyrðum byggingarreglugerðar en
bent er á að ekki er hægt að vera með
starfsemi þar. Leysa skal flóttaleiðir
innan lóðarmarka. Þá ítrekar verk-
efnastjórinn að eingöngu sé heim-
ilt að reka fiskbúð á þessari lóð.
sisi@mbl.is
lFiskikóngurinn ætlar að byggja við fiskbúðina á SogavegilKvartað var yfir ónæði á morgnana
Lágmarkaá ólykt oghávaða
Morgunblaðið/sisi
Sogavegur Lóðin verður stækkuð og byggt við fiskbúðina vestanverða.
Heildartekjur ríkissjóðs vegna sölu
erlendra aðila á rafrænni þjónustu
til landsins hafa aukist hratt síðustu
ár. Þær eru innheimtar í formi VSK.
Líkt og kom fram í Morgunblaðinu í
vikunni er búist við að tekjurnar á
þessu ári verði á bilinu 3-4 milljarðar
króna. Þó ekki liggi fyrir sundurliðun
á þessum heildartekjum má líklegt
telja að stór hluti þeirra sé til kominn
vegna kaupa Íslendinga á þjónustu
streymisveitna á borð við Netflix.
Þegar tölur frá fyrri árum eru
sundurliðaðar má sjá að þessar
VSK-greiðslur hafa aukist mikið síð-
ustu ár, á sama tíma og streymisveitur
hafa skotið rótum. Þannig voru aðeins
tæpar níu milljónir innheimtar árið
2011 en árið 2015 voru greiðslurnar
rúmar 300milljónir króna. Árið eftir
varð Netflix aðgengilegt á Íslandi og
þá tvöfölduðust þessar VSK-greiðsl-
ur. Þær hafa síðan vaxið ár frá ári
og námu í fyrra rétt tæpum þremur
milljörðum króna.
Eins og kom fram íMorgunblaðinu
á þriðjudag hefur Lilja Alfreðsdóttir,
menningar- og viðskiptaráðherra,
viðrað þá hugmynd að VSK-greiðslur
frá erlendum streymisveitum verði
nýttar til að styðja við íslenska, rit-
stýrða fjölmiðla. „Kannski ættu þær
VSK-tekjur sem við höfum nú af
streymisveitum að renna beint til
fjölmiðla hér,“ sagði Lilja sem hefur
auk þess nýverið lagt fram minnis-
blað á fundi ríkisstjórnarinnar um
svokallaðmenningarframlag erlendra
streymisveitna sem innheimt er í
mörgum Evrópuríkjum. Lilja telur
að rétt sé að sækja frekari tekjur til
erlendra streymisveitna, en nú þegar
eru erlend fyrirtæki, sem selja raf-
ræna þjónustu, fjarskiptaþjónustu
eða útvarps- og sjónvarpsþjónustu
til neytenda hér á landi, skyldug til
þess að innheimta og standa skil á
virðisaukaskatti á Íslandi.
lNámu þremurmilljörðum í fyrra og verða enn hærri í ár
Tekjur vegna rafrænnar
þjónustuhafa aukist hratt
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Virðisaukaskattur á rafræna innflutta þjónustu 2011 til 2021
Heimild: Fjármálaráðuneytið
'11 '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19 '20 '21
3
2
1
0
3,0
1,9
1,0
0,3
0,09
Milljarðar króna
„Pabbi varð áttræður 1. septem-
ber síðastliðinn og finnst það fín
tímamót til að hætta. Hann hefði
getað hætt fyrir 15 árum en hann
hefur elskað þennan rekstur og
ekki verið tilbúinn til þess fyrr en
nú,“ segir Guðmundur Ragnars-
son veitingamaður á Lauga-ási.
Í gær spurðist það út að þessum
rótgróna veitingastað verði lokað
fyrir jól. Ragnar Guðmundsson,
faðir Guðmundar, opnaði staðinn
við Laugarásveg í Reykjavík ásamt
Gunnlaugi Hreiðarssyni í júní árið
1979 og hefur staðið vaktina með
fjölskyldu sinni síðan.
Lauga-ás er með elstu veitinga-
stöðum landsins og hefur verið
rómað fyrir sígildan heimilismat
og innréttingar og útlit sem hefur
fengið að halda sér frá fyrsta degi.
Brátt þurfa þó fastagestir að leita
annað til að fá frægt fiskigratín
staðarins og aðrir veitingastaðir
geta nú keppst við að gera bestu
béarnaise-sósuna í bænum.
Lauga-ás hefur haldið vinsæld-
um sínum og reksturinn skilaði 30
milljóna hagnaði í fyrra. Það er því
ekki verið að yfirgefa sökkvandi
skip. Því skal siglt mynduglega
í höfn. „Það er ágætt að hætta á
toppnum. Pabbi hefur rekið þetta
með góðum hagnaði og borgað sína
skatta og alla reikninga,“ segir Guð-
mundur, sem sjálfur rekur meðal
annars veisluþjónustu og er í öðrum
veitingarekstri.
Spurður hvað verði um inn-
réttingar staðarins og rauðköflóttu
gardínurnar frægu, sem Bára
Sigurðardóttir móðir Guðmundar
hefur saumað, segir veitingamað-
urinn að það sé óráðið. „Þetta fer
sjálfsagt á einn stað en ég sagði
nú reyndar við pabba að það væri
kannski ráð að bjóða upp stólana
og gardínurnar og gefa ágóðann
til góðs málefnis. Það væru eflaust
margir sem vildu eiga minjagrip um
Lauga-ás.“
Hætta á toppnum
eftir 43 ára rekstur
lVeitingastaðnumLauga-ási lokað
Morgunblaðið/Hari
Kveðjustund Feðgarnir Ragnar Guðmundsson og Guðmundur Ragnarsson
á veitingastaðnum Lauga-ási. Staðnum verður lokað í næsta mánuði.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is