Morgunblaðið - 17.11.2022, Side 50
ÍÞRÓTTIR50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2022
Frá Keflavík
til Svíþjóðar
Keflvíkingurinn Rúnar Þór
Sigurgeirsson er genginn til liðs
við sænska knattspyrnufélagið
Öster og skrifaði hann undir
þriggja ára samning við félag-
ið. Rúnar, sem er 22 ára, hefur
leikið tvo A-landsleiki fyrir
Ísland og þá á hann að baki 33
leiki í efstu deild fyrir Keflavík
þar sem hann hefur skorað tvö
mörk. Garðbæingurinn Alex Þór
Hauksson er samningsbundinn
Öster og þá er Srdjan Tufegdzic
þjálfari liðsins.
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Öster Rúnar Þór Sigurgeirsson
skrifaði undir þriggja ára samning.
Frestað í Eyjum
vegna veðurs
Leik ÍBV og KA/Þórs, sem fara
átti fram í bikarkeppni kvenna
í handknattleik í gær, Coca
Cola-bikarnum, var frestað vegna
veðurs.
Til stóð að Akureyringar myndi
ferðast í leikinn í gær en ekkert
varð úr því vegna slæms veðurs á
Suðurlandi.
Viðureign liðanna er liður í 1.
umferð keppninnar en nýr leik-
tími fyrir einvígið hefur ekki ver-
ið tilkynntur af Handknattleiks-
sambandi Íslands.
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
FrestaðNýr leiktími einvígisins
hefur ekki verið kynntur.
Subway-deild kvenna
Breiðablik – Grindavík .......................... 65:89
Njarðvík – Fjölnir .................................... 92:67
ÍR – Valur .................................................. 74:76
Haukar – Keflavík................................. (30:43)
Leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í
prentun í gærkvöldi.
Staðan fyrir leik Hauka og Keflavíkur:
Keflavík 9 9 0 745:577 18
Haukar 8 7 1 638:477 14
Valur 9 7 2 693:601 14
Njarðvík 10 6 4 797:774 12
Grindavík 10 4 6 763:767 8
Fjölnir 10 3 7 701:778 6
Breiðablik 10 2 8 634:789 4
ÍR 10 0 10 610:818 0
1. deild kvenna
Aþena – Stjarnan .................................... 83:91
Evrópubikarinn
Dudelange – Namur ............................. 52:89⚫Hildur Björg Kjartansdóttir skoraði
6 stig og tók 3 fráköst á 21 mínútu fyrir
Namur.
Coca Cola-bikar kvenna
1. umferð:
Víkingur – Fjölnir/Fylkir ....................... 31:27
EM kvenna
Milliriðill 1 í Ljubljana:
Noregur – Danmörk.............................. 29:31⚫Þórir Hergeirsson þjálfar lið Noregs.
Króatía – Svíþjóð...................................... 27:31
Ungverjaland – Slóvenía ........................ 29:25
Lokastaðan:Danmörk 8 stig, Noregur 8, Sví-
þjóð 6, Slóvenía 4, Króatía 2, Ungverjaland 2.
Milliriðill 2 í Skopje:
Frakkland – Spánn.................................. 36:23
Holland – Svartfjallaland....................... 42:25
Rúmenía – Þýskaland............................. 28:32
Lokastaðan: Frakkland 10 stig, Svartfjalla-
land 6, Holland 5, Þýskaland 4, Spánn 3,
Rúmenía 2.
Þýskaland
Stuttgart –Magdeburg....................... 28:32⚫Ómar IngiMagnússon skoraði 5mörk fyrir
Magdeburg og Gísli Þorgeir Kristjánsson 3.
Erlangen – Kiel...................................... 27:34⚫Ólafur Stefánsson er aðstoðarþjálfari
Erlangen.
Frakkland
Bikarkeppnin, 16-liða úrslit:
Créteil – Nantes .................................... 29:34⚫Viktor Gísli Hallgrímsson varði 15 skot í
marki Nantes.
Danmörk
Skjern –Midtjylland ........................... 28:23⚫Sveinn Jóhannsson komst ekki á blað hjá
Skjern.
Mors – Ribe-Esbjerg ............................ 33:25⚫Elvar Ásgeirsson skoraði 2mörk fyrir Ribe-
Esbjerg en Arnar Birkir Hálfdánsson komst
ekki á blað. Ágúst Elí Björgvinsson varði 6
skot í marki liðsins.
Lemvig – SönderjyskE ......................... 23:18⚫Daníel Freyr Ágústsson kom ekki við
sögu hjá Lemvig.
Kolding – Tvis Holstebro.................... 24:23⚫Halldór Jóhann Sigfússon er aðstoðar-
þjálfari Holstebro.
Noregur
Elverum – Bækkelaget........................ 34:38⚫Orri Freyr Þorkelsson skoraði 1 mark
fyrir Elverum.
Svíþjóð
Alingsås – Skövde................................. 26:26⚫Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði 5
mörk fyrir Skövde.
Sävehof – Kristianstad ....................... 28:28⚫Tryggvi Þórisson komst ekki á blað hjá
Sävehof.
Eystrasaltsbikar karla
Leikið í Lettlandi og Litháen:
Litháen – Ísland ............................... 5:6 (0:0)
Lettland – Eistland.............................. 6:4 (1:1)
Ísland mætir Lettlandi í úrslitaleik í Riga
á laugardaginn.
Undankeppni EM U19 karla
Riðill í Skotlandi:
Skotland – Ísland....................................... 0:1⚫Orri Steinn Óskarsson skoraði sigurmark
Íslands á 70. mínútu.
Frakkland – Kasakstan .......................... 7:0.
Frakkland 3 stig, Ísland 3, Skotland 0,
Kasakstan 0.
Vináttulandsleikir karla
Sádi-Arabía – Króatía................................. 0:1
Sameinuðu furstadæmin – Argentína..... 0:5
Tékkland – Færeyjar .................................. 5:0
Óman – Þýskaland ...................................... 0:1
Mexíkó – Svíþjóð .......................................... 1:2
Meistararnir mæta til leiks
AFP/Franck Fife
Mikilvægir Pierre-Emile Höjbjerg og Antoine Griezmann eru lykilmenn.
lTekst Dönum
að leggja heims-
meistarana aftur?
D-RIÐILL
Jóhann Ingi Hafþórsso
johanningi@mbl.is
n
Keppni í D-riðli á HM karla í fót-
bolta í Katar hefst mánudaginn 22.
nóvember. Mætast þá Frakkland og
Ástralía annars vegar og Danmörk
og Túnis hins vegar. Morgun-
blaðið mun fara yfir hvern riðil
fyrir sig á mótinu og hita upp fyrir
heimsmeistaramótið. Hér verður
farið yfir D-riðil.
Frakkland
Frakkar eru ríkjandi heimsmeist-
arar eftir sigurinn í Rússlandi fyrir
fjórum árum síðan. Franska liðið er
hins vegar vængbrotið, því hvorki
Paul Pogba né N’Golo Kanté verða
með á mótinu vegna meiðsla. Vegna
þessa er miðja franska liðsins í
Katar mikið spurningarmerki. Þá
hafa Frakkar aðeins unnið einn af
síðustu sex keppnisleikjum.
Þrátt fyrir það ætlar franska
liðið sér stóra hluti á HM, með þá
Karim Benzema og Kylian Mbappé
fremsta í flokki í sóknarleiknum,
með Antoine Griezmann þar fyrir
aftan. Hugo Lloris er gríðarlega
reynslumikill í markinu og með
sterka vörn fyrir framan sig.
Mótið gæti verið það síðasta hjá
Didier Deschamps á hliðarlínunni,
en Zinedine Zidane þykir líklegur
til að taka við eftir mótið. Það væri
fullkominn endir fyrir Deschamps
að kveðja franska liðið með því að
verja heimsmeistaratitilinn.
Mótið í Katar verður 16. heims-
meistaramót Frakka. Frakkar urðu
heimsmeistarar á heimavelli 1998
og svo aftur í Rússlandi 20 árum
síðar.
Frakkland komst einnig í úrslit
í Þýskalandi 2006 en tapaði fyrir
Ítalíu í frægum úrslitaleik, þar
sem áðurnefndur Zidane fékk
eitt frægasta rauða spjald í sögu
heimsmeistaramótsins.
Danmörk
Danska landsliðið hefur verið
á miklu skriði. Liðið fór í undan-
úrslit á EM á síðasta ári og hefur
síðan þá unnið Frakkland tvisvar í
Þjóðadeildinni. Sigurinn á Parken í
september var sérlega sannfærandi.
Það verður því afar áhugavert að
sjá hvort Danir geti endurtekið
leikinn á stærsta sviðinu og unnið
ríkjandi heimsmeistarana enn og
aftur. Danir unnu níu af tíu leikjum
sínum í undankeppni HM og líta
gríðarlega vel út.
Christian Eriksen er mættur
aftur á stórmót með landsliðinu,
eftir hjartastoppið á EM á síðasta
ári. Hann er lykilmaður í liðinu með
akkerin Pierre-Emile Højbjerg og
Thomas Delaney fyrir aftan sig. Þá
er Kasper Schmeichel alltaf traust-
ur í markinu.
Kasper Hjulmand hefur gert
glæsilega hluti með danska liðið og
Jesper Engmann, blaðamaður Jót-
landspóstsins, segir hann stærstu
ástæðu þess að Danir séu orðnir
ástfangnir af landsliðinu sínu aftur.
Mótið í Katar verður sjötta mót
danska liðsins. Besti árangurinn er
átta liða úrslit í Frakklandi 1998.
Liðinu hefur aðeins einu sinni mis-
tekist að komast upp úr riðlinum,
en á hinn bóginn aðeins einu sinni
unnið leik í útsláttarkeppninni.
Ástralía
Ferðalag Ástralíu til Katar var
lengra en flestra. Ástralía lék 20
leiki í undankeppninni yfir 1.008
daga tímabil, áður en liðið tryggði
sér loks farmiðann á lokamótið.
Ástralía vann Perú í hreinum úr-
slitaleik í umspili eftir framlengingu
og vítakeppni.
Ástralir eru með á fimmta loka-
mótinu í röð, sem er mikið afrek
þar sem fótbolti er aðeins í þriðja
sæti yfir vinsælustu íþróttir þjóðar-
innar. Bæði ástralskur fótbolti og
rúgbí eru vinsælli en knattspyrna í
Ástralíu.
Ástralía græðir vissulega á
því að vera í nokkuð þægilegri
undankeppni í Asíu, en þrátt fyrir
það átti liðið í stökustu vandræðum
í undankeppninni. Liðið tapaði fyrir
Sádi-Arabíu, Japan og tapaði stig-
um gegn Kína og Óman, sem varð
til þess að liðið lék umspilsleikinn
við Perú.
Graham Arnold stýrir liði Ástr-
alíu. Margir vildu að hann fengi
reisupassann vegna árangursins í
undankeppninni, en hann bjargaði
sér með því að fagna sigri í umspil-
inu. Ajdin Hrustic, leikmaður Hellas
Verona á Ítalíu, er besti leikmaður
Ástralíu um þessar mundir, en
minna er um stjörnur í liðinu en
á árum áður. Tim Cahill, Mark
Viduka og Harry Kewell eru því
miður allir hættir.
Mótið í Katar verður sjötta mót
Ástralíu. Liðið komst í 16-liða úrslit
í Þýskalandi árið 2006, en hefur
þess utan aldrei komist upp úr
riðlinum. Það breytist líklegast ekki
í ár, þar sem Danir og Frakkar eru
með mun sterkari lið.
Túnis
Margir leikmenn sem léku með
Túnis í Rússlandi árið 2018 eru
enn í liðinu, en síðan þá hafa bæst
við sterkir leikmenn á borð við
Hannibal Mejbri, Aïssa Laïdouni,
Omar Rekik, Yan Valery, Chaïm
El Djebali og Anis Ben Slimane.
Þeir höfðu allir kost á að spila fyrir
önnur landslið, en kusu að leika
með Túnis.
Túnis hefur verið á fínu skriði
undanfarna mánuði og hefur
þjálfarinn Jalel Kadri aðeins tapað
einum leik sem stjóri liðsins, en
það var vináttuleikur gegn Brasilíu.
Þá er fyrirliðinn Youssef Msakni
klár í slaginn, en hann missti af
mótinu í Rússlandi vegna meiðsla.
Það er einnig vert að fylgjast með
áðurnefndum Aïssa Laïdouni, sem
er sterkur miðjumaður Ferencváros
í Ungverjalandi. Hann kaus að leika
með Túnis, frekar en Alsír.
Túnis er á leiðinni á sitt sjötta
heimsmeistaramót. Liðið hefur
aldrei komist upp úr riðlakeppninni
og aðeins unnið tvo leiki af fimmtán
á lokamótinu.
Danir síðastir
í undanúrslit
Danmörk varð í gær síðasta liðið
til þess að tryggja sér sæti í undan-
úrslitumEM2022 í handknattleik
kvenna, sem fer nú fram í Ljublj-
ana í Slóveníu og Skopje í Norð-
ur-Makedóníu.
Sæti Dana var í höfn áður en liðið
lék gegn ríkjandi Evrópumeistur-
umNoregs, semÞórirHergeirs-
son þjálfar, í gærkvöldi þar sem
heimakonur í Slóveníu töpuðu leik
sínumgegnUngverjalandi fyrr
umdaginn ímilliriðli 1, 25:29, og
þarmeð var ljóst aðDanmörk færi
áfram. Svíþjóð átti einnig veika
von og hafði betur gegnKróatíu,
31:27, í riðlinum en þar semDanir
stóðu betur að vígi í innbyrðis
viðureigninni gegn Svíummátti
sigurinn einu gilda.
Danmörk gerði sér annars lítið
fyrir og vannNoreg 31:29, og þar
meðmilliriðil 1.
Frakkland vannmilliriðil 2
með fullu húsi stiga eftir öruggan
36:23-sigur á Spáni í gærkvöldi og
þarmeð er ljóst hvaða liðmætast í
undanúrslitum. Frakklandmætir
Noregi ogDanmörkmætir Svart-
fjallalandi. gunnaregill@mbl.is
AFP/Jure Makovec
EM Þórir Hergeirsson þjálfari Noregs niðurlútur eftir tapið gegn Dan-
mörku í milliriðli 1 á EM 2022 í gær. Með sigrinum vann Danmörk riðilinn.