Morgunblaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 40
hlökkun fylgja jólamarkaðinum en
þá er öllu tjaldað til. „Þetta er nokk-
urs konar uppskeruhátíð,“ segir
hann en dagana á undan er vinnu-
stofunni breytt í verslun og veit-
ingar undirbúnar af kostgæfni enda
vel tekið á móti gestum.
„Við ákváðum að skreyta jólatré í
ár og erum að pakka inn litlum gjöf-
um fyrir krakkana sem koma með á
markaðinn,“ segir Bjarni en vel er
séð um börn á markaðinum þar sem
þau fá bæði smákökur og sætindi.
„Krökkum hefur alltaf þótt gaman
að koma með og það er svo gaman að
sjá fólk sem kom hingað fyrst með
foreldrum sínum fyrir sextán árum
mæta með sínum eigin börnum.“
Bjarni segist baka einar þrjár
sortir fyrir markaðinn en vinkonur
hans leggi einnig hönd á plóg enda
vel tekið á móti gestum. „Það er
Bjarni er einn þekktasti listamaður
landsins en meðal þeirra sem selja
muni eftir hann er hönnunarhúsið
Illum í Kaupmannahöfn en það þyk-
ir mikill heiður að komast þangað
inn. Hér á landi selur Bjarni aðal-
lega vörur sínar í Epal og Ramma-
gerðinni en ekkert skákar því að
komast inn á verkstæði listamanns-
ins.
Bjarni býr, ásamt eiginmanni sín-
um, Guðbrandi Árna Ísberg, í
Hrauntungu 20 í Hafnarfirði. Fyrstu
árin var hann með vinnustofu í bíl-
skúrnum en fyrir nokkrum árum var
skúrinn rifinn og byggð vinnustofa
sem er samtengd húsinu. Vinnustof-
an er sannkallað ævintýraland fyrir
fagurkera því þar svigna hillurnar
undan alls kyns gersemum af öllum
stærðum og gerðum.
Bjarni segir alltaf mikla til-
mikið vatn runnið til sjávar frá því
ég var með fyrsta jólamarkaðinn
árið 2007. Þá var ég með tvær hillur
úti í bílskúr. Núna er allt húsið und-
irlagt og fólk getur gengið um allt og
skoðað. Vinnustofan er áföst húsinu
en stór gluggi er frá eldhúsinu yfir á
verkstæðið, sem opnar rýmin á afar
skemmtilegan hátt.
Svo getur fólk auðvitað alltaf litið
inn fram að jólum þrátt fyrir að
markaðnum sé lokið. Við verðum til
að mynda með opið hér allar helgar
fram að jólum og þrátt fyrir að ég sé
að vinna eru allir velkomnir. Það er
bara svo gaman að halda jólamark-
aðinn. Það má eiginlega segja að
hann sé mín uppskeruhátíð,“ segir
Bjarni en jólamarkaðurinn hefst í
dag og stendur fram á sunnudag.
Opið er frá 10-18 alla dagana og boð-
ið upp á góðan afslátt.
Jólamarkaður
Bjarna hefst í dag
Listamaðurinn Bjarni Viðar Sigurðsson hefur getið sér gott orð víða um
heim fyrir listsköpun sína og nú gefst aðdáendum hans tækifæri til að heim-
sækja hann á vinnustofu sína.
Einn vinsælasti jólamarkaður landsins hefst í dag en þá
opnar keramiklistamaðurinn Bjarni Viðar Sigurðsson
dyrnar að vinnustofu sinni og býður gesti velkomna.
Einstakur Í hönnun Bjarna eru engir hlutir
eins og því er ótrúlega gaman að raða til
borðs með munum frá honum.
Vinsæll Matarstell frá
Bjarna prýða marga þekkta
veitingastaði.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2022
www.gilbert.is