Morgunblaðið - 17.11.2022, Side 46

Morgunblaðið - 17.11.2022, Side 46
46 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2022 ✝ Árni Snær Kristgeirsson fæddist á Akranesi 23. nóvember 1998. Hann lést 3. nóv- ember 2022. Foreldrar Árna Snæs eru Elín Sig- ríður Jóhannes- dóttir, f. 23. des- ember 1975, og Kristgeir Kristins- son, f. 24. nóvem- ber 1978. Systir Árna Snæs sammæðra er Ragnhildur Lovísa, f. 11. nóvember 2011. Systkini Árna Snæs samfeðra eru Mónika Rán, f. 6. janúar 2005, Hanna Líf, f. 23. september 2010, og Guðjón Kristinn, f. 13. desember 2011. Fóstursystir Árna Snæs er Aníta Sif Pálsdóttir, f. 9. júlí 1997. Útför Árna Snæs fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 17. nóvember 2022, kl. 15. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Mortens) Elsku Árni Snær, elsta barna- barnið okkar. Þú varst ljúfur og góður drengur, guð geymi þig elsku barn. Kærleikur, ást og friður fylgi þér í ljósið. Elskum þig alltaf. Saknaðarkveðja, Amma og afi í Óló, Árný Bára Friðriksdóttir, Ægir Kristmundsson. Ég hef áður tekið þung spor í lífinu og í dag eru sporin mín mjög þung. Ástæðan er sú að í dag er ég er að kveðja þig, Árni Snær ömmustrákurinn minn. Þú varst kallaður of fljótt í burtu að- eins 23 ára gamall. Ég er ekki tilbúin að kveðja þig en það er ekki spurt að því. Eina sem ég get huggað mig við er að þú ert laus við fíknina og hefur frelsi til að vera hrókur alls fagnaðar og þú einn hefur völdin núna. Þú varst fyrsti einstaklingur- inn sem kallaði mig ömmu og er ég stolt af því. En fyrir ykkur les- endur góðir er Elín mamma Árna Snæs hálfsystir barnanna minna. Þannig náði ég í ömmutit- ilinn fyrst. Þú varst einstaklega góð og ljúf persóna. Við áttum góðar samræður þegar þannig stóð á. Ég man þegar við ræddum sam- an eftir eitt erfitt tímabil hjá þér er þú sagðir: „Amma, ég vil læra að segja nei, ég þarf svo á því að halda því ég er svo þreyttur.“ Elsku strákurinn minn. Ég man hvernig mér leið, ég hefði viljað Árni Snær Kristgeirsson taka þig og geta vafið þig í bóm- ull og sagt þér að allt yrði í lagi en ég vissi að það yrði ekki þann- ig, ekki alveg svo einfalt. Ég veit að þegar bévítans fíknin nær völdum þá er ekkert annað sem kemst að. Þó allir hefðu verið til- búnir að bjarga þér þá er ekkert sem ræður nema fíknin. En ég hafði samt alltaf von og í hana verður maður að halda því ef hún er ekki til staðar þá verður allt erfiðara. Samband ykkar Örvars sonar míns var sérstakt. Þið voruð góð- ir félagar og hann Örvar var sko ekkert að velja hvernig ástandi þú varst í, hann tók þig til sín og þið rúntuðuð og spjölluðuð ef þú þurftir á honum að halda. Ég er Örvari afar þakklát fyrir það. Það hefði verið gaman ef þú hefðir séð mótorhjólið sem ég var að kaupa. Þú hefðir fílað það í ræmur að eiga ömmu á mótor- hjóli. Hér sit ég eftir hugsandi um það sem hefði getað orðið ef þú hefðir haft völdin. Eina sem ég veit er að það hefði orðið líflegt, öflugt og skemmtilegt, elsku Árni Snær minn. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið þig inn í líf mitt og að hafa ávallt virt þig og elskað nákvæmlega eins og þú varst. Ég mun aldrei gleyma þér, Árni Snær. Elsku litla fallega fjölskylda, Elín mamma Árna Snæs og Ragnhildur Lovísa systir hans, ég votta ykkur mína innilegustu samúð í þeirri sorg sem þið standið frammi fyrir vegna frá- falls ástkærs sonar og bróður. Elsku Kristgeir, pabbi Árna Snæs og fjölskylda, hjartans samúðarkveðjur til ykkar og megið þið fá allan þann styrk er þið þurfið til að halda áfram. Ömmum, öfum og öðrum að- standendum sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðjur. Hönd þín snerti sálu okkar. Fótspor þín liggja um líf okkar allt. (Úr Gleym-mér-ei) Jóhanna amma. Elsku, elsku Árni Snær. Það var erfiður dagur þegar tilkynn- ingin um andlát þitt barst. Það var erfitt að trúa því að nú værir þú farinn frá okkur. Ég man eins og það hefði gerst í gær þegar mamma þín sagði mér að þú værir væntanlegur í heiminn. Ó hvað ég var spennt. Og þegar þú fæddist og okkur Ægi bróður var skutlað upp á Akranes til að kíkja á þig, ó ég var svo stolt stóra frænka. Við vorum alltaf svo góðir vinir og höfum brallað ýmislegt í gegnum tíðina. Við höfum skapað fullt af fallegum minningum saman í gegnum tíðina. Manstu þegar við fórum með langafa að veiða í Hvalfirðinum? Eða þegar við elduðum fiskiboll- ur sem amma í Óló bjó til? Eða þegar ég skutlaði þér nýlega til tannlæknis og við villtumst í Kópavogi? Það var alltaf stutt í gleðina og hláturinn og ekki vantaði upp á húmorinn hjá þér. Þú varst með svo fallega sál og fallegt hjarta og vildir öllum vel. Minning þín lifir að eilífu og mundu að þú alltaf stóran stað í hjarta mínu, að eilífu. Ég vona að þér líði vel núna og ég veit að þú ert umvafinn engl- um. Þín að eilífu, Steinunn Bára. ✝ Erla Stefáns- dóttir fæddist á Gautsstöðum á Sval- barðsströnd 22. ágúst 1931. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Ljósheimum, Selfossi, 7. nóv- ember 2022. For- eldrar Erlu voru Ída Kamilla Þórarins- dóttir húsfreyja, f. 7.9. 1908, d. 10.5. 1994, og Stefán Ásgeirsson bóndi, f. 5.2. 1902, d. 4.2. 1993, Gauts- stöðum, Svalbarðsströnd. Erla var elst af fimm systkinum: Sig- rún, látin, Svandís, Ásgeir, látinn, yngst er Elsa. Erla gekk í Barnaskólann á Svalbarðsströnd og síðar í Tó- vinnuskólann á Svalbarði. Þótt skólagangan hafi ekki verið löng var Erla vel lesin og fróðleiksfús. Öll handavinna lék ætíð í höndum hennar og eru útsaums- og prjónaverkin óteljandi sem eftir Erla og Sveinbjörn keyptu jörðina Skáldalæk í Svarfaðardal 1949 og bjuggu þar allt til ársins 1972 er þau fluttu búferlum til Akureyrar. Á Akureyri vann Erla meðal annars í Niðursuðuverk- smiðju K. Jónssonar, við ræst- ingar í versluninni Amaró og í þvottahúsinu Mjallhvíti, hjá föð- urbræðrum sínum. Haustið 1986 flutti Erla suður á Selfoss. Þar starfaði hún sem heimilishjálp þar til að hún fór á eftirlaun. Erla fluttist búferlum til Grindavíkur og giftist Jóni Valgeiri Guðmundssyni, útgerðarmanni, f. 4.6. 1921, d. 26.9. 2020, þann 15. maí 1999. Jón átti þrjú börn. Þau hjónin bjuggu á Skólabraut 4, í húsi sem Jón byggði sjálfur. Síðustu tvö árin sem hann lifði bjuggu þau í þjón- ustuíbúð í Víðihlíð og Erla síðar á hjúkrunardeildinni. Síðustu 15 mánuðina bjó Erla á hjúkrunar- heimilinu Ljósheimum á Selfossi. Afkomendur Erlu eru orðnir 75 að tölu. Útför Erlu Stefánsdóttur fer fram frá Grindavíkurkirkju í dag, 17. nóvember 2022, kl. 14. hana liggja. Þann 14. janúar 1950 giftist Erla Sveinbirni Níelssyni bónda, f. 14.1. 1905, d. 18.3.1978. Eignuðust þau sex börn sem eru: Stefán, f. 1950, hans kona er Sigríður Sigurlaug Jóns- dóttir, f. 1953. Þau eiga þrjú börn. Anna Dýrleif, f. 1951, hennar maður er Hallur Steingrímsson, f. 1948. Þau eiga fimm börn. El- ínrós, f. 1953, hennar maður er Jón Viðar Þorsteinsson, f. 1952. Þau eignuðust fimm börn, tvö eru látin. Ída Sigrún, f. 1954. Hennar börn eru fjögur, þar af eitt látið. Aðalheiður Matthildur, f. 1960, hennar maður er Erling Péturs- son, f. 1942. Samtals eiga þau sjö börn. Finnur, f. 1967, hans kona er Elísabet Stefánsdóttir, f. 1970, Þau eiga samtals tvö börn. Elsku amma. Það eru forréttindi að vera 45 ára og eiga ömmu. Ömmu í vinnunni eins og ég kallaði þig alltaf, ég átti tvær ömmur, þig sem varst alltaf í vinnunni og svo ömmu Steingerði í sveitinni sem var ekki í vinnu, en þannig hugs- aði ég sem barn. Ég veit það samt núna að báðar ömmurnar mínar unnu hörðum höndum allt sitt líf. Ég man eftir því þegar ég fékk að gista hjá þér í Laxagöt- unni, þetta var svo spennandi og að fara með þér að skúra í Am- aro, svo fékk ég „rónasteik“ með bökuðum baunum í kvöldmat. Síðan fluttir þú á Selfoss og svo til Grindavíkur til afa Jóns, ég á fullt af minningum af Skóla- brautinni, margra klukkutíma ferð um Grindavík með frábærri leiðsögn Jóns. Hann var gull af manni og ég mun alltaf kalla hann afa Jón. Það var alltaf gam- an að koma í Grindavík, kíkja út í gróðurhús og smakka vínber þegar það mátti. Leikvöllur hin- um megin við götuna þar sem krakkarnir mínir áttu ófáar stundirnar. Þau eiga líka minn- ingar um að hafa verið að kubba á stofugólfinu, afi að púsla við borðstofuborðið og við að ræða daginn og veginn í eldhúsinu. Þegar ég lét vinnufélagana bíða í rútunni því ég varð að stökkva inn til ykkar og segja hæ þegar ég var í vinnuferð í Grindavík. Sjávarútvegurinn var Jóni í blóð borinn og oftar en ekki ræddum við sjómennskuna og veiðar, nýju skipin í Grindavík og hversu vel þið bæði töluðuð um vinnuveit- anda minn, Samherja hf. Að hafa getað hitt þig og hald- ið í hönd þína tveimur dögum áð- ur en þú kvaddir þessa jarðvist er mér ómetanlegt. Ég mun allt- af muna það síðasta sem þú sagð- ir við mig áður en ég kvaddi þig, hversu stolt þú værir af því að af- komandi þinn ynni hjá svo frá- bæru fyrirtæki sem Samherji væri. Ég veit að það hefur verið vel tekið á móti þér í sumarlandinu, væntanlega verið eitt stórt partí. Við hittumst síðar Kossar og knús Sigrún Alda Viðarsdóttir. Elsku Erla frænka, þá ertu loksins búin að fá langþráða hvíld. Það hefur örugglega verið mikil gleði í móttökunefndinni sem beið þín. Mikið er ég þakklát fyrir að hafa haft þig í lífi mínu sem fyrirmynd, jafningja, banda- mann, móðu og svo óteljandi margt fleira. Minningarnar um þig hafa streymt fram síðustu dagana. Þú fórst þínar eigin leið- ir í lífinu, sem ekki var alltaf dans á rósum, Gautsstaðarþráinn kom sér þá oft vel. Þú varst um margt á undan þinni samtíð, varst drífandinn í Gautsstaðar- systrahópnum, komst á systra- helgum sem að ég man hvað voru mömmu mikilvægar, bæði skemmtanagildið og að efla tengslin. Sambandið ykkar á milli var mikið og sterkt sem kom svo sannarlega í ljós eftir að Erla Stefánsdóttir mamma veiktist, það var ekki auðvelt fyrir þig, frekar en okkur hin, að horfa upp á hana hverfa frá okkur, hægt og hljótt. Allur þinn stuðningur þá var ómetan- legur, óteljandi símtöl, heim- sóknir norður, fötin sem þú komst með handa henni úr einni Kanaríferðinni þinni, því við höfðum sammælst um að tími væri kominn til að fata konuna almennilega upp. Þessi góðu tengsl héldu svo áfram hjá okkur tveim. Sumarið 2008 hringdi ég í þig því Ída amma hafði vitjað mín í draumi og minnti á að 100 ára afmælið hennar nálgaðist. Man hvað þú hlóst og sagðir að þið systur hefuðu rætt þetta en framkvæmdasemin væri ekki mikil. „Blessunin, henni leiðist hangsið í okkur.“ Haldið var upp á afmælið í Víðigerði með mikl- um sóma af ykkur systrum. Það er mér svo dýrmætt hversu vel þú tókstu alltaf á móti mér og mínum, hvort sem það voru krakkarnir mínir, sem minnast þín með mikilli hlýju, vinir eða erlendir gestir sem komu alla leið frá Nýja-Sjálandi og Afríku. Þú fylgdist alltaf vel með, varst forvitin um hvernig lífið gengi hjá krökkunum, hvað ég væri að brasa, hvert ferðinni væri heitið næst. Þú hafðir lúmskt gaman af því hvað fólk gat óskapast yfir þessum þvæl- ingi á mér. Þér fannst öðrum ekki koma þetta við og studdir mig heils hugar, hvort sem þetta voru námskeiðaferðir til Bret- lands eða hjálparstarf í Tansan- íu. Mikið er ég þakklát fyrir allar dýrmætu samverustundirnar okkar sl. ár, þrátt fyrir Covid- ástandið. Margt var spjallað um menn og málefni enda fylgdist þú ætíð vel með fréttum og hafðir sterkar skoðanir. Þær minningar munu ylja um ókomna tíð. Í síð- ustu heimsókninni í september fundum við báðar að þetta yrði líklega í síðasta skiptið sem við sæumst hérna megin, kveðjuorð- in hjá okkur báðum voru: „Mér þykir óskaplega vænt um þig elskuleg.“ Hafðu mikla þökk fyr- ir allt, elsku Erla mín. Sigríður Rósa Sigurðardóttir. Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, HELGA GUÐRÁÐSDÓTTIR, Kópareykjum, lést á Brákarhlíð 11. nóvember. Útförin fer fram frá Reykholtskirkju laugardaginn 19. nóvember klukkan 14. Þakkir til Brákarhlíðar Borgarnesi fyrir hlýju og umönnun. Eyjólfur Sigurjónsson Vigdís Helga Eyjólfsdóttir Sigurjón Kárason Erla Eyjólfsdóttir Jón Halldórsson Kristín Eyjólfsdóttir Guðmundur Guðlaugsson Jón Eyjólfsson Rebecca Dorn Lára Eyjólfsdóttir Sigurvin Hreiðarsson og afkomendur Ástkær faðir okkar, RAGNAR ZOPHONÍASSON, lést á Sunnuhlíð 30. október. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sunnuhlíðar fyrir góða umönnun. Helena Steinunn Ragnarsdóttir Ólafur Örn Ragnarsson Friðrik Ragnarsson Móðir okkar, amma og langamma, SIGURVEIG RÖGNVALDSDÓTTIR frá Flugumýrarhvammi, lést 11. nóvember. Hún verður jarðsungin frá Flugumýrarkirkju laugardaginn 19. nóvember klukkan 13:30. Blóm og kransar afþakkaðir. Börn og fjölskyldur Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, sambýliskona, amma og langamma, SÓLVEIG SÖRENSEN frá Ísafirði, lést á Landspítalnum í Fossvogi föstudaginn 11. nóvember. Útförin fer fram frá Garðakirkju, þriðjudaginn 22. nóvember klukkan 15. Anna Kristín Jónasdóttir Ásgerður Jónasdóttir Guðmundur Einarsson Erna Björk Jónasdóttir Kristján G. Kristjánsson Sólveig Sigríður Jónasdóttir Kjartan Jónsson Sveinn Jónsson barnabörn og barnabarnabörn Ástær móðir, tengdamóðir og amma, LAUFEY KRISTINSDÓTTIR, Boðagranda 2a, Reykjavík, lést á húkrunarheimilinu Grund laugardaginn 12. nóvember. Útförin fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn 22. nóvember klukkan 15. Þorbjörg Magnúsdóttir Ragnar Karlsson Magnús Reynir Rúnarsson Björk Úlfarsdóttir Laufey Svafa Rúnarsdóttir Kjartan Hugi Rúnarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.