Morgunblaðið - 17.11.2022, Side 52

Morgunblaðið - 17.11.2022, Side 52
MENNING52 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2022 Aldrei eins gaman að taka inn VÍTAMÍN D3000 munnúða vítamín Sniðgengur meltingarveginn Fer beint í blóðrásina Náttúrulegt piparmyntubragð Þegar sólarljósið fer minnkandi Hinn fjölhæfi auglýsingamaður, skáld, grínisti og fjölmiðlamaður Bragi Valdimar Skúlason hlaut í gær, á degi íslenskrar tungu, Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar. Verðlaunin eru veitt árlega einstak- lingi sem þykir hafa með sérstökum hætti unnið íslenskri tungu gagn í ræðu eða riti, með skáldskap, fræðistörfum eða kennslu og stuðl- að að eflingu hennar, framgangi eða miðlun til nýrrar kynslóðar. Hafa þau verið veitt á degi íslenskrar tungu allt frá árinu 1996. Segir í til- kynningu um verðlaunin að textar Braga séu „sungnir við brúðkaup, jarðarfarir og skírnir, kyrjaðir í tjaldútilegum og eru jafn ómissandi hluti af jólahaldi Íslendinga og ítölsk dægurlög“. Bragi hafi unnið markvisst að því að vekja áhuga fólks á íslenskri tungu og ræktað hana á óvenju- mörgum sviðum þar sem hann sé ekki aðeins skáld, textahöfundur og þýðandi heldur hafi hann einnig gert vinsæla sjónvarpsþætti þar sem viðfangsefnið er íslenska. Einnig hafi hann lagt til efni á vef Baggalúts og unnið að auglýsinga- gerð en þess má geta að Baggalútur hefur hlotið sérstaka viðurkenningu á þessum degi fyrir stuðning sinn við íslenska tungu. Örvuð til að nota íslensku Í ár hlaut hina sérstöku viður- kenningu sumarnámskeið fyrir börn á aldrinum 5 til 11 ára á Ísafirði sem nefnist Tungumálatöfr- ar og er ætlað íslenskum börnum sem hafa fæðst erlendis eða flutt til annarra landa og börnum af erlendum uppruna sem hafa sest að hér á landi. Börnin eiga það sameiginlegt að vera fjöltyngd og eru þau örvuð til að nota íslensku og bent á þann styrk sem felst í því að kunna fleiri tungumál en eitt, eins og segir i tilkynningu, en námskeiðinu lýkur með tungu- málaskrúðgöngu í bænum. Einnig hafa skipuleggjendur námskeiðsins staðið fyrir málþingum og vonast eftir því að Tungumálatöfrar verði uppspretta þekkingar sem geti nýst við þróun námsefnis víðar á landinu. Hina sérstöku viðurkenn- ingu hljóta Tungumálatöfrar fyrir stuðning við íslenska tungu vegna frumkvöðlastarfs á sviði íslensku- kennslu og er viðurkenningin einnig sögð hvatning til frekari rannsókna og uppbyggingarstarfs. Stórkostlegt Auglýsingamaðurinn Bragi er auðvitað önnum kafinn á sinni auglýsingastofu þegar blaðamaður slær á þráðinn til hans um miðjan dag en gefur sér þó tíma til að svara nokkrum laufléttum spurningum. Sú fyrsta er svohljóðandi: Hvernig er að vera kominn í virðulegan hóp þeirra sem hlotið hafa verðlaunin hingað til? „Þetta er bara stórkostlegt, maður verður bara litill í sér,“ svarar Bragi. „Ég hélt maður fengi þetta bara þegar maður væri orðinn gamall en svo fattaði ég að ég er að nálgast fimmtugt þannig að ég endaði eiginlega á því að verða svo- lítið fúll yfir því að hafa ekki fengið þetta fyrr. En þetta er bara ótrúlega gaman.“ Bragi bætir því glettinn við að verðlaunin séu eiginlega það eina sem íslenskufræðingar geti stefnt að á ferlinum en hann er einn slíkur. Blaðamaður viðurkennir að næsta spurning sé frekar leiðinleg en ekki verði komist hjá því að spyrja: Hefur Bragi áhyggjur af stöðu íslenskunnar? „Auðvitað er ekkert auðvelt að vera örtungumál í þessum heimi þar sem allt er í boði og stóru tungumálin flæða yfir allt og alla,“ svarar Bragi. Textað og talsett sjónvarpsefni verði, til dæmis, dálítið útundan í öllu flóðinu af slíku efni. „En í öllu þessu brasi mínu hef ég alveg séð að fólk hefur ótrúlega sterkar taugar til tungu- málsins og bara út um allt. Þetta er náttúrlega tæki sem við notum öll á hverjum einasta degi. Ég held að við séum alveg góð í bili, fólk vill halda í tungumálið og hefur sterkar skoðanir á því hvar það birtist og hvernig. Allir eru prófarkalesarar á netinu og brjálaðir í flugstöðinni ef það er enska uppi á vegg. Á meðan við viljum halda í íslenskuna verðum við að halda með henni og hjálpa henni.“ Bragi bætir við að eðlilegt sé að tungumálið breytist og þróist því um leið og búið sé að ákveða hvernig íslenskan eigi að vera sé hún steindauð. Reynir að hafa góð áhrif Sem fyrr segir er Bragi í nokkuð sérstakri stöðu þegar kemur að því að dreifa efni á íslensku því hann semur texta við dægurlög, auglýs- ingar, grínefni og hefur fjallað um íslenskt mál í tveimur þáttum á RÚV, Orðbragði og Kappsmáli. Fáir Íslendingar eru í slíkri kjörstöðu og segir Bragi vissulega magnað að hann hafi komið sér í hana. „Og auðvitað reyni ég að hafa góð áhrif og er með ágætistengslanet,“ segir hann og að mikilvægt sé að vanda sig og nýta sín störf til góðs. Íslendingar beri enda mjög sterkar taugar til tungumálsins sem sé fal- legt að sjá og heyra. „Það nær upp og niður og út í alla kima,“ segir Bragi um hið ástkæra ylhýra. Lognið gott en ekki frábært Lokaspurningin sem Bragi fær er nokkurn veginn sú sama og þátttak- endur í sjónvarpsþættinum Kapps- máli fá: Hvert er hans eftirlætisorð í íslensku? Bragi segir orðin mörg sem séu í uppáhaldi en segir svo, hægt og rólega, „logn“. Já, vissulega er það notalegt orð. En eru þá einhver orð sem hann þolir ekki? „Þau eru ansi mörg, ég þoli þau alveg en það má kannski hvíla þau stundum. Ég hugsa að „frábært“ sé þar efst á lista. Það er samt gott orð en þarf að fara sparlega með það,“ segir Bragi. Blaðamaður nefnir orðið „orð- ræða“ í framhaldi af þessum vanga- veltum, leiðindaorð það en Bragi trompar orðræðuna með hinni margnotuðu „vegferð“. „Orðræður og vegferðir og allt þetta, maður getur nú ekkert sagt þegar einhver orð komast í tísku. Maður óskar þeim bara til hamingju með það og svo detta þau út, eins og gengur,“ segir Bragi að lokum kíminn og skundar á fund. l BragiValdimarSkúlason hlautVerðlaunJónasarHallgrímssonar í gær, á degi íslenskrar tungu lSumarnámskeið fyrir börn á Ísafirði, Tungumálatöfrar, hlaut sérstaka viðurkenningu „Maður verður bara lítill í sér“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Verðlaunahafi Bragi Valdimar Skúlason tók á degi íslenskrar tungu við Verðlaunum Jónasar Hallgrímssonar. Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Þjóðin les eða hlustar að meðaltali á 2,4 bækur á mánuði, samanborið við 2,3 bækur í fyrra. Þeim fjölgar sem lesa enga bók en þeim fjölgar einnig sem lesa fimm eða fleiri bæk- ur á mánuði. Konur lesa meira en karlar og eldra fólk meira en yngra, en ekki er marktækur munur á milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggð- ar þegar kemur að lestri. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri lestrarkönnun sem Miðstöð íslenskra bókmennta stóð fyrir í haust í samstarfi við fimm aðila. Rannsóknarfyrirtækið Prósent sá um framkvæmd könnunarinnar, sem fram fór dagana 14. október til 8. nóvember 2022. Úrtakið var 2.800 einstaklingar 18 ára og eldri og var svarhlutfallið 50%. Sambæri- leg rannsókn hefur verið fram- kvæmd árlega síðan árið 2017. Þegar spurt var um lestur/hlust- un síðasta mánuð fyrir könnun sögðust rúm 40% enga bók hafa lesið/hlustað á, sem er hæsta hlutfallið á þeim sex árum sem könnunin hefur verið framkvæmd, en var rúm 32% í fyrra. Þegar spurt var um lestur/hlustun síðustu viku fyrir könnun kom í ljós að rúm 32% svarenda lásu einu sinni eða oftar á dag, þar af rúm 6% fimm sinnum eða oftar á dag, en tæp 47% höfðu ekkert lesið/hlustað á bækur. Um 65% landsmanna lesa einungis eða oftast á íslensku fremur en öðru tungumáli og 77% eru sammála því að það sé mikilvægt að þýða nýjar erlendar bækur á íslensku. 59% svarenda segjast helst lesa skáld- sögur og 52% velja helst glæpa- sögur þegar spurt er hverskonar tegund bóka fólk les/hlustar helst á. 55% svarenda fá hugmyndir að lesefni frá vinum og ættingjum, um 35% í umfjöllun í fjölmiðlum og um 31% í umfjöllun á samfélagsmiðl- um. Færri gefa bók/bækur í ár en í fyrra eða 59% samanborið við 68%. 74% svarenda telja mikilvægt að ís- lenskar bókmenntir hafi aðgang að opinberum stuðningi. Könnunina má lesa í heild sinni á islit.is. l 46,7%höfðu ekkert lesið/hlustað á bækur síðustu sjö daga fyrir könnun 32% lesa daglega Morgunblaðið/Stymir Kári Safn 34% svarenda höfðu nýtt sér þjónustu bókasafna síðasta árið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.