Morgunblaðið - 17.11.2022, Qupperneq 24
FRÉTTIR
Innlent24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2022
Í næstu viku, nánar tiltekið fimmtu-
daginn 24. nóvember, verða liðin 50
ár síðan því var fagnað við hátíðlega
athöfn á Selfossi að bundið slitlag
var komið á Suðurlandsveg, alla leið
frá Reykjavík til Selfoss.
Olíumöl var lögð á veginn en sú
gerð bikbundinna slitlaga var aflögð
með öllu hér á landi fyrir tæpri
hálfri öld. Orðið olíumöl er því ekki
nútímamanninum tamt.
Þegar bílaöldin hófst á Íslandi
var byrjað að leggja vegi. Þetta
voru malarvegir fyrst í stað, oft
holóttir og ógreiðfærir. Það var
mikil framför þegar byrjað var að
leggja bundið slitlag á vegi landsins
og vegirnir urðu sléttir og greið-
færir. Byrjað var smátt en síðan
var bætt í eftir því sem ríkissjóður
hafði efni á. Nú eru tæplega 6.000
kílómetrar af vegakerfinu á Íslandi
með bundnu slitlagi, að mestu leyti
svokölluð klæðning. Eldri kynslóðir
Íslendinga muna vel þá tíma þegar
hossast var á ósléttum malarvegum
landsins, oft í miklum rykmekki.
Hannibal og Ingólfur á Hellu
Það var að vonum talinn stór
áfangi þegar hægt var að aka frá
Reykjavík til Selfoss á bundnu
slitlagi, alls 48 kílómetra leið.
Síðasti áfanginn var vegalagning
í Kömbunum og var Ístak verk-
taki. Ástæða þótti til að efna til
hádegisverðarboðs á Hótel Selfossi
(gamla Selfossbíói) föstudaginn 24.
nóvember 1972 til að fagna vege-
gerðinni og taka veginn formlega
í notkun. Ríkisstjórnin bauð upp á
rútuferð frá Umferðarmiðstöðinni
til Selfoss fyrir gesti og í þeim hópi
var ofanritaður blaðamaður sem
fulltrúi Alþýðublaðsins sáluga. Í
minningunni þótti ungum blaða-
manni það merkilegt að vera í rútu
með mörgum helstu áhrifamönnum
landsins.
Hádegisverðinn sóttu meðal
annarra Hannibal Valdimarsson,
þáverandi samgöngumálaráðherra,
og Ingólfur Jónsson frá Hellu á
Rangárvöllum, sem hafði verið
samgönguráðherra í viðreisnar-
stjórninni 1959-1972. Ingólfur var
þingmaður Rangæinga og síðar
Sunnlendinga 1942-1978 og barðist
ötullega fyrir lagningu bundins
slitlags á Suðurlandsveginn. Margir
kölluðu veginn Ingólfsbraut í
fyrstu en það nafn festist ekki við
hann. Báðir voru þeir litríkir og
eftirminnilegir menn, Hannibal og
Ingólfur. Hannibal lést árið 1991 og
Ingólfur lést árið 1984.
Þingmenn Sunnlendinga voru
að sjálfsögðu viðstaddir hádegis-
verðinn, svo og vegamálastjóri
og fleiri embættismenn, fjöldi
sveitarstjórnarmanna, fulltrúar frá
fjölmiðlum og fleiri gestir.
Hannibal tók fyrstur til máls og
rakti sögu vegalagningarinnar, sem
hófst árið 1966. Hann rifjaði upp
að fyrsta bifreiðin hefði ekið frá
Reykjavík til Selfoss árið 1913. Með
þessum nýja vegi hefði merkum
áfanga verið náð í samgangna-
sögunni og fyndist vegfarendum nú
sem Hveragerði og Selfoss hefðu
færst nær Reykjavík. Það kom svo
í hlut Hannibals að lýsa veginn
formlega tekinn í notkun.
Ingólfur Jónsson benti á það
í ræðu sinni að vegurinn milli
Reykjavíkur og Selfoss væri með
fjölförnustu vegum landsins. Því
væri hinn nýi vegur hagsmunamál
allrar þjóðarinnar, en ekki bara
Sunnlendinga. Aðrir sem tóku til
máls voru Jón Víðis landmælinga-
maður, Óli Þ. Guðbjartsson, oddviti
Selfosshrepps, Ágúst Þorvaldsson
alþingismaður á Brúnastöðum og
Sigurður Jóhannsson vegamála-
stjóri. Hann gerði m.a. að umtals-
efni lánveitingu Alþjóðabankans
til verksins en hann lánaði sem
nam helmingi af kostnaði. Í fyrstu
hafi bankinn talið rétt að erlendir
verkfræðingar hönnuðu þetta mikla
verk. Bankinn hafi síðan sannfærst
um að íslenskir verkfræðingar væru
fullfærir um að hanna veginn.
Í minningunni fór þessi hádegis-
verður hið besta fram. Blaðamaður
hefur ekki fundið neinar myndir frá
athöfninni og engar slíkar eru til
í fórum Vegagerðarinnar. Blaða-
maður myndaði viðburðinn en þær
filmur eru glataðar. Hótel Selfoss,
vettvangur atburðarins, var rifið
árið 1986 en til stendur að endur-
byggja húsið í næsta áfanga hins
nýja stórglæsilega miðbæjar.
Ekið á bundnu slitlagi í hálfa öld
Morgunblaðið/Brynjólfur Helgason
Suðurlandsvegur Engar myndir hafa fundist frá athöfninni á Selfossi. Þessi mynd birtist í blaðinu skömmu áður og sýnir nýjan veg á lokametrunum.
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Hannibal
Valdimarsson
Ingólfur
Jónsson
lLiðin eru 50 ár síðanSuðurlandsvegur var formlega opnaðurlHannibalValdimarsson opnaði
veginnlHádegisverðarboð áSelfossi að viðstöddu fjölmennilMerk tímamót í samgöngusögunni
MiðlínanVélbúnaður var ekki
kominn til sögunnar árið 1972.
SKEIFAN 11
108 RVK.
SPORTÍS SPORTIS.IS
S:520-1000
HANNAÐ AF KONUM FYRIR KONUR!
Miðasala á tix.is
Skuggaleikhús
í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði
Frábært barna- og fjölskylduleikrit
Sýnt laugardaginn 19. nóvember kl. 14.00