Morgunblaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 36
Umræðan MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2022 Fyrir nokkrum árum kom út ævisaga Guðna Ágústssonar frá Brúna- stöðum, Guðni af lífi og sál, en síðan hefur Guðni skrifað nokkrar bækur. Nú kemur út ný bók þar sem Guðni lítur sjálfur yfir liðna tíma, atburði og ferðafélaga, liðna og lifandi, frá upp- vaxtarárum sínum. Fengur er að þessum minningum Guðna, frásögnum af sveitungum og samferðamönnum, tvinnað saman af velvilja og glettni Guðna. Í bókinni heyrir maður hljóma sterka og hljómmikla rödd drengsins frá Brúnastöðum er hann segir frá líf- inu í Flóanum og fólkinu þar. Guðjón Ragnar Jónasson ritar bókina eftir sögu Guðna og nær vel að fanga tíð- arandann. „Minningarnar merla æ, í mána- skini hvað sem var, yfir hið liðna bregður blæ, blikandi fjarlægðar.“ Guðni er löngu þjóðkunnur af ræðum sínum og frásögnum og mörgum Flóamönnum mun þykja gott að til verði frásagnir af atvik- um úr ævi þeirra í frá- sögn sagnamannsins frá Brúnastöðum. Guðni er eftirsóttur á mannamótum vegna frásagnarhæfni sinnar, sterkrar og djúprar raddar sinnar, frásagn- ar sinnar og hversu honum tekst að flétta inn í ræður sínar glettn- ar tilvitnanir um ein- staklinga og atvik og tengja jafnvel helstu persónum fornsagnanna. Margvíslegar tilvitnanir í fer- skeytlur sýna rót ferskeytlunnar í Flóanum: Dæmi er vísa Guðmundar frá Oddgeirshólum: Enginn nóg úr býtum ber brellin er vor glíma. Nægjusemi ekki er aðal vorra tíma. Svo mjög sem enn bergmála sagnir af höfðingjanum Ágústi á Brúnastöð- um er ekki vafi að nú er frægð Brúna- staða mest tengd Guðna. Leikni Guðna þegar hann vitnar til sveitunga sinna er slík að það er sem persónur verði ljóslifandi, ævinlega hnyttnar sögur sagðar af vinsemd og virðingu. Merkilegur er þó draumur Bjarna Stefánssonar í Túni og minnir hann helst á drauma í Sturlungu. Bjarna dreymir slíkan draum um átök í Framsóknarflokknum. Hann sá sig því knúinn til að vara sveitunga sinn við að Halldór Ásgrímsson muni hafa horn í síðu hans og vilja skipta honum út sem ráðherra. Margir munu hafa ánægju af lestri þessarar bókar. Minningar og ævintýri, Flói bernsku minnar Guðmundur G. Þórarinsson » Í bókinni heyrir maður hljóma sterka og hljómmikla rödd drengsins frá Brúnastöðum er hann segir frá lífinu í Flóan- um og fólkinu þar. Guðmundur G. Þórarinsson Höfundur er verkfræðingur. gudm.g.thorarinsson @gmail.com 1 ttu þinna handa Sigurðardóttir Guðni Flói bernsku minnar Guðjón Ragnar Jónasson Orri óstöðvandi Draumur Möggu Messi Bjarni Fritzson Keltar Þorvaldur Friðriksson Hva David Walliams Guli kafbáturinn Jón Kalman Stefánsson 2 3 7 9 8 10 6 4 Metsölulisti Vikuna 09. nóvember - 15. nóvember G Y 5 Reykjavík glæpasaga Ragnar Jónasson og Katrín Jakobsdóttir Játning Ólafur Jóhann Ólafsson Eden Auður Ava Ólafsdóttir Kyrrþey Arnaldur Indriðason Salka - Tímaflakkið Bjarni Fritzson Amma glæpon enn á ferð David Walliams Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Skoðið hjahrafnhildi.is Goldbergh kynningarpartý í dag ámilli kl. 16 og 18 Allir semmáta Goldbergh geta unnið gjafabréf að andvirði 100.000 kr. á Goldbergh fatnaði Tilfinningin þegar ég átta mig á hvað lífið er stutt er óútskýranleg. Allt sem ég hef upplifað hingað til, 20 ár, er stuttur tími, en samt lang- ur, því hann er allt sem ég veit og þekki. Tilfinningin þegar ég hugsa um að upplifa þessi 20 ár aftur er skrítin. Mér líður vel af því ég hugsa um allar góðu stundirnar sem ég hef upplifað, en vá hvað þetta er í raun stuttur tími. Því hér er ég, fullorðinn einstaklingur í samfélagi sem hefur breyst gríð- arlega síðan ég var krakki. Hvert fór tíminn? Eftir 20 ár verð ég orðin 40. Ég veit að þegar ég verð 40 ára á ég eftir að hugsa til baka til þess stutta tíma sem ég hef lifað. Ég á eftir að hugsa um hvað tíminn hefur liðið hratt, alveg eins og ég geri núna sem 20 ára einstaklingur. Svo mun ég, 40 ára, hugsa um tilfinninguna að endur- taka þessi 40 ár. Vonandi get ég rifjað upp allar góðu minningarnar, en ég veit að sorg og tár verða stór hluti af þeim. Tilfinningin verður jafnvel skrítn- ari með aldrinum eða kannski skilj- anlegri. En ef þessi 40 ár endur- tækju sig yrði ég orðin 80 ára. Ef ég verð 80 ára mun ég líklega hugsa um fortíðina sem gærdaginn. Vá hvað þessi 80 ár hafa liðið hratt, myndi ég hugsa. En í dag finnst mér skrítið að hugsa um framtíðina, 80 ára gamla ég er svo fjarri mér, en ég veit að þegar kemur að því, þá er þetta alls ekki langur tími. Tíminn er naumur, því er mikilvægt að gera það besta úr honum. Eva Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Hugvekja um tímann Ljósmynd/Unsplash, Aron Visuals Hratt líður stund „Í dag finnst mér skrítið að hugsa um framtíðina.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.