Morgunblaðið - 17.11.2022, Síða 10

Morgunblaðið - 17.11.2022, Síða 10
FRÉTTIR Innlent10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2022 holabok.is • holar@holabok.is ÚTGÁFUTEITI INGVARSBÓKAR Í dag, kl. 17-18:30, verður haldið útgáfuteiti í Sjónarhól, félagsheimili FH í Kaplakrika, vegna útkomu ævisögu Ingvars Viktorssonar. Þar verður bókin kynnt - sögur munu því fljúga - og hún árituð fyrir þá sem vilja. Áskrifendur fá eintök sín afhent og auðvitað verður gott í gogginn og eitthvað rennandi með. Allir velkomnir! Hlýviðri í Reykjavík nú í nóvember er langt fyrir ofan meðaltal. Þetta kemur fram í pistli sem Trausti Jónsson veðurfræðingur birti á bloggsíðu sinni, Hungurdiskar, í gær. Fram kemur í pistli Trausta að meðalhiti í höfuðborginni í fyrri hluta yfirstandandi mánaðar sé +5,2 stig, eða +2,4 stigum ofan meðallags áranna 1991-2020. Þetta er jafnframt +1,9 stigum ofan með- allags síðustu tíu ára. Þessir dagar eru þeir næsthlýjustu á öldinni í Reykjavík. Talsvert hlýrra var 2011, meðalhiti þá +6,7 stig. Kald- astir á öldinni voru sömu dagar árið 2010, meðalhiti -0,5 stig. Sé litið yfir þær hitamælingar sem tiltækar eru þá er nóvember 2022 í 5. efsta sæti af 149 árum sem eru á lista. Langhlýjast var 1945, meðalhiti fyrri hluta nóvem- ber þá +8,2 stig og +7,1 árið 1956. Kaldast var 1969, meðalhiti -2,6 stig Á Akureyri hefur einnig verið hlýtt, meðalhiti fyrstu 15 dagana er +3,9 stig. Það er +2,6 stigum ofan meðallags 1991 til 2020, og +1,7 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára. Úrkoma var lítil fyrstu dagana í Reykjavík, en hefur nú mælst 47,1 mm – og er það í meðallagi. Á Akureyri hefur úrkoman mælst 55,2 mm og er það um 50 prósent umfram meðallag. Sólskinsstundir hafa mælst 23 í Reykjavík sem er í meðallagi. Á Akureyri hafa stundirnar mælst 6, lítillega undir meðallagi. „Þó allramesti broddurinn sé e.t.v. úr hlýindunum að sinni er enga kalda daga að sjá á næstunni. Vel má því vera að hiti eigi enn eftir að þokast ofar á hitalistum,“ segir Trausti Jónsson á bloggsíðu sinni. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Kvöldsól Ekkert hefur verið yfir veðrinu að kvarta undanfarið. Hlýindin vel yfir meðaltali í nóv- embermánuði lÚrkoma lítil og sólskinsstundir í meðallagilEnga kalda daga er að sjá Meira fallegt inn á Dimmalimmreykjavik.is Jólaföt og skór Fallegar gjafir í mjúka pakkann Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17 DIMMAL IMM Jól-Jól-Jól Guðni Ágústsson fyrrverandi ráðherra stendur fyrir málþingi um Njáls sögu á laugardag, 19. nóvem- ber, kl. 13.30. Það verður haldið á hótelinu Midgard á Hvolsvelli. Á málþinginu verður rætt um gildi sögunnar og hún sett í sam- hengi nútímans. Þeirri spurningu verður velt upp hvernig nota megi söguna til að styrkja ferðaþjón- ustuna í Rangárþingi. „Njála er náttúrlega stórbrotin saga og fyrir þrjátíu árum settu Rangæingar Sögusetrið í gang með gríðarlegum árangri í ferðaþjón- ustu. Jón Böðvarsson, Sigurður Hróarsson og Arthur Björgvin Bollason voru þarna lykilmenn og svo heimamenn náttúrlega. Þeir vöktu ferða- og sagnamenningu í Sögusetrinu og voru langfyrstir til þess að fara í svona verkefni,“ segir Guðni. Hann nefnir að Landnámssetrið í Borgarnesi, sem byggt er á svipaðri hugmynd og Sögusetrið á Hvolsvelli, njóti nú mikilla vinsælda. Á málþinginu verður meðal annars horft til þess hve vel hefur tekist til þar og hvernig megi á sama hátt gera sagnaarfinum hátt undir höfði í Rangárþingi enda segir Guðni setur af þessu tagi vinsæl meðan ferðamanna, íslenskra sem erlendra. „Svo hafa magnaðar konur í Rangárþingi saumað þennan mikla refil úr Njálssögu, níutíu metra langan,“ bendir Guðni á. Ríkisstjórnin hefur veitt umsjónar- mönnum refilsins 25 milljóna styrk til þess að hægt sé að finna honum framtíðarheimili og því ærið verk fyrir höndum. „Það er von mín að Rangæingar blási nýjum eldi í glæð- urnar, taki þetta verkefni föstum tökum og standi vel að því.“ Ísólfur Gylfi Pálmason mun stjórna málþinginu. Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri Rangár- þings eystra og Lilja Dögg Alfreðs- dóttir menningarmálaráðherra ávarpa fundinn. Þá ræðir Arthur Björgvin Bollason um Njálu á staf- rænni öld, Gunnhildur Edda Krist- jánsdóttir segir frá Njálureflinum, Hermann Árnason ræðir ferð Flosa frá Svínafelli á Þríhyrningshálsa og Hjálmar Árnason mælir fyrir minni Jóns Böðvarssonar. lGuðniÁgústsson boðar tilmálþings áHvolsvelli Njáls saga og tæki- færi samtímans Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Njáluslóðir Söguslóðir Njálu má einna helst finna í Fljótshlíð. Þar stendur hin fagra Hlíðarendakirkja nú. Guðni Ágústsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.